Morgunblaðið - 29.05.1988, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 29.05.1988, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1988 SIGURVEGARI D anski leikstjórinn Bille August, sem hlaut gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes um síðustu helgi, segir frá sjálfum sér í samtali við Morgunblaðið Dansk/sænska kvikmyndin Pelle Erobreren, eða Pelle sigurvegari, hlaut Gullna pálmann í aðalkeppni kvikmyndahátídarinnar í Cannes um síðustu helgi. Myndin er byggð á fyrsta af fjórum bindum samnefnds ritverks Martin Andersen IMexö, og fjallar um samband einstæðs föður og sonar hans í ömurlegri tilveru landbúnaðarverkafólks á Borgundarhólmi á seinni hluta 19du aldar. H till myndarinnar gæti hæglega staðið fyrir feril leikstjóra hennar, Bille August. Frá fyrsta sjálfstæða verkinu, sjónvarpsleik- ritinu Kim G. árið 1975, hefur hann óumdeilanlega verið sigurvegarinn í danskri kvikmyndagerð, og hlotið ógrynni verðlauna og viðurkenn- inga víða um heim. Hann hóf reynd- ar að starfa við kvikmyndagerð sem myndatökumaður, útskrifaðist sem slíkur frá Danska kvikmyndaskól- anum árið 1971, og hefur fílmað um 15 breiðtjaldsmyndir í Sviþjóð, þeirra þekktust sjálfsagt Karlmönn- um verður ekki nauðgað, frá 1977. En eftir Zappa, árið 1983, hefur hann eingöngu fengist við leik- stjóm. Sú mynd, og ekki síst fram- hald hennar, Trú, von og kærleik- ur, eru þær mynda hans sem íslenskir áhorfendur hafa átt kost á að sjá. Kvikmyndafyrirtækið sem Bille August hefur gert síðustu myndir sínar hjá heitir Per Holst Film, og hefur aðalbækistöðvar sínar í Aust- urbrúarhverfí Kaupmannahafnar, og ber gatan hið skemmtilega við- eigandi nafn Lífsfangaragata. Þar hitti ég þennan hógværa, næstum vandræðalega feimna, leikstjóra þremur dögum áður en hann flaug til Cannes. Nú má segja að Bille August hafí staðið með gullinn pálma í höndunum áður en hann gerði það bókstaflega á mánudagskvöldið var. Pelle búinn að sigra Skand- inavíu, og útvega skapara sínum 15 milljóna dollara samning í Holly- wood. — Hvemig líður manni á slíkum tímamótum: á leiðinni á aðalkeppnina á einni mikilvæg- ustu kvikmyndahátíð heims, og síðan til starfa í miðstöð alþjóð- legrar kvikmyndagerðar? „Já, við erum að fara til Cannes og það er vissulega spennandi að sjá hvað kemur útúr þvi. Sjálfum fínnst mér öll samkeppni af þessu tagi algjör della; mér fínnst ekkert vit í því að tefla saman sjálfstæðum og ólíkum verkum eins og þar er gert. Það er eins absúrd og að etja saman Beethoven og Mozart. Hins- vegar verð ég að viðurkenna þá staðreynd að keppnin í Cannes er gífurlega mikilvæg fyrir sölu kvik- mynda á alþjóðamarkaði, og læt mig því hafa það að mæta til leiks. Þegar maður ber ábyrgð á mynd sem hefur kostað um 30 milljónir danskra króna verður maður að gera allt sem stuðlar að því að hún standi undir sér. Það skiptir aftur á móti litlu máli hvort myndin sigr- ar, því reynslan hefur sýnt að þær myndir sem fá Gullna pálmann selj- ast ekkert betur en hinar sem á annað borð komast í keppnina." Meira vildi hann ekki segja um Cannes. Og þá er það Hollywood? „Þetta með Hollywood er tilkom- ið vegna myndarinnar Trú, von og kærleikur, frá árinu 1984, sem á ensku heitir Twist & Shout, og varð mjög vinsæl þar vestra. Strax þá fékk ég mörg tilboð frá ýmsum stórfyrirtækjum, las fjölda hand- rita, en þótti ekkert þeirra nógu spennandi, — enda lífíð alltof stutt til þess að eyða þvi f að gera miðl- ungsgóðar kvikmyndir, þó það sé í Hollywood. En ég var líka langt kominn með undirbúning að Pelle sigurvegara, sem hafði lengi verið efstur á óskalistanum mínum, og það hefði þurft eitthvað stórkostlegt tii þess að ég frestaði honum. — Nú, þegar Pelle var svo frumsýnd- ur, komu hingað til Danmerkur nokkrir bandarískir framleiðendur og þá fóru mér að bjóðast betri handrit, stærri og meira spennandi verkefni. Málin hafa síðan þróast þannig að ég er núna að byija á mynd sem fjallar um spænska borg- arastríðið. Þetta er amerísk mynd; sérstaklega um þá Bandaríkjamenn sem gerðust sjálfboðaliðar. Sagan er sönn og byggir á bók eftir konu að nafni Marion Marymann, sem var þama ásamt manni sínum, Robert hét hann. Hún hefst í Bandaríkjunum á brúðkaupi þeirra, og lýsir um leið andrúmsloftinu i kreppunni miklu; vitundarvakningu verkalýðsins gagnvart öfgakennd- um afturhaldsöflunum. Þau fara í brúðkaupsferð til Evrópu, upplifa spennuna í alþjóðamálunum annó 1936, og hann ákveður að bjóða sig fram í baráttuna gegn fasisman- um á Spáni. Hún fylgir honum og af þeim verður löng saga, sem er hvort tveggja í senn ákaflega spennandi og falleg, og nær há- punkti í morðinu á eiginmanninum skömmu fyrir lokaslaginn. Það er verið að skrifa handritið núna, þrátt fyrir að handritahöfundamir í Hollywood séu í verkfalli, og höf- undur þess heitir John Sayles." — Það hefur líka heyrst talað um að þú leikstýrðir mynd um Ku Klux Klan, með Dustin Hoff- man í aðalhlutverki____ „Já, en hún hefur verið lögð til hliðar í bili. Ég er ekki alveg nógu ánægður með handritið eins og það er núna, og fyrirtækið er það víst ekki heldur. Það getur verið að það verði tekið upp aftur á næsta ári, og ef mér líst á það þá getur verið að ég taki þetta verkefni að mér.“ — Hvaða fyrirtæki ertu að vinna fyrir? „Það heitir Tri Star Columbia, en það er nú reyndar Coca Cola sem á allt heila klabbið,“ segir Bille og glottir. „En þetta breytist allt svo hratt. . . Sko, bandaríski kvik- myndaiðnaðurinn byggist að mestu leyti á nokkmm stómm dreifíngar- fyrirtækjum: Wamer, Columbia, Universal og United Artists o.fl, sem eiga langstærsta hluta mark- aðarins, eiga bíóin, kvikmyndaverin o.s.frv. Hvert þeirra þarf að fram- leiða 10—15 leiknar myndir á ári til þess að reksturinn gangi upp. Og það skiptir engu máli hvort þetta em gæðamyndir eður ei, bara að þær skili gróða. Skjótfenginn gróði er það sem allt batteríið gengur út á. Þetta er auðvitað mjög ólíkt því kerfí sem við þekkjum hér á Norður- löndum, þar sem maður verður að leita á náðir hjá ríkisreknum kvik- myndastofnunum, sem starfa undir menntamálaráðuneytum. Þær gera listrænar kröfur til verkefnanna, en meta þau ekki útfrá sölumögu- leikum. Þessvegna er það skrýtin upplifun fyrir mann að kynnast þessum gallharða viðskiptamóral í Hollywood. Sem felur meðal annars í sér að leikstjórar og framkvæmda- stjórar em afar ótryggir í sessi; ef þeir gera bara eitt flopp fjúka þeir samstundis. Það fólk sem maður hefur haft samband við er allt í einu ekki lengur til staðar og ein- hveijir aðrir teknir við. Ég vona bara að það verði ekki mannaskipti hjá Tri Star næsta hálfa árið ...“ — Er farið að ræða um hvaða leikarar verða í myndinni? „Nei, handritið á að vera tilbúið í lok júní eða byijun júlí og þá fyrst verður farið að spá í leikarana. Ég veit ekki enn hvort það verða leikar- ar á borð við Dustin Hoffman, en það er mögulegt. Hinsvegar er ég ekki viss um að ég vilji fá ein- hveija stórstjömu. Það væri að sjálfsögðu mjög spennandi, en er einnig að vissu leyti varasamt. Stór- stimi em svo valdamikil; þau vita vel að það em fyrst og fremst þau sem selja myndimar. Mynd eins og Jörð í Afríku hefði ömgglega ekki orðið neitt vinsæl, ef Robert Red- ford og Meryl Streep hefðu ekki leikið í henni. Því miður. Robert Redford er ekki bara Robert Red- ford. Hann er stofnun, iðnaður; ímynd sem verður að viðhalda og vemda. Eitt dæmið um áhrifamátt stjömuleikaranna er sagan af leik- stjóranum sem hafði gengið ámm saman með handrit sitt á milli risa- fyrirtækjanna, áður en hann fékk það samþykkt. Síðan þegar farið var að ræða málið frekar fannst fyrirtækinu að aðalkvenhlutverkið væri alveg kjörið fyrir Börbm Strei- sand. Og hún var ráðin. En það var ekki liðin vika af tökutímanum, þegar sauð uppúr á milli hennar og leikstjórans, og þá var það hann sem var látinn fara... Það er þann- ig ekki víst að það væri heppilegt fyrir mig í minni fyrstu mynd í Hollywood að fara að leikstýra stór- stjömu."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.