Morgunblaðið - 22.12.1987, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 22.12.1987, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987 fU*V0l Útgefandi Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjöm Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, simi 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 600 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 55 kr. eintakiö. Tímaþröng á þingi Líkur standa til þess að Al- þingi starfí á milli jóla og nýjárs. Það hefur ekki skeð síðan 1958. Þá baðst vinstri stóm Hermanns Jónassonar lausnar í desembermánuði, að Qárlögum óafgreiddum. Ástæð- an var ágreiningur við verka- lýðshreyfínguna um frestun verðbóta á laun, sem var liður í ráðgerðum eftiahagsaðgerð- um og verðbólguvömum stjóm- valda. Við tók minnihlutastjóm Emils Jónssonar. Hún var und- anfari viðreisnarstjómarinnar, sem þrír formenn Sjálfstæðis- flokks leiddu, hver eftir annan. Sú stjóm var bæði langlíf og farsæl. Verðbólga var að með- altali innan við tíu prósent á ári — á ellefu ára starfsferli hennar. Líkur standa jafnframt til þess að Alþingi hefji störf ein- hvem fyrstu daga hins nýja árs, jafnvel 4. janúar, en oft hefixr starfshlé þingsins yfír jól og áramót staðið fram yfír miðj- an mánuðinn. Ástæða þess að Alþingi breytir starfsháttum að þessu leyti er sú, að mörg og viðamikil mál hafa safnast sam- an til afgreiðslu á síðustu þingvikum. Það hefur að vísu áður skeð en ekki í jafn ríkum mæli sem nú. Enginn vafí er á því að nýjar þingskapareglur, sem þetta þing starfar eftir, skapa skil- yrði til bættra þingstarfa. Þær hafa þó ekki dugað til þess að starfshættir þingsins, það sem af er vetri, geti talizt eftir- breytni verðir. Orsökin er margþætt. í fyrsta lagi er nauð- synlegt að stjómarfrumvörp, sem fá eiga afgreiðslu fyrir áramót, séu lögð fram fyrr á starfstíma þingsins en raun varð á nú. Spuming er jaftivel, hvort ekki þurfí að binda í starfsreglur Alþingis að fmm- vörp, sem fá eiga afgreiðslu fyrir áramót, skuli lögð fram fyrir einhvem tilskilinn tíma, til dæmis 20. nóvember. Stjóm- arfmmvörpum má og dreifa jafnar á starfstíma Alþingis, til að nýta hann betur — sem og þingdeildir. Mergurinn málsins er þó sá að ná sæmilegri sátt milli stjómar og stjómarand- stöðu um vinnulag þingsins á mestu álagstímum þess. Það hefur jafnan tekizt, þótt dýpra virðist á slíku samkomulagi nú en áður. Hvað veldur skal ósagt látið, en Qölgun þingflokka auð- veldar ekki sátt af þessu tagi. Það er á hinn bóginn hvorki í anda lýðræðis né þingræðis að stjómarandstaða tefji eða tor- veldi meirihluta löggjafarsam- komunnar — með málþófí — að koma fram málum sínum. Stjómarandstaða verður hins- vegar að fá eðlilegan tíma til að tíunda sín sjónarmið. Meðal stórra mála, sem þetta þing hefur fjallað um, era hús- næðislánakerfíð og fiskveiði- stefnan, auk fjárlaga og lánsfjárlaga. Óvenju mörg og mikilvæg frumvörp tengjast síðan flárlagaframvarpinu, enda má segja að tekjukerfí ríkisins sé nánast stokkað upp, samhliða því að stefnt er að breyttri verkaskiptingu ríkis og syeitarfélaga. Staðgreiðsla skatta hefst eftir fáeina daga, í endað „skattlaust ár“. Og þær söluskattsbreytingar, sem stefnt er að, era skref í átt að virðisaukaskatti. Slíkur skattur hefur verið tekinn upp í flestum viðskiptalöndum okkar. Líkur standa til að hann verði lögtek- inn fyrir næsta ár. Tilgangur uppstokkunar tekjukerfis ríkisins er marg- þættur. Skattakerfið er einfal- dað. Eftiriit með réttum skattskilum er auðveldað. Inn- flutningsgjöldum breytt til að færa þá verzlun frekar inn í landið, sem landsmenn hafa í stríðum straumum sótt til út- landa. Þar fylgir hinsvegar böggull skammrifí, er undan- þágum söluskatts er fækkað. Tiltekin matvæli hækka í verði. Ríkisstjómin staðhæfír að sú hækkun sé bætt eftir öðram leiðum. Stjómarandstaðan talar hinsvegar um „matarskatt", sem gangi þvert á meint sósíal- demókratísk viðhorf. Fjárlagadæmið skarast síðan við þann efnahagsvanda sem við blasir um áramót: nauðsyn þess að draga saman þorskafla, versnandi viðskiptalg'ör (m.a. vegna slæmrar stöðu Banda- ríkjadals), minnkandi hagvöxt, vaxandi viðskiptahalla, efa- semdir um úthald fastgengis- stefnunnar — og ýmiss konar verðbólguteikn. Fjárlagadæmið skarast ekki síður við þá kjara- sátt, sem aðilar vinnumarkað- arins verða að ná saman um undir hækkandi sól hins nýja árs. Sameinuð stendur þjóðin af sér vandamálin. Sundrað uppsker hún vorið frá 1983. MÁLARIBLÓ OG BIRTUSK Á Austurvelli um eða eftir 1920. Yst til vinstri stendur Valtýr Stefánsi Stefánsson, Kristín Jónsdóttir og Muggur (sitjandi). Myndlist Bragi Ásgeirsson Fyrir fjórum árum gaf bókaút- gáfan Þjóðsaga út veglega lista- verkabók um Þorvald Skúlason, sem er ein hin glæsilegasta slíkra bóka, er litið hafa dagsins ljós hér- lendis. Bókina hannaði útgefand- inn, hinn annálaði smekkmaður, Hafsteinn Guðmundsson, en Bjöm Th. Bjömsson, listsagnfræðingur, var höfundur umfangsmikils texta í 32 köflum, þar sem hann þræddi lífs- og listferil Þorvaldar. Nýlega kom svo önnur bók út frá þessu forlagi og er hún um Kristínu Jónsdóttur frá Amamesi við Eyja- fjörð, sem var fyrst íslenzkra kvenna til að gera málaralistina að ævistarfi — var hér aðeins á undan Júlíönu Sveinsdóttur. Aðalsteinn Ingólfsson, listsagnfræðingur, hef- ur ritað texta bókarinnar og þræðir mjög í fótspor starfsbróður síns um tíð kaflaskipti, en þeir em þó held- ur færri eða 26 talsins. — Það sætir jafnan miklum tíðindum, er jafn veglegar lista- verkabækur koma á markaðinn og auðga þær bókmenntir, sem fyrir em, um íslenzka myndlist. Lengi var ekki um auðugan garð að gresja á því sviði, og enn em margar gloppur og ótrúlega njargt ógert varðandi hlutlausa miðlun upplýs- inga um einstaka listamenn svo og þróunina almennt. Og eins og Aðal- steinn Ingólfsson áréttar réttilega í viðtali hér í blaðinu, „þá veit marg- ur grátlega lítið um ýmsa burðarása í íslenzkri listasögu." Ekkert mjmdlistarmannatal er til né hlutlaus yfírsýn yfír þróunina og einkum frá stríðslokum fram á daginn í dag, og í raun býður heil- mikið rannsóknarefni íslenzkra sagnfræðinga á myndlistarsviði — hins vegar er sýnu meira til um hlutdræga miðlun og umfjöllun. Á þetta hljóta ungir sagnfræðingar að reka sig illilega, þegar þeim er falin samantekt bóka um löngu gengna myndlistarmenn. Einnig telst það hárrétt hjá Aðal- steini, „að bækur sem slíkar þurfi mikillar undirbúningsvinnu við, sem útgefendur eru yfírleitt tregir til að greiða fyrir". Hið sfðasttalda er mjög eðlilegt, því að ef vel ætti að vera, eru 1—2 ár minnsti hugsan- legi tími til rannsókna og gagnaöfl- unar, áður en hafíst er handa um endanlega samantekt hinna meiri- háttar listaverkabóka, er marka spor í listasöguna, og þá einkum, ef byggt er frá grunni vegna ónógr- ar þekkingar. Kristfn Jónsdóttir er vel að þeim heiðri komin, að bók sé gefín út um æviverk hennar, því að hún var ekki einasta merkur málari heldur mikill áhrifavaldur í íslenzkri lista- pólitík. Áhrifavaldur, sem tók einarðlega afstöðu með umdeildum vaxtarsprotum f íslenzkri myndlist, þótt það kostaði hana ónáð og fá- læti ýmissa samtíðarmanna hennar í listinni. Hún hafði aðstöðu til að hafa drjúg áhrif bæði sem virt lista- kona og svo vegna þess að eigin- maður hennar, Valtýr Stefánsson, var ritstjóri stærsta dagblaðs þjóð- arinnar og lét sér annt um að halda í gangi menningarmálaumræðu á síðum þess. Það gustaði af þeim hjónum á fslenzkum þjóðmála- og menningar- vettvangi um áratuga skeið, og er það talandi tákn um víðsýni þeirra, að húsið á Laufásveginum, þar sem þau bjuggu alla tíð, var opið lista- mönnum án tillits til stjómmála- skoðana og réð þar manngildi viðkomandi öllu öðru fremur. Ég var lengi vel undir sömu sök- ina seldur og fleiri varðandi ónóga, þekkingu á umfangi listar Kristínar Jónsdóttur, sem þó var eðlilegt svo sem fram kemur í eftirfarandi línum, er ég reit í tilefni af yfírlits- sýningu á verkum hennar á Kjar- valsstöðum á Listahátíð árið 1980: „Greinarhöfundur taldi sig þekkja harla vel til brautryðjenda og þró- unar íslenzks landslagsmálverks og myndlistar yfirhöfuð allt þar til hann leit þá sýningu á verkum Kristínar Jónsdóttur (1888—1959), er sett hefur verið upp á Kjarvalsstöðum í tilefni af Listahátíð 1980. Einhvers staðar stendur skrifað „það er mannlegt að skjátlast“ og í þessu tilviki tek ég meintri yfírsjón minni með gleði, því að það er sannarlega ánægju- legur viðauki við íslenzka mynd- hefð, er við blasir. Vitaskuld var mér fullljóst, að Kristín væri ágæt- ur málari, en var þó ekki alveg viss um stöðu hennar og styrk innan íslenzkrar myndlistar. Þess ber þó að gæta, að það er ekki mikið að vöxtum, sem sést hefur opinberlega af verkum listakonunnar á undan- fömum áratugum. Sérsýning hennar í Listamannaskálanum 1952 sá ég ekki, enda var ég þá á Spáni í námsferðalagi, og sýning á síðustu verkum Kristínar í Bogasal 1962 gaf eðlilega ekki neina heild- armynd af lífsverki hennar. — Engin bók hefur ennþá verið gefín út um list og lífsferil Kristínar Jóns- dóttur, og er hér enn eitt dæmið um vanrækslu þjóðárinnar við að kynna list sinna mestu afreks- manna á sviði myndmennta — hingað til hefur allt slíkt framtak verið í höndum hugumstórra ein- staklinga, svo sem allir vita, er til þekkja. Auðvitað þekkja flestir listamenn til Kristínar Jónsdóttur sem málara, mikil ósköp, en það er nú fyrst við skoðun umræddrar sýningar, að það rennur upp fyrir mörgum, af hvaða stærð hún var í list sinni og það hefði að ósekju mátt ske fyrr." Mér þótti þetta upphaf umfjöllun- ar minnar um yfirlitssýninguna falla vel að umsögn um bók þá, sem loks er komin út um þessa ágætu listakonu, því að hún undirstrikar vel, hvílíkur hvalreki bókin er fyrir alla þá, sem vilja fræðast um íslenzka myndlistarsögu. Og um leið staðfestir hún þá fullyrðingu, að framtakið sé enn í höndum hug- umstórra einstaklinga, hvað það snertir að uppfræða þjóðina um þá menn og konur, sem við getum þakkað okkar fjölþætta mjmdlistar- arf. — Kristín Jónsdóttir hlaut hina ágætustu menntun í mjmdlist í Kaupmannahöfn, fyrst í undirbún- ingsskóla en síðan I listaháskólan- um við Kóngsins Nýjatorg. Dvaldi svo um árabil í borginni við sundið og forframaðist í listinni, áður en hún sneri alfarið heim til búsetu. Það var mikið að gerast í Dan- mörkú og á Norðurlöndum á mjmdlistarsviðinu á þessum árum, ekki síður en sunnar í Evrópu. Frægð Norðmannsins Edvards Munch reis hátt, málara djúphygli og innsærrar skynjunar — danski Skagen-málarinn, Peter Severin Kröyer, hafði látist árið 1909 (sem var sama árið og Kristín hóf list- nám) aðeins 58 ára að aldri — hann var málari lífsfögnuðar, birtu og ljóss. Vilhelm Hammershöi, málari hinna kyrrlátu stemmninga og mettuðu gráu tónskala, var frægur um alla Evrópu, en lést þunglyndur og vonsvikinn í Kaupmannahöfn 1916. Þetta þrístimi, sem átti svo fátt sameiginlegt, hefur einmitt hin síðari ár vakið mikla athygli á sýn-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.