Morgunblaðið - 14.05.1988, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1988
61
Lærum að lifa í
friði við náttúruna
Kæri Velvakandi.
Fyrir skömmu birtist pistill í
dálkum Velvakanda þar sem fundið
var að því hve máfi hefur fjölgað
og að hann sé orðinn áberandi við
ströndina í Reykjavík. í öðru bréfi
var talað um að máfurinn væri
vargfugl og fýllinn settur í sama
flokk. Nú hef ég mikið uppáhald á
þessum fuglum og sé enga ástæðu
til að kalla þá vargfugla. Ef til vill
er engin ástæða til að kalla neitt
dýr varg, nema kannski minkinn
og manninn.
Þessir fuglar, máfurinn og fýll-
inn, eru hinir friðsömustu þó máftir-
inn eigi það reyndar til að krækja
sér í æðarunga þegar hart er á
dalnum hjá honum. Eg er ekkert á
móti því að egg þessara fulga séu
nytjuð en að öðru leyti ætti að friða
þá.
Hneykslanlegt er þegar skot-
veiðimenn eru að skjóta þessa fugla
og aðra að gamni sínu án þess að
ætla sér að nytja þá. Við mennimir
verðum að læra að lifa í friði við
náttúruna, það er ekki hægt að
segja heilu tegundunum stríð á
hendur þó nokkrir fuglar sé til
smávægilegra óþæginda.
Dræm aðsókn að
Hrópi á frelsi
Undarlegur tvískinnungnr, segir
Grétar Hjartarson bíóstjóri
KVIKMYNDIN Hróp á frelsi,
sem greinir frá baráttu blökku-
mannaleiðtogans Steves Biko og
blaðamannsins Donalds Wood
gegn suður-afriskum stjórnvöld-
um, hefur fengið dræma aðsókn,
að sögn Grétars Hjartarsonar,
bíóstjóra i Laugarásbíói. Um
5.000 manns hafa séð myndina á
6 vikum.
„Ég skil ekki að eftir allt það
umtal og umíjöllun í öllum fjölmiðl-
um, sem myndin fékk, skuli hún fá
svona litla aðsókn," sagði Grétar.
„Menn þykjast hafa svo óskaplegan
áhuga á ástandinu í Suður-Afríku
og aðskilnaðarstefnunni, en þegar
sýnd er sannsöguleg mynd um
ástandið, eftir frásögn lifandi
manns, sem kom hér og var við
frumsýninguna, koma 5.000
manns. Á sama tíma sjá 40.000-
áhorfendur einhveija ameríska
mynd um þijá menn og barn. Svo
blaðra menn um apartheid á Al-
þingi og leggja á viðskiptabann.
Þetta er undarlegur tvískinnungur
hjá íslendingum."
Grétar sagðist reyndai' hafa séð
allmarga þingmenn á myndinni, þar
sem hann væri vanur að standa
sjálfur í dyrunum fyrir sýningar.
„Þeir hafa komið nokkrir, en ég
man samt ekki eftir að hafa séð
utanríkisráðherrann," sagði Grétar.
Þessir hringdu . .
Eigum við að borga fyrir
landsbyggðina?
Borgarbúi hringdi:
„Fýrir nokkru birtist eitt af
þessum bréfum í Velvakanda sem
landsbyggðarbúum er svo tamt
að skrifa. Þar er talað um forrétt-
indi Reykvíkinga og því haldið
fram að við sem búum í Reykjavík
eigum að standa undir vegafram-
kvæmdum á landsbyggðinni. Ég
veit ekki betur en við gerum það
en ég er ekki eins viss um að
okkur beri að gera það. Lands-
byggðarfólk hefur skapað sér alls
kyns forréttindi útá það að það
býr í dreifbýli. Það heftir her þing-
manna til að beijast fyrir sig en
vegna misvægis atkvæða höfum
við Reykvíkingar varla kosninga-
rétt. Ég legg til að Reykvíkingar
fari að standa betur saman um
hagsmuni sína. Það er ekki annað
en sjálfsögð réttlætiskrafa að
landið allt verði gert að einu kjör-
dæmi.“
Hversu margir
karlmenn?
Þröstur hringdi:
„Ég er félagi í Kvenréttindafé-
lagi Islands og ég er ekki sáttur
við að þess er aldrei getið hveru
hátt hlutfall af heildarfélagatölu
karlmenn eru. Væri ekki hægt að
bæta úr þessu?"
Hraðakstur á Skúlagötu
J.P.J. hringdi:
„Ég bý innarlega á Skúlagöt-
unni og verð vitni að því að þar
er stundaður kappakstur á hveiju
kvöldi. Hvemig stendur á því að
hér eru ekki settar upp hraða-
hindranir eins og gert hefur verið
á Vesturgötu og víðar. Eins þyrfti
að setja upp hraðahindranir á
Rauðarárstíg. Fjölmargt eldra
fólk býr við þessar götur og er
það í mikilli hættu eins og um-
ferðin er orðin. Vonandi þurfa
ekki að verða mörg dauðaslys hér
til að borgaiyfírvöld taki við sér.“
Góð grein
María hringdi:
er birtist í Velvakanda þriðjudag-
inn 10. maí. Ég er sammála öllu
sem í þessari grein stendur."
Fyrirmyndar
fararstjórar
Jóna Gísla hringdi:
„Ég fór á vegum Lífeyrissjóðs
Sambandsins til Benidorm fyrir
nokkru og langar mig að óska
Samvinnuferðum Landsýn til
hamingu með hina ágætu farar-
stjóra sem þeir hafa þar, Erling
og Grétu. Ég var ekki ánægð með
allt í ferðinni en þó ég hafí víða
farið hef ég aldrei kynnst öðrum
eins fararstjórum og vil þakka
þeim sérstaklega fyrir vel unnin
störf."
Vísnakeppni
Vísnavinur hringdi:
„Ekki hefur enn verið greint
frá úrslitum í Vísnasamkeppni
Tóbaksvamanefndar. Vil ég biðja
þá sem að henni stóðu að gera
svo vel að gera grein fyrir niður-
stöðum sem fyrst. Vænti svars í
Velvakanda."
Slæm umgengni
Ellen hringdi:
„Sjón er sögu ríkari. Það var
ljótt að sjá hvemig umhorfs er
við Umferðarmiðstöðina en sjón-
varpið fjallaði um þetta mál fyrir
skömmu. Það er vonandi að augu
forráðamanna opnist, þvílík land-
kynning á ómenningu. Og þama
á fjöldi fólks leið um, bæði inn-
lendir og erlendir ferðamenn. Það
var sannarlega tímabært að vekja
athygli á þessum sóða útgangi
sem er á öllu þarna. Hafi bílstjór-
inn þökk fyrir að koma þessu á
framfæri við sjónvarpið. Sannar-
lega er af meiru að taka hvað
varðar slæma umgengni. Ekki er
fagurt um að litast í kring um
skólana. Tillaga mín er að skóla-
yfírvöld ættu að taka einn dag
þegar skólum lýkur og láta nem-
„Mig langar að koma á fram-
færi þakklæti til Einars Ingva
Magnússonar fyrir greinina „Lág-
launafólk er fjölmennasta stéttin"
endur hreinsa umhverfís skólana
Þakklæti til Ríkisútvarpsins
fyrir þættina Dagmál og í dagsins
önn. Þetta eru stuttir en fróðlegir
þættir sem ber að þakka fyrir.“
JnmoESTone
STÓRFELLD VERÐLÆKKUN
á nyjum sumarhjólbörðum!
OPIÐ I DAG FRÁ KL. 10-4
Vegna tollalækkunar um áramótin og hagstæðra magninnkaupa
getum við nú boðið hina þekktu BRIDGESTONE sumarhjólbarða á
ÓTRÚLEGU VERÐI.
Dæmi um verð:
Stærð Verö
155 SR 13 Kr. 2.600.-
165 SR 13 Kr. 2.900.-
175 SR 14 Kr. 3.800.-
175/70 SR 13 Kr. 3.900.-
185/70 SR 14 Kr. 4.200.-
STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR FRÁ OFANGREINDUM VERÐUM ER 7%
en að auki getum við boðið mjög hagstæð greiðslukjör:
VILDARKJÖR VISA eða EUROKREDIT: Lág eða engin útborgun
— og jafnar mánaðarlegar greiðslur allt upp í 8 mánuði!
Sendum gegn póstkröfu um land allt.
Stuðlaðu að öryggi þínu og þinna I umferðinni í sumar — nýttu þér
hagstætt verð okkar greiðsluskilmála og kauptu NÝJA úrvals
BRIDGESTONE hjólbarða undir bílinn!!
DEKKJAMARKAÐURINN
FOSSHÁLSI 13—15
(vestan við nýja Bílaborgarhúsið)
SÍMI 68-12-99