Morgunblaðið - 29.05.1988, Blaðsíða 61
QQO *■
OO <TTTr'v
TCTMTT^CTOM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1988
na
Við gullna hliðið
Blús
Árni Matthíasson
Trúartónlist litra Bandaríkja-
manna, „gospel“-tónlist, hefur
alla tfð einkennst af sönghópum
sem gjarnan syngja án tónlistar-
undirleiks; „a cappella" eða
„alla cappella". í mörgum kvart-
ettinum var það og háttur söng-
manna að likja eftir hljóðfærum
til að gefa tónlistargrunn. Marg-
ir kannast við Mills-bræður, sem
sungu soul-tónlist, eða lita popp-
tónlist síns tíma, en fremsti
sönghópurinn sem blandaði
saman hreinum trúartónlistar-
söng og hljóðfæraeftirhermum
var Gullnahliðs kvartettinn, The
Golden Gate Quartet.
Golden Gate kvartettinn hefur
starfað samfleytt í 54 ár þegar
þetta er ritað og enn er í kvartett-
inum einn stofnmeðlima hans, Orl-
andus Wilson, og annar sem hefur
starfað með honum síðan 1940,
Clyde Riddick.
Kvartettinn var stofnaður f
skóla í Norfolk í Virginíu af þeim
William Langford fyrsta tenór,
Willy Johnson barýtón, Henry
Owens öðrum tenór og Orlandus
Wilson bassa 1934. Um þær mund-
ir voru Mills-bræður upp á sitt
besta og höfðu sent frá sér plötur
og komið fram í vinsælum útvarps-
þætti. Kvartettinn, sem hét í upp-
hafi The Golden Gate Jubilee Qu-
artet, hóf feril sinn á að stæla
Mills-bræður og á tveim plötum
sem RCA í Þýskalandi gaf út í
einu umslagi undir nafninu 35
Historic Recordings eru mörg lög
sem koma ansi nálægt því að vera
hermilög. Mills-bræður sungu aft-
ur á móti ekki trúartónlist líkt og
þá sem Golden Gate kvartettinn
sérhæfði sig í og þegar fram liðu
stundir tókst kvartettinum að
skapa sér sinn eigin stfl.
1935 bauðst kvartettinum
samningur við útvarpsstöð í Charl-
otte í Norður-Karólínu og sú at-
hygli sem söngur hans vakti varð
til þess að Victor-útgáfufyrirtækið
fékk kvartettinn til að taka upp
nokkur lög fyrir Bluebird-merki
fyrirtækisins. f ágúst 1937 tók
Golden Gate kvartettinn síðan upp
flórtán lög á tveimur tímum. Þau
lög voru öll gefin út, smátt og
smátt og endurútgefin af RCA-
Victor fram undir 1949. Vinsældir
laganna urðu slíkar að Victor tók
mikið upp með kvartettinum næstu
árin. Ekki skemmdi fyrir vinsæld-
unum að meðlimir kvartettsins
settu það ekki fyrir sig þó þeir
tæku upp leikmannalög, ólíkt öðr-
um trúartónlistarhópum. Það er
því að finna á plötum með kvartett-
inum lög eins og Stormy Weather
og 01’ Man Moses. Öllu slíku var
þó haldið innan skynsamlegra
marká, enda var aldrei litið á Gold-
en Gate kvartettinn sem poppsveit
þrátt fyrir að lag og lag væri popp-
lag.
Orðspor kvartettsins barst til
Johns Hammonds, sem vann þá
að því að setja upp konsert sinn
From Spirituals to Swing og hann
fékk þegar kvartettinn til að koma
fram þar. Þeir tónleikar urðu til
þess að kvartettinn varð eftirsóttur
til tónleikahalds í New York og
víðar og fleiri upptökur fyrir Vic-
tor fylgdu í kjölfarið. Haustið 1940
urðu fyrstu mannabreytingamar í
kvartettinum að William Langford
hætti og í hans stað kom Ciyde
Riddick og hefur verið í kvartettin-
um síðan. Þegar síðari heimsstyrj-
öldin hófst voru þeir Orlandus
Wilson og Willie Johnson kallaðir
í herinn og menn komu í þeirra
stað. Þeir gengu þó báðir í kvart-
ettinn aftur að átökum loknum og
þráðurinn var tekinn upp þar sem
frá var horfið. Willie Johnson sagði
skilið við félaga sína 1948 og í
hans stað kom Orville Brooks.
Þetta varð til að breyta söngstíl
kvartettsins nokkuð, því vart gat
maður komið í stað Willie. Kvart-
ettinn fór nú að taka upp fyrir
Mercury, en vinsældimar dvínuðu
nokkuð. 1950 hætti Henry Owens
með kvartettinum til að þjóna guði
sem predikari og í hans stað komu
fyrst Aiton Bradley og síðan Eug-
ene Mumford. 1952 hættu þeir
Orville Brooks og Eugene Mum-
ford og var þá Orlandus Wilson
einn eftir af upprunalegu stofnend-
um_ kvartettsins.
Á árunum uppúr 1950 var rokk-
ið að trylla bandaríska æsku og
Golden Gate kvartettinn átti erfitt
uppdráttar líkt og flestir þeir sem
sungu trúartónlist eða blús. 1955
fór kvartettinn í sína fyrstu tón-
leikaför til Evrópu og fékk svo
góðar viðtökur þar að tveimur
árum síðar var Evrópa orðin helsti
starfsvettvangur hans. 1959 flutt-
ist kvartettinn til Parísar vegna
samnings til tveggja ára og hefur
búið þar síðan. í dag ferðast kvart-
ettinn um gervalla Evrópu og
skemmtir og fer í stuttar heim-
sóknir til Bandaríkjanna öðru
hvoru.
Eins og áður sagði gaf RCA í
Þýskalandi út tvöfalda plötu með
söng Golden Gate kvartettsins fyr-
ir nokkm. Þar á er að finna besta
samansafn sem gefið hefur verið
út með söng hans, lög sem tekin
em upp á ámnum frá 1937 til
1939. I þeim lögum sem á plöt-
unni em er sú útgáfa kvartettsins
sem flestir telja þá bestu og víst
er að mörg laganna em svo vel
sungin að menn hlusta á agndofa.
Gott dæmi um söngstflinn er Gold-
en Gate Gospel Train, þar sem
kvartettinn líkir eftir lestarhljóðum
en fer síðan út í að „impróvísera"
án orða að hætti Milis-bræðra.
Ólfld Mills-bræðmm em þeir ekki
að syngja saxófóna sem leika bara
jass, þeir em líka að túlka tilfinn-
ingar. Önnur lög sem minnisstæð
em: When the Saints Go Marching
In, sem er í óvenju hægri útsetn-
ingu með skemmtilegum falsettu-
stökkum barýtónsöngvarans Bill
Langford; Massas in the Cold,
Cold Ground sem sýnir að þó kvart-
ettinn hafi fengið sitthvað frá
Mills-bræðmm, gerði kvartettinn
meira en bara stæla söngtækni
þeirra; Noah og fleiri, enda þrjátíu
og sjö lög á plötunum og í þeim
margt sem áhugamenn um kór-
söng, blús, jass og bara góða tón-
list almennt geta haft gagn af að
hlusta á.
Hraðfrystistöð Vestmannaeyja:
Fengu Coldwaterskjöldinn
fyrir gallalausa framleiðslu
Morgunblaðið/Sigurgeir
Glatt á hjalla & góðri stundu þjá
stelpunum i Hraðinu , en starfs-
fólk Hraðfrystistöðvar Vest-
mannaeyja hefur skilað verð-
launaverki.
Hraðfrystistöð Vestmannae;
sti-
Morgunblaðið/Sigurgeir
Jón Svansson yfirverksljóri Hraðfrystistöðvarinnar hjá viðurkenn-
ingum sem fyrirtækið hefur fengið á undanfömum árum.
var á sfðasta ári í 8. sæti SH-frysf
húsa á landinu miðað við fram-
leiðsluverðmæti, fyrir alls um 300
milljónir króna. A árinu 1987 var
fyrirtækið 5. framleiðsluhæsta
ftystihús SH á landinu.
Hraðfrystistöð Vestmannaeyja
fékk fyrir skömmu mestu viður-
kenningu sem Coldwater í
Bandarikjunum veitir fyrir vöru-
vöndun árlega. Þetta er þriðja
árið i röð sem Hraðfrystistöð
Vestmannaeyja fær sérstaka við-
urkenningu fyrir vöruvöndun, en
að þessu sinni fékk fyrirtækið
Coldwaterskjöldinn ásamt 5 öðr-
um frystihúsum innan Sölumið-
stöðvarinnar sem sendu frá sér
gallalausa vöru á tímabilinu frá
1. maí 1987 til 1. maí 1988.
B>að var þessi sem
heimtaði að Ricoh
Ijósritunarvélin
yrði keypt
Orðið Ricoh lætur að líkindum
ekki kunnulega I eyrum. En þar sem
fóik kynnist Ricoh Ijósritunar- eða
öðrum skrifstofuvélum með þessu
heiti má búast við að önnur orð
hljómi oft í eyrum:
„Flott.“
„Ágætt,“ gæti forstjórinn sagt
þegar verkin fara að ganga greiðar
en fyrr.
„Núl?" heyrist kannski I spumar-
tón frá gjaldkeranum þegar við-
haldsreikningamir lækka.
„Flott" á áreiðanlegast eftir að
heyrast oft frá öllum sem fá f hendur
þau skýru Ijósrit sem Ricoh læturfrá
sér. Örugg Ijósritunarvél með ein-
staka kosti.
(meira en hálfa öld hefur Ricoh
framleitt skrifstofuvélar frá einu
ófrávíkjanlegu sjónarmiði: Sjónar-
miði notandans. Petta eru tæki sem
orðin eru til vegna þess að framleið-
andinn setti sig í þín spor, spor
framkvæmdastjórans, gjaldkerans
og notandans sem dreymir um tæki'
sem vinna eins og hugur manns.
Á grundvelli þessarar stefnu hefur
Ricoh haslað sér öruggan völl I
meiraen 130löndum.
Loks er vert að hafa I huga að
þetta er sú vél sem flest fyrirtæki f
Japan nota - en þar í landi þykja
menn sem kunnugt er hafa sæmi-
legt vit á hagkvæmni í rekstri.
Tækni sem allir falla fyrir.
Tímamót í Ijósritun
aCQhf
SKIPHOLT117
105 REYKJAVlK
SÍMI: 91 -2 73 33