Morgunblaðið - 10.01.1988, Page 18
18 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JANÚAR 1988
fclk í
fréttum
Málverk eftir Karl
Kvaran til Frakklands
Sendiherra Frakka á íslandi, hr. Yves Mas, lætur af störfum um
þessar mundir eftir þriggja ára veru hér. Aður en Mas hélt af landi
brott hafði hann fest kaup á tveimur olíumálverkum eftir Karl Kvar-
an listmálara, sem hann flutti með sér til Frakklands. Hér á myndinni
má sjá sendiherrann fyrir framan annað málverkið.
ÓFARIR
Svo dugir ljúfur
sem launað er
Þessar myndir, sem sumum kunna að þykja
skemmtilegar, tala sínu máli og sanna svo
ekki verður um villst að það verður ekki
alltaf tekið út með sældinni að leika hetju.
Er önnur myndin, sú er sýnir naut stara í
forundran á vængjalausan nautabana, tekin
á nautaati í Madrid á Spáni,_ en hin kemur
frá borginni Gippsland í Astralíu. Bæði
kúrekinn og nautabaninn sluppu ómeiddir,
en illa mun hafa farið fyrir nautinu.
Morgunbláðið/Sverrir.
Ingólfur við iðju sína. „Þetta er góð tómstundaiðja," segir hann, „tilvalið að gripa í þetta þegar
eitthvað gott er í útvarpinu".
TÓMSTUNDIR
„Get ekki setið aðgerðalaus“
Því er oft haldið fram að í fram-
tíðinni verði vinnudagurinn mun
styttri en nú er og eru þau tíðindi
sjálfsagt mörgum kærkomin.
Hins vegar er ekki sjálfgefíð að
þeir sem ólust upp á erfíðari
tímum séu allskostar sáttir við
þessa þróun, heldur viti ekkert
erfíðara en að „gera ekki neitt".
Ingólfur Stefánsson er einn
þeirra.
Ingólfur gengdi starfí fram-
kvæmdastjóra hjá Farmanna- og
fískimannasambandi íslands í 18
ár, en lét þar af störfum fyrir
tveimur árum, þá sjötugur að
aldri. Það væri þó rangt að segja
hann hafa sest í helgan stein því
ýmislegt hefur hann tekið sér fyr-
ir hendur sl. tvö ár.
' „Það er ekki hægt að ætla sér
að sitja aðgerðalaus eftir að mað-
ur er búinn að vera að vinna alla
sína ævi. Ég held að það sé engum
manni hollt", sagði Ingólfur. „Ég
lauk prófí frá Stýrimannaskólan-
um árið 1939 og var á sjónum í
ein 25 ár, meira en helming þess
tíma sem skipstjóri eða stýrimað-
ur. Síðan vann ég hjá Fiskmið-
stöðinni í nokkur ár áður en ég
byijaði hjá Farmanna- og físki-
mannasambandinu. Þegar ég svo
hætti þar vann ég mikið við breyt-
ingamar á varðskipinu Þór þegar
því var breytt í skólaskip og svo
hef ég verið að skrifa vikulegar
greinar í Dagblaðið um fískverð
og stöðu markaðsmála".
Ein helsta tómstundaiðja Ing-
ólfs undanfarin ár hefur verið að
binda inn bækur. „Þegar ekkert
annað hefur verið að gera tek ég
í bókbandið. Ætli ég sé ekki búinn
að binda inn eitthvað á milli 60 -
70 bækur, en sumar þeirra var
ég búinn að binda inn áður en ég
hætti í fastri vinnu. Ég fór á nám-
skeið hjá Tómstundaiðju
Reykjavíkurborgar við Furugerði
Morgunblaðið/Sverrir.
Ingólfur Stefánsson, fyixverandi framkvæmdastjóri Farmanna
og fiskimannasambands íslands. Ofaná bókaskápnum eru nokkr-
ar þeirra bóka sem hann hefur bundið inn, en skápinn smiðaði
Pétur Björnsson, fyrrverandi skipstjóri á Gullfossi.
færi í að binda inn eina bók.
„Sumar bækur þarf að vinna und-
ir bókband og sú vinna getur verið
talsverð. Svo situr maður ekki
alltaf við heldur grípur í þetta
svona endrum og eins. Þetta er
góð tómstundaiðja og tilvalið að
grípa í þetta þegar eitthvað gott
er í útvarpinu," sagði Ingólfur
Stefánsson að lokum.
þar sem kennari var Ingimundur
Ólafsson, - góður maður að eiga
við fýrir okkur gamlingjana".
Meðal þeirra bóka sem Ingólfur
hefur bundið inn eru allar bækur
Ferðafélags íslands, Tímarit Máls
og Menningar, og nokkrar bóka
Halldórs Laxness. .
Aðspurður sagði Ingólfur það
vera misjafnt hve langur tími