Morgunblaðið - 14.05.1988, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1988
19
'ÆJIÉ&mm
Sveppa-„paté“.
SVEPPIR
Heimllishorn
Bergljót Ingólfsdóttir
Sveppir eru hreint lostæti með
öðrum mat en það er líka hægt
að gera úr þeim sérstaka rétti.
Þá má ekki gleyma sveppum í
grænmetissalatið sem mörgum
þykir bragðbætir að.
Sveppa-„paté“
1 stór laukur,
50 g. heslihnetukjamar,
2 stórar gulrætur,
250 g. sveppir,
3 matsk. smjör,
3 egg,
salt og pipar,
2 hveitibrauðsneiðar,
2 matsk. rifinn ostur,
múskat,
1 dl. ijómi,
graslaukur.
Laukurinn skorinn smátt,
hnetukjamamir brytjaðir, gulræ-
tumar rifnar og sveppimir skom-
ir í sneiðar. Grænmetið sett í
smjör á pönnu og látið mýlq'ast.
Hægt er að setja þetta allt í bland-
ara ef vill. Eggið er þeytt og
brauðið rifið út í, sömuleiðis er
ostur, grænmeti og krydd sett
saman við.
Blandah sett í smurt form, ál-
pappír settur yfir og hafður helm-
ing bökunartfmans. Bakað í 45-50
mín. við 200 °C. Formið látið
standa og kólna aðeins áður en
innihaldinu er hvolft úr.
Þetta á að nægja í forrétt fyrir
átta manns, í aðalrétt fyrir fjóra.
Borið fram heitt eða kalt með
brauði og grænmetissalati.
Sveppasalat.
250 g. sveppir,
1 hvítlauksrif,
safi úr V2 sítrónu,
olía,
salt og pipar,
steinselja.
Sveppimir skomir í þunnar
Blandan sett f smurt form.
sneiðar. Hvítlauksrifið skorið í
tvennt og salatskálin nudduð að
innan með lauknum. Sveppimir
settir í skálina, olfu og sftrónusafa
hellt yfir og látið standa. Rétt
áður en salatið er borið fram er
salti og pipar stráð yfir, bryljuð
steinselja sett yfír að lokum.
Hægt að hafa salatið sem forrétt
eða sem meðlæti með kjöti eða
fiski.
Sveppir f sýrðri ijómasósu
250 g. litlir sveppir,
30-40 g. smjör,
safi úr V2 sítrónu,
salt og piþár,
dál. paprikuduft,
1 askja af sýrðum ijóma,
1 matsk. biyfjuð steinselja.
Sveppunum er bmgðið í smjör
á pönnu, sítrónusafi og salt og
pipar sett yfir. Sveppimir látnir
mýkjast við vægan straum. Pa-
priku, sýrðum ijóma og steinselju
bætt út á og látið hitna við vægan
straum. Borið fram heitt eða kalt
sem meðlæti með öðm.
Myndlist
Sýning
á tölvu-
grafískum
ljósmyndum
ÓLAFUR EngUbertsson opnar
sýningu á tölvugrafískum Jjós-
myndum f Bókakaffi, Garða-
stræti 17, f dag, laugardaginn
14. maf, Ú. 14.00.
Aliar ljósmyndimar á þessari
sýningu vom unnar með teiknifor-
ritinu „Lumena" frá Time Arts í
Kalifomíu síðastliðið sumar. Fmm-
myndimar fylgja með í sjálfstæðu
kveri ásamt bálkinum „Áður en
rafmagnið kemst á“, sem verður til
sölu í Bókakaffí.
„Hér er byggt á raunveraleika
ljósmyndarinnar og einn af ótelj-
andi draumvemleikum hennar
leiddur. fram í rafeindabirtuna, “
segir í frétt frá Bókakaffí.
Hver mynd er framkölluð í tólf
eintökum og em þær allar til sölu.
Við opnunina verður fmmsýnd
tölvugrafísk teiknimynd, „íslands-
saga“, sem tekur um tvær mínútur
í sýningu.
Bókakaffi verður opið virka daga
í sumar frá 9—22, laugardaga
10—22 og sunnudaga 14—22.
Fréttatílkynning
m HOTEL MANAGEMENT
M
M
M
M
M
TOURISM - IATA/UFTAA
SCHOOL in
SWITZERLAND
Prófskírteini á ensku í lok náms.
28 ára velgengni.
Sknfiðtilaðfánánariupplýsingartil: HOSTA HOTEL AND TOURISM SCHOOL
1854 LEYSIN, SWITZERLAND
Tel. 025/34 18 14
Telex 456 152 crto ch
Telefax 025/34 25 58
HOSTfl
MMMMMMMMMMMMMMMM
Sumarbústaðir -
beitilönd:
Til sölu eru lóðir undir sumarbústaði úr jöröinni Þjóöólfshaga í Rangár-
vallasýslu. Stærð hverrar lóöar er ca. 1 hektarí. Á sama staö eru til
sölu afmörkuð beitarhólf fyrir hross og er hvert þeirra 5-6 hektarar.
Vegur liggur um landið. Fjariægö fró Reykjavik 90 km. örstutt í verslan-
ir, sundlaug og aðra þjónustu á Hellu.
Jardir I Rangárvallasýslu:
Þjóðólfshagi 1, Holtahreppi. Á jörðinni er íbúöarhús, fjórhús og nýtt
fjós sem hentar auk þess mjög vel fyrir svín eða geldneyti. Tún og
útjörð ca. 70 hektarar.
Hábær 2, Djúpárhreppi. Ájörðinni eru 2 íbúðarhús, kartöflugeymsla
og gömul útihús. Landstærð ca. 250 hektarar. Gott garöræktar- og
beitiland. Gæti selst í tvennu lagi.
Þrúðvangi 18,850 Hellu
síman 99/5028,5228
FannarJónasson Jón Bergþór Hrafnsson
GEGNUM GLERIÐ
SIMI ~ 6 8 8 0 81 ~ SKIPHOLII ~ 50B
OPIÐ LAUGARDAG FRÁ KL. 10-17
SUNNUDAG FRÁ KL. 13-17
Landssamtakanna Þroskahjálpar
jr og Oryrkjabandalags Islands
Stórkostleg fjölskylduskemmtun verður haldin laugardaginn 14.
maí á eftirtöldum stöðum: íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi,
Glaumborg í Hnífsdal og Bjargi á Akureyri kl. 15-17 og Vala-
skjálf, Egilsstöðum, kl. 20.30-22.30.
í tengslum við Vorblótið verður Svæðisstjórn Reykjaness með
kynningu á sumarþjónustu fyrir fatlaða á Reykjanessvæðinu í
Digranesskóla frá kl. 13.30-15.00 sama dag.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis. Sjá auglýsingu annars staðar í blaðinu.