Morgunblaðið - 14.05.1988, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1988
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Plútó
í dag er röðin komin að Plútó
i laugardagsnámskeiði okkar
í stjömuspeki. Plútó er að
mörgu leyti táknrænn fyrir
sérstaka og dularfulla orku. í
umtali manna á milli þykir
hann heldur dökkur og ógn-
vekjandi þó raunveruleikinn
sé hversdagslegri. Plútó er
hvorki betri né verri en aðrar
plánetur. Það sem endanlega
skiptir máli hér sem annars
staðar er það hvemig við
höndlum orku hans.
Völdug hreinsun
Aðalmerking Plútós er
tvíþætt. Annars vegar hefur
hann með völd að gera og
hins vegar er hann táknrænn
fyrir hreinsun og endursköp-
un. Það má einnig líkja honum
við fræ, eða dauða þess gamla
sem endurfæðist og umbreyt-
ist í nýjan búning. Fólk sem
hefur Plútó sterkan þarf því
oft að takast á við kaflaskipti
og það leitar oft f gegnum
yfirborðið, vill svipta frá hul-
unni og finna það sem er
undir niðri, eða kjamann og
fræið að nýrri byijun.
HœgÖarlosun
En hvemig skyldi Plútó birt-
ast í daglegu lífi? Við skulum
byija á hreinsunarþættinum.
Hann getur birst á tvennan
hátt. Annars vegar er mikill
áhugi á öllu sem viðkemur
hægðum, eða því að hreinsa
úrgang úr líkamanum. Þeir
sem lesa þetta og hafa Plútó
lftt áberandi finnst þetta
kannski undarleg speki, en
staðreyndin er eigi að síður
sú að til er það fólk sem hef-
ur mikinn áhuga á hægðamál-
efnum. Það selst t.d. töluvert
af stólpfpum og skrifaðar eru
lærðar greinar um nauðsyn
þess að hafa góðar hægðir.
(Ef Plútó er illa tengdur er
hætt við að líkaminn eigi f
erfiðleikum með að vinna úr
og losa sig við úrgang).
Enga hrœsni
í öðru lagi birtist hreinsunar-
árátta Plútós á sálrænan hátt,
í þörf fyrir að stinga á yfír-
borðsmennsku og hræsni í
mannlegu samfélagið eða í
mannlegri hegðun. Plútó er
því þessi kaldhæðni sem þegir
þegar þú segir yfírborðslega
brandara, eða talar hvössum
rómi um spillingu þjóðfélags-
ins. Hann er maðurinn sem
vill hreinsa til. Hvöss rann-
sóknarblaðamenska er t.d.
Plútó-Merkúr fyrirbæri.
Enga afskiptasemi
Plútó tengist einnig völdum.
Plútocrat, er t.d. enskt orð,
sem þýðir auðjöfur, eða valda-
maður. í daglegu lifí okkar,
birtist þetta þannig að Plútó
vill 100% völd yfir eigin lífi.
Það þýðir að Plútó vill ekki
láta ráðskast með sig og þolir
ekki afskiptasemi annarra.
Hann hlustar ekki á það þeg-
ar stjómmálamenn segja að
nú þurfi allir að herða ólam-
ar, taka saman höndum
o.s.frv. Hann hlær og telur
slíkt fals nema hann sjái
stjómmálamanninn herða ól-
amar. Ef slfkt gerist er stuðn-
ingur hans 100%. Það er ein-
mitt eitt af Plútómálunum,
að gefa ekkert eða gefa allt.
Það má kalla þetta öfgar eða
einbeitingu, en ekki hálfkák.
Undirheimar
Ef Plútó er ekki í aðstöðu til
að stjóma eða ráða dregur
hann sig í hlé. Stundum færir
hann sig um set þangað sem
hann ræður. Það er því svo
að stundum fer Plútó niður í
undirheima, eða eins og einn
Plútó sagði: „Ég er kóngur
betlaranna!” Ef hann fer ekki
í undirheima umhverfisins þá
fer hann oft í eigin undir-
heima, enda er hann einnig
sálfræðingur, læknir og ösku-
kall.
GARPUR
BG TEK Etad þÁ AH/ETTU
AEaaikamda fari /HEE>- -
éG ÞVL D/ Þhd E/CK/ EF
enTHVAD K/EMI FVK/f? HAMAf
GRETTIR
s • • '' • ....
FAVffi. 5Zf>
SMACK/ * gömou
J A TUóóA'
TOMMI OG JENNI
:’i! f?i ?: i ???:!:? ?:i? :i! ? i ?”??????:?! ?!!!i!?!i ?!!!!!:??! ??1! ?i!! i i i ? ii: ji::!i:ilili;;i T
UOSKA
EG l/AR BAEA
/iÐ REyMA A£> FA
þlG TIL AE> L7ÓKA ,
Þesso Aðdr EM
maþurinm /vunnKe*!
* HEI/VITIL að
HJÁLPA ______-
JldR CHTT | fll)6 AÐ
PBTTA ÝTT7 Vl£>
T «P/
cr— Itóú SiáSÍiO +UK?AJCSyfö\ U5 1 Pkl a m r%
7~ \ r-» rbRullMAIMD
f \ @ SMÁFÓLK
UJHERE TWE 5CH00L BU5
UJILL BE 5T0PPING...
"tr
I LL BE OVER HERE..
I‘M G0IN6 TO CMAIN
MV5ELF TO..
Einmitt hérna í næstu viku Á þessum stað stanzar Ég verð þarna fyrir hand- Þetta er staurinn sem ég
skólabíllinn — an____ ætla að hlekka mig við____
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Það er talinn góður siður að
spila út í lit makkers. Ef útspilið
reynist illa kemst makker ekki
undan því að deila ábyrgðinni.
En kannski liggur sökin að
mestu leyti vesturs megin í
þessu tilfelli:
Austur gefur: AV á hættu.
Norður
♦ -
VG10654
♦ 10765
♦ ÁD64
Vestur Austur
♦ D10632 ... ♦ ÁKG98754
VD32
♦ G42 111 ♦ 83
♦ K3 +G92
Suður
♦ -
♦ ÁK987
♦ ÁKD9
♦ 10875
Austur Suður
4 spaðar 5 hjörtu
Pass Pass
Vestur Norður
5 spaðar 6 hjörtu
Pass
Suður hefði kannski frekar
átt að segja fjögur grönd við
opnun austurs á fjórum spöðum
og hafa makker þannig með í
ráðum. En hann kaus að leggja
allt á hjartað og komst þannig
í þokkalega síemmu.
Vestur sá ekki ástæðu til að
fóma með líklegan slag á hjarta-
drottningu, en var heldur fljótur
á sér þegar hann spilaði út
spaða. Það gaf sagnhafa færi á
því að trompa í borðinu og henda
laufi heima.
Sagnhafí lagði næst niður
hjartaás. Spilið leit nú illa út,
en þó var von ef vestur átti lauf-
kónginn annan. Laufdrottning-
unni var s.vínað og ásinn tekinn.
Síðan kom hjartakóngur og
þrisvar tígull. Þá var tímabært
að spila vestri inn á hjarta. Hann
átti ekkert nema spaða eftir, og
aftur fékk sagnhafi trompun og
afkast, trompaði í borðinu og
henti lauftaparanum heima.
Vestur mátti vita að makker
ætti átta tromp fyrir opnuninni
á hættunni, því ekki gat hann
átt mikið til hliðar. Hann hefði
því átt að velja annað útspil.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á danska meistaramótinu í ár
kom þessi staða upp í skák al-
þjóðlegu meistaranna Björns
Brinck-Claussen, sem hafði hvítt
og átti leik, og Jens Kristiansen.
27. Hxg4+! (Svartur var einnig
vamarlaus eftir 27. Hhl og síðan
28. Hxg4+) 27. - hxg4, 28. Hhl
og svartur gafst upp, því hann
er óveijandi mát. 22ja ára gamall
skákmaður. Lars Schandorff varð
danskur meistari. Hann hlaut 7'/2
vinning af 11 mögulegum. Næstir
komu Carsten Höi og Lars Bo
Hansen með 7.