Morgunblaðið - 28.02.1988, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1988
B 13
ur, að héma hafí verið þingstaður
til foma, og til að komast frá Kjalar-
nesi til þingstaðarins hafi land-
námsmenn orðið að höggva sér leið
í gegnum skóginn."
„Heldurðu að Ingólfur hafi verið
einn þeirra?“ spurði ég sakleysis-
lega. Hún brosti og sagði: „Ja, það
er aldrei að vita, elskan."
Þegar inn var komið var víðara
útsýni. Vatnið var spegilslétt og
sólin mjakaðist til viðar. Fjalla-
hringurinn varð dimmblárri með
hveiju andartaki.
Við gerðum stutt hlé á samtali
okkar meðan Herdís fór fram í eld-
hús til að sækja kaffið. Ég heyrði
fótatak hennar, það var svo unglegt
að það var engu líkara en hún hefði
fengið það að láni hjá fermingar-
stúlku.
Síðan héldum við spjallinu áfram,
settumst niður með útsýn yfir Ell-
iðavatn.
Ég spurði hana hvort áhugafólk
fengi mikinn stuðning frá Skógrækt
ríkisins?
Hún sagði: „Fyrir utan það
kraftaverk sem Skógrækt ríkisins
hefur gert í þessu landi frá aldamót-
og hvetja ráðamenn til að gera eitt-
hvað róttækt í málunum, þeir em
þeir einu sem geta það, með laga-
breytingu og ijármagni á rétta
staði. Það verður að hætta að ausa
peningum okkar í að sá í móa og
viðkvæman gróður, til að fá gras í
fóður handa skepnum, sem jafn
óðum éta nýgræðinginn, en plöntur
sem fyrir vom hverfa. Fleiri mýrar
má ekki grafa upp vegna þess að
fyrir er meira af ræktuðum túnum
en hægt er að nýta. Astand gróð-
ursins á landinu okkar er neyðar-
ástand og aðgerðir þola enga bið
þar sem eyðileggingin er tvisvar
sinnum meiri á ári, en okkur tekst
að græða upp. Ailir hljóta að sjá
hvar þetta endar. Og framtíðin mun
kalla okkur til ábyrgðar. Hvað
munu afkomendur okkar kalla
skammsýni okkar og andvaraleysi?
Tökum því höndum saman í borg
og sveit og stöðvum ósómann. Girð-
um búsmalann af á ræktuðum
heimalöndum og lofum landinu að
græða sárin áður en því blæðir út.
Skiýðum það með kjarri vöxnum
fjallahlíðum, skógi í láglendi með
um, með vemdun og uppgræðslu
og friðun skógarsvæða, þá hefur
hún séð okkur fyrir plöntum af
bestu gerð, sem sóttar hafa verið
frá hinum ólíklegustu löndum og
prófaðar við okkar aðstæður. Skóg-
ræktin kom með lúpínuna sem er
eina vonin til að mynda frjósaman
jarðveg á auðnunum. Þeir hafa
ræktað milljónir af tijáplöntum og
sent til gróðrarstöðva um landið og
selt auk þess sem þeir hafa gefið
út fjöldann allan af ritum og bækl-
ingum til leiðbeiningar fyrir al-
menning og svona mætti lengi telja.
Skógrækt ríkisins er sannkallað
óskabam þjóðarinnar. Ýmislegt
vakti gagnrýni sem gert var á
fyrstu áratugunum en skógræktar-
menn eru búnir að fá dýrmæta
reynslu og vex ásmegin með hveiju
ári, þó að fjárveitingar mættu vera
miklu ríflegri. Nú ætlar skógræktin
að gefa almenningi kost á að rækta
skóga með því t.d. að girða af mik-
ið svæði í Mýrdalnum og bjóða þeim
sem hafa áhuga á landskika, þar
sem þeir geta komið sér upp litlu
húsi og ræktað skóg, fjölskyldu
sinni til ánægju og framtíðinni til
góða. Skemmtiiegra starf er ekki
til í vorblíðunni. Vonandi fær skóg-
ræktin fleiri hugmyndir til að virkja
okkur ötl til að klæða landið okkar
úr tötmnum."
Að lokum spurði ég hana hvað
væri framundan í þessum málum
hjá Láfi og landi?
„Við hjá Lífi og landi, Landvemd
og öðmm landvemdar- og skóg-
ræktarfélögum munum gera allt
sem við getum til þess að opna
augu almennings fyrir ástandinu
ótal blómplöntum í skógarbotninn.
Grónar hlíðar með beijalyngi, heið-
arblómun og víðikjarri. Mildara og
lygnara veðurfar mjmdi fylgja
gróðrinum.
Er það ekki draumur okkur til
handa, ekki síður þeirra sem búa í
sveitum landsins, eða hvað? Vissu-
lega kostar það okkur átak að
breyta úreltum búskaparháttum og
aðlaga okkur nútímanum og
landinu. En það mun skiia sér
margfalt með byggilegra landi fyrir
komandi kynslóðir og við munum
hverfa frá með betri samvisku að
hafa ekki bara látið skammtíma-
sjónarmið ráða og rifið niður í stað
þess að byggja upp! Hugsunar-
háttur er að breytast svo kannski
er von, áður en allt er um seinan."
Það var blá kyrrð í umhverfinu,
ég stóð upp, samtali okkar var að
ljúka, mér fannst ég sjaldan hafa
séð landið mitt jafn fallegt, þessi
hraun, þessi mosi, og fór að hugsa
að þetta hefði verið eitthvað fyrir
meistara Kjarval. Ég sá allt í einu
fyrir mér stórt ægifagurt málverk
af hesti eftir Jón Stefánsson, en
þessi kona minnti mig einmitt á
íslensa hestinn, sem með vilja og
skapi linar ekki sprettinn meðan
lífsþróttur endist.
Já, svona er hún, hugsaði ég og
ók heimleiðis.
VIÐTAL:
SIGRÍÐUR INGVARSDÓTTIR
Höfundur er deUdxrstjóri ( aam-
gönguráðuneytinu.
omRon AFGREIÐSLUKASSAR Innilegar þakkir til allra þeirra, sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum, blómum og skeytum á sjötugsafmœli mínu. GunnarS. Jónsson.
Félag matreiðslumanna
Félag framreiðslumanna
Árshátíð Félagsframreiðslumanna og Félags matreiðslu-
manna verður haldin 9. mars 1988 á Hótel Sögu, Súlna-
sal, og hefst kl. 18.00. Samkvaemisklæðnaður.
Miðasala og borðapantanir eru á Óðinsgötu 7, dagana:
Þriðjudaginn 1. mars kl. 15.00-17.00
Miðvikudaginn 2. mars kl. 15.00-17.00
Mánudaginn 7. mars kl. 15.00-17.00
Þriðjudaginn 8. mars kl. 15.00-17.00
Nánari upplýsingar eru gefnarí símum 25785 og 19785 á skrifstofutíma.
Árshátíðarnefnd.
SOára afmælishátíð
Félags viðskiptafræðinga
og hagfræðinga
SÚLNASAL HÓTELS SÖGU11. MARS 1988.
Ráðstefnan er öllum opin.
AFMÆLISRÁÐSTEFN A.
DAGSKRÁ:
10.00 Mæting.
10.15 Satning ráAstefnunnan Krístján Jóhannsson, formaður FVH.
10.20 Ávarp: Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra.
10.30 Erindi: „Parallels between the nineteen thirties and the nineteen eighties".
Hvað er Ifkt meA flórða og níunda áratugnum. Dr. Charles P. Kindle-
berger, gistiprófessorvið MiddleburyCollege Vermont, áður prófessor við
MIT Boston.
11.05 Erindi: Hagfrooðl I hálfa ÖM. Þorvaldur Gytfason, prófessor við Háskóla
íslands.
11.40 Fyrirspumir og umræður.
12.00 Hádegisverður.
13.00 Erindi: „Training tomorrow’s and today's managers." „A 50 year European
Surveý'. Manntun og þjálfun ■tjómanda, BO éra yHHK. TonyHubert.
framkvæmdastjóri European Association of National Productivity Centers,
og ritstjóri Intemational Management Development.
13.35 Fyrirspumir og umræður.
Eggert Hauksson, forstjóri Plastprents hf.
14.15 Erindi: Hagfi wMngar þé og nú. Jónas H. Haralz, bankastjóri Landsbanka
íslands.
14.35 Fyrirspumir og umræður.
14.55 Kaffi.
15.15 HrtngborðamwMftun Stjómandi dr. Jóhannes Nordal, bankastjóri Seðla-
banka íslands. Þátttakendur Dr. Charles P. Kindleberger, Tony Hubert,
Þorvaldur Gytfason, Guðmundur Magnússon, prófessor, Háskóla íslands,
Ólafur Davíðsson, framkyæmdastjóri Félags ísl. iðnrekenda og Þórir Einars-
son, prófessor, Háskóla íslands.
16.30 Ráðstefnulok.
Ráðstefnustjóri: Guðlaugur Þorvaldsson. rikissáttasemjari.
Skráning á ráðstefnuna er ffá og með mánudeginum 29. febrúar til þriðjudagsins
8. mars kL 9.00-16.00á skrifstofu FVH í sima 62-23-70.
AFMÆLISHÓF
19.00 Mæting. Mimisbar opinn. *
20.00 Hátíðarkvölclverður, skemmtiatriði, dans.
03.00 Hátiöarlok.
Miðasala vegna afmælishófs verður á skrifstofú FVH ffá 29. febrúer til 8. mars frá
kl. 9.00-12.00og einnig eftir hádegi miðvikudaginn 2. mars og þriðjudaginn
8. mars kl. 13.00-17.00.
Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga,
Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík.