Morgunblaðið - 17.03.1988, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 17.03.1988, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1988 6fc> ■ LIMOGES frá Frakklandi varð í gærkvöldi Evrópumeistari bikarhafa í körfuknattleik. Limog- es sigraði Joventut Barcelona, 96:89, eftir framlengdan úrslitaieik í Grenobel. Staðan í hálfleik var 43:43 og 86:86 eftir venjulegan leiktíma. ■ LEIKMENN íslenska ólympíu- Jandsliðsins í knattspymu ráku upp stór augu þegar þeim var vísað til búningsklefa fyrir leikinn gegn Haarlem á þriðjudaginn. Búnings- klefinn var lítill. „Minni en litli bún- ingsklefinn í Keflavík," sagði einn landsliðsmaðurinn. Sigi Held, landsiiðsþjálfari, mótmælti, enda komst aðeins helmingur landsliðs- hópsins inn í klefann í einu. Inn af hinum litla búningsflefa var sturtu- klefi, sem hafði að geyma tvo sturtuhausa. Landsliðið fékk betri klefa eftir mótmælin. MBRÖNDBY frá Danmörku og sænska félagið Malmö FF, leika til úrslita f Norðurlandameistara- mótinu í knattspymu, sem fer fram þessa daga f Portúgal. Bröndby sigraði Moss frá Noregi, 2:0 og þá tapaði Moss, 1:4, fyrir Malmö FF. ■ GAMLA kempan Ágúst Ágústsson, leikur til úrslita gegn íslandsmeistaranum í knattborðs- leik 1987, Viðari Viðarssyni, í beinni útsendingu á Stöð 2 á laug- ardaginn kl. 12 - á Stöð 2 mótinu f billiard. ■ UNGLINGAMEISTARA- MÓTIÐ í knattborðsleik hófst í gær í Ingólfsbilliard. Mótið heldur áfram í dag kl. 17. Úrslitaleikurinn verður sýndur á Stöð 2 kl. 18.46 á þriðjudaginn kemur. HANDKNATTLEIKUR /BIKARKEPPNIN KR vann á endasprettinum KR-INGAR tryggðu sér sæti í undanúrslitum bikarkeppni HSÍ með sigri yfir ÍBV í gær 23:19. Leikurinn var jafn, en KR-ingar gerðu út um leikinn með góðum endaspretti, þrátt fyrir að vera tveimur leikmönn- um færri síðustu mínúturnar. Leikurinn var rólegur framan af og eftir 10 mínútur var staðan 1:1. KR-ingar komust í 3:1, en Vestmannaeyingar svöruðu með 6 mörkum í röð. Stað- an þá 7:3. KR-ingar léku sama leikinn, skoruðu 6 mörk í röð og breyttu stöðunni f 7:9, enf hálfleik varstaðan 10:10. KR-ingar náðu þriggja marka for- skoti í upphafi síðari hálfleiks, en munurinn var þó lengst af aðeins eitt mark. Þegar þijár mínútur voru til leiks- loka var staðan 18:19, KR í vil, en aðeins fjórir útileikmenn KR inn á. En heimamönnum tókst ekki að Þórður Slgurðsson skoraði sex mörk gegn Fylki. nýta sér það og KR-ingar sigruðu því 19:23. KR-ingar voru sterkari, þrátt fyrir að leikur þeirra hafi verið sveiflu- kenndur. Stefán Kristjánsson var bestur í liði KR og Johannes Stef- ánsson var sterkur í vörninni. Þá varði Leifur Dagfinnsson vel. Vestmannaeyingar byijuðu mjög vel, en virtist skorta úthald. Þeir fóru illa með sóknir sínar á lokamín- útunum þegar þeir höfðu tækifæri til að jafna. Jón Bragi Arnarson, markvörður, var bestur í liði ÍBV, varði 16 skot. Sigurbjöm Aðalsteinsson lék einnig vel og Sigurður Friðriksson var sterkur í hominu. Vestmannaeyingar léku án stór- skyttunnar og fyrirliðans, Sigur- bjöms Óskarssonar sem er fingur- brotinn. Mörk ÍBV: Hörður Pálsson 5, Sigurður Friðriksson 4/2, Eltas Bjamhéðinsson 4, Sigurjón Aðalsteinsson 2, óskar Freyr Brynjareson 2, Jóhann Pétureson 1 og Sig- urður Friðriksson 1. Mörk KR: Stefán Kristjánsson 7/2, Konráð Olavsson 6, Sigurður Sveinsson 4, Jóhannes Stefánsson 3, Guðmundur Pálmasson 2 og Sigurbergur Steinsson 1. Öruggur slgur Valsmanna ylkismönnum tókst ekki að fylgja eftir góðri byijun gegn Val í bikarkeppninni í handknatt- leik. Fylkismenn skomðu tvö fyrstu mörkin, en sfðan tóku Valsmenn við og sigruðu örugglega 12:33. Valsmenn byijuðu rólega, enda' nýbúnir að heyra úrslit úr leik Breiðbliks og FH. Þeir juku svo hraðan smám saman og í leikhléi var staðan 7:18, Valsmönnum í vil. Valsmenn héldu svo uppteknum ^ hætti í sfðari hálfleik og bættu við forskot sitt og í lokin var munurinn 21 mark. Jakob Sigurðsson og Þórður Sig- urðsson voru bestu menn í liði Vals, en þeir Einar Einarson og Haukur Magnússon stóðu upp úr í liði Fylk- is. Mörk Fylkis: Einar Einareson 4, Haukur Magnússon 3, Jón Hilmareson 2, Magnús Sigurðsson 1, Ásmundur Kristinsson 1 og Elfs Sigurðsson 1. Mörk Vals: Jakob Sigurðsson 8, Þórður Sigurðsson 6, Júlfus Jénasson 6, Valdimar Grímsson 5, Jón Kristjánsson 3, Einar Na- abye 2, Geir Sveinsson 2 og Þorbjöm Jens- son 1. Frá Jóhannilnga Ámasyni i Eyjum KÖRFUBOLTI / ÚRVALSDEILD || BLAK / BIKARKEPPNÍ Keflavík sendi Breiðablik niður Keflvíkingar sendu Blikana nið- ur í 1. deild í körfuknattleik í gærkvöldi, í Digranesi. Keflavík, sem lék án fimm lykilmanna, sem eru meiddir, Óiafs Frosti Gottskálkssonar, Eiösson Gylfa Þorkelssonar, skrifar Axels Nikulássonar, Guðjóns Skúlasonar og Matthías Stefánssonar, lagði Breiðblik, 68:57. Blikamir geta náð Þór að stigum, með því að leggja Hauka. Það dug- ar ekki því að Þórsarar hafa sigrað Blikana í báðum leikjum þeirra. Sigurður Ingimundarson var besti leikmaður Keflavíkurliðsins og Fal- ur Harðarson og Jón Kr. Gfslason léku einnig vel. Kristinn Rafnsson var bestur hjá Breiðabliki. Stig UBK: Kristján Rafnsson 16, Sigurður Bjamason 12, Guðbrandur Stefánsson 10, Hannes Hjálmareson 6, ólafur Adolfsson 6, Óskar Baldureson 3, Kristinn Albertsson 2 og Jón G. Guðlaugsson 1. Stig ÍBK: Sigurður Ingimundarson 24, Faldur Harðareon 18, Jón Kr. Gfslason 10, Magnús Guðfinsson 6, Brynjar Harðareon 4, Hreinn Þorkelsson 2, Egill Viðareson 2 og Gestur Gylfason 1. Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Ámi Freyr Sigurlaugsson. Þeir dæmdu ágætlega. Þróttarar í úrslit SlgurAur Inglmundarson. ÞRÓTTARAR tryggðu sér í gær sæti í úrslitaleiknum í bikar- keppni karla með sigri yfir KA f undanúrslitum, 3:1. Þróttarar sigruðu í fyrstu hri'n- unni 15:4 og einnig í næstu 15:9, þrátt fyrir að KA hafi komist í 4:0. KA sigraði í þriðju hrinunni 12:15. Þróttarar byijuðu mjög vel í fjórðu hrinunni, 9:0, en KA minnk- aði muninn í 9:8. Þróttarar gerðu svo út um leikinn og sigruðu í sfðustu hrinunni 15:8. Þróttur mæt- ir ÍS f úrslitaleiknum 28. mars, en ÍS sigraði Vfking í undanúrslitum. Þá léku Víkingur og Breiðablik í úrslitum í 1. deild kvenna. Víkingar sigruðu 3:1, 15:9, 6:15, 15:12 og 15:12. Það var fyret og fremst góð hávöm Víkings sem skóp þennan sigur. Liðin mætast að nýju á sunnudaginn og með sigri þá tryggja Víkingsstúlkumar sér ls- landsmeistaratitilinn. Ef að Breið- blik sigrar fer fram þriðji leikurinn sem er þá hreinn úrslitaleikur. HANDKNATTLEIKUR Tékkneskur landsliðs- maður til Stjömunnar? Tékkneski landsiiðsmarkvörð- urinn í handknattleik, Batska, sem leikur með Rauðu Stjömunni frá Bratislava, hefur haft samband við forráðamenn Stjömunnar og boðið fram krafta sína. Batska, sem er 36 ára, hefur leikið yfir 200 landsleiki fyrir Tékkóslóvakíu. „Það er rétt, Batska hefur haft samband við okkur og hefur lýst yfir áhuga á að koma til íslands og leika með Stjömunni," sagði Jón Ásgeir Eyjólfsson, formaður handknattleiksdeildar Stjömunn- ar f viðtali við Morgunblaðið f gær. Jón Ásgeir sagði að Stjarnan hafi ekki gefið Batska neitt ákveð- ið svar. „Við óskuðum eftir þvf að hann sendi okkur myndbands- spóiu með upptöku flrá leikjum sem hann hefur tekið þátt í.“ „Við erum með tryög góðan mark- vörð, Sigmar Þröst Óskarsson, sem við viljum hafa áfram hjá okkur. Sigmar Þröstur hefur ekki enn gefið okkur ákveðið svar um, hvort hann verði áfram hjá okkur eða fari aftur til Vestmannaeyja eftir þetta kepþnistímabil,“ sagði Jón. KNATTSPYRNA / ENGLAND Liverpool náði að jafna Leeds-metið! LIVERPOOL gerði jafntefll við Derby, 1:1, í ensku 1. deildinnl í gærkvöldi og jafnaði þar með met Leeds United fré þvf keppnistímabflið 1973-74, er liðíð lék fyrstu 29 lelkina án taps. að var Craig Johnston sem skoraði fyrir Liverpool í gær; hann þrumaði f netiö af stuttu færi á 54. mín. eftir að Steve Nicol hafði skotið í Nigel Cailaghan og knöttur- inn hrokkið tii Johnston. Það var svo vamarmaðurinn Mike Foreyth sem jafnaði fímm mín. fyr- ir leikslok — og er það aðeins ann- að markið sem Liverpool fær á sig í síðustu 16 leikjum. Liverpool hefur unnið 22 af 29 leikjum sfnum f deildinni og gert 7 jafntefli. Liðið hefur nú 15 stiga forskot á Manc- hester United, sem er í öðm sæti. Á sunnudaginn kemur f ljós hvort Liverpool nær að bæta met Leeds, öán áEliiiíl invf Craig Johnston liggur hér f drullunni & Maine Road sfðastliðinn sunnudag í bikarleiknum gegn Manchester City, eftir að Paul Lake felldi hann og vfti var dæmt. Craig skoraði mark Liverpool í gær. en þá mætir liðið erkifjendum sínum í Everton, á Goodison Park, heima- velli síðamefnda liðsins. í gærkvöldi vora tveir aðrir leikir 5 1. deildinni, Norwich vann Oxord 4:2 á heimavelli, og QPR vann Nottingham Forest 2:1. Leikið var á heimavelli QPR. Þá gerðu Leicest- er og Stoke jafntefli, 1:1, í 2. deild.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.