Morgunblaðið - 08.05.1988, Page 3

Morgunblaðið - 08.05.1988, Page 3
SVOXA GERUM VIÐ HLUTAFÉLAG SÍA MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1988 3 \jdUwi á *2?ffíQQ Raunveruleg kjarabót Enn á ný efnir Útsýn til ferðaveltu. Við höfum komið okkur fyrir á nýrri aðalskrifstofu í Mjóddinni, erum í sólskinsskapi og bregðum á leik að loknum flutningum, - með raunverulegri kjarabót. Ferðaveltuna bjóðum við þeim sem eru til í óvissu um áfangastað og gistingu gegn lægra verði. En gæðin eru á sínum stað. Rýmingarsala? Nei, hreint ekki. Við fögnum stöðugum og öruggum uppgangi Útsýnar síðustu árin með nokkrum útvöldum ferðaveltusætum í sumar. Þeir sem bregðast fljótt við geta tekið þátt í leiknum en fjöldi sæta er takmarkaður. Hvernig er ferðaveltan? - Þú setur fram óskir um brottfararviku og staðfestir ferðina með 7000 króna innborgun. - Þú veist ekki hvort áfangastaðurinn er Portúgal, Suður-Þýskaland, Spánn eða Italía, - við ekki heldur. - Þú stillir upp óskalista um áfangastaði. Við reynum að uppfylla óskir þínar. - 8 dögum fyrir brottför látum við þig vita hvertþú ferð og á hvaða gististað. Þú færð góðan gististað í Útsýnargæðaflokki. ÚTSÝN Ferðaskrifstofan Utsýn hf. - Þú gengur frá greiðslu, nærð í farseðlana og pakkar niður. Verð er 29.900 krónur og er miðað við 2 fullborgandi í gistingu. Gengi 27. apríl 1988. - Barnaafsláttur fyrir 2- 12 áraer 10. OOO krónur. Er einhver áhætta? Hreint engin áhætta því Útsýn hefur valið áfangastaði sína á Sþáni, Portúgal, Ítalíu og Þýskalandi vegna þess að þeir eru í sérflokki meðal sumardvalarstaða í Evrópu. Gistingin stenst í öllum tilfellum gæðakröfur Útsýnarfarþega um aðbúnað, staðsetningu og hreinlæti. Við höfum alltaf haft gæðin að leiðarljósi í 33ja ára öruggri ferðaþjónustu. Álfabakka 16, 109 Reykjavík, sími: 91-603060 • Austurstræti 17, 101 Reykjavík, sími: 91-26611

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.