Morgunblaðið - 27.04.1988, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988
t
Dóttir okkar og systir,
AÐALSTEINA JÓHANNESDÓTTIR,
sem lést 23. apríl, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstu-
daginn 29. apríl kl. 10.30.
Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlegast bent á Barnaspít-
ala Hringsins.
Jóhannes Stefánsson,
Árný Aðalsteinsdóttir,
Hanna Gréta og Guðný Lára.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR,
Hrafnistu, Reykjavík,
lést mánudaginn 25. apríl.
Hulda Magnúsdóttir,
Magnús Magnússon, Dóra Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaðir og afi,
KRISTINN BJÖRNSSON
rafvirkjameistari,
Ásgarði 3, Keflavik,
andaðist 24. apríl.
Fyrir hönd aöstandenda,
Magnea Jónsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir og sonur,
EYJÓLFUR SNÆBJÖRNSSON,
Heiðargerði 92,
Reykjavík,
andaðist á Borgarspítalanum að morgni 25. apríl.
F.h. aðstandenda,
Edith Nicolaidóttir,
Sigriður Eyjólfsdóttir,
Sigriður Jónsdóttir.
t
Ástkær eiginmaöur minn,
SIGURÐUR ÞORBJARNASON
f.v. yfirvélstjóri,
lést í Kaupmannahöfn 24. april.
Jarðarförin fer fram frá Helligándskirke, fimmtudaginn 28. april.
Karen Margrethe Kongshaug.
t
VALDIMAR STEFÁNSSON
múrari,
lést 25. april á hjúkrunarheimilinu Skjól.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir minn,
TRYGGVI GUNNARSSON,
Grjóta,
Garðahverfi,
lést mánudaginn 25. apríl. Fyrir hönd vandamanna,
Skúli Geir Tryggvason.
t
Éiginmaður minn, faðir okkar,;tengdafaðir, afi og langafi,
VILHJÁLMUR KRISTINN INGIBERGSSON
húsasmiðameistari,
Elliheimilinu Grund,
áður Byggðarholti 4, Mosfellsbæ,
sem lést 20. apríl, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju fimmtu-
daginn 28. apríl kl. 10.30.
Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir,
Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, Óli S. Runólfsson,
Ingibergur Vilhjálmsson, Ása Ásmundsdóttir,
Guðlaugur Jón Vilhjálmsson, Aðalbjörg Baldvinsdóttir,
Haukur Vilhjálmsson, Ólöf Steinarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Arnþór Jakohs-
son — Minning
Fæddur 24. febrúar 1892
Dáinn 18. apríl 1988
Amþór Jakobsson, sómamaður,
verður borinn til hinstu hvílu í dag,
miðvikudaginn 27. apríl, frá Foss-
vogskapellu. Hann fæddist að
Narfastaðaseli í Reykdælahreppi og
lést á Droplaugarstöðum í
Reykjavík á sínu 97. aldursári.
Arnþór kvæntist í Noregi í ágúst
1922 norskri konu, Gudmn Kylle-
vik, og bjuggu þau saman í Noregi
þar til þau slitu samvistum, éftir
u.þ.b. tíu ára hjúskap. Þau hjónin
eignuðust þtjú böm og tvö þeirra
em á lífí og búa í Noregi. Um
starfa Amþórs ytra veit ég fátt,
utan að hann tjáði mér að hann
hefði starfað við járnbrautimar.
Sjálfur kynntist ég Amþóri fyrir
u.þ.b. 25 ámm og hélt við hann
góðu sambandi til dauðadags. Þrátt
fyrir meira en 50 ára aldursmun
höfðum við um fjölmargt að ræða
og áttum ýmis sameiginleg áhuga-
mál.
A opinbem plaggi frá Noregi sá
ég Amþór titlaðan sem kunstmaler
eða listmálara. Þótt ég hafí aldrei
séð eftir hann mynd, þá lýsir þessi
titill nokkuð vel þeim manni sem
hann hafði að geyma. Náttúran, í
allri sinni fegurð og öllum sínum
fjölbreytileika, var Arnþóri mjög
hugleikin. Það mátti gleggst sjá af
þeim málverkum og myndspjöldum
sem prýddu híbýli hans. Litskrúðug
veggspjöld með myndum af fuglum,
fiskum, skeljum og blómum prýddu
alla veggi, svo vart sást í veggfóð-
ur. í bókasafni hans voru og fjöl-
margar bækur um náttúrufræðileg
efni og bar þar mest á fugla- og
skeljabókum. Sagnfræðirit,
ljóðabækur, alfræðirit og landa-
bréfabækur voru einnig áberandi.
Ahugamál Amþórs voru fjölmörg
en einna hæst bar söfnun og beind-
ist sá áhugi hans í ólíklegustu far-
vegi. Skeljar, steinar, einkennis-
húfur, frímerki, blaðagreinar, minn-
ispeningar, brúarmyndir, póstkort,
einkennisbúningar og myndir af
vitum og járnbrautum voru meðal
hugðarefna hans. Ég man eftir því
að eitt sinn sýndi hann mér kassa
fullan af blaðaúrklippum um Ric-
hard Nixon Bandaríkjaforseta, svo
dærni sé tekið.
í tengslum við sína sérstæðu
söfnun var Amþór um árabil í
bréfasambandi við hundruð manna
um heim allan.
A fundum okkar Amþórs bar
margt á góma og sátum við stund-
um klukkustundum saman og
spjölluðum. Umræðan snerist um
allt frá efnahagsmálum og pólitík
til skipulagningar á styttum bæjar-
ins, alltaf var af nógu að taka. Ljóð
lásum við stundum og fyrir kom
að Amþór fór með frumsamin ljóð
og ferskeytlur, en hann var vel
hagmæltur.
Amþór var mikill trúmaður og
var hermaður í Hjálpræðishemum
í Reykjavík og sótti þar samkomur
þar til fótafúi gerði honum það erf-
itt. Hann vann í mörg ár ötullega
við að haida umhverfi Herkastalans
sem snyrtilegustu og dyttaði að
ýmsu smálegu.
Nú er Amþór genginn á vit feðr-
t
Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR EINARSDÓTTIR,
Stangarholti 26,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 28. apríl kl.
13.30. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Slysavarna-
félag (slands.
Ágústa Ólafsdóttir,
Garðar Ólafsson, Anna M. Samúelsdóttir,
Jón Ólafsson, Ingigerður Eggertsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi,
SIGURÐUR AUÐBERGSSON,
Hólmgarði 52,
er látinn. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Guðrún Guðjónsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
EINAR ÞORLEIFSSON,
Faxabraut 68,
Keflavik,
er lést 18. april, verður jarðsunginn frá Keflavikurkirkju föstudag-
inn 29. apríl kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð,
en þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Ingibjörg Garðarsdóttir,
Jóhann Garðar Einarsson,
Þorleifur Einarsson.
t
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JÓHANNES G. BRYNJÓLFSSON
bakarameistari,
Holtsgötu 14,
veröur jarðsunginn frá Þjóökirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn
28. apríl kl. 15.00.
Jenný Gísladóttir,
Brynjólfur Jóhannesson, Þórunn Þráinsdóttir,
Emilía Jóhannesdóttir, Kjartan Jónsson,
Sveinn Jóhannesson, Hlin Gunnarsdóttir
og barnabörn.
anna og mun ég minnast stundanna
með honum og jafnframt sakna
þeirra. Amþór lifði langa og við-
burðaríka ævi og hafði frá mörgu
að segja, þótt fámáll væri hann um
eigin hagi. Áhugamálin tóku mest
allan tíma hans og var hann af
þeim sökum talsverður einfari. En
þeim sem náðu að kynnast honum,
reyndist hann vel.
Megi minning hans lifa með okk-
ur.
Hákon Óskarsson
Þann 18. þessa mánaðar bárust
mér þau tíðindi að látinn væri gam-
all vinur minn, Amþór Jakobsson.
Þessi tíðindi komu mér ekki á
óvart. Hann var orðinn gamall
(fæddur 24. febrúar 1892). Ekki
hryggðu þau tíðindi mig, því hann
átti góða heimvon, eins og allir
þeir, sem játa Krist sem Herra
lífsins.
Ég þekkti þennan sérkennilega
mann í meira en hálfa öld og á um
hann margvíslegar minningar.
Svo margar og sundurleitar sem
þessar minningar em, em þær allar
ljúfar. Ekki svo að skilja, að ég
hafí ávallt þýðst og glaðst yfír hátt-
um hans og dagfari — miðað við
yfírborð þess. En þegar ég gafst
upp á rökrænni yfirvegun þess og
mati, þá var eins og ég kæmist
alltaf að sömu niðurstöðu: „Hjartað
gott, sem undir slær.“
Fjöldinn allur af fólki í Reykjavík
þekkti þennan mann í sjón, en,
hjálpi mér, hver þekkti hann?
Hann er sá maður, sem mest
hefur farið huldu höfði innan um
fjöldann. Hann gerði sér mikið far
um að dyljast í fjöldanum og tókst
það klaufalega — hvar sem hann
fór var honum veitt athygli. Og
ekki gazt öllum vel að fasi hans,
framkomu og viðmóti.
Amþór og ég vomm daglega, í
mörg ár, hvor öðmm nærri. Bjugg-
um í sama húsi. Frá því skeiði em
flestar minningar mínar um hann.
Margar þeirra era lítið ánægjuefni,
en flestar era þær ánægjulegar, því
stundum sást í gegnum huliðs-
hjúpinn sem hann reyndi að fela
sig undir, þá sá maður ljúft og ein-
mana bam.
Nú hittumst við ekki framar
héma, en vissulega nægir náð Guðs
okkur báðum. Tíminn er auðvitað
hvorki langur né stuttur og innan
tíðar hittumst við Amþór vinur
minn aftur.
Bless á meðan!
Jón Kristófer
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjóm blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.