Morgunblaðið - 10.01.1988, Síða 5
MORGt
Holmér lögregluforingi niðurlútur eftir uppsögn sina þann 5. mars
á síðasta ári.
frá sér um klukkan 20.40. Þau
gengu eftir Yxsmedsgránd til neðan-
jarðarlestarstöðvarinnar Gamla
Stan. Þau stigu út við Rádmans-
gatan og gengu nokkur hundruð
metra til Grand-kvikmyndahússins
þar sem Márten og Ingrid Klering
biðu. Gören Fredericus miðasali
minnist þess að Lisbet hafi verið
mjög kvíðin að sjá.
Vitni sjá grun-
samlega menn
Ekki er til neinn vitnisburður sem
máli skiptir um hvað gerðist næstu
eina og hálfa klukkustundina. En frá
klukkan 22.50 er hægt að rekja at-
burðarásina skref fyrir skref. Við
Jóhannesarkirkjugarðinn þremur
götum frá morðstaðnum tók kona
ein eftir því klukkan tíu mínútur
jrfir tíu að tveir menn stóðu við horn
kirkjugarðsins og virtust bíða eftir
einhverju. Tíu metra frá þeim hafði
rauðri bifreið verið lagt. Mennimir
voru á aldrinum 35 til 40 ára. Ann-
ar var í bláum jakka með ljósum
axlarstykkjum. Hinn hélt á einhverj-
um hlut í hendinni sem líktist útvarpi
eða senditæki. Vitnið fór aftur inn
í íbúð sína og fékk sér kaffi. Síðan
fór konan út að ganga með hundinn
sinn. Mennirnir tveir stóðu enn á
sama stað. Aður en hún fór aftur
inn til sín sá hún lögreglubíl koma
akandi eftir götunni.
Konan greindi lögreglunni strax
morguninn eftir símleiðis frá því sem
hún hafði séð. En þá hafði enginn
áhuga á því sem hún hafði að segja.
Hún var ekki yfirheyrð fyrr en ári
síðar eftir að ný morðnefnd hafði
tekið við málinu og eftir að hún
hafði komið fram í sjónvarpi og
greint frá því sem hún sá kvöldið
sem Palme var myrtur.
Klukkan 23.04 lauk bíómyndinni.
Við dymar kinkaði Palme kolli til
Bjöms Rosengren verkalýðsleiðtoga
og konu hans. „Er Svíþjóð ekki und-
ursamlegt land,“ sagði Rosengren
eftirá við konu sína, „héma fer for-
sætisráðherrann í bíó eins og hver
annar borgari."
Fyrir utan kvikmyndahúsið hug-
leiddu Olof og Lisbet andartak hvort
þau ættu að ganga heimleiðis, taka
lestina eða fara með leigubíl. Þau
ákváðu að fá sér göngutúr og
kvöddu Márten og unnustu hans.
Márten segist muna greinilega
eftir manninum sem starði innum
dimman sýningarglugga húsgagna-
verslunarinnar við hliðina á kvik-
myndahúsinu og elti síðan
Palme-hjónin. Sölumaðurinn í
skyndibitastaðnum við kirkjuna seg-
ist muna eftir sama manni. Þetta
var „óhijálegur náungi í bláum
jakka“. En Márten hafði ekki nokk-
um minnsta gmn um að faðir sinn
væri í hættu. Síðan Gústav konung-
ur III. var myrtur á grímuballi í
Stokkhólmsóperunni árið 1792 hefur
enginn sænskur ráðamaður fallið
fyrir morðingja hendi.
Olof og Lisbet gengu spölkom
eftir fjölfömum Sveavágen í átt til
Kungsgatan. Á móts við Adolf-
Fredriks-kirkju fóm þau yfir ijög-
urra akreina breiða götuna til að líta
í búðarglugga hinum megin. Þeim
megin götunnar vom nær engir á
ferli.
23.15: Morðinginn er nú kominn
mjög nærri. Vitni sögðu síðar að þau
hefðu séð þijá menn milli Tegnérgat-
an og Adolf Fredriksgatan sem
„vom í humátt á eftir" Palme-hjón-
unum. Þetta studdi samsæriskenn-
inguna sem var Holmér yfirmanni
rannsóknarinnar svo mjög að skapi.
Nú er vitað að hér var einungis einn
maður á ferðinni sem þijú vitni sáu
hvert í sínu lagi.
Lisbet Paime kannast
við morðingjann
Fyrir utan vefnaðarvömverslun-
ina „Dekorima" á hominu á Sve-
avágen og Tunnelgatan gerði
morðinginn árás - 700 metmm frá
kvikmyndahúsinu. Milli klukkan
23.21 og 23.22 reið hið banvæna
skot af. Morðinginn greip í vinstri
öxl Palme, þrýsti honum að byss-
unni og hleypti af.
Kúlan smó hann tíu sentimetmm
fyrir neðan hnakkann. Mænan slitn-
aði í sundur og gat kom á ósæðina,
öndunarveginn og vélindað. Palme
féll fram fyrir sig til jarðar. Blóð-
taumur lak úr munnvikinu. Vinstri
fótur tekur kipp og svo liggur hann
hreyfingarlaus. Annað skot reið af
nokkmm sekúndum á eftir hinu
fyrsta. Vopninu var beint að sama
blettinum milli herðablaðanna á
Lisbet Palme. En forlögin gripu í
taumana. Á sama sekúndubroti og
skotið reið af sneri hún sér við.
Kúlan fór í gegnum vinstri ermi
hennar, straukst við herðablöðin og
fór aftur út um hægri ermina án
þess að snerta hana. Lisbet fellur á
hnén og grípur um höfuð Palme.
Síðan stendur hún aftur á fætur og
gengur nokkur skref án þess að átta
sig á því hvað er að gerast. Hún
heldur að einhver hafi kastað
kínveijum til þeirra.
Morðinginn leggur til flótta í átt
til Tunnelgatan. Milli tveggja flutn-
ingabifreiða sem girða strætið af
snýr hann sér við og augu hans og
Lisbetar mætast. „Mér fannst strax
að ég hefði séð þennan mann áður,“
sagði Lisbet síðar. Mynd morðingj-
ans er greypt í vitund hennar. En
þetta er eins og draumsýn. I hvert
sinn sem hún reynir að kalla hana
fram verður hún þokukennd.
Lisbet Palme horfír forviða á þeg-
ar tvær .17 ára stúlkur sem líka
höfðu verið í bíó kijúpa við hlið
Palme og reyna að lífga hann við
með hjartahnoði. Allra síst ætti að
beita helsærðan mann hjartahnoði.
Okkur
vantar fleirí fóstrur
og starfsmenn
til starfa...
Ríkisspítalar reka sjö
dagheimili á höfuðborgar-
svæðinu.
Á þessum dagheimilum er
rými fyrir 251 barn á aldrin-
um 1-9 ára (miðað við fiilla
viðveru). Dagheimili Ríkis-
spítalanna eru opin alla virka
daga frá kl. 07:15-19:00 og á
laugardögum frá kl.
07:15-16:00.
Við bjóðum starfsfólki
okkar fullt starf eða hlutastarf
allt eftir óskum hvers og
eins.
Starfi hjá Ríkisspítölum
íylgja ýmis hlunnindi, svo
sem ódýrt fæði á vinnustað,
mikið atvinnuöryggi, öflugur
lífeyrissjóður og launahækk-
aiidi námskeið.
Við hvetjum þig til að hafa
samband og kynna þér upp-
eldisstarf á dagheimilum
Ríkisspítala.
Nánari upplýsingar gefur
dagvistunarflilltrúi Unnur
Stefánsdóttir í síma 29000-
641.
SUNNUHLÍÐ
Á Sunnuhlíð v/Klepps-
spítala vantar fóstru til starfa
á deild barna 1-3 ára og 3-5
ára.
Upplýsingar gefur Sigríður
Knútsdóttir forstöðumaður í
síma 38160 eða í heimasíma
23926.
STUBBASEL
Stubbasel er við Kópa-
vogshæli og þar vantar fóstru
í fullt starf frá næstu áramót-
um á deild barna 2-6 ára.
Einnig vantar fóstru í hálft
starf fyrir hádegi.
Upplýsingar gefúr Katrín
S. Einarsdóttir forstöðumað-
ur í síma 44024.
SÓLHLÍÐ
Á dagheimilið Sólhlíð
v/Engihlíð vantar fóstrur til
starfa sem fyrst á deild barna
2-4 ára og 4-6 ára. Einnig
vantar starfsmenn á sömu
deildir. Hlutastörf koma til
greina.
Upplýsingar gefúr Elísabet
Auðunsdóttir forstöðumaður
í síma 29000-591 eða heima-
síma 612125.
SÓLBAKKI
Fóstru og starfsmann
vantar á dagheimilið Sól-
bakka v/Vatnsmýrarveg.
Upplýsingar gefúr Helga
Guðjónsdóttir forstöðumað-
ur í síma 22725 eða í heima-
síma 641151.
MÁNAHLÍÐ
Skóladagheimilið Mána-
hlíð er nýtt heimili í Engihlíð
9. Þar vantar okkur fóstru,
þroskaþjálfa eða fólk með
aðra uppeldisfræðilega
menntun frá 1. jan. n.k.
Upplýsingar gefur for-
stöðumaður Guðrún Bjarna-
dóttir í síma 29358 eða í
heimasíma 14149.
...ýmist í fullt starf eða
hlutastarf
RÍKISSPÍTALAR
;
I
essemm/slA 1907