Morgunblaðið - 10.08.1988, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988
Fjöðrin, sem varð að fimm hænum
iHl!!;
eftirÁsdísi J. Rafnar
Hvemig verða fréttir til? Fjöður
fauk í „útvarpsumræðum" á nor-
ræna kvennaþinginu í Osló í
síðustu viku og þessi fjöður varð
að fímm hænum í íslenskum fjöl-
miðlum — sérframboði sjálfstæðis-
kvenna í Alþingis- og sveitar-
stjómakosningum!
Ögmundur Jónasson, fréttamað-
ur Ríkisútvarpsins, bauð undirrit-
aðri, ásamt Kristínu Ólafsdóttur,
borgarfulltrúa, og Guðrúnu Agn-
arsdóttur, alþingismanni, í umræð-
ur, sem teknar vora upp á segul-
band Ríkisútvarpsins um ástæður
þess að mun færri konur sætu á
Alþingi og í sveitarstjómum hér á
landi en á þjóðþingum og í sveitar-
stjómum hinna Norðurlandanna, í
tilefni nýútkominnar samnorrænn-
ar skýrslu sem kynnt hefur verið
í Qölmiðlum. Fyrsta spuming Ög-
mundar var um ástæður þessa
munar á milli íslands og Norður-
landanna. Ræddum við um mögu-
legar ástæður í löngu máli, m.a.
var því velt upp hvort mannaskipti
væra örari meðal þing- og sveitar-
stjómamanna á hinum Norður-
löndunum en hér á landi og því
hafí konur og ungt fólk almennt
átt þar greiðari aðgang. Umræðan
hélt áfram, m.a. um leiðir til að
stuðla að auknum hlut kvenna á
Alþingi og í sveitarstjómum.
Neftidi ég þá samþykki fulltrúa-
ráðsfundar Landssambands sjálf-
stæðiskvenna, sem haldinn var á
Hvolsvelli í maí sl. og send var
íjölmiðlum, um að fram fari skoð-
anakönnun í öllum kjördæmum
landsins í haust á stuðningi við
konur til framboðs fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn. Þórann Gestsdóttir,
formaður Landssambands sjálf-
stæðiskvenna, hefur kynnt sam-
þykkt þessa í miðstjóm Sjálfstæð-
isflokksins og gert grein fyrir hug-
myndum um framkvæmd slíkrar
könnunar. Slík skoðanakönnun
gæti rejmst leið fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn til að efla hlut kvenna á
framboðslistum flokksins. Hér
bætti ég því við, að það væri ekk-
ert launungarmál að innan raða
sjálfstæðiskvenna hefði verið rætt
um það hvort DD listi sjálfstæðis-
kvenna þyrfti að koma til í kosn-
ingum — vonandi þyrfti þó ekki
að koma til þess. Um þetta var
ekki framar rætt, heldur var hald-
ið áffarn að ræða m.a. um gildi
þess að konur hefðu jafnari hlut á
við karla í stjómmáium, orð Þór-
hildar Þorleifsdóttur um að velta
valdastólunum og í lokin lagði
Ögmundur þá spumingu fyrir okk-
ur hvort Rfkisútvarpið hefði fremur
átt að senda kvenfréttamann á
norræna kvennaþingið en karl, sem
við svöraðum hver með sínum
hætti. Eftir u.þ.b. 20 mínútna
umræður var slökkt á upptökutæki
Ríkisútvarpsins og hver hélt til síns
heima í Óslóborg. í fréttum á ís-
landi varð undirrituð talsmaður
Nauðsyn á „Kattholti“ sem fyrst
eftir Ingibjörgu
Tönsberg
Kattavinafélagið var stofnað
snemma árs 1976. Tilgangur þess
er að stuðla að velferð katta.
Fýrsti formaður félagsins var frú
Svanlaug Löve og var hún formað-
ur til dánardags, er hún lést á
síðasta ári. Hún helgaði félaginu
krafta sína og var óþreytandi í bar-
áttunni fyrir velferð kattanna.
Mikið og óeigingjamt var starf
Svanlaugar við að afla §ár og
hrinda í framkvæmd byggingu
Kattholts, sem á að verða dýraspít-
aliog geymslustaður fyrir gæludýr.
í þessu merka starfí naut frú
Svanlaug stuðnings eiginmanns
síns, Gunnars Péturssonar pípu-
lagningarmeistara, sem áfram
starfar ötullega að hagsmunum fé-
lagsins, þar sem hann er formaður
byggingamefndar.
Kattholt er byggt í tveim áföng-
um. Sá fyrri er kominn undir þak,
en hinn, sem er á tveimur hæðum
er að verða fokheldur.
Mjög er aðkallandi að húsið kom-
ist í gagnið sem fyrst. Það vantar
svo tilfínnanlega geymslu og að-
hlynningu fyrir ketti og hunda, þeg-
ar eigendur þeirra fara í frí, eða
þurfa tímabundið að koma dýram
frá sér, t.d. vegna veikinda. Einnig
er meiningin að þama verði góð
aðstaða fyrir dýralækni og gjör-
gæsla fyrir dýr eftir aðgerð. Það
er ósk okkar og von að þetta megi
takast og það sem fyrst.
Um þessar mundir tekur Gula
línan við að veita upplýsingar fyrir
félagið, svo hér eftir geta félags-
menn og aðrir, sem leita þurfa til
félagsins, snúið sér til hennar.
Höfundur erformaðuru Katta-
vinafélags íslands.
SIÐASTI
DAGUR
SKYNDI
SÖLUNNAR
sérframboðs sjálfstæðiskvenna til
Alþingis og sveitarstjóma!
Leiðir þarf að ræða í stjórn-
málaflokkunum
1973 fengu konur í Moderata-
flokknum á Skáni í Svíþjóð sam-
þykki flokksins fyrir því, að bera
fram lista kvenna við hlið flokks-
listans í kosningum. Atkvæði
beggja listanna nýttust flokknum
og höfðu konumar og flokkurinn
mikinn sigur í kosningunum. Því
er ekki óeðlilegt að um þessa leið
hafí verið rætt meðal kvenna í
stjómmálaflokkunum hér á landi.
Hlutur kvenna í stjómmálaflokk-
unum er hins vegar ekkert sér-
hagsmunamál kvennanna, heldur
hagsmunamál stjómmálaflokk-
anna. Kosningalög gera ráð fyrir
að fleiri en einn listi geti verið í
framboði fyrir stjómmálaflokka,
sbr. 41. gr. kosningalaganna. Mál-
svarar ákvæðisins töldu að nauð-
syn bæri til að viðhalda því ftjáls-
ræði sem kosningalög gera ráð
fyrir og heimila minnihluta í stjóm-
málaflokki að bjóða fram iista S
nafni hans, með sama listabókstaf.
Ákvæðið þýðir, að þeir sem vilja
bjóða sig fram fyrir ákveðinn
stjómmálaflokk megi það, nema
til komi mótmæli þess aðila sem
endanlega ber skv. skipulagsregl-
um flokks að staðfesta hann. Þessi
leið er hins vegar að mínu mati
þrautalending og ekki fær nema
um flokksaðgerð sé þar að ræða,
sbr. Moderatafiokkinn á Skáni.
Menn eiga ekki að vera feimnir
við að ræða um það hvemig auka
megi hlut kvenna á Alþingi og í
sveitarstjómum, — ýmsar leiðir era
færar að þessu markmiði, sem öll-
um hlýtur að vera ljóst að getur
skipt sköpum um fylgi viðkomandi
flokks meðal kjósenda. Landssam-
band sjálfstæðiskvenna mælir með
frambjóðendakönnun, sem getur
reynst sambandinu leið til að
Asdís J. Rafnar
„Menn eiga ekki að
vera feimnir við að
ræða um það hvernig
euka megi hlut kvenna
á Alþingi og í sveitar-
stjórnum, — ýmsar leið-
ir eru færar að þessu
markmiði, sem öllum
hlýtur að vera ljóst að
getur skipt sköpum um
fylgi viðkomandi flokks
meðal kjósenda.“
styrkja konumar til framboðs, en
jafnrétti kynjanna verður ekki náð
á vettvangi stjómmálanna fremur
en á öðram sviðum þjóðlífsins
nema með samstarfi kvenna og
karla. Allir stjómmálaflokkamir
hljóta að leggja áherslu á aukinn
hlut kvenna á Alþingi og i sveitar-
stjómum. Fram að næstu kosning-
um má vinna að því markmiði, —
hvaða leið sem hver þeirra velur.
Af fjaðrafoki fjölmiðla í síðustu
viku má draga nokkum lærdóm.
Höfundur er héraðsdómslögmað-
Framleiðslugalli í Benz:
Hefur ekki fund-
ist hér á landi
BENZ fólksbílar hafa verið und-
ir smásjánni hjá bandarisku um-
ferðaröryggisstofnuninni vegna
meints galla í sjálfvirkum hraða-
stýringum eins og sagt var frá
hér í blaðinu fyrir nokkru. Galli
þessi veldur því, að bifreiðin get-
ur skyndilega aukið hraðann og
á þann hátt valdið slysum. Af
þessu tilefni leitaði Morgunblað-
ið til Benz-umboðsins hér á landi
og spurðist fyrir um málið, hvort
margir bílar hefðu fundist með
þennan framleiðslugalla og
hvort slikir bílar væru hér á
götunum.
„Granntilefnið í þessu tilfelli er
galli í annarri bfltegund, sem er
staðfestur og viðurkenndur af fram-
leiðanda," sagði Hallgrímur Gunn-
arsson forstjóri Ræsis hf, Benz-
umboðsins. „Gallinn kom fram í
stýriboxi fyrir sjálfvirka hraðastill-
ingu,„craise control", þar var gölluð
lóðning. Bflamir vora innkallaðir
af þeim sökum. Síðan var farið að
skoða ábendingar um aðra bfla, en
NHTSA, stofnunin sem framkvæm-
ir þessar athuganir, gerir ekkert
slíkt nema fram komi einhver rök
fyrir málinu. Stofnunin verður hins
vegar fyrir miklum þrýstingi frá
neytendasamtökum, sem þrífast á
athygli í §ölmiðlum. Byijað var á
almennri skoðun og síðan skoðaðir
sérstaklega Benz 300 SD bflar, sem
eingöngu era seldir á Bandaríkja-
markaði. Neytendasamtök fengu
því framgengt að skoðuð vora fleiri
meint tilfelli varðandi Benz bfla, en
ekki hefur enn fundist neinn Benz
með þennan galla," sagði Hallgrím-
ur.
Nemendamót haldið
í Haukadal 21 ágúst
Selfossi
NEMENDAMÓT verður haldið
í Haukadal 21. ágúst. Mótið er
haldið i tilefni þess að nýlega
voru liðin 60 ár frá því að
íþróttaskóli Sigurðar Greips-
sonar í Haukadal tók til starfa.
Ætlast er til að sem flestir nem-
endur skólans, kennarar og starfs-
fólk komi í Haukadal þennan dag
og taki þátt í mótinu og er þeim
frjáist að taka með sér gesti.
Fyrirhugað er að mæta í Hauka-
dalsskógi, við minnisvarða Sigurð-
ar Greipssonar klukkan 14 21.
ágúst. Þar verður stutt athöfn til
minningar um Sigurð Greipsson
skólastjóra. Að því loknu verður
haldið í Hótel Geysi og sest að
kaffiborði. Þar verður dagskrá
fram haldið og meðal annars rif-
jaðar upp minningar frá skólaár-
unum í Haukadal. Þátttökutil-
kynningar og upplýsingar era
gefnar í síma 98-68915 á Hótel
Geysi.
— Sig. Jóns.