Morgunblaðið - 10.08.1988, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 10.08.1988, Qupperneq 1
56 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 179. tbl. 76. árg. MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Óeirðir í Burma: Forsætisráðherra íopinberri heimsókn í Bandaríkjunum Morgunblaðið/RAX Waahington. Frá Óla Birni K&raayni, fréttaritara Morgunblaðsins. ÞORSTEINN Pálsson forsætisráðherra og Ingibjörg Rafnar eiginkona hans komu í opinbera heimsókn til Washington í gær ásamt fylgdarliði. John C. White- head starfandi utanríkisráðherra í fjarveru George Shultz tók á móti þeim hjónum og var mjmdin tekin við það tækifæri. Þorsteinn Pálsson mun eiga fund með Ronald Reagan Bandaríkjaforseta í dag. Forsætisráðherrahjónin komu til Washington ásamt fylgdarliði með þyrlum bandaríska flughersins frá Andrew’s- herflugvellinum í nágrenni höfuðborgarinn- ar. Þyrlumar lentu nálægt Washington- minnismerk- inu og fulltrúar landhers, flota, flughers og strand- gæslu stóðu heiðursvörð en viðbúnaður var hafður vegna komu forsætisráðherrahjónanna. Þorsteinn Pálsson mun eiga fund með Ronald Reagan í dag, miðvikudag, klukkan 11.30 að staðarttma. Bandaríkja- forseti býður forsætisráðherra til hádegisverðar. Og síðar í dag þiggur Ingibjörg Rafnar boð Nancy Reag- an. Þá mun forsætisráðherra eiga fund með utanríkis- málanefnd öldungadeildar Bandarílqaþings. Heimsókn forsætisráðherrahjónanna lýkur á laugardag. Sjá einnig forystugrein á miðopnu og fréttir á bls. 2 og baksfðu. Tugir maima falla fyrir lögregluliði Hundruð þúsunda manna efndu til mótmæla gegn einræðisstjórninni Bangkok, Thailandi. Reuter. ÖRYGGISSVEITIR stjómvalda í Burma skutu a.m.k. 36 mótmæl- endur í gær í miklum átöktun sem urðu er hundrað þúsunda Burma- búa flykktust út á götur höfuðborgarinnar Rangoon og margra annarra borga. Að sögn útvarpsins í Rangoon féllu fimm mótmælend- ur fyrir skotum lögreglumanna i borginni f gær en þá gengu hundr- uð þúsunda um götumar og kröfðust þess að einræðisstjóm lands- ins færi frá. í borginni Sagaing, tæpa 500 km frá höfuðborginni, drápu lögreglumenn 31 er 5000 mótmælendur réðust á lögreglustöð. Vinna hefur legið niðri í Rangoon síðan á mánudag. Útvarpið sagði að í gær hefðu alls verið mótmæla- göngur í 26 borgum landsins og hefðu herskáir stúdentar verið í fararbroddi á flestum stöðunum. í Rangoon hefðu fimm verið drepnir og 55 særst en nær 1500 manns hefðu verið hnepptir f varðhald. Útgöngubann, sem gildir frá kl. tíu að kvöldi til íd. fjögur að morgni, var fyrirskipað f borginni í gær og fundahöld bönnuð. Sagt var að lög- reglan í Sagaing hefði neyðst til að skjóta á múg sem hefði ella tek- ið lögreglustöðina herskildi. Að sögn sjónarvotta í Rangoon heyrðist skothríð víða í borginni aðfaranótt þriðjudags. Síðar um daginn óku herbílar um með gjallar- hom og var fólki sagt að yrði blóð- bað þá gæti það sjálfu sér um kennt. Herforingjar úr Sósíalistaflokki landsins hafa stjómað Burma með harðri hendi í 26 ár og er efnahag- Mesta ófriði eftir stríð lokið: Fyrstu friðargæzluliðarn- ír halda tíl Irans og Iraks NikósSu, Washingtou, Bagdad, Teheran. Reuter. FYRSTU friðargæzluliðar Sam- einuðu þjóðanna (SÞ) héldu í gær áleiðis til írans og íraks til þess að fylgjast með framgangi vopnahlés, sem Javier Perez de Cuellar, framkvæmdastjóri SÞ, boðaði í fyrrakvöld og kemur til framkvæmda 20. ágúst næstkom- andi. Bandaríkjamenn tilkynntu i gærkvöldi að þeir myndu greiða hluta kostnaðar, sem af sveitun- um stendur, og að þeir myndu ekki fækka í flotadeild sinni á Persaflóa fyrr en sýnt þætti að vopnahléð hefði náð fram að ganga. Hashemi Rafsanjani, yfírmaður franska heraflans, skipaði hersveit- um sínum að hætta vopnaskaki í gær en vera viðbúnar ef Irakar létu Hækkun forvaxta í Bandaríkjunum: Hlutabréf falla Washington. Reuter. VERÐ- og hlutabréf snarlækk- uðu og dollar stórhækkaði í kjöl- far óvæntrar forvaxtahækkunar bandaríska seðlabankans f gær. Vextirnir hækkuðu úr 6,0 pró- sentipn í 6,5% en við þeim hefur ekki verið hreyft f tæpt ár. • ‘‘ \ Að sögn talsmanna seðlabankans var tilgangurinn með vaxtahækk- uninni að draga úr verðbólguáhrif- um í efnahagslífinu vegna spennu, sem myndast hefði að undanfömu. Sérfræðingar í kauphallarviðskipt- um áttu ekki von á vaxtabreytingu fyrr en eftir bandarísku forseta- kosningamar í nóvember. Búist er við að hún hafi bylgjuáhrif og leiði til ýmissa annarra vaxtabreytinga. Forvaxtabreytingunni var fylgt eft- ir með hækkun vaxta á lánum banka í milli. til skarar skríða. Hefur því orðið hlé á bardögum, sem brutust út í september 1980 og kostað hafí a.m.k. eina milljón manna lífið. Með vopnahléinu er mesta ófriði frá lok- um seinni heimsstyijaldarinnar lok- ið. Frank Carlucci, vamarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði að bandaríska flotadeildin yrði ekki kölluð heim frá Persaflóa fyrst um sinn. Hún myndi veita tankskipum vemd á siglingaleiðum á flóanum þar til vopnahléð væri orðið varan- legt. Þegar fregnin um vopnahléstil- kynningu de Cuellars barst þustu íbúar Bagdad út á götur og döns- uðu af fögnuði næturlangt. Talið er að lyktir bardaga í Pers- aflóastríðinu muni auðvelda OPEC-ríkjunum að semja um fram- leiðslukvóta og þar með ná fram hækkun olíuverðs, sem þau hafa lengi stefnt að. íranir og írakar hafa þó gefíð til kynna að þeir muni stórauka olíusölu til þess að fjármagna uppbyggingu og endur- reisn efnahagslífsins, sem er í rúst. Leiðtogar um heim allan fögnuðu því í gær að vopnahlé hefði verið boðað í Persaflóastríðinu. Borið var lof á de Cuellar og gengu ýmsir leiðtogar svo langt að segja að hann verðskuldaði friðarverðlaun Nóbels. Sjá ennfremur „Til hvers var allt saman?“ og „Búist við hækkandi olíuverði” á bls. 21. ur þess afar bágborinn. Samskipti við umheiminn hafa verið með minnsta móti á þessum tíma en lítið hefur borið á uppreisnarhug meðal landsmanna nema í flallahéruðum þar sem ákveðnir ættbálkar hafa háð stríð gegn stjóminni. Undan- fama mánuði hefur óánægja þó oft brotist út og er talið að meira en 200 manns hafí fallið í óeirðum í landinu. Versnandi lífskjör era talin helsta ástæða þess að upp úr hefur soðið. Reuter Stjóraarandstæðingur í Burma kissir fætur hermanns á götu- fundi í Rangoon. Mannfjöldinn þrábað hermennina að ganga í lið með þeim og steypa einræðis- stjóra landsins. Lifði af þriggja kíló- metra fall án fallhlífar Darwin. Ástralfu. Reuter. MIKIL mildi þykir að ástralski fallhlífastökkvarinn Greg Wright skuli vera í tölu lifenda, eftir þriggja kilómetra fall til jarðar án fallhlffar. Wright stökk ásamt félögum sfnum úr 10.000 feta hæð. Þegar hann hugðist svífa til jarðar virk- aði hvorag fallhlífin og blasti því ekkert við nema bráður bani. „Ég einbeitti mér að því að slaka á öllum líkamanum þegar ég kom niður í ttjátoppana. Það er allt og sumt; slökunin bjargaði lffi mfnu," sagði Wright í gær. Hann sagðist ekki vita hvers vegna hvorag fall- hlífin opnaðist. Wright brotnaði á báðum fótum og öðrum handlegg. Tvö rif og tveir hryggjarliðir brotnuðu svo og mj aðmargrindin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.