Morgunblaðið - 08.05.1988, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1988
CÓR LANGHOLTSKIRKU Á ÆFINGABÚÐUM í MUNAÐARNESI
TEXTI OG MYNDIR: HELGI ÞÓR
INGASON
Kór Langholtskirkju er einn
af þekktustu kórum
landsins. Hann hefur í mörg
ár skipað stóran sess í
hjörtum unnenda
klassískrar tónlistar fyrir
metnaóarfullan og
vandaðan tónlistarflutning.
Á hveijum starfsvetri flytur
kórinn a.m.k. tvö stærri
verk auk smærri verka. Ekki
má heldur gleyma
aðalhlutverki kórsins, að
syngja við messur í
Langholtskirkju.
Um þessar mundir er
kórinn m.a. að æfa nýtt verk
eftir Gunnar Reyni
Sveinsson sem flutt verður
á listahátíð í vor. Fyrir
skömmu brá kórinn sér í
æfingabúðir í Munaðamesi
í Borgarfirði til að æfa
verkið. Blaðamaður
Morgunblaðsins var með í
för og ræddi við nokkra
kórmeðlimi en spjallaði
fyrst við stjómandann, Jón
Stefánsson.
—-------
■ Kór Langholtskirkju.
Sungið
frá morgni
til kvölds
Við höfum haft þann sið
f fjölda ára að fara í
æfingabúðir á vorin til
að fullvinna ýmis verk.
Ég held að fyrstu æf-
ingabúðimar hafi verið árið 1975.
Fjölmargir kostir eru við að fara
í æfingabúðir. Fyrst má nefna hve
vel tíminn nýtist. Hinar reglulegu
æfingar kórsins eru tvisvar í viku
og standa í tvær klukkustundir í
senn. Þar af fara 15 mínútur í radd-
þjálfun og aðrar 15 mínútur í kaffí
og því fáum við í raun ekki nema
einn og hálfan tíma út úr hverri
æfingu. í æfingabúðum horfír þetta
öðmvísi við. Við þurfum ekki að
hita upp nema einu sinni í upphafí
dagsins og svo er æft stíft með
stuttum hléum fram eftir degi.
Annað sem miklu máli skiptir er
að í æfingabúðum gleyma menn
ekki því sem þeir læra. Fólkið hefur
um fátt annað að hugsa en sönginn
og því er einbeiting þess í há-
marki. Venjulega líða 2 og 5 dagar
milli æfinga og þá vill oft gleymast
eitthvað af því sem farið var í á
síðustu æfingu.
Síðast en ekki síst er það félags-
legi þátturinn. í æfingabúðum er
fólkið svo nálægt hvert öðm að það
kynnist og tengist innbyrðis. Slík
kynni em undirstaða og forsenda
þess að vel gangi að æfa.
Ég held að það láti nærri að
æfíngabúðir sem standa yfír eina
helgi jafnist á við einn til einn og
hálfan mánuð af hefðbundnum æf-
ingum. Þess vegna era þessar ár-
legu ferðir ómissandi þáttur í kór-
starfinu.
Æft um leið og
verkið er samið
Hér í Munaðamesi emm við að
æfa tónverk eftir Gunnar Reyni
■ Jón Stefánsson kórstjóri.
StrembiÖ á köfl-
um en sami
skemmtilegt
„Ég er búin að starfa með Kór
Langholtskirkju ( tvö ár, en áður
söng ég með kór Menntaskólans
við Sund sagði Biraa Lárus-
dóttir.
„SUMARIÐ eftir að ég varð stúd-
ent vom nokkrir kórfélagar úr MS-
kómum notaðir f atriði á afinæli
Reykjavíkur 18. ágúst. Við vorum
send í stúdíó í upptöku og þar vora
einnig nokkrir úr Kór Lsingholts-
kirkju. Ég fékk áhuga á að ganga f
kórinn og um haustið þreytti ég radd-
próf og fékk inngöngu.
Margt hefur gerst sfðan. Við sung-
um á Norrænum músfkdögum þá um
haustið og einnig argentíska messu
sem heitir Misa Criolla. Fyrir ári
sungum við Jóhannesarpassíuna eftir
Bach og f fyrravor fómm við til
Færeyja í tónleikaferð. Síðastliðið
haust sungum við Jólaoratorfu Bachs
og nú emm við að æfa Jassverk
Gunnars Reynis og Missa Sofemnis
eftir Beethoven.
Hér í Munaðamesi æfum við verk
Gunnars Reynis seni Jón Stefánsson
stjómandi vill kalla nútíma jassverk.
Þetta er mjög strembið á köflum en
Sveinsson, samið við ljóðaflokk eft-
ir Birgi Sigurðsson. Ljóðaflokkur-
inn heitir „Á jörð ertu kominn" og
þetta er gifurlega sterkur texti.
Hluti verksins er með jassívafi og
hluti þess er klassfskur. Tveir hópar
hljóðfæraleikara sjá um undirleik,
Blásarakvintett Reykjavíkur og
fimm manna jasshljómsveit og org-
elleikari. Verkið er samið fyrir tvo
kóra, einn stóran og einn lítinn.
Þessir kórar syngja bæði saman og
á víxl. Verkið verður svo flutt á
Listahátíð í sumar, bæði 11. og 12.
júní.
Æfingabúðimar em dálftið
öðmvísi nú en oft áður og erfiðari.
Venjulega höfum við verið að
fínpússa verk fyrir hljómleika en
nú emm við eiginlega að frumlesa
stóran hluta verksins og það krefst
mikiilar einbeitingar. Það er líka
ný reynsla fyrir mig að æfa verk
um leið og það er skapað. Þó Gunn-
ar hafi samið verkið fyrir 10 ámm
er hann nú að umskrifa það og stór
hluti þess er nýr. Ég er því ekki
enn búinn að sjá allt verkið í endan-
legri mynd!
■ Biraa Lárasdóttir.
samt skemmtilegt. Tíminn hefur nýst
mjög vel en þó finnst mér að æfinga-
búðimar mættu jafnvel standa einum
degi lengur.
Mér finnst auðvitað mjög gaman
að sjmgja með þessum kór, annars
væri ég ekki með. Andinn er mjög
góður, svo góður að maður mætir
yfirleitt á æfíngar þó svo að maður
sé ekki alltaf upplagður til að
syngja."
Eg neita mér
bara um
saumaklúbbinn
í staöinn
„Þetta er að verða mjög gaman
núna, eftir nyög erfíða byrjun í
janúar,“ sagði Sigrún Stefáns-
dótdr sem er að ljúka sfnum 5.
starfsvetri með kóraum.
„Starfið með kór Langholtskirkju
er alltaf skemmtilegt. Núna emm
við að æfa jasskantötu eftir Gunnar
Reyni Sveinsson,_sem flytja á á lista-
hátíð f sumar. A sama tfma emm
við að æfa Missa Solemnis eftir
Beethoven ásamt Mótettukómum.
Álagið á kórmeðlimi og fjölskyld-
ur þeirra er mikið og þetta er stund-
um erfitt ef mikið er að gera. Oft
á tfðum þarf maður að komast að
samkomulagi á heimilinu til að geta
sungið með, en það er þess virði.
Ég neita mér bara um saumaklúbb-
inn í staðinn!
Jasskantata Gunnars Reynis er
mjög §ölbreytt verk að syngja og
ömgglega skemmtilegt áheymar.
Þar kemur allt fyrir, veraldlegir og
■ Sigrún Stefánsdóttir.
trúarlegir textar og talkórar. Ég
hlakka mjög til að heyra verkið með
hljómsveit..
Æfingabúðimar era mjög vel
heppnaðar nú sem endranær og
jafnast ömgglega á við margra
vikna æfingar í Reykjavík. Hér er
engum tíma eytt til ónýtis. Kórinn
nær vel saman, hópkennd vex og
maður lærir að þekkja á náungann."