Morgunblaðið - 14.05.1988, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1988
fclk f
fréttum
Meðal skemmtiatriða á Krútt-
magakvðldi í Þórskaffi sfðastlið-
inn miðvikudag var „söngnr þel-
dökkrar konu“.
BARÞJONAR KEPPA
Besti kokkteillinn
til Mexíkó
Barþjónar efna árlega til keppni
um besta kokkteilinn og hlaut
Gísli Hafliði Sigurðsson á Café
Óperu nýlega fyrstu verðlaun í slíkri
keppni. I ár var keppt í svokölluðum
„long drinks" og heitir drykkur
Morgunblaðið/Sverrir
Hópur kvenna úr Soroptimistaldúbbi Suðurnesja kom á Krútt-
magakvöldið. Nokkrar úr hópnum brostu til Ijósmyndara.
Gísla Boss. í drykknum er romm,
möndlulíkjör, kókoslíkjör og anan-
assafí hrist saman og skreytt með
ferskum ananas og kokkteilberi.
Að sögn Bjama Óskarssonar
yfírþjóns á Café Óperu skiptist
kokkteilakeppni barþjóna í þrennt;
keppt er um besta lystaukann eða
þurra kokkteilinn, besta stórdrykk-
inn eða „long drink" og besta sæta
kokkteilinn. „Á hveiju ári er keppt
í einni þessara greina," segir Bjami,
„og sigurvegarar fara á heims-
meistarmót sem haldið er á þriggja
ára fresti. Næsta heimsmeistara-
mót verður haldið í Mexíkó og gera
má ráð fyrir að þátt taki barþjónar
frá um fímmtíu löndum. Hingað til
hafa ítalir líklega verið einna sterk-
astir."
Sætur kokkteill Bjama, Bleiki
ALKOHÓLISMI
Tískukóngur
ímeðferð
Konur á Krúttmagakvöldi fengu tilsögn í að setjast á stól á kven-
legan máta.
SKEMMTANIR
Krúttmagar á Vetrarbraut
Vetrarbrautin heita salarkynni á
þriðju hæð í sama húsi og Þórs-
kaffí. Glerlyfta utan á húsinu, á
homi Nóatúns og Brautarholts, flyt-
ur gesti upp á Vetrarbrautina eða í
Mánaklúbbinn; einkaklúbb sem rek-
inn er innan hennar. Þegar upp er
komið blasir við danssalur þar sem
leikin er lifandi tónlist og boðið upp
á smárétti til hálf þrjú eftir mið-
nætti á föstudags- og laugardags-
kvöldum. Þar er jafnframt setustofa
og bar ásamt „a la carte" sai hvar
boðið er upp á sérrétta matseðil.
Á Krúttmagakvöldi Vetrarbraut-
arinnar síðastliðinn miðvikudag varð
ekki þverfótað fyrir prúðbúnum kon-
um, enda körlum ekki hleypt inn
fyrr en á miðnætti. Eftir að sopið
hstfði verið á sæmilegum mintukokk-
teil settust konur til borðs og fram
var . borin sjávarréttasúpa, býsna
góð, þótt brauðsnúðamir með henni
hefðu mátt vera mýkri. Aðalréttur-
inn var smekklega fram reiddur; rifl-
asteik með bakaðri kartöflu, brokk-
áli og gulrótum. Með matnum var
boðið upp á hvítt eliegar rautt vín.
Eftir matinn hófst svo það sem
kvöldið var kennt við, nefnilega
skemmtiatriði akureyrskra krútt-
maga. Þau einkenndust eins og vera
ber af því sem á siæmu máli heitir
„lókal húmor“, einhverskonar kven-
nagríni, og var feikna vel tekið.
Nefna má námskeið bréfaskóla í
hvemig setjast skuli á stól á kvenleg-
an máta. Það reyndist ekki einfalt
mál en konur voru hvattar til að
láta sinadrátt, náladofa og læstar
mjaðmir ekki á sig fá og spurt til
hvurs þær væm annars en að láta
horfa á sig. Ekki lét hinn sígildi
klæðskiptingur sig vanta og „söng“
dulítið fyrir söfnuðinn. Að loknum
skemmtiatriðum, sem ekki verða öll
talin hér, hélt fjörið áfram og all-
margir eiginmenn slógust í kvenna-
hópinn á miðnætti.
Krúttmagakvöld hafa verið haldin
á Akureyri í sex ár. Hugmyndin
varð til þegar tvær konur þar í bæ
fengu ekki inngöngu í Sjallann
vegna Kútmagakvölds Lionsmanna.
Þær ákváðu að efna til kvennakvölds
og komust færri kynsystur þeirra
að en vildu. Ágóði af kvöidunum
hefur mnnið til líknarmála, einhvers
sem konum kemur vel. Krúttmaga-
kvöld var síðast haldið á Akureyri
fyrir viku og tókst með slíkum ágæt-
um að eigendum Vetrarbrautarinnar
þótti ástæða til að fá gleðina suður.
Að sögn Björgvins Ámasonar for-
stjóra Þórshallar, sem rekur Vetrar-
brautina og Þórskaffí, er Krútt-
magakvöldið öðmm þræði haldið til
að kynna konum aðstöðuna í Vetrar-
brautinni og Mánaklúbbnum. „Ég
held að nú sé algengast að konur
velji veitingahús þegar hjón bregða
sér út að borða," segir Björgvin.
„Mánaklúbburinn er nýr staður og
nauðsynlegt að kynna hann. Þar er
uppiagt fyrir pör að eyða hugljúfum
kvöldum, borða góðan mat í sér-
réttasalnum, taka því rólega á bam-
um eða fá sér snarl og snúning í
danssalnum. Ef fólk vill meira fjör
er alltaf hægt að fara niður í Þórs-
kaffí. Raunar verður annarri hæð
Þórskaffís lokað um tíma í sumar
vegna endurbóta."
Björgvin segir meðlimakort ein-
staklinga og fyrirtækja í Mána-
klúbbnum veita aðgang að aðstöð-
unni sem lýst hefur verið og að slíkt
sé nýjung hérlendis. Þægilegt sé að
nýta aðstöðuna fyrir fundi eða til
viðræðna við viðskiptavini í aðnflað-
andi umhverfí. Þá segir hann salinn
Norðurljós á fíórðu hæð húsSins ein-
göngu ætlaðan til útleigu fyrir hópa
og hafí hann reynst mjög vinsæll.
Frægur banda
rískur tískuhönn-
uður, Calvin Klein,
gerði uppskátt síðastlið-
inn mánudag að hann
gengist nú undir meðferð
við misnotkun áfengis og
lyfla. í yfírlýsingu frá
skrifstofu hans segir að
Klein sé á Hazelden með-
ferðarstofnuninni í Min-
nesota-fylki og geri ráð
fyrir að dveljast þar út
mánuðinn. Stofnunin er
ýmsum íslendingum
kunn, en þangað fór fólk
til meðferðar fyrir nokkr-
um árum og fer enn að
dálitlu marki. Þó varð
straumurinn héðan á
Hazelden aldrei eins mik-
ill og á Freeport með-
ferðarstöðina.
Klein kveðst segja op-
inberlega frá dvöl sinni á
meðferðarstofnuninni
vegna fjölda vina og
starfsfélaga sem hafa
Reuter
Tískuhönnuðurinn Calvin Klein er nú í
meðferð vegna ofnotkunar áfengis og
lyfja.
stutt hann gegnum árin. Hann
bætir við í yfírlýsingu sinni: „Mér
hefur aldrei liðið betur og ég hlakka
til loka meðferðarinnar."
Calvin Klein er einn af vinsæl-
ustu tískuhönnuðum Banda-
ríkjanna. Auglýsingar á vörum hans
hafa þó hneykslað siðprúðan meiri-
hluta þar í landi og vakið deilur
sumar hveijar. Þeirra á meðal er
nokkurra ára gömul auglýsing þar
sem Brooke Shields klæðist þröng-
um gallabuxum og fullyrðir að hún
láti ekkert komast upp á milli sjálfr-
ar sín og Calvins-gallabrókanna.
Ekki hafa auglýsingar um ilm-
vatnið „Obsession" eða Þráhyggju
vakið minni úlfaþyt, en einhveijum
þykir þær fuil erótískar. í þeim
glittir í nakið par, líkt og í alnæmis-
auglýsingunni íslensku. Loks er
næsta víst að sumum þykir Klein
helst til djarfur að auglýsa áfengis-
vanda sinn með þeim hætti sem
raun ber vitni...