Morgunblaðið - 10.08.1988, Blaðsíða 37
37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988
Afmæliskveðja:
Aldís Guðmundsdóttir
frá Vestmannaeyjum
Bátatrygging
Breiðafjarð-
ar 50 ára
Stykkishólmi.
ÞESS ER minnst hér á Snæfellsnesi um þessar mundir að Bátatrygg-
ing Breiðafjarðar hefir starfað í 50 ár. 22. júlí, sem talinn er stofnda-
gur, var haldinn aðalfundur hér á hótelinu, sem jafnframt var hátí-
ðarfundur. Formaður Bátatryggingarinnar, Soffanías Cecilsson útgerð-
armaður í Grundarfirði, setti fundinn og bauð menn velkomna en sér-
staklega voru þar komnir Sveinn Hjörtur Hjartarson sljórnarformaður
Samábyrgðar Islands, Páll Sigurðsson forstjóri og Finnur Stephensen
skrifstofustjóri, allir frá Samábyrgð. Einnig var mættur Ásgeir Ágústs-
son sem var framkvæmdastjóri Bátatryggingar Breiðafjarðar í tæp
Ég hef ekki lagt það í vana minn
að skrifa afmælisgreinar um einn
eða neinn um ævina, en ég get nú
varla komist hjá því að skrifa fáein-
ar línur um ástkæra tengdamóður
mína. Þessa mætu og merku konu,
kosti hennar og manngildi.
Ásdís er yngst af tólf systkinum
frá Sólheimum í Hrunamanna-
hreppi. Hún giftist Gísla Gíslasyni,
skipasmið, ættuðum frá Stekkum í
Flóa. Þau eignuðust fimmtán böm,
og aldrei hef ég heyrt hana tala
um að það hafi verið erfitt. Hún
tekur öllu með jafnaðargeði og er
alltaf kát og glöð og er það enn í
dag. Hún er stolt af þessum stóra
hópi sem hún eignaðist og allt
mannvænleg böm. Ef einhver var
að vorkenna henni hvað hún hefði
það erfitt, sagði Ásdís ævinlega:
„Ætli einhver hafi það ekki erfiðara
en eg.“
Ég hef ekki haft mikla möguléika
á að umgangast tengdamóður mína,
enda hún í Vestmannaeyjum en ég
á Akureyri. Hún er góð heim að
sækja og ekki vantar hlýjuna frá
Rækjuveiði hefir verið talsvert t
sumar en yfirleitt hefur þurft að
leita á mið norður fyrir land og
skipa upp á Skagaströnd en þaðan
hefír rækjunni svo verið ekið suður
í Hólm til vinnslu. Tvær rækju-
vinnslur hafa svo unnið úr aflanum,
þ.e. Rækjunes og Þórsnes.
Þá hafa handfæraveiðar verið
með meira móti en vanalega og
fleiri gert út á slíkar veiðar. Aflinn
hefír verið unninn í fískverkunar-
stöð Sæborgar hf., sem fyrir nokkr-
um ámm keypti hraðfrystihús
kaupfélagsins og rekur þar salt-
fískverkun og vinnur þar umtals-
verður hópur fólks. Hefír Sæborg
hf. haft fískverkun allt þetta ár
nema um verslunarmannahelgina,
þá var tekin hvíld í eina viku.
Rækjunes—Björgvin hf. sem hef-
henni enda notalegt að vera í ná-
vist hennar. Hún er alltaf jafn róleg
og tekur öllu með jafnaðargeði og
á sámstu stundum heldur hún ró
sinni. Hún hefur misst eiginmann
og fímm böm, en alltaf segir Ásdís
ef einhver er að vorkenna henni:
„Ætli einhver hafí það ekki verra
en ég.“
Þessi gæðakona hefur reynt að
halda utan um bamahópinn sinn
og þegar sum bömin hennar fluttu
til Vestmannaeyja eftir gos, þá fór
hún með þeim þangað til að halda
hópnum saman. „Eg hlýt að geta
komið að einhveiju gagni fyrir ykk-
ur“ og hún stóð við sitt. Hún á stór-
an hóp af bamabömum og bama-
bamabömum, sem öll dá ömmu sína
og virða.
Nú í dag á þessum tímamótum,
þá fínnst mér þetta sama Ásdísin
og þegar ég sá hana fyrst fyrir 35
árum, nema hvað heilsan er aðeins
farin að gefa sig. Margur hefur
verri heilsu en hún þó yngri séu
og ekki hafa lagt sitt að mörkum
eins og hún.
ir um árabil rekið hér rækju- og
skelfískvinnslu hefír nú sagt upp
öllu starfsfólki eða um 80 manns,
sem þá verður atvinnulaust og verð-
ur að leita annað eftir atvinnu sem
vonandi tekst. Áður gerði Rækjunes
út sex til sjö báta, en í vetur aðeins
þijá, hinir vora við bryggju og var
rekstur því minni í ár en endranær.
Hvemig framhaldið verður er
algerlega óvíst, það er kennt um
lækkandi verði á skelfíski, sem mun
rétt vera, en fleira mun koma inn
í dæmið og líklegt að mörgu þurfí
að huga ef um áframhaldandi rekst-
ur á að geta orðið að ræða.
Sig. Ágústsson hf. hefur undan-
farið haft hlé í starfrækslu enda
hefur þar aðallega farið fram skel-
fískvinnsla og lítilsháttar físk-
vinnsla. Hefír hléið verið notað til
í dag er hún enn með eitt bama
sinna hjá sér, sem er næstyngsta
dóttir hennar Halldóra og dóttir
hennar. Halldóra hefur séð um
móður sína nú síðustu árin og hefur
reynst henni vel, vona ég að svo
verði áfram. í dag 10. ágúst þegar
hún er 75 ára óska ég henni hins
besta um leið og ég þakka henni
fyrir liðnu árin og bið hana að fyrir-
gefa mér þessi fátæklegu orð, sem
ég hef sett á prent.
Haukur Berg
að gera klárt fyrir vertíðina sem
nú er að fara af stað. Margir skel-
róðrabátar hafa lagt þar upp.
Þórsnes hf. hefir komið hér upp
myndarlegri rækjuvinnslu og þar
með aukið fjölbreytni vinnslunnar,
en aðallega hefir þar verið unninn
fískur í salt.
Einn bátur hefir síðan í vor fiskað
í botnvörpu og aflað vel af góðum
fiski. Sá afli hefír verið unninn í
Sæborgu hf. og eins hefír einn bát-
ur verið með dragnót, en ekki mik-
ið reynt á og aflinn einnig verið
lagður upp hjá Sæborgu hf. í mb.
Sif er nú verið að koma fyrir nýrri
aflvél.
Einn bátur í viðbót mun nú heíja
veiðar með dragnót héðan og era
þá tveir bátar sem stunda slíkar
veiðar í ágúst og ef til vill lengur
ef þær gefa góða raun.
Én grásleppuveiði var miklu
minni en í fyrra og munar það
dijúgt því þá var hér metveiði.
- Árni
10 ar.
Gissur Tryggvason framkvæmda-
stjóri flutti skýrslu stjómar og skýrði
reikninga félagsins. Á þeim kom
meðal annars fram að reksturinn
hafði gengið vel. Heildartekjur 1987
voru 31,5 milljónir og hagnaður 795
þúsund. Niðurstöðutölur efnahags-
reiknings voru 47 milljónir, þar af
eigið fé 17,5 milljónir. Voru reikning-
ar samþykktir samhljóða. Soffanías
Cesilsson átti að ganga úr stjóm en
var einróma endurkjörinn.
Gissur Tryggvason framkvæmda-
stjóri rakti í stórum dráttum sögu
félagsins og undirbúning að þessum
afmælisfundi. Sagði Gissur m.a.:
„Það hefír komið í minn hlut að
fara örfáum orðum um sögu Báta-
tryggingar Breiðaflarðar. Hún hefir
haft góðu hlutverki að gegna. Það
var fyrir réttum 50 áram, eða 22.
júlí 1938, að stofnfundur þessa fé-
lags var haldinn í samkomuhúsinu í
Stykkishólmi. Þar skýrði Sigurður
Ágústsson fv. alþingismaður tilgang-
inn og frumvörp að lögum fyrir félag-
ið, en starfssvið þess skyldi að stofna
bátaábyrgðarfélag við innanverðan
Breiðafjörð, á svæðinu frá Búlands-
höfða um innanverðan Breiðafjörð
til Bijánslækjar. Heimili þess og
vamarþing skyldi í Stykkishólmi.
Voru á þessum fundi samþykkt lög
fyrir félagið og kosin stjóm þess til
eins ár. Kosnir vora Sigurður
Ágústsson útgerðarmaður, Sigurður
Steinþórsson kaupfélagsstjóri og
Guðmundur Jónsson framkvæmda-
stjóri. í varastjóm voru kosnir Óskar
Níelsson í Svefneyjum, Kristmann
Jóhannsson og Oddur Valentínusson
úr Stykkishólmi. Endurskoðendur
voru ísleifur Jónsson og Ólafur Stur-
laugsson.
Fyrstu fundir stjómar fara svo í
að móta starf og stefnu félagsins og
þannig er 1. október 1938 undirritað-
ur samningur við Samábyrgð íslands
um endurtryggingar og 15. desember
er Kristmann Jóhannsson ráðinn
fyrsti framkvæmdastjóri félagsins.
Starfsemi félagsins hefir frá upp-
hafí mótast af því sama, þ.e. ákvörð-
un um iðgjöld, virðingar báta, þó nú
í seinni tíð sé það allt tölvukeyrt,
tjónauppgjöri og öðru slíku sem fýlg-
ir þessari starfsemi. Fyrst í stað var
starfsemin bundin við opna vélbáta
og þilfarsbáta, en í dag era allir
dekkaðir bátar, 100 lestir og minna,
skyldutryggðir hjá félaginu. Eigend-
ur stærri báta og trilla geta ráðið
hvar þeir tryggja.
Fljótlega var starfsemi félagsins
færð út nesið og að Amarstapa í
stað Búlandshöfða eins og í fyrstu
og hafa þau mörk haldist. Arið 1967
voru sett lög um bátaábyrgðarfélög
nr. 41, starfsemin var að mestu
óbreytt en gerðar vora sérstakar
kröfur um reikningsskil, uppsetningu
reikninga og ársskýrslu stjómar.
Árið 1978 var hluti af efri hæð
húseignarinnar við Smiðjustíg 3 í
Stykkishólmi keyptur af Kristjáni
Guðmundssyni og þar rekur félagið
alla starfsemi í dag.“
Gissur sagði ennfremur: „Á þess-
um 50 árum hafa aðeins þrír verið
stjómarformenn í félaginu, Sigurður
Ágústsson í 36 ár, Víglundur Jónsson
í Ölafsvík í 7 ár og Soffanías Cecils-
son frá Grundarfírði í 7 ár. I stjóm
eiga lengsta setu Sigurður Ágústs-
son, 36 ár, Víglundur í 26 ár og
Soffanías í 21 ár.
Fjórir framkvæmdastjórar hafa
verið fyrir félagið frá upphafi, Krist-
mann Jóhannsson í rúm 25 ár, Ás-
geir Ágústsson í tæp 12 ár, Víkingur
Jóhannsson í 4 mánuði og Gissur
Tryggvason í tæp 13 ár. Á þessu
tímabili má geta þess að aðeins 17
manns hafa verið í stjóminni, þrátt
fyrir að stjómin hefði um tíma verið
skipuð 6 mönnum. Benedikt Lárus-
son hefir verið lengst endurskoðandi
eða í 25 ár en Ámi Helgason hefir
ritað flestar fundargerðir eða yfír
tuttugu. Skoðunarmaður hefir verið
Kristján Guðmundsson í 40 ár.“
Þá fluttu gestir ávörp og ámaðar-
óskir og framkvæmdastjóri flutti
Kristjáni Lárentsínussyni skipstjóra
þakkir fyrir góð stiómarstörf, en
hann hætti í stjóminni. Við tekur
Svanborg Siggeirsdóttir, sem er
fyrsta konan sem skipar slikan sess,
bæði hér og á landinu öllu.
Umsvif Bátatryggingar Breiða-
íjarðar hafa aukist með árunum og
það er ekki vafí á að það spor sem
stigið var í stofnun hennar árið 1938
hefir orðið farsælt. - Árni
Skelfiskveiði frá Stykk-
ishólmi að hefjast á ný
Stykkishólmi.
Skelfiskveiðin frá Stykkishólmi er nú að hefjast á ný eftir vana-
lega hvíld. Útgerðarmenn hafa verið að búa báta sína til veiða og
notað tímann til að gera allt klárt fyrir vertíðina. Það munu eitt-
hvað færri bátar róa héðan til skelfiskveiða en áður. Einhveijir
hafa helst úr lestinni, en þá er meira fyrir hina.
HAGKAUP Á SELTJARNARNESI
Á morgun kl. 9 opnar Hagkaup
MATVÖRUMARKAÐ
við Eiðistorg á Seltjarnarnesi.
HAGKAUP
Seltjarnarnesi