Morgunblaðið - 10.08.1988, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988
19
Olía er langmest að magni af
þeim hættulegu efnum sem losuð
eru hér, og er eftirlit með losun
hennar töluvert hér á landi. í lögum
um vamir gegn mengun sjávar, er
einstaklingum og fyrirtækjum er
annast dreifíngu og sölu á olíu gert
skylt að taka við olíuúrgangi frá
skipum og frá starfsemi í landi og
Siglingamálastofnun fylgist með að
svo sé gert.
Að öðru leyti fer Hollustuvemd
ríkisins með mengun í landi og eftir-
lit með henni.
Þess má geta að Hollustuvemd
hefur í samvinnu við aðrar ríkis-
stofnanir, m.a. Siglingamálastofn-
un, unnið að setningu mengunar-
vamareglugerðar.
Látið eftirlit er með losun hættu-
legra efna í dag. Hins vegar hefur
Hollustuvemd ríkisins reynt að leið-
beina hlutaðeigandi aðilum um
rétta losun og förgun. í mengunar-
vamareglugerð sem áður er nefnd,
em tillögur um hvemig taka skuli
á þessu máli og í lögum um eitur-
efni og hættuleg efni sem lagt var
fram á Alþingi fyrir skömmu, em
lagðar til breytingar á þeim ákvæð-
um er gilda um förgun eiturefna.
Spurt er: Hvað miðar aukningu
endurvinnslu úrgangs?
Svar: Iðnaðarráðherra hefur
skipað sérstaka endurvinnslunefnd
7 manna. Nefndin gerði tillögu til
iðnaðarráðherra um verksvið sitt
og starfshætti, sem hann féllst á,
og er að því stefnt að vinna verk-
efnið í áföngum.
í störfum sínum hefur nefndin
lagt höfuðáherslu á skipulagningu
á söfnun og endurvinnslu brotajáms
í því formi, sem athuganir sýna að
hagkvæmust geti orðið. Er þar
einkum átt við bflaflök.
Iðnaðarráðherra hefur þegar ver-
ið látið í té uppkast að fmmvarpi
um meðferð brotajáms og skila-
gjald af bifreiðum. Það uppkast er
nú í lokameðferð nefndarmanna.
Greinargerð hefur þegar verið sam-
in að hluta.
Þegar nefndin hefur skilað af sér
þessum þætti, mun hún taka til við
aðra þætti hins flókna viðfangsefn-
is, sem nefndin hefur fengið.
Spurt er: Er skipulegt eftirlit
hérlendis með framleiðslu og inn-
flutningi á matvælum? Er það rétt
að hægt sé að senda á markað
hérlendis ýmis matvæli, sem ekki
má selja nágrannalöndunum, þar
eð hér sé eftirlit of lítið?
Svar: Hvað snertir heilbrigðiseft-
irlit með matvælaframleiðslu, er
eftirlit með innlendri framleiðslu í
höndum heilbrigðiseftirlits sveitar-
félaga, sem hefur verið stórbætt á
undanfömum ámm. Innflutnings-
eftirliti á matvælum er hins vegar
ábótavant. í lögum um hollustu-
hætti og heilbrigðiseftirlit er lagt
til að þessu eftirliti verði komið
fyrir innan Hollustuvemdar ríkisins
sem sérhæfðu eftirliti.
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið bendir þó á að frumeftir-
lit hlýtur að vera í höndum tollayfír-
valda, en vemlega virðist skorta á
þekkingu þess á þessu sviði svo að
meðan ekki kemur til öflugt eftirlit
frá kunnáttuaðilum, t.d. sérstofn-
unum, er viðbúið að margt misjafnt
geti borist inn í landið, þótt reynt
sé að hafa eftirlit með því á vegum
heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga,
þegar varan er komin til dreifenda.
Spúrt er: Hvað hafa stjómvöld
gert til að auka fræðslu um náttúm-
vemd og umhverfísmál?
Svar: Umhverfisfræðsla í skól-
um — yfirlit.
í gmnnskólum er umhverfís-
fræðsla einkum í námsgreinunum
samfélagsfræði, myndmennt og
líffræði, einnig í ýmsum ógreina-
bundnum verkefnum í sumum skól-
um. Sumt námsefni, einkanlega í
áðumefndum greinum, fjallar um
vissa þætti náttúmlegs og mann-
legs umhverfís. T.d. er „maður og
umhverfí" grandvallarhugtak í
námi um samfélagsfræði.
Það er mjög undir einstökum
skólum og kennumm komið hvemig
til tekst, einkum hvað varðar að
flétta umhverfísfræðslu inn í allt
skólastarf. Stuttar og langar vett-
vangsferðir og ýmiss konar þema-
vinna em heppileg form umhverfis-
fræðslu, en þannig vinnubrögð virð-
ast enn eiga erfítt uppdráttar sem
eðljlegur liður í skólastarfi.
í framhaldsskólum virðist lítið
vera um markvissa umhverfís-
fræðslu og lítið um útinám, nema
þá helst í búnaðarskólum. Þó felst
dálítil vistfræði í líffræðinámi og
innan við fímmtungur nemenda tek-
ur séráfanga í vistfræði með einni
til tveimur vattvangsferðum. Sum
verkefni nemenda á þeim vikum
skólanna geta talist umhverfis-
fræðsla.
í Tækniskóla íslands er bókleg
umhverfísfræði kennd 4 vikustundir
í eina önn þeim sem nema véla- og
raftnagnstæknifræði, svo og þeim
sem em á lagnasviði í bygginga-
deild skólans.
í Háskóla íslands hefur öllum
líffræðistúdentum verið kennd vist-
fræði í 2 áratugi. í áratug hafa
verkfræðinemar fengið 20 fyrir-
lestra námskeið um umhverfís-
fræði. Fyrir nokkmm ámm hófst
kennsla í umhverfísfræði sem
líffræðinemar o.fl. geta valið.
í Kennaraháskóla íslands fá allir
nemar stutt námskeið í umhverfís-
fræðslu, sem ólkíkar skorir skólans
halda í sameiningu, og er megin-
áherslan á fræðslu 6—12 ára bama.
Auk þess geta þeir valið stutt nám-
skeið í náttúmvemd. U.þ.b. 20%
nemenda taka líffræði sem valgrein
og hefur áhersla á vistfræði og
umhverfisfræðslu aukist.
Umhverfisfræðsla er þáttur í
sumum námskeiðum fyrir starfandi
kennara. Þeim hefur einnig verið
boðið upp á sérstök námskeið í
umhverfisfræðslu, en eftirspum
hefur ekki verið mikil.
Þó talsvert hafí miðað síðustu
ár, vantar enn námsefni um mikil-
væg svið umhverfísfræða, svo sem
meðhöndlun úrgangs (m.a. endur-
vinnslu), mengun, tijárækt o.fl.
Miklu skiptir hvemig námsum-
hverfi skólanema er, bæði innan
djn-a og umhverfis skólann. Á fyrstu
námsámm í gmnnskóla er lögð tals-
verð áhersla á það, einkum um-
hverfið innandyra. Fjölskrúðugur
gróður og dýralíf á skólalóð eða í
nágrenni skóla hefur mikið uppeld-
islegt gildi og auðveldar mjög nátt-
úmskoðun og líffræðikennslu
Umhverfisfræðsla annars
staðar en í skólum — yfirlit.
Umhverfísfræðsla þarf að tengj-
ast störfum og tómstundaiðju fólks
á öllum aldri. Fjölmiðlar gegna þýð-
ingarmiklu hlutverki við að fræða
fólk um umhverfísmál, vekja at-
hygli þess og hvetja það til að sinna
umhverfísmálum. Umfjöllun þeirra
gæti orðið markvissari, ef þeir
hefðu starfsmenn sem sérhæfðu sig
í umhverfisfræðslu.
Náttúmvemdarráð hefur undan-
farin ár haldið námskeið fyrir land-
verði sem nýta þá þekkingu til að
fræða gesti í þjóðgörðum og víðar,
og stuðla þannig að betri umgengni
um náttúm landsins. Einnig hefur
ráðið haldið námskeið fyrir um-
hverfísmálanefndir sveitarfélaga og
gefíð út náttúmminjaskrá og
fræðslubæklinga.
Frjáls félagasamtök sinna mikil-
vægri umhverfísfræðslu. Land-
vemd og Líf og land hafa haldið
ráðstefnur um ýmsa þætti um-
hverfismála og gefíð út fræðslurit
sem nýtast mjög hér í skólum.
Landvemd rekur, ásamt Ámes-
sýslu, umhverfísfræðslusetur í Al-
viðm, sem skólar og almenningur
geta nýtt. Náttúmskoðunarferðir
náttúmvemdarfélaga og Hins
íslenska náttúmfræðifélags og
margar ferðir Ferðafélags íslands
og Utivistar em ágæt umhverfís-
fræðsla fyrir almenning. Síðustu
ár hefur Náttúruvemdarfélag Suð-
vesturlands skipulagt fræðsluferðir
um öll sveitarfélög umdæmisins,
bæði göngu- og bflferðir, og tekið
fyrir jafnt náttúmfar sem byggða-
sögu. Áhugahópur um byggingu
náttúmfræðihúss hefur reynt fyrir
sér með ýmiss konar fræðslu- og
kynningarstarf og vill veg slíkrar
starfsemi sem mestan í náttúm-
fræðihúsi sem hann berst fyrir að
verði reist.
Mörg sveitarfélög reka vinnu-
skóla fyrir unglinga og skólagarða
fyrir böm. Þar gefast ákjósanleg
tækifæri til umhverfísfræðslu sem
em nýtt að einhveiju marki. Þessa
fræðslu þyrfti að tengja gmnnskól-
unum.
Aukning umhverfisfræðslu í
tíð núverandi ríkisstjómar —
Grunnskólastig.
Nemendum í 5.-9. bekk gmnn-
skóla gefst í fyrsta sinn á hausti
komanda kostur á vikudvöl í ný-
stofnuðum skólabúðum i Reykja-
skóla í Hrútafirði. Undirbúningur
þeirra skólabúða fór fram í tíð
síðustu ríkisstjómar. Fullbókað er
í skólabúðimar í haust. Þá munu
60—70 nemendur geta dvalið þar
samtímis og jafnvel enn fleiri síðar.
Flestir nemendur em úr 5. og 6.
bekk og koma þeir hvaðanæva af
landinu, þó flestir af höfuðborgar-
svæðinu. Að sögn skólastjóra búð-
anna er ekki gert ráð fyrir sérstöku
fé til að væða skólann fyrir þetta
nýja hlutverk, hann fær u.þ.b. millj-
ón til viðhalds á fjárhagsárinu og
e.t.v. eitthvað frá hótelrekstrinum
til viðbótar.
Hjá Námsgagnastofnun er að
hefjast endurskoðun á námsefni í
líffræði og eðlis- og efnafræði fyrir
4.-6. bekk, og má vænta þess að
það verði til að styrkja umhverfis-
fræðslu, m.a. um trjárækt. Einnig
er verið að semja og prófa náttúm-
fræðiverkefni fyrir forskóla og
fyrstu bekki gmnnskóla sem taka
m.a. til umhverfisins. Horfur em á
að árangurs af þessum verkum fari
ekki að gæta að ráði fyrr en eftir
2-4 ár.
Nú í byijun maí sendi ráðuneytið
bréf í alla gmnnskóla þar sem hvatt
var til.umhverfisfræðslu með sér-
stöku tilliti til umgengni og vom
gefnar nokkrar ábendingar um til-
högun. Til greina kemur að nýstofn-
að fræðsluvarp geri þátt um sama
efni sem verði sýndur í byijun
næsta skólaárs.
Framhaldsskólastig.
Við Garðyrkjuskóla ríkisins í
Hveragerði hefur nú nýlega verið
auglýst ný námsbraut í umhverfis-
fræðum, þar sem ætlunin er að
mennta fólk til starfa við land-
vörslu, ferðaþjónustu og land-
græðslustörf. Hins vegar mun nátt-
úravemdarráð ekki halda land-
varðanámskeið í ár eins og undan-
farin ár.
í ráði er að auka áherslu á vist-
fræði og þar með umhverfísfræði í
gmnnáfanga í líffræði (sem allflest-
ir framhaldsskólanemar taka) og
kæmi það til framkvæmda við end-
urskoðun námskrár og með útkomu
nýrrar kennslubókar.
Háskólastig.
Nýsett lög um Kennaraháskóla
íslands veita skólanum aukið svig-
rúm til að breyta námsframboði og
tilhögun kennslu. Samkvæmt lög-
unum á að lengja kennaranámið
úr 3 ámm í 4 innan næstu 6 ára
og ætti þá að skapast aukinn tími
tfl umhverfisfræðslu.
Af framansögðu er ljóst að nokk-
uð horfir til framfara um umhverf-
isfræðslu, en það er erfítt að meta
hvað af þessu sé núverandi ríkis-
stjóm að þakka.
Spurt er: Hvað hefur verið gert
til að auka skógrækt, landgræðslu
og gróðurvemd?
Svar: Fjármagn er afgerandi um
hvort aukning nær að verða í skóg-
rækt og landgræðslu.
Hvorki Landgræðsla ríkisins né
Skógrækt ríkisins hafa fengið fjár-
magn undanfarin ár, eins og farið
hefur verið fram á við Alþingi af
forsvarsmönnum stofnananna og
landbúnaðarráðuneytinu.
í gróðurvemd hafa stofnanimar
unnið að því að efla samstarf sitt
þannig að fjármagn og mannafli
nýtist sem best skv. markmiðssetn-
ingum sem stofnanimar standa
sameiginlega að.
Varðandi umhverfismál má að
lokum geta þess, að búið er að skipa
nefnd til að kanna notkun á óso-
neyðandi efnum og efnasambönd-
um, gera tillögur um á hvem hátt
sé hægt að draga úr notkun efna
og efnasambanda sem eyða óson-
laginu og meta kostnað sem því
fylgir.
Þetta var gert í samræmi við
samþykkt ríkisstjómarinnar frá 28.
apríl 1988.
Vegagerð ríkisins:
Tilboð opn-
uð í vega-
framkvæmdir
VEGAGERÐ ríkisins hafa borist
tilboð í þrjú verk sem boðin voru
út í júli. Tilboðin voru opnuð
mánudaginn 8. ágúst. Um er að
ræða endurbyggingu gatnamóta
Reykjanesbrautar og Lækjargötu,
lagningu vegarkafla á Svartár-
dalsvegi um Fjósaklif og í Súg-
andafirði.
Tvö tilboð bámst í endurlagningu
gatnamóta Reykjanesbrautar og
Lækjargötu í Hafnarfirði, bæði tals-
vert hærri en kostnaðaráætlun Vega-
gerðarinnar, sem hljóðaði upp á
10,377 milljónir. Lægra tilboðið, kr.
14.911.900, frá Hlaðbæ hf. er 43,7%
yfír kostnaðaráætlun. Hitt tilboðið,
frá Hagvirki hf., nam 15,643 milljón-
um.
Tvö tilboð bámst í lagningu 1,4
km vegarkafla um Fjósaklif en
kostnaðaráætlun vegna verksins
hljóðaði upp á 4.745.100 krónur.
Tilboðsupphæðir vom báðar undir
kostnaðaráætlun. Hvítserkur hf.
bauð 4.649.246 krónur og Stefán
Guðjónsson bauð 3.480.050 krónur
í verkið. Síðara tilboðið nemur 73%
af kostnaðaráætlun.
Að lokum var boðin út lagning 2,7
km vegarkafla um Súgandafjörð.
Tvö tilboð bámst og vom bæði hærri
en kostnaðaráætlun Vegagerðarinn-
ar. Tilboðsupphæð Vinnuvéla hf. var
3.960.380 krónur og tilboðsupphæð
Strandaverks á Hólmavík var
5.211.400 krónur, 42,5% hærri en
kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar.
Ekki hefur verið ákveðið hvaða
tilboðum verður tekið en fram-
kvæmdum við öll verkin skal lokið í
október á þessu ári.
Kæliskápar fyrir minni
heimili frá
Bgomberg
Meira en 20 gerðir
Verð við allra haefi
Einar Farestveit&Co.hf.
•OMOAMTVM xa. Mu» (•„ 1NM OO UiNt - HM9 HUITAN
Leið 4 stoppar við dymar
TOLVUNAMSKEIÐ
Sækið námskeið hjá traustum aðila gegn
vægu gjaldi
Grunnnámskeið:
Einkatölvur og DOS stýrikerfið...8.-11. ágúst
Ritvinnsla:
WordPerfec (Orðsnilld)..........13.-14. ágúst
Word IV (frá Microsoft)..........15.-18. ágúst
Word IV-framhald (frá Microsoft).......22.-25. ágúst
Gagnagrunnur:
dBase IV........................15,-17. ágúst
dBase IV forritun...............29.-31. ágúst
Töflureiknar:
Lotus 1-2-3....................tími ekki ákveðinn
Multiplan.............................27.-28. ágúst
Multiplan -framhald.....................3.-4. sept.
Tölvubókhald:
Laun - launaforrit..7...................5.-7. sept.
Ópus - fjárhagsbókhald..........10.-11. sept.
Ópus-viðskiptamannabókhald............17.-18. sept.
Ópus - birgða- og sölukerfi...........24.-25. sept.
Frá Tölvuháskóla:
Forritahönnun....................8.-11. ágúst
Assembly mál á PC tölvur...............22.-24. ágúst
Turbo Pascal fyrir byrjendur......27. ág., 3., 10.,
.....................17., 24. sept., 1., 8. og 15. okt.
Turbo Pascal fyrirforritara og þá sem kenna á tölvur
.................22., 24., 26., 29., 31. ág. og 2. sept.
Tölvusamskipti
og tenging við gagnabanka.....29. ág. - 1. sept.
Kerfisgreining fyrir forritara
og kerfisfræðinga................26.-30. sept.
BHM, BSRB, VR og fleiri stéttarfélög styrkja sína félaga
til þátttöku. Frekari upplýsingar fást í síma 688400.
-Innritun fer fram á skrifstofu skólans -
VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS
l