Morgunblaðið - 29.05.1988, Page 47
morgunbiIaÍií), súNnudAgiír
Ö9. MAÍ 1988
Hvítasunna ’88 í Neskaupstað:
Fjölbreytt menningardagskrá
Neskaupstað.
MIKIÐ var um að vera í menn-
ingu °g skemmtanalífi Norðfirð-
inga um hvítasunnuhelgina.
Hvitasunnuhópurinn, sem sam-
anstendur af áhugamönnum um
tónlistarlif i Neskaupstað, ásamt
menningarnefnd bæjarins og fé-
lagsheimilinu Egilsbúð stóðu fyr-
ir þessum hátíðahöldum.
Á fostudag opnuðu þau Karl
Hjelm og Þuríður Una Pétursdóttir
myndlistarsýningu í fundarsal Eg-
ilsbúðar. Karl sýndi ljósmyndir og
Þuríður Una vatnslitamyndir og
olíumálverk. Sýning þeiija stóð
fram á mánudagskvöld. Á fostu-
dagskvöld var síðan dansleikur.
Aðalhátíðin hófst svo á hvíta-
sunnudag með fjölbreyttum tónleik-
um. Flytjendur voru aðallega
heimamenn en Norðfirðingar fengu
einnig góða gesti, þau Ingibjörgu
Guðjónsdóttur sópransöngkonu,
sem kunn er af sigri sínum í ein-
söngvarakeppni sjónvarpsins, og
undirleikara hennar, David Knowl-
es. Skólahljómsveit Neskaupstaðar
undir stjóm Jóns Lundberg hóf tón-
leikana en síðan rak hvert atriðið
annað svo sem þverflautukvartett,
þar sem athygli vakti að einn hljóð-
færaleikaranna var ung stúlka sem
kom hingað frá Englandi í vetur til
þess að vinna í fiski en hóf um leið
nám í Tónskóla Neskaupstaðar og
Landssamband
tók nú þátt í tónleikunum. Blokk-
flautukvartett kennara úr tónskól-
anum kom fram, kirkjukór Norð-
fjarðarkirkju undir stjóm Ágústar
Ármanns Þorlákssonar söng og
sýndi að honum er fleira til lista
lagt en bara að syngja sálma, Hild-
ur Þórðardóttir lék einleik á þver-
flautu við undirleik Sveinbjargar
Halldórsdóttur, Ingibjörg Guðjóns-
dóttir söng einsöng bæði ein með
sínum undirleikara og með kirkju-
kómum og Ullarbandið, níu manna
djasshljómsveit, skemmti einnig
áhorfendum á þessum tónleikum.
Þeir voru sérlega vel heppnaðir og
hinir fjölmörgu tónleikagestir fengu
sjálfsagt allir eitthvað við sitt hæfí
því þama hljómaði allt milli háklass-
ískra verka og dúndrandi dixieland-
tónlistar enda var flytjendum óspart
klappað lof í lófa.
Á hvítasunnudagskvöld var svo
veislukvöld í Egilsbúð og síðan
dansleikur um nóttina. Þess má svo
að lokum geta að flölmenni sótti
þessa menningar- og skemmtihátíð
sem haldin var undir nafninu Hvíta-
sunna ’88.
- Ágúst
Þrastarlundur við
Sog opinn ferðafólki
Ragnar Lár með málverkasýningu
Selfossi.
SÖLUSKÁLINN Þrastarlundur
við Sogsbrú var opnaður um
hvítasunnuna. Þar stendur nú
yfir málverkasýning Ragnars
Lár.
Auk þeirra mynda Ragnars sem
hanga á veggjum Þrastarlundar eru
til sýnis í möppu gamlar myndir
eftir Ragnar frá Reykjavík.
Þrastarlundur er opinn virka
daga í maí klukkan 9—22 og um
helgar klukkan 9—23. í júní og í
sumar verður að sögn starfsfólksins
opið alla daga klukkan 9—23. Strax
fýrstu dagana var mikil umferð við
Sogsbrúna og nóg að gera í skálan-
um. Á góðviðrisdögum staldra
margir við í Þrastarlundi, bæði til
að fá sér hressingu og til að njóta
útivistar í skóginum.
— Sig. Jóns.
hjálparsveita:
Vinnings-
númer í
happdrætti
DREGIÐ var í happdrætti Lands-
sambands hjálparsveita skáta 20.
maí 1988.
Eftirtalin númer komu upp:
Mitsubishi Pajero 5D Super Wag-
on jeppar: 115235, 117878,
131077, 141223.
Volkswagen Golf C 3D 1600 bif-
reiðar: 21952, 37726, 53322,
68676, 81871, 98377, 126990,
148192, 149397, 162637, 162766,
173244.
Hringt verður í alla vinningshafa.
Landssamband hjálparsveita
skáta þakkar landsmönnum góðan
stuðning.
Vinningsnúmer birt án ábyrgðar.
(Fréttatilkynning)
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Starfsfólk Þrastarlundar, Bertha Traustadóttir, Steinar Agnarsson
og Steinunn Sverrisdóttir.
FÆREYJAR
5^Tviku
FLUGLEIÐIR
-fyrír þíg- Æ
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Egilsbúð var þétt setin á tónleikunum sem haldnir voru á hvítasunnu-
dag í Neskaupstað.
ORLANDO
FLUGLEIÐIR
-fyrír þíg-
REKURÐU LITIÐ FYRIRTÆKI?
HYGGSTU ST0FNA FYRIRTÆKI?
Ef svo er áttu erindi á námskeiðið
stofnun og rekstur fyrirtækja, sem haldið verður
dagana 6. til 11. júní.
Meðal efnis: Frumkvöðullinn, stofnáætlun,
markaðsmál, fjármál, form
fyrirtækja og bókhald.
Námskeiðið fer fram í kennslusal
Iðntæknistofnunar í Keldnaholti.
Þátttaka tilkynnist í síma 687000.
nlÐNTÆKNISTOFNUN
ÍSLANDS
rekstrartæknideild.
ISLENSK MYNDLIST
e
2.000.
Ásgrímur £[?
Jonsson
2.500,-
Gjöf, sem fræðir og gleður við öll tækifæri
Glæsilegur bókaflokkur um
íslenska myndlistarmenn
ORagnar í Smára
OEiríkur Smith
OJóhann Briem
OÁsgrímur Jónsson
OMuggur
OJóhannes Geir
OTryggvi Ólafsson
Allt eru þetta vandaðar, vel myndskreyttar
bækur, skrifaðar af sumum okkar bestu höf-
undum.
Bækur, sem henta ein eða fleiri saman, sem
tækifærisgjafír af öllu tilefni.
Hafíð samband í síma 91-21960 eða lítið við
í næstu bókabúð.
LISTASAFN ASÍ
LÖGBERG
-1