Morgunblaðið - 29.05.1988, Qupperneq 68
NÝTT FRÁ KODAK
RAFHLAÐA SEM ENDIST OG ENDIST
ffltttiiiMjifrtfr
ALLTAF
SOLARMEGIN
SUNNUDAGUR 29. MAI 1988
VERÐ I LAUSASOLU 60 KR.
Fornleifafundur í Viðey:
Hvar sem við sting-
um niður skóflu, alls
staðar eru fomleifar
- segir Margrét Hallgrímsdóttir
fornleifafræðingur
Vegg'hleðslur, sem líklega
eru frá fyrstu öldum eftir
landnám, fundust við uppgröft
í Viðey í vikunni. Eru þær litlu
austar en talið var að byggð
hefði verið í Viðey. Einnig
hafa fundist grafir að baki
Viðeyjarkirkju en þar fundust
um 60 grafir í fyrrasumar. Þá
er ætlunin er að grafa upp
rústir að baki Viðeyjarstofu í
sumar, í framhaldi af upp-
greftinum í fyrra. „Það er
sama hvar við stingum niður
skóflu hér í Viðey, alls staðar
komum við niður á fornleifar,“
sagði Margrét Hallgrímsdóttir
fornleifafræðingur en hún
gerir sér jafnvel vonir um að
finna rústir Viðeyjarklausturs
í sumar.
Vegghleðslumar fundust þeg-
ar móöskuhaugur og útihús frá
18. öld sem fundust fyrr í mánuð-
inum voru fjarlaegð en þau mynd-
uðu um 4 metra háan hól ofan
á hleðslunni. Þykkt gólflag var
við hleðsluna og skýrar torf-
hleðslur ofan á en enn er óljóst
hvort um er að ræða rústir úti-
húss eða skála. 5 metra löng
hleðsla er komin í ljós en ekki
er vitað hversu löng hún er alls,
þar sem hún heldur áfram inn í
hólinn. Ekki verður grafið lengra
inn í hólinn í sumar en Margrét
kvaðst vona að það yrði gert síðar
þar sem framkvæmdaaðilar í
Viðey hefðu sýnt fullan skilning
á fomleifarannsóknunum.
Ekki er vitað hver bjó í Viðey
en sögusagnir em til um bónda,
sem var búsettur í eynni áður en
Viðeyjarklaustur var stofnað,
árið 1226. „Jörðin var mjög bú-
sældarleg, stutt að róa til fiskjar
og eggjatöku auk þess sem byggð
í Reykjavík var í næsta ná-
grenni. Það er því mjög líklegt
að snemma hafí hafíst búskapur
í eynni," sagði Margrét.
8 manns vinna nú _að upp-
greftri í Viðey á vegum Arbæjar-
safns og bætast bráðlega fleiri í
hópinn. Auk vegghleðslunnar
hafa þegar fundist 2 grafír að
baki Viðeyjarkirkju til viðbótar
þeim 60 sem þar fundust í fyrra.
Vom þær flestar frá miðöldum
en það segir Margrét enn frekari
vísbendingu um að klaustrið hafí
verið þar sem ætlunin er að grafa
í sumar.
- v”
Morgunblaðið/BAR
Margrét Hallgrímsdóttir, fomleifafræðingur segir að torfhleðsl-
umar sem komu í ljós i vikunni, séu skólabókardæmi um hvern-
ig eigi að hlaða torfveggi. Líklegt er að þær séu frá 10. öld.
Humarveiðin á Höfn:
jjtflutiimgiir á heilimihuinri
hækkar verðið um þriðjung
Aflabrestur í upphafi vertíðar
Höfn, Homafirði. Frá blaðamanni Morgunblaðsins, Hirti Gíslasyni.
HUMARVERTÍÐIN frá Höfn í
Homafirði, sem hófst fyrir viku,
hefur verið afar slök. Nánast eng-
inn afli hefur borist á land og
muna menn varla eftir jafn slakri
byrjun vertiðar. Auk þess er hum-
arinn óvenjusmár að sögn sjó-
• •
Olvaður
ók í Evja-
fjarðara
AÐFARANÓTT laugardagsins fór
bifreið út af veginum við Kristnes-
hæli i Eyjafirði og stakkst á kaf
í Eyjafjarðará. Vegfarandi sá
bilinn mara að mestu leyti i kafi
og kallaði lögreglu til. Ökumann-
ungum manni sem var gest-
/.omandi á Akureyri, hafði tekist
að komast út úr bílnum og fannst
blautur og hrakinn á næsta bæ.
Grunur leikur á að ölvun hafí vald-
ið þessum ómarkvissa akstri manns-
ins. Lögregla hafði hann með sér í
hús á Akureyri, þar sem hann var
látinn sofa úr sér. Maðurinn hafði
fengið bílinn að láni hjá ættingja.
manna og mikið rusl í aflanum.
Verði vemlegur aflabrestur get-
ur útflutningur á heilum humri
bætt hluta skaðans. Með þeim
hætti eykst útflutningsverðmæti
um nálægt þriðjungi.
Ari Þorsteinsson iðnverkfræðing-
ur, starfsmaður Fiskiðjuvers Aust-
ur-Skaftfellinga, hefur síðan á
síðasta ári unnið að þróun, vinnslu
og markaðssetningu á heilum humri
í samvinnu við danskt fyrirtæki.
Saia á töluverðu magni á viðunandi
verði er talin tryggð í sumar. Enn-
fremur er verið að huga að nýtingu
úrgangs í súpukraft.
Ari sagði í samtali við Morgun-
biaðið að heita mætti að erfíðustu
hjallamir væru að baki. Aðeins ætti
eftir að sníða smærri agnúa af.
Helsta vandamálið hefði verið að
koma í veg fyrir sortamyndun í
humrinum. Með góðum þvotti og
notkun efnalausna hefði tekist að
hefta hana. Útkoma þessa væri
veruleg hækkun afurðaverðs, um
þriðjung. Humarinn yrði nær full-
nýttur og skilaði bæði vinnslu og
veiðum auknu fé.
Þó útflutningsverðmæti ykist
verulega mætti það ekki gleymast
að með því að flytja humarinn heilan
út í stað þess að senda aðeins hal-
ann héðan þrefaldaðist magnið í
vinnslunni og framleiðslu- og um-
búðakostnaður yrði töluvert meiri
en ella. Því fylgdi ennfremur kostn-
aður að þróa þessa vinnslu og afla
markaða fyrir afurðina. Það kæmi
sér þó vissulega vel að vera undir
aflabrest búinn með því að geta
aukið verðmæti aflans á þennan
hátt.
Vertíðin hefur venjulega hafíst
með mikilli veiði, 20-30 tunnum á
Húsfnðunarnefnd hefur sypj-
að beiðni Menntaskólans i
Reykjavík um að sett verði tvö-
falt gler í glugga skólahússins.
Guðni Guðmundsson rektor MR
sagði í samtali við Morgunblaðið
að hann ætti erfitt með að sætta
sig við þessa niðurstöðu þar sem
fyrir kæmi, að nemendur og
kennarar héldust illa við i
ákveðnum hlutum skólans í
verstu kuldaköstunum á veturna.
bát í fyrstu túrum. Veður hamlaði
veiðum í upphafi vikunnar en eftir
að það gekk niður hefur nánast ekk-
ert fengist. Bátarnir hafa sumir
hveijir verið að landa smáslöttum í
körfum en Þinganesið hefur landað
mestu, tæpum tólf tunnum.
Sjá einnig: „Slæmar gæftir og
léleg humarveiði sem af er“, bls.
Þór Magnússon, þjóðminjavörður
og formaður Húsfriðunamefndar,
sagði að skólahús MR væri friðað
og þar sem talið væri að áðumefnd
viðgerð myndi breyta húsinu tals-
vert var beiðninni hafnað. „Við
höfum hins vegar bent á aðra lausn
í þessu máli, en það er að setja
laus innri fög á gluggana. Það var
meðal annars gert á Bessastöðum
í fyrra og hefur reynst vel,“ sagði
Þór. „Við vísuðum rektor á arkitekt
Grímsey:
Leggja
bátunum
sökum
aflabrests
AFLI Grímseyjarbáta hefur verið
nánast enginn að undanfömu, að
sögn fréttaritara blaðsins, Alfreðs
Jónssonar. íhuga menn nú að
hætta sjósókn í bili þar til úr ræt-
ist. Fyrir skömmu reyndu tveir
bátar fyrir sér við Kolbeinsey og
hafði annar þijá þorska upp úr
krafsinu, en hinn þijá seli. Var
áhöfn þess síðarnefnda ánægðari
með sinn feng þvi selurinn þykir
mikil meinvættur.
Afkoma hefur verið léleg í vetur
og ekki hefur sölutregða bætt úr
skák. Þó hefur fiskvinnslufólk haft
næga atvinnu. Á liðnum vetri voru
gerðir út um 12 bátar, vinna fjórir
tugir manna í fískvinnslu og annað
eins sækir sjóinn.
Trillumar hafa verið að komast á
flot ein af annarri. Að vonum fara
eigendur þeirra sér fremur hægt og
nota tímann til að dytta að bátum
sínum. Sjómannadagurinn er í nánd
og öruggt að þá verða allir í landi.
Jafnmargir
ferðamenn
ogífyrra
AÐ SÖGN ferðamála- og hótel-
manna, sem Morgunblaðið ræddi
við, verður ferðamannastraumur
til landsins með svipuðu móti og
í fyrra. Hótelin eru að mestu leyti
fullbókuð í sumar og þjá Flugleið-
um fengust þær upplýsingar að
síðsumars væri góð nýting á ferð-
um hjá félaginu, en heldur slakari
í júni.
Að sögn Boga Ágústssonar, blaða-
fulltrúa Flugleiða, var aukning á
farþegafjölda hjá fyrirtækinu fyrstu
þijá mánuði ársins en aprílmánuður
var afleitur vegna verkfalls verslun-
armanna. „Við erum ekki enn komn-
ir yfír lægðina, sem kom vegna verk-
fallsins," sagði Bogi. „Það er eitt-
hvað minna bókað fyrri part sumars
en var í fyrra, en það jafnar sig
síðan," sagði Bogi. Hann sagðisttelja
að þessi tregða í júní væri bæði verk-
fallinu að kenna, en einnig almennum
verðlagshækkunum innanlands, sem
ekki væru fallnar til þess að laða að
ferðamenn.
í þessu sambandi en rektor sendi
okkur bréf nýverið þar sem hann
lýsti óánægju sinni með þessa nið-
urstöðu og bað okkur um að endur-
skoða hana. Ég held hins vegar að
það verði erfítt fyrir okkur að
breyta þessari niðurstöðu, ef menn
á annað borð vilja halda útiiti og
gerð hússins,“ sagði Þór Magnús-
son.
2.
Húsfriðunarnefnd:
Synjað beiðni MR um
tvöfalt gler í glugga