Morgunblaðið - 17.03.1988, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 17.03.1988, Blaðsíða 56
, 56 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1988 t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HALLGRÍMUR GUÐMUNDSSON, Háholtl 25, Akranesi, ' lést í sjúkrahúsi Akraness laugardaginn 12. mars. Jarðsett verðurfrá Akraneskirkju föstudaginn 18. mars kl. 14.15. Blóm og kransar afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á Akraneskirkju. Börn og tengdabörn. t Bróðir okkar og afi, BALDUR SVEINSSON rafvirkjameistari, Hrafnistu, áður Rauðalæk 18, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 18. mars kl. 10.30. Guðrún Hrefna Sveinsdóttir, Freyja Torfadóttir, Ásdis Sveinsdóttir, Ásgeir Torfason, Auður Sveinsdóttir, Ingibjörg Torfadóttir Fríða Sveinsdóttir. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, KRISTÍN JENNÝ JAKOBSDÓTTIR, formaöur Póstmfélags íslands, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju i dag, fimmtudaginn 17. mars, kl. 15.00. GunnarÁ. Ingvarsson, Jakob Már Gunnarsson, Iðunn A. Valgarðsdóttir, Sigurður G. Gunnarsson, Unnur S. Bragadóttir, Gunnar R. Gunnarsson, Hafdís S. Valdimarsdóttir, og barnabörn. t Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og ámma, KRISTÍN LIUA BERENTSDÓTTIR, Eskihlfð 20a, verðurjarðsunginfrá Fossvogskirkju föstudaginn 18mars kl. 13.30. Snorri Brynjólfsson, Brynjar Snorrason, Hrafnhildur Karlsdóttir, Garðar Snorrason, Svala Þórhallsdóttir, Berta Snorradóttir og barnabörn. ■ Innilegustu þakkir til allra, sem við andlát og útför h sýndu okkur samúð og hlýhug EGGERTS TH. JÓNSSONAR, Háaleitisbraut 155. Lára Petrfna Bjarnadóttir, Birna M. Eggertsdóttir, Pótur E. Eggertsson, Ásta Lóa Eggertsdóttir, Hilmar Þorvaldsson, Ingigerður Eggertsdóttir, Jón Ólafsson, Unnur I. Eggertsdóttir, Hermann Arnviðarson, Gunnhildur Eggertsdóttir, Óskar Þorsteinsson, Kolbrún Eggertsdóttir, Arnaldur Axfjörð. t Innilegar kveðjur og þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug við andlát og útför bróður okkar og mágs, GUÐMUNDAR INGVARSSONAR, Ægisbraut 5. Kristín Ingvarsdóttir, Teodór Helgason, Sigurbjörg Ingvarsdóttir, Árni Ingvarsson, Jón Ingvarsson, Grétar B. Ingvarsson, Mundhildur Guðmundsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auðsynda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og lángömmu, MARENAR EYVINDSDÓTTUR, Hæðarenda, Grfmsnesi. Svanhildur H. Sigurfinnsdóttir, Grímur Davíðsson, Eyvindur K. Sigurfinnsson, Anna Garðarsdóttir, Guðmundur R. Sigurfinnsson, Laufey Sigurfinnsdóttir, Haraldur Haraldsson, Birgir Sigurfinnsson, Marfa Svava Andrésdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Minning: * OlafurK. Sveinsson rafvirkjameistari Fæddur 18. júlí 1920 Dáinn 9. marz 1988 Ólafur Konráð Sveinsson raf- virkjameistari andaðist í Borg- arspítalanum 9. þessa mánaðar, eftir stranga sjúkdómslegu. Hann var fæddur á Butru í Fljótshlíð 18. júní 1920. Leiðir lágu nokkuð víða í uppvextinum en um tíu ára aldur fluttist hann til móður sinnar í Vestmannaeyjum og síðan aftur með henni í Fljótshlíðina. Ungur maður fór hann til Reykjavíkur og lauk meðal annars vélstjóraprófi. Hann kvæntist eftirlifandi konu sinni, Dóru Magnúsdóttur, árið 1945 og stofnuðu þau heimili í Kleppsholtinu. Þau bjuggu þar fyrstu árin. Nokkru seinna byggði hann íbúðarhús í Nökkvavogi 12 í félagi við Torfa Þorbjömsson, sem látinn er fyrir nokkrum árum. Þar hafa þau Dóra búið síðan. Bömin urðu fjögur og bama- og bama- bnamabörn eru orðin tíu. Við Ólafur kynntumst fyrst er við stunduðum rafvirkjanám hjá Eiríki Hjartarsyni upp úr 1940. Margs er að minnast eftir öll þessi ár, þegar horft er til baka eftir einkavini og félaga. Ólafur var óvenju eðlisflinkur maður. í hönd- um hans léku öll störf og smíðar. Ekki spillti heldur að hann var helj- armenni að afli og kappsamur með ólíkindum. Oft þurfti líka að vinna óspart við uppbyggingu fyrirtækis okkar allt frá byijun í gömlu ijósi við Vitatorg, síðan í nokkuð rýmra húsnæði við Mjölnisholt og að end- ingu í eigin húsnæði við Ármúla þar sem eftir standa mörg af hans handaverkum. Mörgum á eftir að bregða við að ekki er lengur hægt að hringja í Óla og fá hann, kannski með mann eða menn með sér og gera hluti vafningalaust, sem aðrir treystu sér ekki til, eða jafnvel voru gengnir frá. Á árunum milli 1960 og 70 ferð- aðist Ólafur mikið um hálendi 1s- lands ásamt fjölskyldu sinni. Hann kunni mjög að meta og naut óspilltrar náttúru landsins og hafði ánægju af gönguferðum og athug- unum á gróðri og fuglalífi. Þessar ferðir lagði hann að mestu niður þegar hægara varð að ferðast um hálendið og friður öræfanna rofínn af meiri umferð. Á síðari árum höfðu þau hjón komið sér upp sumarbústað í landi Butru í Fljótshlíð. Þar var margt sem til fannst fyrir hraustar og hagar hendur. Girt og ræktað. Lagður vegur. Smíðaðar brýr. Þó var þetta aðeins byijunin, því margt var eftir sem hann langaði að gjöra og margar tijáplöntur biðu í gróður- reitum eftir að komast á rétta staði. Ég kveð Ólaf vin minn og félaga með hjartans þökk fyrir 39 ára samvinnu og félagsskap sem aldrei bar skugga á. Blessuð sé minningin um góðan dreng, hann mun eiga góða heimkomu. Ég votta Dóru og aðstandendum innilega samúð. Megi Guð styrkja þau öll á erfíðri stund. Haukur Þorsteinsson í dag fer fram í Langholtskirkju minningarathöfn um Olaf Konráð Sveinsson, rafvirkjameistara, Nökkvavogi 12 í Reykjavík, en hann verður jarðsettur frá Breiðabólstað- arkirkju í Fljótshlíð, laugardaginn 20. þ.m. Ólafur var fæddur á Butru í Fljótshlíð 18. júlí 1920, sonur Ólaf- ar Halldórsdóttur á Butru og Sveins Böðvarssonar, sem lengi bjó á Uxa- hrygg á Rangárvöllum. Olafur ólst upp hjá móður sinni á Butru og þótti snemma liðtækur til allra verka. Um tvítugsaldur flytst Ólafur til Reykjavíkur og lærir rafvirkjun hjá Eiríki Hjartarsyni. Árið 1949 stofnar hann ásamt samstarfsmanni sínum, Hauki Þor- steinssyni, Raftækjavinnustofuna Haukur og Ólafur, sem brátt varð öflugt og vinsælt fyrirtæki í sam- taka höndum þessara mætu manna. Sinn stóra vinning hreppir Ólafur þegar hann 20. október 1945 geng- ur í hjónaband með Aðalheiði Dóru Magnúsdóttur frá Vestmannaeyj- um. Voru þau mjög samhent um alla hluti, eignuðust fjögur mann- vænleg böm, en þau eru: Magnús Helgi, kvæntur Guðbjörgu Stefáns- dóttur, Sigmar Steinar, kvæntur Sigríði Hansdóttur, Halldpr, kvænt- ur Líneik Jónsdóttur og Ólöf Ragn- heiður, gift Sigurði Ármannssyni. Og nú áttu þau níu bamabörn og eitt bamabamabam. Þetta er í fáum orðum lífshlaup Ólafs Sveinssonar og mætti þar mörgu við bæta, því maðurinn var ekki einhamur í hveiju sem hann tók sér fyrir hendur og fór þar sam- an að vera mikilvirkur, vandvirkur, með einstaka verkþekkingu á hverskonar viðfangsefnum, þannig að eftir var tekið. Þó var maðurinn hógvær og lítillátur og vildi hvergi láta á sér bera. En kannski var það þess vegna að hugurinn var alltaf í jafnvægi, ekki þrúgaður af streitu framagosans, að hann átti svo auð- velt með að draga réttar ályktanir, persónuleikinn mótaður af reynslu viturs manns. Ólafur var hrókur alls fagnaðar í góðra vina hópi, en hvergi var hann sælli en austur i Fljótshlíð í sumarbústaðnum, í faðmi fjölskyld- unnar, þar sem hann var að hlúa að nýjum græðlingum og segja barnabörnunum sínum hvernig lundurinn myndi líta út að nokkrum árum liðnum. Ég, sem þessar línur rita, eins og eflaust fleiri sem standa í óbættri skuld við Ólaf, er ósáttur við hvað hann hverfur fljótt af sviðinu. En við straum tímans þýðir ekki að deila. Það vcrður okkur þó styrkur lengi enn að hafa átt svona góða fyrirmynd. Matthías Kristjánsson t Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför bróður míns, mágs og móöurbróður, AGNARS SIGURÐSSONAR, Bakkatúni 6, Akranesi. Ólafur Fr. Sigurðsson, Ólfna Þórðardóttir, Ragnhildur Þorvaldsdóttir, Baldur Guðjónsson. t Innilegustu þakkir til allra, sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför bróður okkar, mágs og frænda, GUÐMUNDAR JÓNSSONAR (MUGGS), Lækjarkinn 4, Hafnarfirði. Einnig þökkum við af alhug öllum þeim sem ætið sýndu honum vinsemd og hlýju. Systkin, tengdasystkin og aðrir aðstandendur. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGUNNAR BJÖRNSDÓTTUR, Svfnafelli f Öræfum. Laufey Lárusdóttir, Ragnar Stefánsson, Magnús Lárusson, Svava Jóhannsdóttir,, börn, tengdabörn og barnabörn. t Þökkum inniiega auðsýnda samúð við fráfall eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, MARTINS CHR. FREDERIKSEN vélstjóra. Gudrun West Frederiksen, börn, tengdabörn og barnabörn. Lokað Lokað í dag vegna jarðarfarar ÞÓRARINS HAFBERG, verkstjóra, Réttarholtsvegi 77, Reykjavík. Lenkó hf Smiðjuvegi 1, Kópavogi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.