Morgunblaðið - 10.08.1988, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988
7
Blönduósi.
UM SÍÐUSTU helgi settu nokkr-
ir hressir strákar á Blönduósi
nýja heimasmíðaða kajaka á flot
á Réttarvatn í Vatnahverfi. Bát-
arnir sem strákarnir smíðuðu
sjálfir með aðstoð eins föðurins
eru úr trefjaplasti.
Hjörvar Pétursson og Ari K. Jó-
hannesson sem eru í þessum hópi
sögðu í samtali við Morgunblaðið
að reynslusiglingin hefði verið
„meiriháttar" og að sigla bátunum
eftir þriggja vikna smíðavinnu væri
erfiðisins virði og rúmlega það.
Þeir félagar sögðu að bátamir
hefðu reynst vel og með smá æf-
ingu væri auðvelt að komast aftur
upp í bátinn þó honum hvolfdi.
Reyndar hvolfdi einum kajaknum í
reynslusiglingunni en ræðaranum
Steindóri Grímarssyni varð ekki
meint af. Þeir Hjörvar og Ari voru
sammála um að helsta vandamálið
við þessa siglingaíþrótt væri að
flytja kajakana á milli en voru þó
ekki í neinum vafa um að leysa
mætti það vandamál. Sveinn Gísla-
son faðir eins drengjanna, en sá
heitir Ólafur, aðstoðaði strákana
við smíðamar. Vildi Svéinn koma
því á framfæri að Trefjaplast hf. á
Blönduósi hefði verið þessu drengj-
unum innan handar og vildi Sveinn
einnig geta þess að þeir sem áhuga
hefðu gætu fengið aðgang að báta-
mótinu, til að steypa eign bát.
Jón Sig.
Nokkrir hressir strákar á
Blönduósi smiðuðu þessa kajaka
sjálfir úr trefjaplasti og fóru í
reynslusiglingu á Réttarvatni um
síðustu helgi.
SÍÐUSTU BÍLARNIR
TIL AFGREIÐSLU STI
Nýjung í tómstundastarfi á Blönduósi:
Smíðuðu sér kaj-
aka úr trefjaplasti
Opinber heimsókn
forseta Islands:
Heímsækir
alla hreppa
Húnavatns-
sýsla
OPINBER heimsókn Vigdísar
Finnbogadóttur forseta íslands f
Vestur- og Austur-Húnavatns-
sýslu hefst fimmtudaginn 25.
ágúst. Jón ísberg sýslumaður tek-
ur á móti forsetanum á sýslumörk-
unum og þaðan verður haldið í
Reykjaskóla í Hrútafirði. Forset-
inn heimsækir alla hreppa beggja
sýslanna f förinni, 17 að tölu. í
fylgdarliði frú Vigdísar verður
Komelíus Sigmundsson forseta-
ritari og eiginkona hans Inga
Hersteinsdóttir.
Dagskrá heimsóknarinnar liggur
ekki fyrir í endanlegri gerð. Ráðgert
er að fyrsta daginn fari forsetinn um
Miðflörð og ái á Laugabakka þar sem
haldið verður kaffisamsæti. Gist
verður á Hvammstanga. Þaðan verð-
ur ekið á föstudagsmorgun út á
Vatnsnes og höfð viðkoma. í Þor-
finnsstaðaskóla. Borgarvirki’ verður
skoðað og Kolugljúfur í Víðidal en
kaffi drukkið í Víðihlíð. Að því búnu
kveður forsetinn vestursýsluna og
ekur til Blönduóss þar sem gist verð-
ur næstu tvær nætur.
Á föstudagskvöld verður forsetan-
um boðið til kvöldverðar á Skaga-
strönd og haldið opið hús fyrir bæj-
arbúa og nærsveitunga. Morguninn
eftir verður móttaka í Húnaveri fyrir
þá sem vilja hitta forsetann en há-
degisverður snæddur í Blönduvirkjun
eftir skoðunarferð um hana. Þá verð-
ur kaffísamsæti á Húnavöllum og
kvöldverður borðaður á Blönduósi í
boði bæjarstjómar.
Farið verður út á Skaga á sunnu-
dagsmorgun en síðan býður sýslu-
maður til hádegisverðar á heimili
sínu. Þá ekur forsetinn um Vatnsdal
og til Þingeyra. Um miðjan daginn
verður opið hús fyrir íbúa Blöndu-
óss. Heimsókninni lýkur um kvöldið
með því að sýslumaður kveður for-
seta við sýslumörkin áður en frú
Vigdís heldur tii Reykjavíkur.
*að viðbættum kr. 21.000 fyrir ryðvörn og skráningu.
Öll verð miðast við gengisskráningu 5. júlí 1988.
Það er stór munur á HONDA og öðrum
japönskum bílurti. HONDA hefur yfirbragð og
glæsileik sem allir sækjast eftir.
Nú er tækifærið að eignast HONDA glæsivagn
á hagstæðu verði og góðum kjörum.
Örfáum bílum óráðstafað.
HONDA CIVIC 3ja dyra kostar nú frá kr. 575.000*
VERO ÁÐUR 622.000
HONDA CIVIC SEDAN kostar nú frá kr. 669.500*
VERÐÁÐUR 748.000
AHONDA
Við rýmum fyrir árgerð '89 og seljum
síðustu HONDA CIVIC bílana árgerð
1988 með verulegum afslætti.
HONDA CIVIC DX
3ja dyra, 5 gíra
Verð frá
Útborgun 25%
Eftirstöðvar
575.000
143.750
431.250
Greiðast með jöfnum
afborgunum
í allt að 30 mánuði.
Mánaðargreiðsla kr. 14.375
að viðbættum vöxtum.
HONDA CIVIC SEDAN
4ra dyra GL, 5 gíra
Verð frá
Útborgun 25%
Eftirstöðvar
669.500
167.375
502.125
Greiðast með jöfnum
afborgunum
í allt að 30 mánuði.
Mánaðargreiðsla kr. 16.738
að viðbættum vöxtum.
VIÐ TÖKUM GÓÐA NOTAÐA BÍLA UPP í KAUPVERÐIÐ.
(H
HONDA Á ÍSLANDI, Vatnagörðum 24, Rvík, sími 689900
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson