Morgunblaðið - 29.05.1988, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1988
Morgunblaðið/Emilía
Pétur Sigurðsson, formaður Sjómannadagsráðs, tekur fyrstu skóflustungu að íbúðunum.
50 ára afmæli sjómannadagsins:
Fyrsta skóflustunga tekin að
íbúðum aldraðra í Garðabæ
Á FÖSTUDAG var tekin fyrsta
skóflustunga að öðrum áfanga
verndaðra ibúða fyrir aldraða
að Naustahlein í Garðabæ. Sjó-
mannadagsráð í Reykjavík og
Hafnarfirði byggja íbúðirnar.
íbúðimar við Naustahlein verða
28 að tölu, allar í raðhúsum.
Bygginamar verða ein hæð og
mun hver íbúð hafa sérinngang
og garð. íbúðimar verða mismun-
andi að stærð, frá 60 fermetrum
upp í 96 fermetra. Öll hönnun
miðar við að hreyfihamlað fólk
geti notað íbúðimar.
Skóflustungan í Garðabæ var
fyrsti liður í dagskrá vegna 50
ára afmælis sjómannadagsins. 2.
og 3. júní mun forseti íslands frú
Vigdís Finnbogadóttir heimsækja
Hrafnistu í Reykjavík og Hafnar-
fírði og fylgjast með siglingu segl-
skipa og fylgdarskipa þeirra inn
á Rauðuvík við Reykjavík, sem
fram fer 3. júní. Hátíðarsamkoma
verður svo í Laugarásbíó sama
dag.
4. júní verður kappróður á
Reykjavíkurhöfn og björgunar-
sveit SVFÍ mun sýna. Sunnudag-
inn 5. júní verða svo aðalhá-
tíðahöldin við Reykjavíkurhöfn,
Snarfari og Siglingasamband ís-
lands halda baujurall, boðið verð-
ur upp á skemmtisiglingu um
Sundin og fleira. Nýr minnisvarði
um óþekkta sjómanninn verður
vígður í Fossvogskirkjugarði og
minningarguðsþjónusta verður í
Dómkirkjunni.
GÆFTIR hafa verið með ein-
dæmum lélegar á humarvertíð-
inni sem hófst síðastliðinn þriðju-
dag. Hrafnkell Eiriksson fiski-
fræðingur sem nýkominn er úr
rannsóknarleiðangri á humar-
miðum segir að veiði hafi reynst
fremur treg á þeim svæðum sem
mest hafa gefið af sér undanfar-
in ár. Það mætti hugsanlega
rekja tU fullmikillar veiði. „Við
sáum ýmis teikn á lofti síðasta
vor og minnkuðum kvótann til
samræmis við það. Mér sýnist það
hafa verið skynsamleg ákvörðun
og hefði jafnvel mátt minnka
kvótann enn frekar," sagði
Hrafnkell í gærmorgun.
„Hér er alls ekki um hrun að
ræða. Við teljum okkur hafa náð
góðri stjóm á veiðunum og mark-
mið hennar er að koma í veg fyrir
Húsavík:
Snjóaði
niður í sjó
PRÝÐISVEÐUR var viðast
hvar á landinu er Morgun-
blaðið hafði siðast spurnir af
í gær og var veðurútlit gott.
Frá Húsavík bárust þó þær
fréttir að snjóað hefði allt nið-
ur í flæðarmál á föstudags-
kvöldið og hiti farið niður
undir frostmark. Einnig féll
snjóföl á Egilsstöðum.
Veður hafði þó batnað á
Húsavík í gærmorgun og sólin
glennti sig öðru hvoru á bæj-
arbúa og gesti þeirra, en á
Húsavík fer nú fram þing lions-
manna.
miklar sveiflur. Ég er hinsvegar
ekki frá því að kvótahæstu skipin
geti átt í nokkru basli að veiða upp
f kvótann f ár,“ sagði Hrafnkell.
„Það sem gerir okkur erfíðast
fyrir er að það eru engin ytri skil-
yrði sem skýra þessa tregu veiði.
Sjórinn er í meðallagi hlýr og aðrar
aðstæður með besta móti. Ég er
þó alls ekki svartsýnn. Þótt fengur-
inn hafi verið rýr þegar við fórum
yfír má þar ýmsu um kenna eins
og veðri. Inn á milli komu góðar
glefsur."
Humarinn sýnir merki um hraðan
vöxt og kvaðst Hrafnkell ánægður
með nýliðun í stofninum. Ungur
humar sem ekki hefur enn náð
hæfílegum þroska lofar góðu. Ár-
gangamir frá 1979 og 1980, sem
hafa verið uppistaðan í afla, komu
hinsvegar veikar út en búist var
við. Humar verður verðmeiri með
aldri og nær sjaldnast í fyrsta flokk
fyrr en 10 ára gamall. Þannig hef-
ur ’79-árgangurinn enn ekki náð
kjöraldri.
Mestur fengur fékkst undan
Reylganesi, sérstaklega á svæðinu
við Eldey. Við Vestmannaeyjar og
undan Surtsey, þar sem veiðin var
einstaklega góð í fyrra, fékkst á
hinn bóginn lítill afli. Þá reyndu
rannsóknamenn fyrir sér í Jökul-
djúpi, þar sem ekki hefur verið
veiddur humar undanfarin ár. Á
árum áður voru fengsæl mið f Faxa-
flóanum en í upphafí áttunda ára-
tugarins var gengið svo mikið á
stofninn að hann hrundi. „Skipstjór-
ar hafa ekki séð ástæðu til þess
að leita á önnur mið þar sem veiði
hefur verið góð við suðurströndina.
Ég teldi skynsamlegt að þeir reyndu
fyrir sér í Jökuldjúpinu, því það
kæmi öllum til góða ef veiðinni yrði
dreift á stærra svæði," sagði Hrafn-
kell.
Kaupmáttur kom-
inn upp fyrir Is-
landsnietið frá 1982
VÍGLUNDUR Þorsteinsson,
formaður Félags fslenskra iðn-
rekenda, sagði á framhaldsárs-
þingi félagsins, að kaupmáttur
hefði náð hámarki á árinu 1987
og verið kominn 15% upp fyrir
það sem hann reis hæst árið 1982
en það hefði hingað til verið hið
staðfesta íslandsmet í kaupmætti.
Víglundur Þorsteinsson sagði að
á undanfömum 18 mánuðum hefðu
lægstu laun á Íslandi hækkað um
75-80% og laun hærra launaðra hópa
um 45-55%. „Á þessu tímabili hefíir
kaupmáttur hækkað meir en dæmi
eru um áður og náði hámarki á ár-
inu 1987 þegar kaupmáttur atvinnu-
tekna var kominn 15% upp fyrir það
sem hann reis hæst árið 1982 en
sá toppur var allt til ársins 1987 hið
staðfesta íslandsmet í kaupmætti,"
sagði Vfglundur.
I ljósi þessa árangurs sagði hann
vera erfítt að skilja þá erfiðu kjara-
samninga sem hefðu staðið f allan
vetur, þar sem á endanum hefði
verið fallið f eldri farveg og samið
um launahækkanir sem hlutu að
leiða til gengisbreytinga og þeirra
gömlu vinnubragða sem ríktu í sam-
skiptum vinnumarkaðarins hér á
árum áður.
Víglundur sagði að þó kaupmáttur
atvinnutekna myndi ef til vill lækka
um 6-8% á þessu ári samanborið við
árið 1987 yrði hann samt sem áður
5-7% hærri í árslok 1988 en gamla
kaupmáttarmetið frá 1982.
Tveir misstu
ökuleyfið
LÖGREGLAN í Reykjavík
svipti tvo ökumenn ökuleyfi
aðfaranótt laugardagsins.
Annar ók & 112 kflómetra
hraða í Ártúnsbrekku, en hinn
var gripinn á 133 kflómetra
hraða á Kringlumýrarbraut.
Nóttin var annars róleg um
allt land og lítið um ólæti vegna
ölvunar. Lögreglan þurfti að
vanda að hafa afskipti af smá-
ryskingum, en Iögreglumönnum
kom saman um að fólk hefði
hegðað sér óvenjuvel.
Verkmenntaskólinn á Neskaupstað:
Heimavistin boð-
in út í annað sinn
Slæmar gæftir og léleg
humarveiði sem af er
Morgunblaðið/BAR
Fyrsti humaraflinn kom til
Grindavikur í fyrradag. Það var
Sigrún GK sem veiddi humarinn.
BÆJARYFIRVÖLD á Neskaup-
stað hafa hafnað öllum tilboðum
í byggingu heimavistar við verk-
menntaskólann. Að sögn Ásgeirs
Magnússonar bæjarstjóra er ver-
ið að endurskoða byggingaráætl-
unina. Stefnt er að því að bjóða
verkið út með breyttum forsend-
um á föstudag í næstu viku.
Þrjú tilboð bárust í byggingu
heimavistarinnar, frá Byggðaholti
á Eskifirði, Baldri og Oskari á
Egilsstöðum og Framtaki á Reyðar-
firði. Heimamenn buðu ekki í verk-
ið. Byggðaholt átti lægsta tilboðið,
58 milljónir króna en kostnaðar-
áætlun hljóðar upp á 54 milljónir
króna.
Heimavistinni er ætlað að leysa
úr brýnni þörf nemenda. Þar eiga
að rúmast 90 manns. Ætlunin var
að byggja húsið f þremur áföngum,
en þeim hluta sem útboðið náði til
verða 15 tveggja manna herbergi
og mötuneytisaðstaða. Ef lægsta
tilboðinu hefði verið tekið hefði
bærinn þurft að greiða á bilinu 13
til 16 milljónir króna umfram lög-
bundið framlag ríkisins.
„Við ráðum einfaldlega ekki við
verkið og þurfum því að skera nið-
ur, byggja ódýrara hús. Framlög
ríkisins miðast við hinar frægu
„normkrónur" en jafnframt er ætl-
ast til þess að við svörum kröfum
tfmans, bjóðum upp á aðstöðu fyrir
fatlaða og annað sem reglugerðir
kveða á um,“ sagði Ásgeir. Hann
bjóst við því að í nýju útboði yrði
. -
' "L'v f
gert ráð fyrir því að húsinu væri
aðeins skilað fokheldu. Það myndi
væntanlega teQa bygpnguna, en
við því væri ekkert að gera.
Noregur:
Björgvin
er enn á
sjúkrahúsi
BJÖRGVIN Björgvinsson, sem
lenti í námaslysi á Svalbarða
fyrr í vikunni, liggnr enn á
Haugasunds-sjúkrahúsi vegna
meiðsla sinna. Hann hlaut
meðal annars alvarlega brun-
askaða.
Bjöigvin var ásamt fleirum við
slökkvistörf í námu 7, einni
stærstu námu Longyearbyen á
Svalbarða, þegar hrundi úr námu-
þakinu ofan á hann og félaga
hans. Var flogið með þá á Hauga-
sunds-sjúkrahúsið.
Björgvin er með alvarleg bruna-
sár á fæti og hendi auk bijóst-
skaða. Hann fór í aðgerð vegna
brunaskaðanna síðastliðinn föstu-
dag og fer í aðra aðgerð í dag.
Engir réttíndalausir skóla-
stjórnendur verða settir
Kennarasamband íslands
hefur bent yfirvöldum á að
réttmdalaust fólk hafi ráðist til
starfa sem skólastjórnendur
víða úti á landi, að því er Sig-
urður Helgason, deildarstjóri í
menntamálaráðuneytinu, segir
I samtali við Morgunblaðið.
Aðspurður um viðbrögð
menntamálaráðuneytisins við
þessum ábendingum, segir Sig-
urður að enginn réttindalaus
kennari verði settur aftur sem
skólastjórnandi heldur auglýst
eftir fólki með réttindi yfir
sumarmánuðina.
Það eru um 50 skólar úti á
landi þar sem leiðbeinendur eru
settir sem skólastjómendur, sam-
kvæmt upplýsingum sem Morgun-
blaðið aflaði sér. Eftir ábendingu
Kennarasambandsins verða þeir
ekki endursettir en ekki vildi Sig-
urður segja til hvaða úrrasða yrði
gripið ef fólk með réttindi fengist
ekki í stöðumar.