Morgunblaðið - 29.05.1988, Qupperneq 1
96 SIÐUR B
1L
STOFNAÐ 1913
120. tbl. 76. árg.
SUNNUDAGUR 29. MAl 1988
Prentsmiðja Morgunblaðaíns
Afganistan:
Franskur
fréttarit-
arináðaður
Kabúl, Reuter.
FRANSKI fréttaritarinn Alain
Guillo, sem verið hefur i fangelsi
í Afganistan fyrir njósnir, var
leystur úr haldi í gær eftir að
hafa afplánað fimm mánuði af
tíu ára fangelsisdómi.
Najibullah, forseti Afganistans,
náðaði Guillo eftir að Mitterrand
Frakklandsforseti hafði óskað eftir
því bréflega að Guillo yrði leystur
úr haldi af mannúðarástæðum.
Talsmaður franska sendiráðsins
vísaði því á bug að samið hefði
verið um náðunina og sagði að í
bréfi Mitterrands fælist engin viður-
kenning á leppstjóminni í Kabúl.
Hann lagði áherslu á að einungis
mannúðarsjónarmið hefðu ráðið
beiðninni.
Tyrkir hóta
að segja sig
úr NATO
Istanbul, Reuter.
TURGUT Ozal, forsætisráðherra
Tyrklands, gaf á föstudag í skyn
að Tyrkir myndu íhuga úrsögn
úr Atlantshafsbandalaginu ef
umsókn þeirra um aðUd að Evr-
ópubandalaginu yrði hafnað.
Tyrkir sóttu um fulla aðild í fyrra
og er nú beðið eftir skýrslu frá
framkvæmdastjóm bandalagsins
þar sem umsóknin er metin. Ráð-
herra í tyrknesku stjóminni, Ali
Bozer, sagði þó á föstudag að stefna
Tyrkja í þessum málum væri
óbreytt.
„Við viljum fyrst og fremst tengj-
ast Evrópu en ef svarið verður nei-
kvætt merkir það ekki að við útilok-
um önnur bandalög," sagði Bozer.
Grikkir eiga aðild að Evrópu-
bandalaginu og hefur Kýpurdeilan
blandast inn í umræður um aðild
þeirra að bandalaginu.
*
Morgunblaðið/ólafur K. Magnússon
Varptíminn genginn i garð
Leiðtogafundurinn hefst í Moskvu á morgun:
Staðfesting INF-samniiigs-
ins sögð hafa góð áhrif
Helsinki. Moskvu. Reuter.
STAÐFESTING öldungadeildar
Bandaríkjaþings á sáttmála
risaveldanna um útifymingu
meðaldrægra kjarnorkuflauga
Félagsmálastofnanir í Svíþjóð:
Félagsráðgjafar vilja fá vopn-
aða verði og skothelt gler
Ráðgjafi skotinn til bana í síðasta mánuði
Stokkhólmi, frá Erik Liden, fréttaritara
INNGÖNGUDYR félagsmála-
stofnana i Svfþjóð munu i fram-
tíðinni verða undir eftirliti
vopnaðra varða og sett verður
upp skothelt gler framan við
afgreiðsluborð stofnananna.
Þessi nýlunda er tekin upp
vegna morðs á félagsráðgjafa í
Gávle í síðasta mánuði. Maður
sem ekki fékk forræði bams síns
varð svo hamstola að hann fór á
félagsmálastofnunina í bænum og
Morgunblaðsins.
skaut ráðgjafann, sem hafði haft
málið með höndum, til bana.
Stéttarfélög ráðgjafa og ann-
arra starfsmanna hjá félagsmála-
stofnunum um allt land hafa frá
því þetta gerðist krafist þess að
komið verði upp skotheldu gleri í
afgreiðslu- og móttökusölum
stofnananna. Einnig hafa þeir
farið fram á að gripið verði til
þess að hafa vopnaða verði við
inngöngudyr stofnana þyki slíkt
nauðsynlegt til að tryggja öryggi
starfsmanna.
Engri starfstétt ætti að vera
betur ljóst að varúðarráðstafanir
eins og skothelt gler og vopnaðir
verðir geta haft neikvæð áhrif á
þá sem eru hjálparþurfí, en starfs-
fólki félagsmálastofnana. Því hef-
ur verið ákveðið að hrinda af stað
upplýsingaherferð til þess að
kynna fólki ástæður þess að grip-
ið er tii þessara aðgerða.
er talin munu hafa góð áhrif á
viðræður á leiðtogafundi risa-
veldanna, sem hefst í Moskvu á
morgun. Pravda, málgagn
sovézka kommúnistaflokksins,
sagði i gær að fundurinn ætti
að leiða til betri sambúðar stór-
veldanna í austri og vestri.
Leiðarahöfundar Prövdu létu í
ljós vonbrigði með að ekki skyldi
takast að ljúka samningi um fækk-
un langdrægra kjamorkuvopna í
tæka tíð fyrir fundinn. Það væri
þó engin dauðasynd því með góð-
um vilja beggja risaveldanna
mætti ljúka samningsgerðinni inn-
an skamms. Ronald Reagan,
Bandaríkjaforseti, hefur sagt að
þeir Míkhaíi Gorbatsjov, leiðtogi
Sovétríkjanna, kynnu að halda
fímmta fund sinn til þess að undir-
rita samning um langdrægu flaug-
amar ef samningar tækjust áður
en starfsdegi hans í Hvíta húsinu
lyki, en það verður í janúar á
næsta ári.
Þegar öldungadeiidin hafði
staðfest samning risaveldanna unr
meðaldrægu flaugamar hringdi
Reagan í leiðtoga þingflokkanna,
Robert Byrd og Bob Dole, og færði
þeim hinar beztu þakkir. Bauð
hann þeim til Moskvu til að vera
viðstaddir athöfn, þar sem Reagan
og Gorbatsjov skiptast á staðfest-
um eintökum af samningnum. Sú
athöfn fer fram á miðvikudags-
morgun og er hugsuð sem há-
punktur leiðtogafundarins, sem
lýkur næstkomandi fímmtudag.
Æðstaráð Sovétríkjanna stað-
festi samninginn um meðaldrægu
flaugamar á aukafundi í gær-
morgun. Nefnd beggja deilda
þingsins lagði til í vikunni að
samningurinn yrði staðfestur en
sovézkir embættismenn segja að
ákveðið hafí verið að bíða með
endanlega afgreiðslu þar til fyrir
lægi hver örlög hans yrðu á
Bandaríkjaþingi.
Reagan Bandaríkjaforseti átti í
gær vinnufundi með helztu ráð-
gjÖfum sínum í Helsinki, en þaðan
heldur hann til Moskvu í dag.
Sjá grein um leiðtogafund risa-
veldanna i Moskvu á bls. 4-6 B.