Morgunblaðið - 29.05.1988, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1988
9
■ Þrenningarhátíð
Jóh. 3,1.-15.
HUGVEKJA
eftir séra GUÐMUND ÓLA ÓLAFSSON
Nikódemus og eirormurinn
„Þú ert lærifaðir í ísrael og veist
ekki þetta?"
Ekki var það nú notalegt ávarp
né hógvær spuming. Nikódemus
var öldungaráðsmaður og lærður
maður. Og hver var Jesús svo sem
— og hvaðan kom honum þessi
vizka um endurfæðing af vatni
og anda?
En Nikódemus var engin furt-
ur. Hann vissi, hvaðan Jesús var:
„Rabbí, vér vitum, að þú ert læri-
faðir kominn frá Guði. Enginn
getur gert þessi tákn, sem þú gjör-
ir, nema Guð sé með honum.“ Þó
kaus hann að koma til Jesú í
skjóli næturinnar. Það var vísast
ekki leiðin til virðinga og vinsælda
fyrir mann í hárri stétt og stöðu
að leita sannleikans hjá meistar-
anum frá Nazaret.
Hvað lízt þér? Væri þetta ekki
dálítið strembinn texti, segjum
fyrir ungan kennimann, sem væri
að hefja lífsstarfíð? — Þú ert orð-
inn — eða ætlar að verða lærifað-
ir Islendinga og veizt ekki þetta?
Þú ætlar að fara að kenna fólki,
hvemig komast skuli inn í ríki
Guðs, hvemig stofna megi ríki
Guðs á jörðu, og þú veist ekki,
hvað endurfæðing er?
Jú, það hefur svo sem borið
við, að ungur prestur stæði skjálf-
andi og hræddur frammi fyrir
þessum orðum Jesú. Víst veit
hann, hvaðan Jesús er, og veit,
að orð hans em nokkurs verð og
meira en það. En hvað veit hann
um sjálfan sig, hví kom honum
nokkm sinni í hug að Jesús hefði
kallað hann til að kenna og pred-
ika? Verður hann nokkum tíma
nýtur til slíks.
En textinn um Nikódemus, end-
urfæðinguna og eirorminn er ekki
aðeins erfiður ungum presti. Ef
til vill er hann enn örðugri og
háskalegri gömlum presti: Þú ert
kennimaður, hefur látið, sem þú
værir og vissir, — en hveiju hefur
þú komið til leiðar? Hversu marg-
ir hafa endurfæðst, þar sem þú
varst, hversu marga leiddir þú inn
í ríki Guðs?
Síra Hallgrími var ábyrgðin
hugstæð:
Þú, Guðs kerinimann, þenk um það,
þar mun um síðir grennslazt að,
hvemig og hvað þú kenndir.
Að lærisveinum mun lika spurt,
sem lét þitt gáleysi villast burt,
hugsa glðggt, hvar við lendir.
Ps. 10
Svo þung var þessi ábyrgð, að
um líf og dauða var að tefla, —
ekki einungis líf og dauða kenni-
mannsins, heldur einkum hjarðar-
innar, sem honum var falin til
forsjár. Og raunar eru Passíu-
sálmamir allir trúarbarátta kenni-
manns um lífið og dauðann. Það
voru ekki einungis sálmamir tveir,
sem fylgdu gjöfínni til Ragnheið-
ar, biskupsdóttur, er heita máttu
sorgarstef og harmabót. Stríðið í
Passíusálmunum verður æ ákaf-
legra og harðara, þegar á líður.
Segja má, að allir seinni sálmam-
ir endi á hrópi til hans, sem sigr-
aði dauðann. Þar er að fínna,
meðal margra gersema annarra,
þessa stríðu, fögru og mikilúðlegu
andlátsbæn, sorfna og lúna, eins
og lífsreynt gamalmenni, örþrota:
Þá sólarbirtunni’ eg sviptur er,
sjón og heym tekur að dvína,
raust og málfæri minnkar mér,
myrkur dauðans sig sýna,
í minni þér, Drottinn sæll, þá sé
sonar þíns hróp á krossins tré!
Leið sál til ljóssins mína!
Ps. 41
Þar hrópar einnig kennimaður-
inn gamli: Hversu gott væri, Jesú,
að geta horfíð til þín á dimmri
nóttu, eins og Nikodemus, fá að
spyija þig. Vertu hjá mér á dauð-
ansnóttu.
„Vei mér! Það er úti um mig!“
hrópar spámaðurinn ungi í bók
Jesaja, þegar hann sér dýrð Drott-
ins í sýn. „Vei mér, — því að ég
er maður, sem hefí óhreinar varir
og bý meðal fólks, sem hefir
óhreinar varir, því að augu mín
hafa séð konunginn —!“ En einn
af seröfum Drottins tekur glóandi
stein af altari og bregður á varir
spámannsins: „Sjá, þessi hefur
snert varir þínar. Misgjörð þín er
burtu tekin, friðþæg fyrir synd
þína.“
Þá verður svarið eitt og skírt:
„Hér er ég, send þú mig!“
Hvað er annað að segja, þegar
Drottinn hefur tekið burtu mis-
gjörðir, hreinsað og endurfætt til
nýs lífs? Því að allt er frá honum
og öllu varpað til hans, einnig
ábyrgð predikarans, hinu þyngsta
og yndislegasta oki. Hvað er ann-
að að gera en benda dauðvona
mönnum á eirorminn í eyðimörk-
inni, — á hinn krossfesta á Gol-
gata?
Komið svo, konur og menn,
að krossinum Jesú senn.
Þótt nauðin þrengi þrenn,
þar fæst nóg lækning enn.
Hver sem eirorminn leit
af Israels manna sveit,
eitrið ei á þann beit.
Öll stilltist plágan heit.
Ps. 47
Sigrún Ólafsdóttir
Margrét Hinriksdottir
Brynhildur Sverrisdóttir
lljá Fjárfestingarfélaginu í Kringlunni
erlifandi peningamarkaður
og persónuleg þjónusta.
Stefán Jóhannsson
FJARFESTINGARFEIAGIÐ
Kringlunni 123 Reykjavík Sími 689700
Opið mánudaga til föstudaga kl. 10 — 18
og laugardaga kl. 10—14
LIFANDIPENINCAMARKAÐUR
/ KRINGLUNNI
FJÁRMÁL FYRIRTd&?IIIS *
IRÐBRéWUIIWUHM0IW
Símsvari ALLAN SÓLARHRINGINN í síma 28506. Upplýsingar um daglegt gengi Kjarabréfa, Markbréfa, Fjölþjóðabréfa og Tekjubréfa
Gengi: 27. maí 1988: Kjarabréf 2,858 - Tekjubréf 1,412 - Markbréf 1,488 - Fjölþjóðabréf 1,268
RITVÉLAR
REIKNIVÉLAR
PRENTARAR
TÖLVUHÚSGÖGN
HUS21UBIX
UÓSRITUNARVÉLAR