Morgunblaðið - 29.05.1988, Page 26

Morgunblaðið - 29.05.1988, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1988 Reykholt: Skóflustunga tekin að nýrri kirkju og Snorrast^fu Kieppjánureylgum. VIÐ MESSU í Reykholtskirkju á hvftasunnudag prédikaði sóknar- presturinn í Reykholti, séra Geir Gunnarsson, séra Bryiyólfur Gisla- son flutti pistil, séra Jón E. Einarsson prófastur flutti guðspjall og kirkjubæn og biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson, lýsti blessun. Kirkjugestir voru fleiri en kirkjan rúmaði, eins og svo oft áður, og gátu þeir sem ekki komust i kirkju hlýtt á messuna i lang- ferðabifreið sem stóð á hlaðinu. Að guðsþjónustu lokinni var gengið á staeði hinnar nýju kirkju þar sem biskup íslands flutti bæn og tók skóflustunguna með göml- um „páli“ sem varðveittur verður í hinni nýju kirkju. Biskupinn flutti stutta ræðu þar sem hann talaði um þátt kirkjunn- ar í íslenskri menningu að fomu og nýju. Á sama tíma og menn voru að byggja kirkjur í Evrópu úr steini og gleri sem enn standa voru menn á íslandi að skrifa bækur á bókfell og varðveita menninguna og söguna ekki sfður en aðrar þjóðir þó á annan hátt væri og höfðu þannig áhrif á heimslistasöguna á mjög sérstæð- an hátt. Að þessu loknu söng kirkjukór- inn undir stjóm Bjama Guðráðs- sonar versið „Gefðu að móðurmál- ið mitt“ og var þá lokið athöfiiinni í Reykholti og héldu gestir, um 200 manns, að Logalandi þar sem drukkið var kaffl í boði sóknarinn- ar. Þar vom haldnar nokkrar ræð- ur. Auk heimamanna var flöldi gesta og má þar nefna alla þing- menn Vesturlands að undanskild- um einum. Fyrir þeirra hönd talaði Aiexander Stefánsson. Biskupinn, herra Pétur Sigurgeirsson, pró- fasturinn, séra Jón Einarsson, Hjörtur Þórarinsson fyrrverandi sóknamefndarformaður og Jónas Kristjánsson formaður stofnunar Áma Magnússonar tóku til máls. Allir hvöttu þeir mjög til þessarar framkvæmdar og óskuðu henni velfamaðar. Margar veglegar gjaf- ir bámst bæði til Snorrastofu og kirkjunnar á hátíðisdegi þessum. Á næstunni mun fjáröflunar- nefnd fara um sveitina og safna framlögum til bygginganna. Von- ast er til að sem flestir sjái sér fært að leggja eitthvað af mörkum í þessa miklu framkvæmd sem ömggiega á eftir að verða okkur til mikillar ánægju og þroska. í byggingamefnd em Bjami Guðráðsson bóndi í Nesi, Ami Theodórsson bóndi á Brennistöð- um og Þórir Jónsson húsasmíða- meistari í Reykholti. - Bemhard Biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson, tekur fyrstu skóflustunguna að nýrri kirkju í Reykholti á hvitasunnudag. Morgunblaöið/Bemhard Jóhannsson Séra Brynjólfur Gíslason sóknarprestur í Stafholti í Borgarfirði, herra Pétur Sigurgeirsson, séra Jón E. Einarsson prófastur í Saurbæ og séra Geir Waage sóknarprestur í Reykholti fyrir framan altarið í Reykholtskirkju. Drangsnes: Fjarðarsmiðjaii meðlægsta tUboðið í barnaskólaim Laugarhóli, Bjamarfirði. TILBOÐ í viðbyggingu við baraaskólann á Drangsnesi hafa verið opnuð hjá Almennu verk- fræðistofunni. Lægsta tilboðið af þremur sem bárust, var frá Fjarðarsmiðjunni og hfjóðaði það upp á 5.671.000 krónur. í apríl sl. var óskað eftir tilboðum í viðbyggingu við Bamaskólann á Drangsnesi í Kaldrananeshreppi. Var þaraa um að ræða tveggja hæða viðbyggingu úr steinsteypu, sem er 120 fermetrar. Mun bygging þessi hýsa kennarastofur og snyrt- ingar fyrir skólann. Það var Almenna verkfræðistof- an í Reykjavík sem sá um útboðið. Þijú tilboð bámst í verkið. Hið lægsta reyndist vera frá Fjarðar- smiðjunni, 5.671.000 eða um 500.000 krónum lægra en kostnað- aráætlun var. í viðtali við fréttaritara var talið að þessu tilboði verði tekið eftir að nokkrar leiðréttingar hafa farið fram er miða að lækkun þess. í Drangsnesskóla em nú rúmlega tuttugu nemendur, í yngri og eldri deild, ásamt sjöunda bekk. í skóla- byggingunni em hins vegar aðeins tvær kennslustofur, sem aðskildar em með harmonikkuhurð og mjög hljóðbært á milli. Þá er skólinn einn- ig nýttur sem kirkja eða kapella þorpsins og fara þar fram guðs- þjónustur og aðrar kirkjulegar at- hafiiir. Er þá opnað á milli kennslu- stofanna. Annað húsnæði til skólahalds verður svo skólinn að taka á leigu úti í þorpinu. Það skal tekið frain að þetta til- boð nær aðeins til fokhelds hús- næðis. - SHÞ Morgunblaðið/RAX Sigríður Hannesdóttir í gervi ömmu gömlu, sem hefur veriö í Brúðubílnum frá upphafi. Til vinstri við hana stendur Helga Steffens- en með aðalsöguhetjuna úr Ieikriti sumarsins, „í fjörunni". Tólfta ár Brúðu- bílsins að hefjast Bók um íslensk mannanöfn: Gömlu fjölskyldunöfn- in eru að koma aftur — meirihluti bama skírður tveimur nöfnum Hallgrímskirkja: Prunner leikur verk eftir Bach SÍÐUSTU orgeltónleikarnir í tónleikaröðinni sem kennd er við norðurþýsku barokkmeistarana verða haldnir í dag kl. 17 í Hallgrímskirkju. Orthulf Prunn- er leikur þá verk eftir Bach og kynnir tónskáldið og verkin með nokkrum orðum. Tónleikarnir eru haldnir á vegum Listvinafé- lags Hallgrímskirkju. Að tónleik- unum loknum fer fram fram- haldsaðalfundur félagsins. „Ég leik hér sjö tónverk Bachs og kynni verkin með nokkrum orð- um eins og gert hefiir verið á fyrri tónleikunum í þessari tónleikaröð," segir Orthulf Prunner í samtali við Morgunblaðið. „Þessi verk hef ég valið með það fyrir augum að sýna hver áhrif Bach sækir til þessara norðurþýsku barokkmeistara en þar ber mest á Buxtehude. í fyrsta verkinu sem ég leik era áhrif Buxtehudes mjög greinileg en í því síðasta er Bach orðinn sjálf- stætt tónskáld með sinn eigin stfl, verkið getur ekki verið eftir neinn annan en hann.“ „Þessi verk era ekki mjög mikið þekkt en þetta eru allt perlur og þau sýna vel þá þróun sem varð í tónsköpun Bachs," segir Pranner einnig. Orthulf Prunner hefur starf- að hériendis í um 10 ár og er organ- isti f Háteigskirkju. Þá hefur hann iðulega haldið orgeltónleika eriend- is. í sumar heldur hann til dæmis tónleika í Þýskaiandi og Aust- irríki. Fyrir utan að leika á orgel grípur hann einnig í sembal og seg- •st hafa mikinn áhuga fyrir þvf. SÝNINGAR Brúðubílsins hefjast á þriðjudag, 1. júni, með frum- sýningu á leikritinu „í fjörtinni" i Hallargarðinum kl. 14. Brúðubfllinn hefur nú starfað í 12 ár og er, að sögn forráða- manna hans, eina útileikhús landsins, sem starfar reglulega. Fer Brúðubfllinn á milli allra gæsluvalla i Reykjavík auk nokk- urra útivistarsvæða í júní og júlí en í ágúst ferðast leikhúsið gjaraa um landsbyggðina og sýn- ir í flestum kaupstöðum landsins. Brúðubfllinn sýnir tvisvar á hveijum gæsluvelli og tekur hver sýning hálfa klukkustund. Sýning- amar eru sniðnar að þörfum yngstu kynslóðarinnar, sem tekur virkan þátt í þeim. Að sögn Helgu Steff- ensen, forsvarsmanns Brúðubflsins er mikið spilað og sungið á sýning- unum en ekki hefur ein einasta þeirra fallið niður öll 12 árin. Nokkrar brúðanna hafa verið í Brúðubílnum frá upphafí en í sumar bætast margar nýjar í hópinn. Þær hefur Helga gert en þær Sigríður Hannesdóttir og Helga Sigríður Harðardóttir sjá ásamt henni um hreyfingar brúðanna. Helga Sigrfð- ur verður bflsfjóri Brúðubflsins í sumar. í sumar verður sýnt leikritið „í fjörunni" eftir Helgu Steffenssen, sem jafnframt er leikstjóri. Segir þar frá lftilli stúlku sem fer niður í Ijöra þar sem allt lifhar við. Leik- aramir Aðalsteinn Bergdal og Edda Heiðrún Bachman eiga raddimar auk Helgu, Sigríðar og Helgu Sigríðar. Um tónlistina sér Jónas Þórir og leiktjöld gerði Anna Guð- jónsdóttir. BÓK fyrir almenning um íslensk mannanöfn er væntanleg á næsta ári, að sögn Guðrúnar Kvaran orðabókarritstjóra. Hún hefur safnað efni í bókina ásamt Sigurði Jónssyni frá Arnarvatni. Nafna- skrá með ýmsum upplýsingum verður aðalefni bókarinnar en á undan henni fer Itarlegur formáli. Saga islenskra mannanafna verð- ur könnuð í formála og að sögn Guðrúnar má lesa af henni íslands- söguna Guðrún segir að helstu strauma þjóðlffsins mega greina í nafngiftum og nefiúr hersetuna sem dæmi, en þá köm flöldi enskra nafna inn í málið. Mannanöfn bera og vin- sælum kvæðum og skáldsögum á hveijum tíma glöggt vitni. í formála bókarinnar verður einnig §allað um breytingar í nafnanotkun og dreifingu nafna eftir landshlutum. Segir Guðrún að Jón sé enn algeng- asta karlmahnsnafnið af einnefnum, en þegar menn heiti tveimur nöfnum sé Þór algengast. Hún segir lltinn mun vera eftir landshlutum á 100 algengustu nafngiftunum, en eftir sé að athuga óalgengari nöfn. Loks verður sitthvað er viðvíkur ættamöfnum, tvínefiium og tfsku- sveiflum í nafngiftum rakið í for- mála bókarinnar. Ekki var að ráði farið að skfra böm tveimur nöfnum fyrr en um árið 1700 að sögn Guð- rúnar, en nú bera 40% landsmanna tvö skímamöfn. Varðandi tfskusveiflur nefiidi Guð- rún að á fyrstu áratugum aldarinnar hafi verið algengt að skfra stúlku- böm í höfuð feðra sinna eða afa. Þannig hafi nöfn eins og Þorgríma og Vilhjálma verið nokkuð algeng. „I kringum 1970 vora foreldrar oft tregir til að notast við nöfn úr fjöl- skyldunni," segir Guðrún. „Þá urðu tvíneftii mjög algeng og nýstárleg mannanöfn komu fram. Nú segja prestar mér að gömlu fjölskyldunöfn- in séu að koma aftur." Aðalefni bókarinnar verður skrá mannanafna eftir stafrófsröð. Hveiju nafni munu fylgja upplýsingar um aldur þess f málinu, tíðni, merkingu og fleira sem forvitnilegt þykir. Skáksambandið: Þráinn endur- kjörinn forseti ÞRÁINN Guðmundsson var end- urkjörinn forseti Skáksambands íslands á aðalfundi sambandsins sl. Iaugardag. Stjóm Skáksam- bandsins var öll endurkjörin með þeirri undantekningu að Árni Björa Jónasson gaf ekki kost á sér. Aðalstjóm Skáksambandsins skipa: Jón Rögnvaldsson, Áskell Öm Kárason, Ólafur Ásgrímsson, Guð- laug Þorsteinsdóttir, Ríkharður Sveinsson og Hilmar Thors. í vara- stjóm era Olafur H. Ólafsson, Har- aldur Baldvinsson, Margeir Péturs- son og Guðmundur Guðjónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.