Morgunblaðið - 08.05.1988, Side 3
SVOXA GERUM VIÐ HLUTAFÉLAG SÍA
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1988
3
\jdUwi
á *2?ffíQQ
Raunveruleg kjarabót
Enn á ný efnir Útsýn til ferðaveltu.
Við höfum komið okkur fyrir á nýrri
aðalskrifstofu í Mjóddinni, erum í
sólskinsskapi og bregðum á leik að
loknum flutningum, - með raunverulegri
kjarabót.
Ferðaveltuna bjóðum við þeim sem eru til
í óvissu um áfangastað og gistingu gegn
lægra verði. En gæðin eru á sínum stað.
Rýmingarsala?
Nei, hreint ekki. Við fögnum stöðugum og
öruggum uppgangi Útsýnar síðustu árin
með nokkrum útvöldum ferðaveltusætum í
sumar. Þeir sem bregðast fljótt við geta
tekið þátt í leiknum en fjöldi sæta er
takmarkaður.
Hvernig er ferðaveltan?
- Þú setur fram óskir um brottfararviku
og staðfestir ferðina með 7000 króna
innborgun.
- Þú veist ekki hvort áfangastaðurinn er
Portúgal, Suður-Þýskaland, Spánn eða
Italía, - við ekki heldur.
- Þú stillir upp óskalista um áfangastaði.
Við reynum að uppfylla óskir þínar.
- 8 dögum fyrir brottför látum við þig vita
hvertþú ferð og á hvaða gististað. Þú færð
góðan gististað í Útsýnargæðaflokki.
ÚTSÝN
Ferðaskrifstofan Utsýn hf.
- Þú gengur frá greiðslu, nærð í
farseðlana og pakkar niður.
Verð er 29.900 krónur og er miðað við 2
fullborgandi í gistingu. Gengi 27. apríl 1988.
- Barnaafsláttur fyrir 2- 12 áraer 10. OOO
krónur.
Er einhver áhætta?
Hreint engin áhætta því Útsýn hefur valið
áfangastaði sína á Sþáni, Portúgal, Ítalíu og
Þýskalandi vegna þess að þeir eru í
sérflokki meðal sumardvalarstaða í Evrópu.
Gistingin stenst í öllum tilfellum gæðakröfur
Útsýnarfarþega um aðbúnað, staðsetningu
og hreinlæti.
Við höfum alltaf haft gæðin að leiðarljósi
í 33ja ára öruggri ferðaþjónustu.
Álfabakka 16, 109 Reykjavík, sími: 91-603060 • Austurstræti 17, 101 Reykjavík, sími: 91-26611