Morgunblaðið - 08.05.1988, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 08.05.1988, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1988 Þorbjörg Daníelsdóttir Hjálpum Guði í umferðinni Sumardagurinn fyrsti var liðinn og líka fyrsti maí og allir bílar áttu samkvæmt lögum að vera komnir á sumardekk, enda ekki búist við snjókomu og hálku, úr Íiví sem komið var. En veðrið á slandi er óútreiknanlegt, eins og reyndar okkur öllum er kunnugt. Samt brá þeim, sem búa á Reykjavíkursvæðinu, ónotalega í brún þegar litið var út árla fímmtudagsmorguns í liðinni viku. Það var þungt í lofti og slydduúrhreytingur og innan stundar þéttist úrkoman uns farið var að kafsnjóa, einmitt um það leyti sem flestir voru á leið til vinnu sinnar. Skyndilega var kom- ið dæmigert haustveður með slæmu skyggni og hálku og öllum þeim hættum sem því fylgir í umferðinni. Daginn eftir mátti lesa í blöðum, að 16 árekstrar hefðu orðið á einum klukkutíma, milli kl. 8 og 9 um morguninn og enn fleiri síðar um daginn. Umferðin á höfuðborgarsvæð- inu er orðin svo gífurleg, að nán- ast ekkert má útaf bera án þess að vandræði og óhöpp hljótist af, — og slysin eru svo allt of, allt of mörg og tíð. Konur, menn, böm og aldraðir sem tugum sam- an verða fómarlömb umferðarinn- ar — öll skilja þau eftir sig enn fleiri syrgjendur og ástvini. Hvert sinn sem slys verður, gerist það óvænt og skyndilega. Vinurinn eða bamið sem var fullt að lífsfjöri og krafti fyrir stundu er nú lim- lest eða jafnvel horfíð burtu fyrir fullt og allt. í ágætri bók sem heitir „Hvers vegna ég?“ eftir Harold S. Kushn- er, bandarískan gyðing, er Qallað um afstöðu fólks til Guðs og til trúarinnar, eftir að það hefur orð- ið fyrir áfalli eða sorg. Hvemig bregðast t.d. foreldrar við, sem eitt augnablik sleppa sjónum af ungu bami sínu og það lendir fyrir bíl og deyr nánast fyrir aug- unum á þeim. Þau eru trúuð og kirkjurækin og þau vissu að þau áttu að fyrirgefa ökumanninum. Þó gátu þau ekki varist ásökunum og reiði í garð þess sem óhamingj- unni olli. Þau vissu að þau áttu að fyrirgefa, „svo sem vér og fyr- irgefum vorum skuldunautum" — en það var mjög, mjög erfítt, jafn- vel fyrir þetta trúaða kristna fólk. Þau fundu að þau urðu að láta Guð um að lækna sárin og söknuð- inn, og þau gerðu sér jafnframt ljóst að þau urðu einnig að láta Guð um að lækna öll gömul sár, sem eins og höfðu tekið sig upp eftir þetta seinasta mikla áfall. Smátt og smátt unnu þau bug á sorg sinni og söknuði með Guðs hjálp og sár þeirra læknuðust. Tilfinningaviðbrögð, eins og þau að fyllast ásökun í garð Guðs og þess sem talinn er valdur að óhamingjunni, eru aðeins mann- leg og svo er einnig um sjálfsásök- unina og ásökunina í garð Guðs í því sambandi. Af hveiju þurfti þetta að koma fyrir mig? Af hveiju hafði hinn bílstjórinn ekki bílbeltið spennt? Af hveiju gættu foreldramir ekki bamsins síns betur? Hvers vegna? Hvers vegna? Spumingamar em óþijótandi. Og ef til vill verður stærsta og sárs- aukafyllsta spurningin: Hvers vegna lét Guð þetta gerast? En Harold S. Kushner segir: Það er ekki Guð sem stjómar því að slys verða. Þau verða af því að við mennirnir og heimurinn sem við lifum í er ófullkominn. Það sem Guð vill gera er að líkna og hugga, að fyrirgefa og end- umýja. Guð vill alltaf umskapa hið illa til góðs. Það er ekki að hans vilja að líf okkar sé í sífelldri spennu og átökum, uns þol okkar brestur. Víst vill hann reyna styrk okkar, en aldrei umfram það sem við emm fær um að þola. Guðs ætlun með lífí okkar er að við lif- um í jafnvægi, ekki í ójafnvægi og árekstmm við umhverfí okkar. Þegar við ferðumst í umferð- inni, eigum við að líta svo á að Guð sé með okkur — einnig þar. Það er hins vegar ekki sjálfgefið að okkur leyfíst að stíga bensínið í botn í vissu um að allt blessist af því að Guð er með okkur. Það fríar okkur ekki heldur undan því að taka tillit til veðurs og að- stæðna. Nei, í stað þess ber okkur að hjálpa Guði til þess að hans vilji ráði í umferðinni. Það gemm við með því að keyra gætilega, með því að hirða um allar varúðar- reglur og með því að forðast að láta stressið og ákafann ná tökum á okkur. Það mætti ætla, oft á tíðum, að okkur fínnist við ekki hafa neinar siðferðilegar skyldur þegar við ökum bfl. Þeirri afstöðu verð- um við að breyta. Minnumst þess að Guð ætlast til hins sama af okkur í umferðinni eins og hann ætlast til af okkur við aðrar að- stæður. En þegar óhöppin verða, þegar við verðum völd að slysi eða verðum sjálf fónjarlömb slysa, munum þá að við eigum Jesús að — ekki til að áfella, heldur til að hugga og fyrirgefa. Biblíulestur vikunnar Sunnudagur: Lúkas 11,5—13 Mánudagur: Sálmur 63. Drottinn, sál mína þyrstir eftir þér. Þriðjudagur: Sálmur 64. Allir hreinhjartaðir munu sigri hrósa. Miðvikudagur: Jóh. 14,1—14. Aðþekkja Jesúm er aðþekkjaGuð. Fimmtudagur: Uppstigningardagur. Lúkas 24,46—53. Föstudagur: Jóhannes 14,25—24. Ekki mun ég skiljayður eftir munaðarlausa. Ég kem til yðar. Laugardagur: Jóhannes 14,25—31. Frið lætégeftirhjáyður, minn frið gef ég yður. Bílbænin Drottinn Guð, veit mér vernd þína, og lát mig minnast ábyrgðar minnar er ég ek þessari bifreið. ( Jesú nafni. Amen. Jón Oddgeir Guðmundsson heitir maður á Akureyri. Hann er verslunarmaður og virkur fé- lagi í KFUM. í fimmtán ár hefur hann séð þeim, sem hafa viljað, fyrir “bílbæninni". Það er stutt bæn, prentuð á lítinn límmiða sem gjarnan er límdur á mælaborð bílanna. Hann sagði mér að hon- um hefði eitt sinn fyrir löngu ver- ið gefin lítil falleg koparplata með áþrykktri ferðabæn á ensku. Svo var það að hann byijaði að lesa inn á símsvara það sem hann kallaði „Orð dagsins". Það er stutt hugleiðing, ein fyrir hvern dag, út frá ritningarversi, ætlað þeim sem vilja leita huggunar og uppörvunar. Til þess að létta svol- ítið símkostnaðinn datt honum í hug að þýða og gefa út fallegu, ensku bílbænina. Hann langaði' einnig til að gefa öðrum kost á því að eignast og nota þessa bæn. Hann lét prenta á nokkra mis- munandi liti, sem fólk gæti valið um, eftir því sem því fyndist eiga best við lit bílsins. Verslunin Kirkjufell í Reykjavík fór strax að selja fyrir hann og sjálfur seldi hann fyrir norðan. Salan gekk strax vel og hefur aldrei verið meiri en síðustu ár. Núna er hún seld í versluninni Kirkjuhúsinu við Klapparstíg. „Eg hef fengið mörg þakkar- orð,“ sagði Jón Oddgeir. „Fólk hefur meira að segja sagt mér að það hafí farið að biðja reglu- lega eftir að það eignaðist bílbæn- ina, ekki bara þessa bæn, heldur líka aðrar bænir sem það var ekki vant að biðja. Bílbænin opnaði augu þess fyrir áhrifamætti bæn- arinnar í hvaða sambandi sem er. Margir segjast líka íhuga hvernig þeir hagi akstri sínum, því eftir að hafa farið með bæn, þar sem beðið er um handleiðslu Guðs, fer fólk ekki hugsunarlaust af stað. Eg veit til þess að sumum fínnst þeir ekki getað tekið nýjan bíl í notkun fyrr en þeir eru búnir að setja bílbænina á þann stað á mælaborðinu sem hún blasir við augum," sagði Jón Oddgeir. Ferðabænir í sálmabókinni I sálmabókinni eru þijár ferða- bænir, ein fyrir sjóferðir, ein fyrir flugferðir oa svo þessi, sem er að fínna á blaosíðu 585: „Ég veit, Drottinn, að örlög mannsins eru ekki á hans valdi né það á færi manns að stýra skrefum sínum. En allir vegir þínir eru elska og trúfesti. Því vil ég fela þér vegu mína og treysta þér. Þú munt vel fyrir sjá. Sála mín heldur sér fast við þig og hönd þín styður mig. Gjör mig fúsan að fylgja þér. Kenn mér að gjöra vilja þinn, því að-þú ert minn Guð. Þinn góði andi leiði mig. Amen.“ Allar upplýsingar um ferðalög innanlands Upplýsingamiðstöð ferða- mála á íslandi gengst fyrir ferðakynningu undir kjörorðinu „Njótið sumarsins í íslenskri náttúru" nú um helgina . Kynn- ingin verður í Ingólfsstræti 5 og er haldin í því skyni að kynna Islendingum þá ferðamöguleika sem bjóðast hérlendis. Auk þess geta gestir spreytt sig á mynda- getraun þar sem í boði eru 10 f erðavinningar. Upplýsingarmiðstöð ferðamála á íslandi er í eigu ferðamálaráðs, ferðamálanefndar Reykjavíkur og 6 landshlutasamtaka í ferðaiðnaði. „Þetta er eina fyrirtækið í ferða- iðnaðinum sem er óháð sölu- mennsku," sagði Áslaug Alfreðs- dóttir, framkvæmdastjóri mið- stóðvarinnar. „Okkar hlutverk er að safna og miðla öllum upplýsing- um um ferðaþjónustuna í landinu." Á ferðakynningunni verða einn- ig ferðamálafrömuðir frá Grænl- andi og Færeyjum, sem veita upp- lýsingar um ferðaþjonustu land- anna. Ferðakynningin í húsakynnum Upplýsingamiðstöðvar ferðamála á Islandi við Ingólfsstræti 5 var í gær, laugardag, og stendur yfir í dag, sunnudag, frá 13-18. Morgunblaðið/Þorkell Kjartan Lárusson, stjórnarformaður Upplýsingamiðstöðvar ferða- mála á íslandi, Reynir Adólfsson, stjórnarmaður, og Áslaug Alfreðs- dóttir, framkvæmdastjóri, í húsakynnum fyrirtækisins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.