Morgunblaðið - 10.08.1988, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988
fclk í
fréttum
Bruce og Patd eiga von á barni.
Húsið sem olli deilu í konungsfjölskyldunni likist South Fork óneitanlega.
Mannfjölgun
Bruce Springsteen
á von á erfingja
ðsta ósk rokkstjömunnar
Bmce Springsteens rætist
eftir nokkra mánuði. Þetta opin-
beraðist í Moskvuborg ekki alls fyr-
ir löngu, þegar stjaman var þar á
ferð.
Hann var giftur í þijú ár, Jú-
líönnu Philips ljósmyndafyrirsætu,
en það hjónaband var bamlaust.Á-
staeða skilnaðar var ekki sú að kon-
an hafí ekki viljað þyngjast. Varð
söngvarinn óður þegar því var klfnt
á hann, og lét vita að frægð hennar
skipti hana öllu máli. Hann hafí
hinsvegar lengi langað í erfingja.
Goðið hafði ekki mörg orð um
samband hans við Patti Scialfa,
kæmstuna sem ber bam hans.
Samband þeirra er ekki eldra en
^ögurra mánaða, svo ekki verður
hann pabbi á morgun. Skilnaðurinn
mun kosta hann einhver ósköp, en
hann er heldur enginn kotkari.
HÚSNÆÐISMAL HÁBORINNA
Sue Ellen hefði
elskað þetta hús
Loksins hefur Fergie ákveðið
hvemig húsi hún vilji búa í.
Ekki virðist það vera ólíkt South
Fork í „Dallas", sem hún Sue Ellen
býr stundum í. En þetta hús er
fyrir Prins Andrew og Fergie og
verður staðsett milli Ascot bæjar
og Windsor kastala.
Húsið er teiknað nákvæmlega að
óskum Fergie, og er 20 herbergja
stórt. Það hefur hneykslað marga
og þá prins Charles að arkitektinn
er ekki enskur, og heldur ekki inn-
anhúsarkitektinn sem Fergie hafði
valið. Hann var amerískur og ekki
með smekk að mati konunga. Því
hefur verið valið enskt fyrirtæki
fyrir Fergie sem sér um innan-
hússkipulag. Húsið verður tilbúið
eftir eitt ár og kostar 700 milljónir
íslenskar krónur.
Horfir Fergie á „Dallas“?
Éfií
Bræðurnir Bjarni Rúnar og Svavar Hörður Heimissynir.
Sumarnámskeiðum
íþrótta- og
tómstundaráðs slitið
Sumamámskeiðum sem
íþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkur hefur staðið fyrir í
sumar fyrir börn í Reykjavík,
lauk með pompi og prakt á
fimmtudag. Sumamámskeiðin
starfa í kringum hverfamið-
stöðvar I borginni og var alls tíu
hópar, um tvöhundmð böra, sem
tóku þátt í námskeiðunum i sum-
ar.
Krakkarnir gengu fylktu liði
niður Laugaveg í úrhellisrign-
ingu og við Hljómskálagarðinn
beið þeirra strætisvagn. Ætlunin
var að hóparnir hittust í Tónabæ
en vegna veðurs varð að fresta
þvi og fór hver hópur i sína
hverfamiðstöð þar sem boðið var
upp á veitingar og börnin fóra
í leiki. Morgunblaðsmenn brugðu
sér í Tónabæ og ræddu við
Krökkunum i Tónabæ var boðið upp á poppkorn og ávaxtasafa sem þau kunnu vel að meta.
Morgunblaðið/Ámi Sæborg
Anna Rakel Róbertsdóttir.
nokkra krakka sem tóku þátt í
sumarnámskeiðunum.
Anna Rakel Róbertsdóttir er 9
ára gömul og var hún nýkomin frá
Laugarvatni þar sem hennar hópur
gisti í einn dag. Hún er í Hlíðar-
skóla og á heima í Stigahlíð.
„Við fórum í leiki og út á vatnið
í bát. Við fórum líka í gufubaðið
þar. í sumar höfum við lært ýmsa
útileiki og það hefur verið mjög
gaman."
— Ætlarðu að taka þátt í þessu
næsta sumar?
„Já, ef ég get það. Það getur
verið að ég fari til Finnlands og
Danmerkur næsta sumar með
ömmu minni."
Bjami Rúnar Heimisson 6 ára
og bróðir hans Svavar Hörður
Heimisson 10 ára tóku báðir þátt
í sumamámskeiðunum. Bjami
Rúnar sagði að hann hefði lært að
föndra og mála í sumar og svo
hefði hann líka ferðast talsvert.
„Við fóram til Akraness út á strönd
að grilla. Við sigldum með Akra-
borginni fram og til baka. Svo fór-
um við heim og lékum okkur héma
í bænum. Það er búið að vera gam-
an í sumar og ég ætla aftur næsta
sumar," sagði Bjami Rúnar.
„Ég byijaði á fyrsta námskeiðinu
í sumar," sagði Svavar Höiður.
„Við höfum farið í gönguferðir,
sund og fótbolta og margt fleira
hefur verið gert. Við ferðuðumst
líka með rútu og sáum kindur. Þetta
hefur verið skemmtilegt sumar,“
sagði Svavar Hörður.