Morgunblaðið - 22.12.1987, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 22.12.1987, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987 Stjórnandiim kominn út NÝ BÓK er komin út hjá Vasa- útgáfunni, Stjórnandinn eftir Ólaf M. Jóhannesson. Höfundurinn, Ólafur M. Jó- hannesson, hefur tekið sér fyrir hendur af skyggnast til 21. aldar og gera sér í hugarlund hvað muni gerast í framhaldi af hinni miklu upplýsingabyltingu, sem nú er að hellast yfír okkur, en undir- titill bókar er: Handbók fyrir stjómendur framtíðarinnar, er lýsir, hvemig ná má völdum og halda þeim í upplýsingasamfélag- inu, svo lítið beri á. í bókinni kemur Ólafur M. Jó- hannesson ekki aðeins fram með hugmyndir um nýskipan stjóm- kerfísins heldur og atvinnulífsins, peningakerfísins, menntakerfis- ins, menningarlífsins, heilsugæsl- unnar, náttúmvemdar, upplýs- ingamiðlunarinnar, fyrirtækja- rekstrarins, eignarhaldsins og síðast en ekki síst kemur höfund- ur fram með byltingarkenndar hugmyndir um nýskipan fjölskyl- dunnar í víðasta skilningi. Bókin um Stjómandann er af- ÓLAFUR M. JÓHANNESSON: J Handbók fyrií StjánwMtoz (zarráíöarínnaz. ©r )ý»r. fepomig tA tni vflkfcun og haid* þe;m í Dppiýsjngasamíéiaginu, — wo líáð berí 4. rakstur ríflega áratugar hugleið- inga og efnisöflunar höfundar og er hún rituð á lipm og auðskiljan- legu alþýðumáli enda ætluð hversdagsmönnum 21. aldar sem einskonar handbók eða vegvísir, vafalaust sá fyrsti sinnar tegund- ar. (Fréttatilkynning) Sighvatur Björgvinsson, formaður fjárveitinganefndar: Framlög til Ríkisspítal- anna hafa hækkað mikið „ÞETTA er of i lagt hjá forstjóra Ríkisspítalanna og virðist mér hann i athugasemdum sínum líta fram hjá þvi hverjar breytingar hafa orðið á framlögum til Rikisspítalanna i meðförum fjárlagafrum- varpsins á Alþingi og sem honum er fullkunnugt um,“ sagði Sighvatur Björgvinsson formaður fjárveitinganefndar Alþingis i samtali við Morgunblaðið i tilefni þeirra ummæla Davíðs Á. Gunnarssonar, for- stjóra Ríkisspítalanna, í Morgunblaðinu, að 150—200 miUjónir vantaði á fjárlögum til að ætlanir stjórnarnefndar Rikisspítalanna stæðust. Sighvatur sagði að við aðra um- ræðu hefðu verið teknar ákvarðanir um aukið framlag til hjartaaðgerða, úr 2 milljónum í 3, þannig að búið væri að útvega þær 8,5 milljónir sem fyrirhugað væri að í þær færi á næsta ári. Einnig væri búið að ákveða að veija 13 milljónum til viðbótar til tælqakaupa og stofn- kostnaðar og heimild hafi verið veitt fyrir nokkurri §ölgun á stöðugild- um. „Fjárveitinganefnd hefur og gert tillögu fyrir þriðju umræðu fjárlaga um hækkun framlaga til K-byggingar Landspítalans og fjár- málaráðherra mun taka lán samkvæmt heimild á lánsfjárlögum til hennar. Þetta er forstjóra Ríkisspítalanna fullkunnugt um og því kemur það mér mjög á óvart að hann skuli tala eins og honum sé ókunnugt um þessar breyting- ar,“ sagði Sighvatur. Sighvatur sagði það vera vanda Ríkisspítalanna hversu launa- greiðslur hefðu farið langt umfram áætlun. Yfírvinnu- og álagsgreiðsl- ur og yfirborganir væru um 95% ofan á föst laun, eða nær tvöföld- un. Kvað hann stjóm Ríkisspítal- anna hafa farið fram á 2% hækkun álagsins, en því verið hafnað. „Það er ekki unnt að hækka álagsgreiðsl- ur árlega, heldur verður að leita annarra iausna,“ sagði Sighvatur og benti á að ef við þessum óskum hefði verið orðið, hefði það kostað ríkissjóð 300—400 milljónir auka- lega. Taldi Sighvatur tímabært að fara ofan í launakostnað Ríkisspít- alanna með það til dæmis að sjónarmiði að koma álags- og yfír- vinnugreiðslum inní samninga sem fostum launagreiðslum. Spádómsbók ÚTGÁFUFÉLAGIÐ Bros hf. hef- ur gefið út Spádómsbókina eftir Guðna Björgólfsson íslenskukenn- ara frá Akranesi og er þetta fyrsta bók höfundar. í fréttatilkynningu segir m.a. að Spádómsbókin sé afurð margra ára heimildaskoðunar og vangaveltna. Hún er skrífuð með hliðsjón af reynslu flölda einstaklinga sem stundað hafa spádóma auk þess sem stuðst hefur verið við fræðirit innlend sem erlend. Hér er allt samankomið í einni bók; lófalestur, spilaspá, ta- rot- og bollaspá. Bubbi kóngur mark- aðshyggjunnar eftir Steinar Berg Fólk gerir sér sjálfsagt að ein- hveiju leyti grein fyrir því að talsvetð átök fylgja samkeppninni um hylli þess. Samt hafa þessi átök alltaf tekið mið af því að við búum í litlu samfélagi og því verið innan ákveðinna marka, þannig að þó ekki séu allir sáttir við allt sem all- ir gera hefur ekki átt sér stað opinbert persónuníð á samkeppnis- aðilana. Þetta gilti fram til sunnudagsins 20. desember 1987, þegar markaðs- kóngurinn Bubbi Morthens steig fram á síður Morgunblaðsins, einu sinni sem oftar undir leikstjóm Áma Matthíassonar, og lét hafa eftir sér rakalausar og ómerkilegar fullyrðingar um samkeppnisaðila sína í útgáfu- og tónlistarmálum. Ég gat ómögulega á mér setið, þessu varð að svara. Yfirlýsinga- gleði Bubba er með eindæmum, og hingað til hefur hann ekki þurft að standa við eitt einasta orð. Það er kominn tími til að einhver láti heyra í sér svo hann trúi þvf ekki alfarið að hann sé einn á sviðinu og geti komist upp með hvaða kjaftæði sem er. Áður en ég sný mér að því að svara beint skítkasti kóngsins ætla ég að leitast við að upplýsa lesend- ur um leikmynd þá og sviðsbúnað sem búin hefur verið til fyrir Bubba af útgefendum hans. Sagt er að Bubbi og Grammið hafí notið leiðsagnar sænsks mark- aðssérfræðings við útgáfu „Frelsi til sölu“, og að kerfí því sem sá dró upp sé fylgt út í ystu æsar. Nú veit ég ekki hvort tilvist þess sænska er sönn, en hitt er víst að ákveðinni taktík hefur verið fylgt í markaðssetningu á Bubba Mort- hens. Saftiað hefur verið saman mikl- um halelúja kór, sem blessar allt sem Bubbi og Grammið láta frá sér fara, helst löngu áður en til útgáfu kemur. Kórstjóri er Ámi Matthías- son poppskríbent Morgunblaðsins, en jafnframt er kórfélaga að fínna inni á nokkrum helstu fjölmiðlum landsins. Þeir boða sýknt og heilagt að Bubbi og Megas séu hálfguðir og að sölulisti svokallaðra óháðra plötufyrirtækja í Bretlandi sé tón- listarbiblía. Það getur vel verið að ég fjalli um þennan þátt ítarlegar seinna, en kemst þó ekki hjá þvf að benda á hlutverk kórstjórans Áma Matthíassonar. Hans hlutverk er jú að leiða sam- kunduna og halda nafni Bubba og annarra flytjenda sem tengjast Gramminu stöðugt inni á síðum Morgunblaðsins. Hann kyndir undir með því að flalla um plötuna meðan hún er í vinnslu, með 2—3 greinum þar um. Hann setur fram fullyrðing- ar í fyrirsögn og dómi að þetta sé það besta sem Bubbi hafi gert, í yfirgengilega jákvæðri halelúja umíjöllun, áður en til útgáfu kem- ur. Hann fylgir þessu síðan eftir með markaðsupplýsingúm um sölu- tölur, vinsældalistastöður og nú viðtali, og því er hampað að Bubbi sé mestur og bestur. Nú Grammið fylgir þessu síðan eftir með auglýs- ingum þar sem vitnað er í kórstjór- ann og aðra kórdrengi, öllu lofínu til réttlætingar. Svo þegar Bubbi, Megas, Sykurmolarnir, Bleiku bast- amir, Svart-hvítur draumur, Johnny Triumph, eða aðrir sem tengjast Gramminu spila opinber- lega birtast þessir líka fínu dómar. Stundum fá yngri mennimir þó að heyra föðurlegan umhyggjutón Áma, þessa sjálfskapaða guðföður íslenskra bílskúrshljómsveita. Allir þeir sem eitthvað fylgjast með vita um hvað ég er að tala. Það stendur ekki á halelúja dómum og um spilamennsku íslenskra og erlendra flytjenda ef þeir tengjast Gramminu. Síðustu hljómamir eru varla hljóðnaðir þegar lofið birtist í Morgunblaðinu. Á sama tfma eru aðrir flytjendur meira og minna sniðgengnir og látið líta út að allt sem raunverulega er að gerast í íslensku tónlistarlífí tengist einu útgáfufyrirtæki og að samkeppnin sé engin eins og segir í halelúja- dómi um spilamennsku Bubba kóngs í Óperunni fyrir fáeinum dögum. Það er ekki að furða þó urgur sé í flestum þeim hljómsveit- um og flytjendum sem svo til algerlega hefur verið úthýst af poppsíðum Morgunblaðsins, þó þeir hafí verið að gefa út hljómplötur og spila opinberlega fyrir fjölda fólks undanfamar vikur. Með þeim hefði verið fylgst betur og af meiri Steinar Berg ísleifsson „Ég gat ómögulega á mér setið, þessu varð að svara. Yfirlýsinga- gleði Bubba er með eindæmum, og hingað til hefur hann ekki þurft að standa við eitt einasta orð. Það er kominn tími til að ein- hver láti heyra í sér svo hann trúi því ekki alfar- ið að hann sé einn á sviðinu og geti komist upp með hvaða kjaftæði sem er.“ áhuga ef þeir hefðu verið á útgáfu- samning hjá rétta fyrirtækinu. í ljósi þeirrar myndar sem hér hefur verið dregin upp verður svar Bubba skiljanlegt, þegar hann svar- ar spumingu Ama Matthíassonar, „Ert þú búinn að selja þig; hefur þú gengið markaðsöflunum á hönd? Nei, nei (hlær), markaðsöflin eru búin að beygja sig fyrir mér.“ Og síðar... „það er minn stærsti metnaður í plötusölu að Jón Óiafs- son og Steinar verði númer tvö og Grammið númer eitt, (hlær).“ Markaðskóngurinn heldur svo áfram að ausa úr viskubrunni sínum: „Markaðurinn fer bara alltaf ódýrustu leiðina til að ná í sem mestan hagnað og fífla fólkið sem mest. Eins og þetta með falsaðar sölutölur í jólaplötuflóðinu, það er árviss viðburður að þessir stóru útgefendur ljúgi til um tölur." Vegna þessarar ósvífnu fullyrðing- ar vil ég taka eftirfarandi fram: Samband hljómplötuframleið- enda samþykkti sl. haust nýjar reglur hvað varðar veitingu gull- og platínuplatna sem eru alþjóðleg- ur mælikvarði á sölutölur, þ.e. að gullplata skyldi veitt fyrir sölu á yfir 3.000 eintökum og platínuplata á sölu yfír 7.500 eintökum. Innan sambands hljómplötuframleiðenda eru öll helstu hljómplötuútgáfufyr- irtæki landsins s.s. Fálkinn, Steinar, Gramm, Skífan, Geimsteinn o.fl. Reglur vegna afhendingar gull- eða platínuplatna kveða á um að Gunn- ari Guðmundssyni framkvæmda- stjóra Sambands hljómplötufram- leiðenda beri að staðfesta söluna áður en afhending fer fram, og hefur hann aðgang að öllum sölu- gögnum úr bókhaldi fyrirtækjanna þessu til staðfestingar. Steinar hf. hafa fylgt þessum reglum og í öllum tilfellum hefur framkvæmdastjóri Sambands hljómplötuframleiðenda staðfest sölutölur fyrirtækisins fyrir af- hendingu slíkra viðurkenninga. Lesendum til enn frekari glöggv- unar á sölumálum hljómplatna ætla ég að leitast við að útskýra þaú aðeins nánar, eins og þau snúa að mínu fyrirtæki. Steinar hf. er ekki einungis stórt útgáfufyrirtæki heldur líka einn stærsti innkaupaaðili á hljómplötum frá öðrum útgáfufyrirtækjum. Af væntanlegum sterkum söluplötum kaupum við oft inn verulegt magn og fáum þá magnafslátt. Þannig höfum við t.d. keypt 2000 eint. af „Dögun“ áður en hún kom út, og áttu því stóran þátt í óstaðfestu gullplötunni sem Bubbi fékk á út- gáfudaginn. Steinar hf. tekur því á sig margra vikna heildsölqbirgðir fyrir önnur útgáfufyrirtæki og dreifír á útsölustaði sem eru 4 versl- anir fyrirtækisins ásamt Hagkaup- um Kringlunni, Akureyri og Njarðvík, Miklagarði og nokkrum öðrum smærri útsölustöðum. Þann- ig gat t.d. Grammið gefíð upp stóra heildsölutölu við útgáfu á „Dögun" þó Steinar hf. og aðrir lægju með nokkurra vikna óseldar heildsölu- birgðir. Þegar Steinar hf. gefa út eigin útgáfuplötur þá skráist heildsalan ekki nema á þeim fárra daga birgð- um sem dreift er til verslana, m.ö.o. við kaupum ekki af sjálfum okkur margra vikna birgðir eins og við kaupum af öðrum. Þess vegna er samanburður sölutalna óhagstæður fyrir Steina hf. og þá flytjendur sem fyrirtækið gefur út. Bubba ferst því illa að vera að tala um fölsun á sölutölum. Sann- leikurinn er nefnilega sá að það fór um goðið þegar hann sá að plata Bjartmars Guðlaugssonar „í fylgd með fullorðnum“ ýtti honum úr efsta sæti DV listans fyrir 3 vikum. Ámi Matthiasson birti líka frétt daginn fyrir útgáfu DV listans og hamraði inn að Bubbi væri seldur í níu þúsund eintökum en Bjartmar bara í flögur og sagði að það væri eiginlega ekkert að marka DV list- ann lengur. Bubbi hefur síðan allt að því haldið til í Kaupstað í Mjódd við áritanir á plötum, því salan þar vegur þyngst í samsetningu DV list- ans. Ég ætla ekki að eltast við sjálf- umglaðar fullyrðingar kóngsins um útgáfumál, þær dæma sig sjálfar. Sumir halda kannski að ég sé „svekktur gæi“ og fínni mig þess vegna knúinn til þessara skrifa, en svo er ekki. Ég er afskaplega sæll og glaður með uppgang og árangur Steina hf. og allra þeirra sem starf- að hafa með mér við útgáfuna. Við höfum ekki þurft sérlegan útsend- ara á ijölmiðlum okkur til aðstoðar, einungis góða útgáfu, og heilbrigða og eðlilega þjónustu við fjölmiðla- fólk. Við munum halda áfram eftir sem áður að gefa út allt það sem okkur fínnst gott og að eigi erindi á íslenskan markað, en ég ætla að vona- að verk okkar ali ekki af sér annan hrokafullan markaðshyggju- kóng á borð við Bubba Morthens. Það hefur alltaf þótt merki um lítil- mennsku þegar menn reyna að upphefía sjálfa sig á kostnað ann- arra. Með lítilmannlegri og hroka- fullri framkomu sinni hefur Bubbi nú endanlega tapað virðingu hjá þeim stóra hóp fólks sem unnið hefur að útgáfu og tónlistarmálum hérlendis. Tvískinnungur hans þeg- ar hann talar um tónlist, peninga, dóp, auglýsingagerð, alþjóðaframa og önnur uppáhalds umræðuefni hefur verið flestum sem tengjast hljómplötuútgáfu lengi ljós. Það er kominn tími til að hinn sanni Bubbi Morthens standi upp og sýni sig í réttu ljósi. Það er líka kominn tími til að alvöru fólk fjalli um popptón- list og hljómplötuútgáfu á Islandi en ekki strengjabrúður. Höfundur er foraijóri Steina hf.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.