Morgunblaðið - 22.12.1987, Side 59

Morgunblaðið - 22.12.1987, Side 59
59 verustundir okkar og sendum innilegar samúðarkveðjur til Hlöð- vers, Ola, Eiríks, Ásu og Eiríks og annarra aðstandenda. Tóta og Eiríkur í dag kveðjum við vinkonu okk- ar, hana Siggu, eins og við kölluðum hana. Við kynntumst henni í febrú- ar 1976, er hún hóf störf í hagfræði- deild Seðlabankans, en þar vann hún í 5 ár. Sigga var frábær fé- lagi, alltaf í góðu skapi og sá alltaf eitthvað jákvætt í öllu. Hún var vinnuforkur og hafði fijótt og mik- ið ímyndunarafl. Hún átti m.a. hugmyndina að símsvara fyrir gengi dagsins. Henni fannst það nefnilega mikil tímasóun að þurfa að svara sömu spumingunni allan daginn. Þo að hún hætti störfum í bank- anum hélt hún áfram að líta inn þegar hún átti leið framhjá og þeg- ar við fyrst fréttum af veikindum hennar, vorum við bjartsýn. Við trúðum því að Sigga myndi sigrast á þessum erfiðleikum eins og öðrum áður, enda bar hún sig vel. Því var það mikið áfall að fá þær fréttir fyrir nokkmm vikum, að henni hefði versnað. Um leið og við kveðjum hana Siggu og þökkum henni stutt en ógleymanleg kynni, sendum við Hlöðver, drengjunum, þeim Óla og Eiríki, og öðrum aðstandendum samúðarkveðjur. Gömlu félagarnir úr Seðlabankanum. Mánudaginn 14. desember sl. andaðist Sigríður Erla Eiríksdóttir heimilisfræðikennari við Foldaskóla í Reykjavík. Hún hafði lengi barist við erfiðan sjúkdóm, sem ágerðist uns ekki varð lengur við neitt ráðið. í svartasta skammdeginu, sem dumbungsveðráttan gerði enn svartara, barst fregnin um andlát hennar. Enda þótt vitað væri að hveiju stefndi var áfallið samt mik- ið og sorgin yfirþyrmandi. Sigríður Erla var ráðin heimilis- fræðikennari að Foldaskóla sumarið 1985 þegar fyrstu kennaramir voru ráðnir að skólanum. Strax þá um sumarið hófst hún handa við að undirbúa kennsluna. Hún lagði mikla vinnu í að koma upp aðstöðu til heimilisfræðikennslunnar í hin- um nýja skóla, að vísu til bráða- birgða. Áhugi hennar var smitandi og aðdáunarvert hve mikla alúð hún lagði í hvert atriði, stórt sem smátt, í starfi sínu. Hún átti mjög gott samstarf við samkennara sína, allt starfsfólk skólans og nemendurna ekki síst. Hún var hrókur alls fagn- aðar á sinn hægláta og ljúfa hátt. Sigríður Erla var gift Hlöðver Emi Olasyni og áttu þau tvo syni, þá Óla Öm 12 ára og Eirík 6'ára. Báðir drengimir em nemendur við Foldaskóla. Er mikill harmur að þeim feðgum kveðinn við missi eig- inkonu og móður. Stutt er til jólanna — hátíðar ljóssins. í dag byijar skammdegið að hopa, smátt og smátt verður dagurinn lengri og birtan meiri. Sorginni svipar til skammdegis- myrkursins sem grúfir yfir og þrengir að okkur. Er hátíð ljóssins er skammt undan og daginn fer að lengja. Okkur þótti svo undur vænt um Sigríði Erlu. Við viljum vona Blömastofa FnÖfinm Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Simi 31099 Opið öll kvöld til kl. 22,- einnig umhelgar. Skreytingar við öli tilefni. Gjafavörur. MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987 að eins og skammdegismyrkrið víkur fyrir hækkandi sól þá komi sá tími að björt minning um góðan samstarfsmann megi verða yfir- sterkari sorginni vegna ótímabærs fráfalls. Með þessum fáu og fátæklegu orðum þökkum við öll, kennarar, starfsfólk og nemendur Foldaskóla, Sigríði Erlu árin sem við áttum saman í skólanum, kynnin, sam- starfið og jákvæðu áhrifin sem hún hafði á okkur. Við sendum eins innilegar og hugheilar samúðarkveðjur og er í mannlegu valdi til eiginmanns hennar, sona, foreldra, bræðra og allra vina hennar og annarra vanda- manna. Blessuð sé minning Sigríðar Erlu Eiríksdóttur. Kennarar og starfsfólk Foldaskóla Vinkona okkar, hún Sigga, er dáin. Við lítum upp úr amstri jólaundir- buningsins og skiljum ekki hvað hefur skeð. Það er svo erfitt að trúa því að hún sé farin og ennþá erfiðara að skilja hvers vegna. Við kynntumst Siggu í Sam- vinnuskólanum, við vorum öll saman í bekk. Þar bundumst við þeim vináttuböndum, sem æ hafa haldist. Þegar skólanum lauk fóru marg- ir til Reykjavíkur að vinna. Nokkrar stelpur utan af landi leigðu þá sam- an íbúð. Það var oft gaman á Grettisgötunni þegar skólafélag- arnir komu f heimsókn. Sigga var ætíð hrókur alls fagnaðar. Hún var glaðlynd, opinská og hreinlynd. Á þessum árum fór Sigga oft heim á Laugarvatn um helgar og gjaman einhver vinkona með og stundum fleiri saman. Þangað var gott að koma. Þar ríkti ástúð og hlýja, það var ekki erfitt að sjá hvaðan Sigga sótti sitt góða hjartalag. Grettis- götubúskapurinn stóð í 2 ár, þá fór Sigga í húsmæðraskólann og ári seinna í húsmæðrakennaraskólann. Þaðan útskrifaðist hún sem kennari í heimilisfræðum. Á þeim árum kynntist hún eftirlifandi manni sínum, Hlöðver Ólasyni. Þau dvöldu nokkur ár í Danmörku meðan Hlöð- ver var við nám, þá var Óli fæddur og Sigga alsæl. Þau komu heim og eins og annað ungt fólk fóru þau út í að eignast þak yfir höfuðið. Það liðu nokkur ár, svo fæddist Eiríkur. Einbýlishúsið í Grafarvogi var í byggingu — framtíðin brosti við þeim, þá veiktist hún. Til að byija með leit út fyrir að hðun myndi ná sér. Þau fíuttu í nýja húsið og Sigga fór að kenna við Foldaskóla. En svo fór að síga á ógæfuhliðina, Sigga veiktist aft- ur. Hún bar sig alltaf vel, hún var raunsæ og átti létt með að tala um veikindi sín, það var eflaust hennar styrkur. Aldrei lét hún sig vanta í saumaklúbbinn, né þegar bekkjar- félagarnir hittust og enn var hún hrókur alls fagnaðar. Við hin áttum alltaf erfitt með að trúa því að þetta gæti nokkum tíma farið svona. En nú er hún farin, við eigum eftir minninguna um góðan traust- an vin. Vin, sem alltaf átti til rúm í hjarta sínu fyrir aðra. Nú þegar leiðir skilja viljum við þakka Siggu kærlega fyrir samferðina í þessu lífí. Eiginmanni, sonum, foreldmm og öðrum aðstandendum vottum við samúð okkar og vonum að minning- in um hana veiti þeim styrk í sorginni. Ég er blómið, sem óx úr mold þinni, jörð, hið unga blóm, sem sólskinið tók sér í fang. Ég dreifði gleði minni um þinn víðavang ó, veröld, sem áttir hjarta míns þakkargjörð. (Tómas Guðmundsson) Bekkjarsystkini úr Samvinnuskólanum. 0, faðir, gjör mig lítið ljós um lífs míns stutta skeið, til hjálpar hveijum hal og drós, sem hefur villzt af leið. 0, faðir, gjör mig styrkan staf að styðja hvem sem þarf, unz allt það pund, sem Guð mér gaf ég gef sem bróðurarf. (M. Joch) Innilegustu samúðarkveðjur sendum við eiginmanni Siggu og bræðrunum Óla Emi og Eiríki svo og öðrum aðstandendum. Hafdís og Svanfríður 6. og 8. bekk Foldaskóla Kveðja frá skóla- systrum úrHKÍ í dag kveðjum við skólasystur okkar og vinkonu, Sigríði Erlu Eiríksdóttur. Það var haustið 1970 sem við hófum nám við Húsmæðrakennara- skóla íslands. Við vorum lítill hópur og kynntumst þar af leiðandi náið. Hluti af námi okkar var sumardvöl á Laugarvatni og þar kynntumst við æskuheimili hennar og yndisleg- um foreldmm hennar, þeim Ásu og Eiríki. Heimili þeirra stóð okkur alltaf opið og það var okkur mikils virði, þar sem við voram flestar langt að komnar. Sigga var skemmtilegur og góður félagi, orðheppin og kát. Hún var gefandi og sterkur persónuleiki og kom það best fram í hennar langa og erfiða veikindastríði. Nú er stórt skarð höggvið í okkar litla hóp sem ekki verður fyllt. Fljótlega eftir að við lukum námi giftist Sigga góðum manni, Hlöðver Ölafssyni, og eignuðust þau tvo myndarlega drengi, Óla Öm og Eirík Kristin. Þau áttu fallegt og gott heimili og þangað var alltaf gaman að koma. Við vottum eiginmanni hennar, sonum, foreldram og bræðram, okkar dýpstu samúð. Við þökkum Siggu samfylgdina og allt sem hún var okkur. Blessuð sé minning hennar. Útför móður okkar, ÁSTRÓSAR JÓHANNESDÓTTUR, Hrafnistu, Reykjavfk, hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð. Margrét Guðmundsdóttir, Guðný Guðmundsdóttir. t ÞÓRA JÓNSDÓTTIR, Hraunbæ 138, Reykjavik, er látin. Hallfríður E. Pótursdóttir, Stefán Friðriksson, Stefanía M. Pótursdóttir, Ólafur Tómasson, Kristin H. Pótursdóttir, Baldur Ingólfsson, Björn Pétursson, Bergljót Olafsdóttir. Legsteinar MARGAR GERÐIR Mmorex/Gmít Steinefnaverksmiðjan Helluhrauni 14, sími 54034, 222 Hafnarfjörður Konan mín, LÁRA HJÁLMARSDÓTTIR, Espilundi 4, Garðabæ, lést í Borgarspitalanum 21. desember. Vilhjálmur Þorláksson. t Eiginmaður minn og faðir okkar, ÞÓRARINN SIGURÐSSON, Ásavegi 2, Vestmannaeyjum, sem andaöist 17. desember verður jarðsunginn frá Landakirkju i dag, þriðjudaginn 22. desember, kl. 14.00. Perla Björnsdóttir og börn. Sonur okkar, bróðir og mágur, BJÖRN ÓLAFSSON matreiðslumaður, Skólabraut 21, Seltjarnarnesi, Fossvogskirkju Kristjana Jónsdóttir, Jón B. Ólafsson, Finnbogi Ólafsson, Ólafur H. Ólafsson, Valdimar Ólafsson, Ólafur Finnbogason, Guðrún Ingimundardóttir, Þórleif Drífa Jónsdóttir, Ásta Knútsdóttir, Steinunn Bragadóttir. t Hjartans þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúö og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóöur og ömmu, GUÐFINNU JÓNSDÓTTUR, Miðtúni 13, Selfossi. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Landspítalans sem önn- uðust hana sl. ár. Elin Sigurðardóttir, Sigrfður Inga Sigurðardóttir, Þorbjörn Sigurðsson, Jón Sigurðsson, Elsa Sigurðardóttir, Birgir Jónsson, Þórhallur Steinsson, Edda Ingvadóttir, Anna-Maria Sigurðsson, Hannes Ársælsson og barnabörn. t Hjartans þakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og systur, SIGURBORGAR KARLSDÓTTUR, Skarphóðinsgötu 12. Ragnheiður Karlsdóttir, Hörður Hákonarson, Þórdís Sveinsdóttir, Ragnheiður Edda Hákonardóttir, Guðbjörg K. Hákonardóttir, Birgir Scheving, Kristín H. Hákonardóttir, Anna M. Hákonardóttir, Guðborg H. Hákonardóttir, Sigtryggur Stefánsson, Jón Hákonarson, Þorsteinn Hákonarson, Guðrún S. Hákonardóttir, Gylfi Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega hlýhug og samúð við andlát og útför móður okkar og tengdamóður, INGIBJARGAR THORARENSEN. Ebba Thorarensen, Ebenezer Þ. Ásgeirsson, Pótur Hannar Thorarensen, Sigrún Thorarensen, Anna Ragnheiður Thorarensen, Sigríður Hallgrímsson, Bjarni Páll Thorarensen. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar föður og fósturföður okkar, EMILS B. JÓNASSONAR, Kleppsvegi 126, fv. umdæmisstjóra Pósts og síma, Seyðisfirði. Anna Katrín Emilsdóttir, Halldóra Jóna Stefánsdóttir. Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, BJARNA GUÐNASONAR frá Súðavík. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki lungnadeildar Vífilsstaða- spítala. Einar Póll Bjarnason, Guðjón Bjarnason, Elfn Bjarnadóttir, Bjarnveig Bjarnadóttir, Guðni Bjarnason, Gylfi Bjarnason, Hólmfríður H. Steinþórsdóttir, Björg Pálsdóttir, Guðmundur Kristinsson, Jón Ólafur Þórðarson, Sigrún Halldórsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.