Morgunblaðið - 28.02.1988, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. FEBRUAR 1988
B 19
Rauðnefjaðir rugbyleikmenn búa sig undir átök.
Kúlunefið er eins og sniðið
á Edda prins.
Fergie er sárt um eigið nef og
festi plastnefið í skíðahúfuna
sína.
Breskur lögregluþjónn með rautt
nef stjórnar umferðinni í Lund-
únum.
BRETLAND
Kúlunef til
hjálpar hungruðum
Bretar settu nýlega upp hárauð
plastnef í hjálparskyni við
sveltandi fólk í Afríku. Seldar voru
3,8 milljónir neija og kostaði hvert
kúlunef sem svarar 33 krónum.
Reyndar gengu nefin kaupum og
sölum manna á milli fyrir mun
hærra verð.
Ekki voru þó allir jafn hrifnir af
neíjunum og mun aðstoðarskóla-
stjóri drengjaskóla í Kent hafa
bannað nemendum að setja upp
plastnef. Taldi hann að piltarnir
yrðu of æstir fengju þeir að hafa
rauð nef. En til að halda friðinn
leyfði hann nemendum skólans að
klæðast hvunndagsfötum í stað
skólabúninga.
Hefðbundnari leiðir til íjáröflun-
ar voru einnig famar í söfnunar-
herferðinni bresku. Skemmtiþáttur
var sýndur í sjónvarpi þar sem skor-
að var á fólk að hringja inn peninga
með þvi að gefa upp númer á krítar-
kortum sínum. Einn aðstandenda
söfnunarinnar sagði víst að safnast
hefðu meira en 3,5 milljónir punda
meðan þátturinn var sýndur.
EIWW STERKI TÓWW
- fær stöðugt meiri hljómgrunn.
Ástæðurnar eru augljósar.
SPRED LATEX er ný
og endurbætt innan- #
hússmálning með
25% gljástigi en var
áður 15%.
SPRED LATEX er
vatnsþynnanleg akrýl-
málning, afar slitsterk
og auðveld í þrifum.
Þess vegna notar þú
hana þegar þú málar
eldhúsið, baðið og
ganginn eða aðra fleti
sem mikið mæðir á.
- innan þinna veggja HARPA lífinu lit.
AUK hf. 111.11/SÍA