Morgunblaðið - 08.05.1988, Page 56

Morgunblaðið - 08.05.1988, Page 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1988 Jóhanna Kristjáns- dóttir á Kirkjubóli Afmæliskveðja: Hún Jóhanna okkar á Kirkjubóli varð áttræð í gær 7. maí. Ekki er það nú á henni að sjá, svo teinrétt og grönn og virðuleg í fasi, lítur hún ekki út fyrir að vera degi eldri en 70 ára. Og í svip hennar er heið- ríkja, sem lýsir innri manni. Við kvenfélagskonur á Vestfjörðum eig- um Jóhönnu svo margt að þakka, hún hefur um áratuga skeið verið í stjórn Sambands vestfirskra kvenna. Og fundarritari á sam- bandsfundum hefur hún verið síðan 1963. Það var einmitt fyrsti sam- bandsfundur sem undirrituð sat sem fulltrúi fyrir Kvenfélagið Hvöt í Hnífsdal. Ég tók sérstaklega eftir þessari konu, sem þarna skipaði sæti fundarritara, og jafnframt hafði hún framsögu þegar tekið var fyrir að ræða áfengisvandamálið. En Jóhanna hefur alltaf verið mikil bindindismanneskja og hvarvetna fylgt fram þeirri sannfæringu sinni í ræðu og ritu. Á þessum sama fundi var henni einnig veitt viður- kenning fyrir störf að garðyrkju- og skógræktarmálum úr Verð- launasjóði Kristins Guðlaugssonar frá Núpi. Það var því ekki undarlegt að eftir þessari konu væri tekið. Þann- ig hefur það líka alltaf verið. Jó- hanna hefur unnið sér aðdáun og hylli allra fundarkvenna í SVK æ síðan. Og fundargerðirnar hennar eru svo lifandi og skemmtilegar og þess vandlega gætt að skrá allt vel og skilmerkilega. Hún hefur verið fulltrúi SVK á landsþingum og sótt Haustvöku KÍ. Og allt sem þar skeði flutti hún okkur af sinni alkunnu frásagnargleði og klykkti þá gjarn- an út með ljóði. Jóhanna er mjög vel máli farin svo sem hún á kyn til, og á létt með að kasta fram vísu, eins og bróðir hennar, skáldið Guðmundur Ingi, sem löngu er þjóðkunnur fyrir 1. mai var gjalddagi húsnæðislána MEÐ SKILVISI HAGNAST ÞÚ Það er þér í hag að greiða af lánum á réttum tíma og forðast óþarfa aukakostnað af dráttarvöxtum, svo ekki sé minnst á innheimtukostnað. • Þú hagnast á skilvísinni , # því þú getur notað peningana þína til gagnlegri hluta, til dæmis í að: mála stofuna fy rir sumarið setja ný blöndunartæki á baðherbergið eða leggja parket áforstofuna. Lán með lánskjaravísitölu. Greiðslufrestur er tíl 15. maí. Þann 16. reiknast dráttarvextír. Lán með byggi ngarvísiu'jlu. Greiðslufrestur,er til 31. maí. Þann 1. júní reíknast dráttarvextir. w c SPARAÐU ÞÉR ÓÞARFA ÚTGJÖLD AF DRÁTTARVÖXTUM Greiðsluseðlar hafa verið sendir gjaldendum og greiðslur má inna af hendi í öll- um bönkum og sparisjóðum landsins. Hú§næÖis§tofnun ríkisins LAUGAVEGI 77 101 REYKJAVIK S: 69 69 00 ljóð sín og ritstörf önnur. Jóhanna Guðríður Kristjánsdóttir fæddist á Kirkjubóli í Bjamadal. Foreldrar hennar vom Kristján G. Guðmundsson sem lést 1920 og Bessabe Halldórsdóttir, búendur á Kirkjubóli. Þau eignuðust 4 börn, sem em: Ólafur Þ. fyrmm skóla- stjóri Flensborgarskóla, hann er látinn. Guðmundur Ingi, skáld, Jó- hanna, og Halldór fyrmm alþingis- maður. Johanna vann heimili móður sinnar meðan hún var búandi á Kirkjubóli, eða til ársins 1944 en síðan bjó hún með bróður sínum Guðmundi Inga. Jóhanna hefur allt- af átt sitt heimili á Kirkjubóli. Hún eignaðist eina dóttur Kolfinnu Guð- mundsdóttur 1. ágúst 1950, hún er hjúkmanrkona og býr á Patreks- firði og hjá henni hefur Jóhanna stundum dvalist að vetrinum og notið samvista við bamaböm sín. Skólaganga Jóhönnu var eins og gerðist í þá daga. Hún stundaði nám í farskóla sveitarinnar veturinn 1920-1921 og 1921-1922. Og vet- urinn 1930-1931 var hún í Héraðs- skólanum á Laugum í Reykjadal. Jóhanna hefur mikinn áhuga á íslensku máli og hefur mikið ritað til Orðabókar Háskólans, einnig hefur hún unnið fyrir Þjóðminja- safnið við spurningaskrár þess um þjóðhætti og handiðnir. Hún hefur líka skrifað ritgerðir fyrir tímaritið Hug og hönd og greinar um dýralíf í Dýravemdarann, Jóhanna hefur sérstakt yndi af hestum og hafði sérlega gott lag á þeim. A fýrri ámm átti hún góða reiðhesta, sem hún notaði sér þegar tækifæri gafst. Hún var ein af stofnendum Kven- félags Mosvallahrepps og í stjóm þess hefur hún verið frá stofnun þess árið 1960, sem ritari og er enn. Ung var hún að ámm er hún gekk í Ungmennafélagið Bifröst, þar var hún 21 ár í stjóm, þar af ritari í 20 ár, eða 1928-1947. Af þessari upptalningu sést að starfs- kraftar og hæfileikar Jóhönnu hafa hvarvetna komið að miklum og góðum notum, og hún alltaf fús að leggja sitt af mörkum og vel það. En Jóhanna hefur áhuga á fleiru en félagsstörfum þó þau láti henni vel. Hún er mikil hannyrðakona, vinnur íslensku ullina alveg frá byijun, tekur af kindinni, tekur síðan ofan af, kembir, spinnur, og ptjónar. Laufaviðarvettlingamir hennar bera henni fagurt vitni um vandaða vinnu og listilegt hand- bragð. Og sá sem lítur heim að Kirkju- bóli í Bjamadal og dáist að gróðrin- um sem þar ér, lítur þar handaverk Jóhönnu, það er eingöngu hennar verk eða svo segja bræður hennar. Kannske hafa þeir þó líka tekið til hendi, ekki er það óhugsandi. Þá hefur Jóhanna lagt mikið til mál- anna í sambandi við garðrækt og skógrækt innan kvenfélagsins og ungmennafélagsins, og unnið að gróðursetningu tijáplantna á hveiju vori. Það væri hægt að segja svo margt fleira um hana Jóhönnu, en ég hugsa að henni finnist nóg kom- ið, hún hefur aldrei verið gjörn á að flíka því sem hún hefur verið að gera. Við sem höfum starfað með henni í Sambandi vestfirskra kvenna sendum henni hugheilar hamingjuóskir í tilefni 80 ár af- mælisins. Við þökkum henni sam- starfið sem aldrei hefur borið skugga á og vonum að við fáum notið samvista við hana meðan heilsa hennar leyfir. Kvenfélags- hreyfingin á Vestfjörðum á henni mikið að þakka, en ég veit líka að Jóhanna ætlast ekki til þakklætis, henni er það svo eðlilegt að leggja fram krafta sína í þágu þeirra málefna sem hún hefur áhuga fyr- ir. Hún vinnur svo sannarlega í anda þess að sælla er að gefa en þiggja. Og við óskum Kvenfélagi Mos- vallahrepps til hamingju með þá gæfu að eiga slíka félagskonu. í dag 7. maí halda þær henni kaffi- samsæti í skólanum í Holti, og verð- ur þar örugglega margt um mann- inn. F.h. Sambands vestfirskra kvenna, Jóna Valgerður Kristjáns dóttir, formaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.