Morgunblaðið - 10.08.1988, Page 23

Morgunblaðið - 10.08.1988, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988 23 Geimrusl á sveimi um Jörðu Frá því hefur verið greint á þess- um stað, að sovéskur gervihnött- ur, Cosmos 3000, muni að líkind- um hrapa til jarðar í næsta mán- uði. Vegna þessa hefur umræða um geimrusl það, sem er á spor- braut um Jörðu, aukist, enda ræð- ir hér um ótölulegan ú'ölda ónýtra tækja og tóla, sem maðurinn hef- ur skotið út úr gufuhvolfinu. Segja sérfræðingar að þegar fólk verði vitni að stjömuhrapi sé eins líklegt að þar séu á ferðinni leifar gervihnattar og að um loftstein sé að ræða. Bandaríkjamenn fylgjast dag- lega með um 8.000 hlutum á spor- braut um Jörðu, en þar af eru aðeins um 350 starfhæfir gervi- hnettir. Afgangu.rinn er um 3.700 útbrunnar eldflaugar, ónýtir gervihnettir, eldflaugahlutar og flöldinn allur af boltum og róm, sem hafa orðið viðskila við geim- för sín. Þá má ekki gleyma Hass- elbladt-myndavél, sem banda- rískur geimfari týndi á geimgöngu fyrir tæpum 20 árum. Alls er tal- ið að um 30.000 hlutir af manna höndum hingsóli um Móður Jörð. Flestir þessara hluta eru lítt hættulegir Jarðarbúum, þar sem þeir brenna upp á leiðinni inn í gufuhvolfið. Úti í geimnum eru þeir hins vegar stórhættulegir, enda á fleygiferð. Rekist smáhlut- ur á stærð við baun á gervihnött þarf ekki að huga framar að gervi- hnettinum. Má minna á að fram- rúða einnar geimskutlu Banda- ríkjanna brast þegar málningar- flaga varð á vegi skutlunnar. Hér að ofan er tölvumynd af Jörðu og hluta þeirra þúsunda hluta, sem sveima umhverfis hana. . vívV.'-. v '.•'•*> ■ 'v-c-'-t . -• í-.--■ ■■ /v ----- Moskva: Glæpir fær- ast í vöxt Hoskvu. Reuter. MORÐ, nauðganir og bOaþjófn- aðir hafa aukist mjög í Moskvu á þessu ári segir í sovéska viku- ritinu Röksemdir og staðreynd- ir. Og þrátt fyrir opinbera her- ferð gegn áfengisneyslu voru rúmiega tvö þúsund manns handteknir fyrir ólöglega bruggun á fyrsta helmingi þessa árs og er það 72,5% aukn- ing frá því í fyrra. Blaðið vitnaði í lögregluskýrslur og sagði að á fyrstu sex mánuðum þessa árs hefðu verið kærð 14% fleiri morð heldur en á sama tíma í fyrra, 24% fleiri nauðganir og 50% fleiri bílaþjófnaðir. Tímaritið segir að skipulagðri glæpastarf- semi sé að kenna um stóran hluta afbrotanna; glæpaklíkur hafi bar- ist um yfírráðin yfir spilavítum og annarri ólöglegri fjármálastarf- semi. í maí greindi vikuritið Ogonjok frá því að til götubardaga hefði komið milli glæpahreyfinga í vor þegar tekist var á um hagnað af starfsemi samvinnufélaga sem stofnuð voru eftir að sovéskir ráðamenn leyfðu takmarkað einkaframtak í fyrra. Kafbátaleit í Svíþjóð: Ný tækni gef- ur góða raun Stokkhólmi, frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins. Hernaðaryfirvöld í Svíþjóð staðfestu á mánudag að kaf- bátaleit hefði gengið betur í ár en undanfarin ár. Þakka þeir árangurinn nýrri tækni sem þeir segja að sé fljótvirkari en þær aðferðir sem áður hefur verið beitt við leit að kafbátum. Sænski sjóherinn skaut djúp- sprengjum á kafbát sem var í heimildarleysi innan sænskrar lög- sögu úti fyrir Oxelsösund í maí- mánuði síðastliðnum. Þegar atvik- ið úti fyrir Oxelsösund átti sér stað vissi sjóherinn fyrir að ókunn- ur kafbátur hafði verið á ferli, að sögn talsmanns hersins. Lét nærri að tekist hefði að granda kaf- bátnum að sögn yfirmanna í sjó- hemum. Yfirmenn innan hersins hafa ekki viljað gefa neinar upplýsingar um hvaða aðferðir það eru sem gefið hafábetri árangur við leitina að kafbátum í sænskri lögsögu en segja að þær hafi gefíst vel. f F ENN KEMUR TOYOTA A OVART - NÚ BÆÐI NOTAÐIR OG NÝIRI! ,nEuvnnviun UT0GRESTIN ÁNVAXTA0G MANUDUM T0Y0TA býður nú hin einstöku greiðslukjör á takmörkuðum fjölda bíla af ’88 árgerð og að sjálfsögðu einnig á notuðum bílum í eigu umboðsins. 50% af kaupverði greiðast við samning en eftirstöðvar í 12 mánuði, vaxta- og verðtryggingarlaust! Og ekki nóg með það... þeir sem staðgreiða nýjan bíl 13% afslátt. Verið velkomin í sýningarsal okkar að Nýbýlavegi 8 og einnig í Toyota bílasöluna, Skeifunni 15. Umboðsmenn okkar eru um ailt land. TOYOTA Nýbýlavegi 8, 200 Kópavogi, Sími 91-44144

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.