Morgunblaðið - 22.12.1987, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987
57
var farið í bíltúr og þá á uppáhalds-
staðinn, niður á bryggju. A jólunum
var það orðin hefð hjá börnunum
að segja: Hvar er gotteríspakkinn
frá afa Dodda?
Við munum öll eiga góðar minn-
ingar um Dodda. Við þökkum
honum fyrir það sem hann gaf okk-
ur og megi góður Guð styrkja
móður okkar og aðra ástvini í þeirra
djúpu sorg.
Bjössi, Konni og Diddi
Hinn 17. desember síðastliðinn
andaðist á heimili sínu Þórarinn
Sigurðsson.
-Með örfáum orðum langar okkur
hjónunum að minnast hans.
Þórarinn fæddist á Hallormsstað
í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans
voru sæmdarhjónin Guðbjörg
Bjömsdóttir og Sigurður Sæmunds-
son, bæði ættuð úr Rangárvalla-
sýslu.
Þórarinn sleit bamsskónum í
Eyjum og kynntist snemma at-
hafnalífi Eyjanna. Ungur að ámm
nam Þórarinn skipasmíði og stund-
aði þá iðju til ársins 1972, en þá
tók hann við starfi Skipaskoðunar
ríkisins í Vestmannaeyjum, og
starfaði þar þar til kallið kom.
Þórarinn var mjög vinsæll í starfí
sínu sem skipaskoðunarmaður,
enda með sérstæðan pesónuleika,
sem laðaði að, og átti hann sérstak-
lega gott með að umgangast og
vinna með öðmm.
Hann var einn af peyjunum úr
Eyjum sem hvergi vildi eiga heima
annarsstaðar en úti í Eyjum. Dag-
lega fór hann niður að höfn til þess
að fylgjast með bátunum og öllu
því lífi og starfi sem þar fer fram.
Þórarinn var tvíkvæntur, fyrri
kona hans Sigrún Ólafsdóttir frá
Litla-Bæ andaðist eftir stutta sam-
búð. Seinni kona Þórarins er Perla
Björnsdóttir frá Bólstaðarhlíð. Þau
eignuðust tvö böm, Rúnar mat-
reiðslumann og Guðbjörgu nema í
Háskóla íslands.
Þórarinn gekk í föðurstað þrem
sonum Perlu sem hún átti frá fyrra
hjónabandi, þeim Bimi, Konráð og
Kristni, sem hann reyndist hinn
besti faðir. Þeirra bömum reyndist
Þórarinn mikill og góður afi, og
vom bamabömin mjög hænd að afa
sínum.
Við hjónin þökkum samfylgd lið-
inna ára, við áttum svo margar
skemmtilegar og góðar samveru-
stundir sem lifa í endurminning-
unni, um góðan dreng, sem alltaf
koni til dyranna eins og hann var
klæddur. Okkur sem til hans þekkt-
um gaf hann mikið.
Perla mín, böm og bamaböm,
við biðjum guð að gefa ykkur styrk
og blessun í sorg ykkar.
Sigfríður og
Sigursteinn Marinósson
Miðvikudaginn 16. desember sl.
sátu nokkrir kunningjar að spjalli
á skrifstofu Bátaábyrgðarfélags
Vestmannaeyja. Meðal þeirra var
Þórarinn Sigurðsson eða Doddi á
Hallormsstað eins og hann var ætíð
kallaður af þeim mörgu er hann
þekktu. Þar sem Doddi hafði verið
undir læknishendi síðustu tvo mán-
uði, lengst af í Reykjavík, barst
talið að heilsufari hans. Hann
kvaðst vera miklu hressari og ljóm-
aði allur þegar hann sagði okkur,
að innan tíðar gæti hann gengið
að sínu starfi, því hann var einn
af þeim, sem undi því illa að hafa
ekkert fyrir stafni og leið best þeg-
ar mest var að gera. Morguninn
eftir, þann 17. desember, leið hann
út af, á heimili sínu, og var allur.
Hér sannast enn hið fornkveðna
„enginn veit sína ævi, fyrr en öll er“.
Þórarinn Sigurðsson var fæddur
24. febrúar 1925 á Hallormsstað í
Vestmannaeyjum. Foreldrar hans
vom hjónin Guðbjörg Bjömsdóttir
og Sigurður Sæmundsson er lengi
bjuggu þar. Hann ólst upp í for-
eldrahúsum, en eins og þá var títt
um unga drengi stóð hugur hans
snemma til sjávar. Þó kom það fljót-
lega í ljós að höndin var óvenju hög
og þess vegna varð það úr að hann
hóf ungur nám í skipasmíðum og
gerði þá iðn að ævistarfi. Þau urðu
mörg handtökin hans Dodda í þessu
mjög svo erfiða starfi og þeir em
margir gömlu trébátamir, sem enn-
þá vitna um handbrögðin hans. Þó
að skipasmíðin væri aðalstarfið brá
Doddi sér öðm hvom á sjóinn, var
m.a. talsvert á síldveiðum fyrir
Norðurlandi og í siglingum flest
stríðsárin.
4. október 1958 kvæntist hann
eftirlifandi eiginkonu sinni, Perlu
Björnsdóttur frá Bólstaðarhlíð, og
eignuðust þau tvö böm, Rúnar og
Guðbjörgu. Doddi hafði byggt ein-
býlishús á Heiðarvegi 47 og þar bjó
Perla eiginmanni og börnum hlýlegt
og myndarlegt heimili og er óhætt
að fullyrða að þar hafí ætíð ríkt
ástúð, traust og tryggð. Á Heiðar-
veginum bjuggu þau lengst af, en
fyrir stuttu seldu þau það hús, og
keyptu fallega íbúð í nýju fjölbýlis-
húsi á Ásavegi 2, og undu þar vel
sínum hag. Upp úr 1970 gerist
Doddi starfsmaður ríkisins, sem
skipaskoðunarmaður, og síðar um-
dæmisstjóri Siglingamálastofnunar
ríkisins, hér í Eyjum, og gegndi
hann því starfí til dauðadags. Jafn-
framt því annaðist hann skoðun á
gúmmíbjörgunarbátum Eyjaflotans
og má því með sanni segja að hann
hafi gegnt miklum ábyrgðarstörf-
um fyrir sjómannastéttina. Það var
með þessi störf, sem önnur er Doddi
tók að sér, hann sinnti þeim af alúð
og trúmennsku og var ætíð boðinn
og búinn til þess að liðsinna mönn-
um eða leiðbeina ef á þurfti að
halda.
Á þessu fátæklega æviágripi sést
að Þórarinn Sigurðsson frá Hall-
ormsstað vann allt sitt líf í þágu
útvegsbænda í Vestmannaeyjum,
okkur er því bæði ljúft og skylt,
nú við leiðarlok, að þakka honum
mjög vel unnin störf.
Eiginkonu, bömum og öðrum
aðstandendum, biðjum við blessun-
ar o g huggunar Guðs í þeirra harmi.
Útvegsbændafélag
Vestmannaeyja.
t
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
AÐALSTEINN KRISTINSSON,
Aðalstræti 16,
Akureyri,
lést á heimili sínu föstudaginn 18. desember.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 30. des-
ember kl. 13.30.
Aðalbjörg Lárusdóttir,
Gréta Aðalsteinsdóttir, Hilmar Aðalsteinsson,
Sveinbjörg Aðalsteinsdóttir, Sigurður Einarsson,
Jónsteinn Aðalsteinsson, Eyrún Þórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faöir okkar og sonur,
ÁRNI HJÁLMARSSON,
Ásfelli,
Innri-Akraneshrepp,
er látinn. Jarðarförin hefur farið fram.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð.
Elm Kolbeinsdóttir,
Hjálmar Árnason, Kolbeinn Árnason,
Hjálmar Jónsson.
t
Móðir mín og tengdamóðir,
MARGRÉT ÁSMUNDSDÓTTIR,
Granaskjóli 16,
andaðist föstudaginn 18. desember.
Bjarni Ásmunds, Þórunn Guðmundsdóttir.
SCHIESSER SLOPPAR
VELÚRSLOPPAR
ú FRÖTTESLOPPAR
-e
IvmpiT
Laugavegi S: 1 3300 / Glæsibæ S: 31300
LeÖurklœddir hvíldarstólar.
Litir: Svartur og brúnn.
Tilboðsverð kr. 23.000,- stgr.
VALHÚSGÖGN
Ármúla 8, sími - 82275.
ÁHEIT
TIL HJÁLPAR
Gírónúmer
6210 05
KRÝSUVÍKURSAMTÖKIN
ÞVERHOLTI 20 • 105 REYKJAVÍK
S 62 10 05 OG 62 35 50
Nýsendina
VALHÚSGÖGN
Ármúla 8, sími - 82275.
FROTTE-
SLOPPAR
stuttir - síðir
16 gerðir
Verð f rá 1.990.
$
OiD PIONEER
ÚTVÖRP