Morgunblaðið - 14.05.1988, Síða 64
SYKURLAUST
WRIGLEY’S
I EIGIVA ■
MIÐLIMN
27711 _
P I N C H 0 l T S S T H Æ T 13
Swntr Kristinssjfi, Sííustpri - Porieriur GuSmurKlsson, sötum.
MréllurHalIdtlrason,lö9lr.-Umtsteinn8eckhrl.,simi 12320
LAUGARDAGUR 14. MAI 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR.
Gjaldeyrísflóö úr bönkuniim
Bregst ekki skyldum mínum hér heima segir forsætisráðherra
Verja þarf þá lakast settu og hindra víxlhækkanir og þenslu
ÞORSTEENN Pálsson forsætisráðherra ákvað í gær að
fresta opinberri heimsókn sinni til Bandaríkjanna vegna
stöðu efnahagsmála, nýrrar gengisskráningar og ákvarð-
ana um hliðarráðstafanir, en fyrri hluta vikunnar flæddi
fjórðungur gjaldeyrisforða þjóðarinnar úr bönkum. Stjóra
þingflokks Sjálfstæðisflokksins hvatti forsætisráðherra til
þess að fresta Bandaríkjaför sinni. Ríkisstjórnin bíður nú
eftir tiUögum Seðlabanka íslands um nýja gengisskrán-
ingu. Um helgina verða fundir sérfræðinga og stjórn-
málamanna um gengismál og nauðsynlegar hliðarráðstaf-
anir.
„Atburðarásin varð önnur en
reikna mátti með,“ sagði Þorsteinn
Pálsson forsætisráðherra í samtali
við Morgunblaðið þegar hann var
fyrst spurður um ástæðu þess að
hann frestaði för í opinberu boði
forseta Bandaríkjanna. „Nú þegar
þarf að taka mikilvægar ákvarðan-
ir í stjóm landsins og ég tel það
skyldu mína að leiða þau mál til
lykta,“ sagði Þorsteinn, „þetta var
erfíð ákvörðun, því að fyrsta opin-
bera heimsókn forsætisráðherra
íslands til Bandaríkjanna hefði
haft mikið gildi fyrir samskipti
þjóðanna. Mér þykir það því mjög
miður að mál skuli hafa skipast á
þennan veg, en mín er þörf hér
heima og þeim skyldum mínum
bregst ég ekki.
Gjaldeyrisútstreymið var gífur-
legt síðastliðinn miðvikudag.
Seðlabankinn seldi og tók pantanir
á upphæð sem nam 2,5 milljörðum
króna fyrstu þrjá daga vikunnar
og þar af flæddu tæpir tveir millj-
arðar út úr bönkunum síðastliðinn
miðvikudag. Þetta jafngildir um
það bil fjórðungi af gjaldeyrisforða
landsins. Hér varð því að bregðast
skjótt við. Það var gert og nú er
það verkefni ríkisstjómarinnar yfír
helgina að taka ákvarðanir um
nýja gengisskráningu og þær að-
gerðir sem óhjákvæmilegar eru,
því einhliða gengislækkun leysir
engan vanda. Þetta er það verk-
efni sem við okkur blasir. Það er
Seðlabanka íslands að koma með
tillögur um breytingar á gengi, þær
em ekki enn komnar og fyrr en
þær koma taka flokkamir ekki
afstöðu. Aðalatriði er þetta: Það
þarf að veija þá sem lakast era
settir, koma í veg fyrir víxlhækk-
anir, gera ráðstafanir í peninga-
málum og á fjármagnsmarkaði
sem hamla gegn þensluáhrifum.
Um einstök atriði ræði ég ekki
meðan málin era enn til meðferð-
ar, það verða maraþonfundir yfír
alla helgina með sérfræðingum,
þingflokkum, ráðherram og síðast
ríkisstjóminni."
Lögreglumenn:
Tíundi hver stend-
ur í málarekstri
- segir formaður Lögreglufélags Reylgavíkur
JON Pétursson formaður Lög-
reglufélags Reykjavíkur segir
að nú séu til meðferðar, á hin-
um ýmsu stigum réttarkerfis-
ins, mál sjö lögreglumanna sem
sakaðir eru um ólöglegar hand-
tökur og harðræði. Ennfremur
segir hann að tiundi hver lög-
reglumaður eigi nú f mála-
rekstri, flestir vegna áverka
sem þeir hafa orðið fyrir f átök-
um eða slysum í tengslum við
starf sitt.
Jón segir að ótti við fjölmið-
laumflöllun, kærur og stöðumissi
valdi því að lögreglumenn séu
orðnir hræddir við að taka á mál-
um og áberandi sé að áhorfendur
trufli og skipti sér af störfum lög-
reglunnar. „Það er fráleitt að lög-
reglan beiti nú meira harðræði
en áður,“ segir Jón, sem fullyrðir
að fyöldi Reykvíkinga þori ekki
út úr húsi að kvöldlagi og telur
brýnt, að fram fari umræða um
hlutverk lögreglunnar í samfélag-
inu.
Sjá viðtai á bls.20
Jón Baldvin Hannibalsson form-
aður Alþýðuflokksins sagði m.a. í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi, að gengið væri „afgangs-
stærð. Það á að gera það, sem
gera þarf, til þess að gengislækk-
unarþörfín verði sem allra minnst."
Steingrímur Hermannsson
formaður Framsóknarflokksins
sagði m.a. þegar hann var spúrður
um, hvort gengisfelling væri tíma-
bær nú. “Eg held að almenningur
hafí ákveðið það, mér sýnist það.
Hann er ekki eins vitlaus og sumir
halda."
Báðir flokksformennimir lýstu sig
samþykka ákvörðun Þorsteins
Pálssonar um að fresta Banda-
ríkjaferðinni.
Sjá forystugrein og frásagnir i
miðopnu.
Morgunblaðið/Bjami
Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra var önnum kafinn á skrifstofu
sinni í forsætisráðuneytinu í gær, með uppbrettar ennar og bunka
af gögnum til að vinna úr í erfiðri stöðu.
Samningamál:
Ríki og borg funduðu með
fimmtán starfsmannafélögum
FIMMTÁN félög rikisstarfs-
manna og starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar áttu i gær
viðræður við samninganefndir
ríkis og borgar. Að sögn Indriða
H. Þorlákssonar, formanns
samninganefndar ríkisins, og
Kristjáns Thorlacius, formanns
BSRB, voru viðræðurnar gagn-
legar en engar ákveðnar kröfur
hafa verið settar fram.
í samningum margra félaganna,
sem um ræðir, era ákvæði um að
komi til_ almennra launahækkana,
eigi félögin rétt á því að samning-
amir séu endurskoðaðir. Einnig era
ákvæði í samningum sumra féíaga
Mótorhjólum
ekið á 219
km hraða
Grindavík.
Lögreglan f Keflavík mældi í
radar mótorhjól af frá Reykjavík
á 219 km hraða á Grindavíkur-
veginum sl. fimmtudag. Þarna
voru á ferð piltar á átta mótor-
hjólum og voru þeir stöðvaðir við
Grindavík þar sem Grindavíkur-
lögreglan sat fyrir þeim.
Að sögn Sigurðar Ágústssonar,
aðalvarðstjóra í Grindavík, er lög-
reglustöðin í Grindavík of lítil til
að unnt væri að taka málið fyrir
þar svo senda varð hópinn til
Keflavíkur þar sem rannsóknin fór
fram. Karl Hermannsson yfírlög-
regluþjónn í Keflavík sagði að öku-
þóramir hefðu ekki verið sviptir
ökuréttindum á staðnum þó svo að
allur hópurinn hefði fylgt sama
hraða og fremsta hjólið þegar
mælingin var gerð. „Málið er enn
f rannsókn og verður að binda lausa
enda áður en ákvörðun verður tekin
um ökuleyfíssviptingu," sagði Karl.
- Kr.Ben.
um að lækki kaupmáttur um meira
en 6% frá gerð samninganna, skuli
endurskoða þá.
Að sögn Kristjáns Thorlacius
vilja ríkis- og borgarstarfsmenn fá
leiðréttingu til jafns við aðra hópa,
sem samið hefur verið við, en engar
formlegar kröfur hafa verið settar
fram. Félögin héldu með sér sam-
eiginlegan fund í gærkvöldi þar sem
ræddir vora möguleikar á því að.
hafa samflot í viðræðunum.
Ounninn þorskur og karfi:
Utflutningsbanni
var af létt í gær
ÁKVEÐIÐ var í gær að leyfa
útflutning á öllum óunnum fiski
í skipum og gámum I næstu viku
en bannað var að flytja út karfa
og þorsk í gámum í þessari viku
vegna hættu á verðhruni á er-
lendum mörkuðum.
„Það var ákveðið að leyfa þenn-
an útflutning í næstu viku vegna
þess að afli hefur ekki verið mik-
ill hér undanfarið og það er líklegt
að menn hafi lært eitthvað af verð-
hraninu á Þýskalandsmarkaði í
þessari viku,“ sagði Kristján
Skarphéðinssonar, deildarstjóri í
sjávarútvegsráðuneytinu, í samtali
við Morgunblaðið í gær. Kristján
á sæti í samráðsnefnd sem er ut-
anríkisráðherra til ráðgjafar um
veitingu leyfa til útflutnings á
óunnum físki. Nefndin kemur sam-
an í næstu viku til að fjalla um
útflutning á óunnum físki vikuna
22. til 28. maí nk., að sögn Kristj-
áns.
Lifrarsamlag Vestmannaeyja:
Þórunn með 15 tonn
ÁHÖFNIN á Þórunni Sveins-
dóttur VE átti stærsta lifrarinn-
leggið í Lifrarsamlagi Vest-
mannaeyja i apríl sl., eða 15 tonn,
en samlagið greiðir 15 krónur
fyrir kílógrammið af lifur og
áhöfnin fær helminginn af verð-
inu, að sögn Siguijóns Óskars-
sonar skipstjóra á Þórunni
Sveinsdóttur.
„Við höfum einnig hirt 8 til 10
tonn af hrognum í vetur," sagði
Siguijón í samtali við Morgunblað-
ið, „Það eru greiddar 80 krónur
fyrir kílógrammið af óflokkuðum
hrognum og áhöfnin fær greitt fyr-
ir þau samkvæmt venjulegu skipta-
hlutfalli. Það er mikil eftirspum
eftir hrognum og þau era hirt á
bátunum en ég veit hins vegar ekki
til þess að hrognin séu hirt á togur-
unum. í mörgum bátum er ekki
nægilega góð aðstaða til að hirða
lifrina úr fiskinum en um borð í
Þóranni er hins vegar góð aðstaða
til að gera að fiskinum og í lestinni
er lifrartankur sem góð kæling er
á. Úr lifrinni er unnið meðalalýsi
en það er ekki hægt að sjóða hana
niður því henni er dælt upp úr tank-
inum,“ sagði Siguijón.