Morgunblaðið - 10.08.1988, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 10.08.1988, Qupperneq 24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988 24 pliorjpmMifcfritfr Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, ÁrniJörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst IngiJónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið. Samskípti Islands og Bandaríkjanna Opinber heimsókn Þor- steins Pálssonar, forsæt- isráðherra, til Washington, hófst í gær og í dag mun hann eiga viðræður við Ronald Re- agan, forseta Bandaríkjanna. Þessi ferð forsætisráðherra er mikilvæg fyrir margra hluta sakir. Við íslendingar höfum átt vinsamleg og árangursrík sam- skipti við Bandaríkin frá lýð- veldisstofnun. Viðurkenning Bandarílg'astjómar á lýðveld- inu íslandi átti ríkan þátt í, að aðrar þjóðir viðurkenndu einn- ig stofnun lýðveldis okkar. Samningur við Bandaríkin um hervemd í heimsstyrjöldinni síðari veitti okkur skjól í þeim hildarleik og um leið var her- námi Breta aflétt. Frá stofnun Atlantshafsbandalagsins höf- um við verið fámennasta þjóð þessa vamarbandalags ftjálsra þjóða en Bandaríkjamenn sú fjölmennasta. Þrátt fyrir það hafa samskipti okkar og þeirra byggt á jafnræði. Vamarsamn- ingurinn við Bandaríkin, sem gerður var 1951 hefur verið einn af homsteinum utanríkis- stefnu okkar. Barátta okkar íslendinga fyrir fullum yfirráðum yfir fiskimiðum okkar stóð í ára- tugi. Enginn vafi leikur á því, að stjómir Bandaríkjanna veittu okkur öflugan stuðning að tjaldabaki á þeim átakatím- um og áttu verulegan þátt í að knýja Breta og aðra and- stæðinga okkar til þess að falla frá ofbeldisaðgerðum gegn okkur og viðurkenna yfirráð okkar jrfir auðlindum hafsins í kringum ísland. Bandaríkin hafa í áratugi verið sterkasti útflutnings- markaður okkar fyrir sjávaraf- urðir. Þótt nokkuð hafi dregið úr mikilvægi þess markaðar fyrir okkur íslendinga er þó Ijóst, að hann gegnir enn lykil- hlutverki í útflutningsstarf- semi okkar. Afstaðan til hvalveiða hefur varpað skugga á samskipti þessara tveggja þjóða á sl. þremur ámm en með þeim samningum, sem gerðir vom fyrr í sumar um hvalveiðamar verður að telja, að þær deilur séu að mestu leyti úr sögunni. Sú ákvörðun Ronalds Reag- ans, Bandaríkjaforseta að bjóða forsætisráðherra íslands í opinbera heimsókn til Wash- ington sýnir, að Bandaríkin líta á Island sem eitt mikilvægasta bandalagsríki sitt. Þótt íslenzkir ráðamenn hafi fyrr heimsótt Washington og rætt við bandaríska forseta, er þetta í fyrsta sinn frá lýðveldisstofn- un, sem forsætisráðherra ís- lands er boðið í opinbera heim- sókn til Washington. Sú stað- reynd er til marks um, að Bandaríkjamenn vilja rækta vinsamleg samskipti við okkur íslendinga um leið og Þorsteini Pálssyni formanni Sjálfstæðis- flokksins er sýnd sérstök virð- ing með þessu heimboði, en forystumenn Sjálfstæðis- flokksins hafa jafnan verið í fararbroddi við mörkun þeirrar utanríkisstefnu, sem við ís- lendingar höfum fylgt frá stríðslokum. Forsætisráðherra mun í dag eiga viðræður við Reagan Bandaríkjaforseta. Vafalaust verður þar rætt um samskipti ríkjanna tveggja svo og horfiir á alþjóðavettvangi, sem skipta okkur íslendinga miklu máli. Nú orðið er ljóst, að á hinum fræga Reykjavíkurfundi leið- toga Bandarílg'anna og Sov- étríkjanna var lagður grund- völlur að þeim bættu samskipt- um, sem einkennt hafa sam- starf risaveldanna síðustu misseri. Friður á milli austurs og vesturs getur haft úrslita- þýðingu fyrir stefnumörkun okkar í utanríkismálum á næstu árum. Þá mun forsætis- ráðherra eiga viðræður við vamarmálaráðherra Banda- rílg'anna en umfangsmestu samskipti ríkjanna eru á sviði öryggismála. Það er sérstakt fagnaðar- efni, að Þorsteini Pálssjmi, for- sætisráðherra, hefur verið boð- ið í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna. Sú heimsókn mun treysta samstarf þessara bandalagsþjóða. Þeir sem unn- ið hafa að undirbúningi þessar- ar heimsóknar, svo sem Nic- holas Ruwe, sendiherra Banda- ríkjanna á íslandi, hafa með því lagt sitt af mörkum til þess að samskipti íslendinga og Bandaríkjamanna verði jafn farsæl á næstu árum eins og þau hafa verið á undanfömum áratugum. MORGUNBLAÐIÐ, “MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988 a 25 Stytting’ vinnutíma Skynsamleg kjarastefna fyrir alla eftirStefán * Olafsson Vinnumarkaður á villigötum Við íslendingar stærum okkur oft af því að hafa ýmis einkenni sem skapa okkur sérstöðu í samfélagi þjóðanna á Vesturlöndum. Það er vel og ber vott um þjóðarstoít og styrkleika sem er þjóðinni þýðingar- mikill. Þannig nefnum við, til dæm- is, að við höfum varðveitt tungu og menningu forfeðra okkar betur en marga aðrar þjóðir, við lifum lengur og séum heilbrigðari en aðr- ir menn, eigum fleiri bíla og stærra íbúðarhúsnæði, trúum á stokka og steina, höfum aðra drykkjusiði en nágrannaþjóðimar o.m.fl. Sumt af þessu er af hinu góða og annað hefur einkum skemmtigildi. En hjá því fer þó ekki að við höfum önnur sérkenni sem engin eða lítil ástæða er til stæra sig af, því þau eru lítt til fyrirmyndar og stundum beinlínis óskynsamleg og hættuleg. Það sem ég vildi gera í grein þessari er að koma orðum að nokkrum atriðum í skipan atvinnu- mála þjóðarinnar sem ég tel að séu á villigötum og vil hvetja til að á verði tekið, því völ er á skynsam- legri og heilladrýgri leiðum. Við Islendingar búum við meiri átök og óánægju á vinnumarkaði en aðrar vestrænar þjóðir. Við vinn- um einnig miklu lengri vinnutíma og skilum mun minni afköstum á vinnustund en nágrannaþjóðir. Við búum við lægra grunnkaup en álíka ríkar þjóðir þó heildarlaun okkar (fyrir dagvinnu og yfirvinnu saman- lagt) séu ekki fjarri því sem þar tíðkast. Þessar aðstæður á fslenska vinnumarkaðinum kalla á kjara- stefnu sem sameinar styttingu vinnutíma, hækkun grunnlauna og aukningu afkasta á vinnustund. Það er sú leið sem nágrannaþjóðirn- ar á Vesturlöndum hafa farið, hægt og sígandi allt frá síðustu aldamót- um. Þetta er sú leið sem styrkir fjölskylduna, dregur úr vinnuslys- um og vinnusliti, bætir hag þeirra lægst launuðu umfram aðra, ög eykur jöfnuðinn milli stétta og kynja. Til að ná þessum markmiðum mun þurfa mismunandi útfærslu í ólíkum greinum atvinnulífsins og að nokkru leyti mismunandi útkom- ur í ólíkum stéttum. Æskilegast væri að reglubundið samstarf myndaðist milli stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um að hrinda í framkvæmd nokkurra ára áætlun um þessar úrbætur, því þær fela í sér ávinning fyrir alla. Með slíkri samstarfsáætlun ættu stjórnvöld að fá langþráðan frið á vinnumarkaði og stöðugleika í þjóðfélaginu, laun- þegar fengju stærstu lífskjarabót- ina sem hugsanleg er við núverandi aðstæður þjóðarinnar og atvinnu- rekendur fengju aukin afköst á vinnustund og aukna hagræðingu í rekstri. Með þessu væri lagður grundvöllur að varanlegum stöðug- leika og framförum á Islandi. Lítum nánar á það sem miður fer á íslenska vinnumarkaðinum og leiðirnar til úrbóta. Ný vinnumarkaðspólitík Engum blöðum er um það að fletta, að íslenski vinnumarkaður- inn er óstöðugasti vinnumarkaður- inn á Vesturlöndum, þ.e. ef borið er saman við hin þróuðu og nútíma- legu þjóðfélög sem við eigum mesta samleið með. Þetta kemur einkum fram í óvenjulega miklum kjara- átökum og verkföllum, miklum sviftingum og launaþróun og gífur- .legri óánægju meðal íslensks launa- fólks. Ekki þarf að segja íslendingum að samskipti aðilanna á vinnumark- aði hér á landi séu erfið. Síendurtek- in verkföll, endalausar þrætur um kjarasamninga sem gera þarf minnst einu sinni á ári, jafnvel við aragrúa af stéttarfélögum eins og var á síðastliðnum vetri. Þegar skoðaðar eru tölur um vinnutap vegna verkfalla kemur í ljós að hvergi á Vesturlöndum (OECD- löndunum) er meira vinnutap af þessum sökum en hér á landi. Þetta gildir um síðasta aldarfjórðunginn, ef ekki lengur. í tengslum við þessi miklu átök hafa kjarabreytingar oft verið meiri en sést í nágrannalönd- unum. Þannig hafa lengi skipst á miklar kjaraskerðingar og kjara- sprengingar á íslenska vinnumark- aðinum, sem hvort tveggja felur í sér meiri óróleika en nokkur lýð- ræðisleg stjórnvöld fá við ráðið. Énda hefur reynslan á eftirstríðsár- unum sýnt að hér hefur flest það farið úr böndunum sem nágrannar okkar hafa yfirleitt náð þokkalega að hemja, t.d. verðbólga, fjárfesting og gengis- og vaxtamál. ítrekað höfum við horft upp á að efnahagsaðgerðir stjórnvalda hafa reynst haldlausar og runnið út í sandinn á örstuttum tíma vegna þess að þær hafa ekki verið ásætt- anlegar á vinnumarkaðinum. Reyndar má líta svo á að vinnu- markaðurinn hafi oft verið afgangs- stærðin í hagstjórnaraðgerðunum. Menn hafa vonað að úrræði stjóm- valda í gengis-, verðlags- eða pen- ingamálum féllu á góðan jarðveg á vinnumarkaðinum og heimilunum, en oftar en ekki hefur það farið á hinn veginn. Látið hefur verið skeika að sköpuðu um afleiðingar úrræðanna fyrir lífskjör heimilanna og því hafa ekki orðið forsendur fyrir friði um slíkar aðgerðir. Enn í dag virðast menn aðallega vera að leita að galdralausnum fyrir hagstjómina í einangmðum úrræð- um á sviði peningamála einna, t.d. fastgengisstefnu, fijálsræði á pen- ingamarkaði eða fasttengingu krónunnar við erlenda gjaldmiðla. Lítið er hugað að úrræðum sem sameina lausnir í kjaramálum og á öðrum sviðum efnahagsmála. Ég hygg að rætur mörgu stærstu vandamálanna sem glíma þarf við í íslenskum stjórnmálum liggi ein- mitt á vinnumarkaðinum. Þess vegna þyrfti að taka upp nýja stefnu í vinnumarkaðsmálum sem gæti dregið úr kjaraóánægjunni og átök- unum, og skapað forsendur fyrir meiri stöðugleika í íslensku þjóð- félagi almennt. Vinnmarkaðspólitík þarf að tengja betur við aðra þætti hagstjómarinnar ef hefðbundin úr- ræði eiga að hafa möguleika á að skila árangri. Hugmynd mín er sú að stytting vinnutíma geti verið lykilinn að víðtækri endursköpun stjómarhátta og samskipta á vinnu- markaði á næstu ámm sem miðaði að því að leysa betur nokkur af okkar helstu vandamálum. Með þeirri leið ætti einnig að vera hægt að grafa undan forsendum þess suður-ameríska verðbólguástands sem hér hefur ríkt á síðustu áratug- um. Lengsti vinnutími á Vesturlöndum Stytting vinnutíma er vænleg leið vegna þess að þar er ærin verk- efni að leysa á íslandi og sú leið sameinar mörg tímabær markmið, t.d. kjarabætur fyrir launþega, aukna framleiðni og hagræðingu fyrir fyrirtækin, eflingu fjölskyldu- lífs og aukinn jöfnuð. í reynd er sérstaklega brýnt að tekið verði á vinnutímastyttingu því við Islend- ingar búum nú við langlengsta vinnutíma á Vesturlöndum. Vinnu- tíminn hér er álíka langur og var í nágrannalöndunum á fyrri hluta þessarar aldar. Alls staðar á Vest- urlöndum hefur þróunin verið á einn veg á þessari öld, vinnutími hefur styst jafnt og þétt, framleiðsla á vinnustund hefur aukist og grunn- kaup hefur hækkað. Meðfylgjandi línurit (mynd 1) sýnir, til dæmis, þróun heildarvinnutíma hjá full- vinnandi verkafólki í iðnaði í Banda- ríkjunum frá aldamótunum 1900 til nútímans. Um aldamótin 1900 voru banda- rískir verkamenn að jafnaði með um 55 stundir á viku í vinnu sinni. Árið 1910 var vinnutími fullvinn- andi verkafólks þar kominn niður í um 52 stundir á viku. Síðan hefur vinnutími þeirra styst markvisst og er nú undir 40 stundum að jafnaði. (Heimild: D.S. Hamermesh og A. Rees, 1984, bls. 30.) Þar og í Evr- ópu eru menn nú að tala um að stytta heildarvinnutíma niður í 35 stundir á viku og framtíðarfræðing- ar spá því að vinnutími muni stytt- ast enn frekar eftir að því er náð. Fullvinnandi verkafólk (karlar og konur samanlagt) á íslandi er í dag að jafnaði með um 53 stundir á viku í vinnu sinni, eða álíka mikið og stéttarsystkinin bandarísku voru með á fyrstu tveimur áratugum þessarar aldar. Hér munar því miklu. íslendingar eru eins og nátt- tröll í hópi hinna nútímalegu þjóða hvað þetta atriði snertir. Nýlegar tölur frá OECD, Efna- hags- og framfarastofnuninni í París, sýna hreinan vinnutíma laun- þega í aðildarríkjunum 1983—4 (sjá töflu 1). Tölur þessar eru fengnar úr vinnumarkaðs- og lífskjarakönn- unum sem eru þokkalega sambæri- legar milli landa. Fyrir ísland er meðalvinnutími sýndur bæði fyrir virka (þá sem stunda einhveija vinnu) og fullvinnandi. Þessi að- greining breytir litlu fyrir meðal- vinnutíma karla því þeir eru flestir í fullum störfum, en hjá konum er hins vegar misjafnlega mikið um hlutastörf í þessum löndum og hef- ur það áhrif á samanburðinn. íslenskir karlar vinna mun lengri vinnuviku en karlar í öllum hinum löndunum. Japanskir karlar vinna einnig allanga vinnuviku, en í öðr- um OECD-löndum er vinnutíminn miklu styttri, eða yfirleitt í kringum 40 stundir á viku. Yfirvinna er því yfirleitt fremur lítil á Vesturlönd- um. Islenskar konur vinna einnig frekar langa vinnuviku að jafnaði, en tiltölulega stór hluti þeirra er í hlutastörfum og dregur það meðal- talið niður. Fullvinnandi konur eru með nærri 46 stundir á viku að jafnaði. í síðasta dálki töflunnar er einnig sýnt hlutfall verkakarla sem vinna einhvetja yfirvinnu. Það er því ljóst að yfirvinna er bæði al- menn og umfangsmikil meðal verkakarla á Islandi, sem og í öðr- um stéttum. í leiðara í Morgunblaðinu um verslunarmannahelgina voru settar fram nokkrar athyglisverðar spurn- ingar í tilefni af þeirri umræðu um vinnutíma sem fram hefur farið undanfarið. Þar var m.a. tekið und- ir það að vinnutími hér á landi gæti verið almennt lengri en á hin- um Norðurlöndunum en jafnframt spurt hvort hið sama væri uppi á teningnum varðandi önnur lönd eins og Bandaríkin, þar sem leiðarahöf- undur taldi yfirvinnu vera mikið stundaða. í töflu 1 má sjá meðal- vinnutíma hjá launþegum í Banda- ríkjunum í samanburði við önnur OECD-lönd. Tafla 2 sýnir hins veg- ar dreifingu vinnutímans, þ.m.t. umfang yfirvinnu, í Bandaríkjunum árið 1961 og 1982 og á Islandi árið 1987. Þessar tölur eru ágæt- lega sambærilegar. styttingu vinnutíma á íslandi á síðustu árum og áratugum og á árinu 1987 var vinnutími almennt lengri en á árinu 1986. I leiðara Morgunblaðsins, sem áður var vitnað til, var einnig nefnt að frídagar væru fleiri á íslandi en í nágrannalöndunum og því gæti heildarfjöldi vinnutíma á ári verið jafnari en ætla mætti út frá saman- burði á tilteknum könnunartímabil- um. Þær tölur um þetta sem fyrir liggja styðja ekki þessa tilgátu. Fjöldi launaðra frídaga (orlofsdagar og opinberir frídagar) er í efri kant- inum á íslandi miðað við Evrópu- löndin en þó ekki sá mesti. Árlegur fiöldi vinnustunda (að teknu tilliti til frídaga) en oftast um það bil 30% lengri á íslapdi en í hinum Evrópu- löndunum. Árið 1983—4 var heild- arfiöldi vinnutíma allt árið til dæm- Tafla 2 Dreifing vinnutíma á íslandi 1987 og í Bandaríkjunum 1961 og 1982. Hlutfall vinnandi einstaklinga sem hafa tiltekinn fjölda vinnustunda á viku. Dr. Stefán Ólafsson „Stytting vinnutíma er tímabært markmið í íslensku þjóðfélagi. Það er skynsamleg leið fyr- ir atvinnulífið jafnt sem fjölskyldulífið. Stytting vinnutíma með hækkun grunnlauna og aukn- ingu af kasta á vinnu- stund sameinar mörg markmið sem launþeg- ar jafnt sem atvinnu- rekendur og sljórnvöld hafa lengi haft á stefnuskrá sinni. Oll nágrannalöndin fóru þessa leið fyrir löngu.“ 1—34 stundir 35—40 stundir 41—59 stundir 60 stundir og yfir USA 1961 19.1 50.2 22,5 8,0 USA 1982 25.2 52.3 16,9 5,7 fsland 1987 24,3 32.1 32,8 23.2 Heimildir: Hamermesh og Rees (1984, bls. 31) og þjóðmálakönnun Félapsvísindastofnunar nóvember 1987. Litlu munar á umfángi hluta- starfa (1—34 stundir á viku) í Bandaríkjunum og á íslandi. Hins vegar er mun stærri hluti Banda- ríkjamanna en íslendinga með á bilinu 35—40 stundir á viku, og yfindnna er stunduð af miklu stærri hluta vinnandi fólks á íslandi en í Bandaríkjunum. Um 56% íslend- inga af báðum kynjum samanlagt stunda einhvetja yfirvinnu (41 stund eða meira) en um 23% Banda- ríkjamanna. Fjórum sinnum fleiri íslendingar vinna 60 stundir eða meira á viku. Hér er einnig athyglisvert að umtalsvert hefur dregið úr yfír- vinnu í Bandaríkjunum á tímabilinu frá 1961 til 1982, um leið og fjölg- að hefur fólki í hlutastörfum þar. Stytting vinnutíma þar er því meiri en ætla mætti út frá heildarmeðal- talinu á mynd 1. Lítil merki eru um Taflal Hreinn vinnutími launþega í OECD-löndum 1983—4 og hlutfall verkakarla sem vinna meira en 40 stundir á viku is 31% meiri á íslandi en í Bret- landi. Því fer þannig fjarri að Is- lendingum sé bættur hinn langi vinnutími með fleiri launuðum frídögum. I ljósi þessara staðreynda hlýtur það að teljast brýnt viðfangsefni að stytta vinnutíma á íslandi. Þegar þess er enn fremur gætt að langur vinnutími er óskynsamlegur bæði af hagrænum og félagslegum ástæðum bæði fyrir atvinnulífíð og heimilin, ætti það enn fremur að ýta undir úrbætur á þessu sviði. Nu verður vikið nánar að því hvern- ig langur vinnutími er óhagkvæmur fyrir atvinnulífið og fjölskyldulífið. Lítil framleiðni í vinnunni Hinn langi vinnutími tengist litl- um afköstum, miklum vinnuslysum, og lélegum stjórnarháttum. I yfir- vinnubanninu árið 1977 kom í ljós í könnun VSÍ að í 85% fyrirtækja í framleiðsluiðnaði tókst að halda sömu eða meiri afköstum en var fyrir yfirvinnubannið (sjá Vinnu- Meðalvinnutími á viku oir röð: % verkam. m/meira en 40 veitandinn, 1977, nr. 2). í könnun sem Félagsvísindastofnun háskól- AUir Röð Karlar Röð Konur Röð klst. ans gerði nýlega fyrir nokkra aðila ísland a) 45,4 — 54,0 — 35,3 - — 71 var fólk sem reynslu hefur af yfir- ísland b) 52,0 1 55,4 1 45,5 1 vinnu spurt að því, hvort það teldi Japan Kanada 47,5 42,8 2 3 50,7 2 41,6 2 — að hægt væri að ná sömu afköstum á vinnustað sínum í dagvinnu einni Grikkland 40,1 4 41,3 4/5 37,4 3 70 og nú fæst með dagvinnu og yfir- Finnland c) 39,0 5 40,0 11/12 37,0 4 11 vinnu samanlagðri. Um 40% þeirra írland 38,9 6 40,7 7 35,0 10 30 sem vinna að jafnaði 45—54 stund- Lúxemborg 38,8 7 40,3 9 35,7 7 9 ir á viku sögðu já við því, og um Ítalía 38,7 8 39,9 13/14 36,2 5 20 29% þeirra sem vinna 55 stundir Austurríki 38,6 9 40,4 8 35,8 6 eða meira á viku. Um 47% verka- Bandaríkin 38,4 10 41,3 4/5 34,9 11 — karla og 39% stjómenda og sér- V-Þýskaland 38,4 11 40,9 6 34,3 12 18 fræðinga telja að hægt sé að ná Frakkland 38,1 12 40,1 10 35,5 8 39 fullum afköstum í dagvinnu einni Spánn 37,5 13 38,5 18 35,1 9 — (sjá Stefán Ólafsson, Vinnutími og Bretland 37,3 14 43,0 3 29,9 16/17 23 viðhorf, júní, 1988). Belgía 37,2 15 38,8 17 33,8 13 4 Fullvinnandi karlar sem telja að Holland 36,1 16 39,9 13/14 28,6 19 17 hægt sé að ná sömu afköstum í Svíþjóð 35,8 17 39,7 15 31,4 14/15 14 dagvinnu einni og nú fæst með Danmörk 35,4 18 39,2 16 31,4 14/15 11 dagvinnu og yfirvinnu samanlagðri Noregur 35,0 19 40,0 11/12 28,8 18 20 á vinnustað þeirra vinna að jafnaði Ástralía 35,0 a) Virkir b) Fullvinnandi c) 1978 20 38,3 19 29,9 16/17 — um 58 stundir á viku. Þeir eru m.ö.o. að segja að hægt væri að Heimildir: OECD (1986): A. Evans og S. Palmer (1985) og þjóðmálakannanir Félagsvísinda- stofnunar. Klst. á viku 60. Mynd 1 Meðalvinnutími í Bandaríkjunum 1900-1969 og á íslandi 1987 I ■ 1900 1910 1920 1930 1940 1950 1960 1969 Island 1987 skila sömu afköstum á 40 stundum og nú nást á 58 stundum. Niður- stöður könnunarinnar almennt benda til að hjá þriðjungi fullvinn- andi launþega sé allt að 13 stundum á hverri vinnuviku sóað án afkasta. Ef niðurstöðurnar eru færðar yfir á alla vinnandi menn má ætla að á bilinu 5—10 stundir á viku séu vinnustundir án afkasta í íslensku atvinnulífi. Reynslan í nágrannalöndunum sýnir einnig að stytting vinnutíma hefur yfirleitt fylgt umtalsverð aukning afkasta, þeim mun meiri sem vinnutíminn var lengri við upp- haf styttingarinnar. Þar er því margt sem bendir til að afar miklir möguleikar ættu að vera á að auka framleiðni á Islandi. Lágt grunnkaup og ójöfnuður Ein af veigameiri ástæðunum fyrir hinum langa vinnutíma er hversu lágt grunnkaupið er hér á landi, samfara því að mikil eftir- spum hefur verið eftir vinnuafli. í könnun Félagsvísindastofnunar á lengd vinnuvikunnar og viðhorfum til vinnutíma kom fram að efna- hagsleg sjónarmið ráða miklu um lengt vinnutímans. Um 70% vinn- andi manna tengja yfirvinnu við kaupið og þeir sem vinna langan vinnutíma . vilja almennt styttri vinnutíma. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem vilja styttri vinnutíma segjast myndu stytta vinnutíma sinn ef grunnkaupið hækkaði veru- lega. Með hinum langa vinnutíma ná íslendingar þokkalegum heildar- launum, sem ekki er svo fjarri því sem tíðkast í nágrannalöndunum. Munurinn er aðeins sá að við vetjum 25—30% lengri vinnutíma til að ná þessum tekjum og gerum það með minni afköstum og meiri tilkostn- aði. Þegar hlutur heildarlauna í þjóðartekjum er kominn vel yfir 70%, og helst á því stigi, geta íslensk launþegafélög vart búist við að hækka raunkaupið mikið til við- bótar í bráð. Styttri vinnutími og aukinn jöfnuður verða þá skynsam- legir valkostir í kjarabaráttunni. Vinnutímanefnd félagsmálaráð- herra hefur nýlega skilað tillögum um leiðir til að stytta vinnutíma án skerðingar tekna. Það er samhljóða niðurstaða nefndarmanna að hækk- un grunnlauna eigi að vera vejga- mikill þáttur í að ná því marki, ásamt með skerðingu á möguleikum til að sækja í yfirvinnu í sama mæli áfram. í nefndinni sátu full- trúar ASÍ, VSÍ og fiármálaráðu- neytisins. Það hlýtur að teljast afar merkilegt að þessir aðilar skuli hafa náð samkomulagi um meginleiðir til styttingar vinnutíma, þó alls ekki sé ljóst að þeirra leiðir séu þær einu sem færar eru, né endanlega þær bestu. Stytting vinnutíma, aukinn jöfnuður, bætt heilsufar og efling fjölskyldulífs Ef vinnutími er styttur samhliða því að grunnkaup hækkar, þannig að meðalmaðurinn megi ná núver- andi heildarlaunum sínum með dag- vinnu einni (eða því sem næst) og auknum afköstum, þá fylgir aukinn jöfnuður tekna sjálfkrafa í kjölfarið. Þegar umtalsverður hluti yfirvinnu- tekna hefur verið færður inn í grunntaxtana er taxtaþjóðin, sem oft hefur verið skilin eftir í hefð- bundnum kjarasamningum, færð nær þeim hópum sem hafa meðal- tekjurnar. Sá tekjumunur sem hlot- ist hefur áf mismunandi aðgangi að yfirvinnu minnkar verulega. Konur munu sérstaklega njóta þess. Öryrkjar, heilsuveilir og aðrir þeir sem ekki hafa getað leyst kjaramál sín með mikilli yfirvinnu eða ástundum tveggja eða fleiri starfa fá raunhæfari kjarastöðu en þeir nú hafa. Þannig er ljóst að stytting vinnu- tíma samhliða hækkun grunnlauna felur í sér aukinn jöfnuð á vinnu- markaði. Líklega er þetta mun raunhæfari leið til að bæta kjör þeirra sem lægstu launin hafa en þær leiðir sem reyndar hafa verið síðustu 25 árin með litlum árangri. Landlæknir hefur nýlega bent á neikvæðar afleiðingar hins langa vinnutíma fyrir heilsufar og fjöl- skyldulíf (sjá Mannvernd í velferð- arþjóðfélagi, 1988). Niðurstöður hans eru í samræmi við það sem rannsóknir erlendis hafa sýnt. íslendingar vilja styttri vinnutíma Stytting vinnutíma er tímabært markmið í íslensku þjóðfélagi. Það er skynsamleg leið fyrir atvinnulífið jafnt sem fjölskyldulífið. Stytting vinnutíma með hækkun grunnlauna og aukningu afkasta á vinnustund sameinar mörg markmið sem laun- þegar jafnt sem atvinnurekendur og stjórnvöld hafa lengi haft á stefnuskrá sinni. Öll nágrannalönd- in fóru þessa leið fyrir löngu. íslend- ingar ættu að nota tækifærið til að vinna að þessu mikla framfarar- máli í sameiningu og nota það til að skapa meiri stöðugleika og styrkari stoðir í íslenska velferð- arríkinu. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambands Islands, hefur nýlega talað háðug- lega og í hálfkæringi um tillögur vinnutímanefndar um styttingu vinnutíma. Hann hefur m.a. líkt til- lögum nefndarinnar við óskir barna um jólagjafir. Nú er það svo að mörg börn fá einhveijar óskir sína uppfylltar á jólum. Verkafólk á Vesturlöndum setti fram við upphaf * þessarar aldar þá ósk, sem stefnu- mál verkalýðshreyfingar, að hægt væri að lifa þokkalega af dagvinnu einni. I öllum þjóðfélögum Vestur- landa, nema á Islandi, hefur þessu markmiði að verulegu leyti verið náð. Þetta mikla hagsmunamál heimila og fyrirtækja hlýtur því að verðskulda þá meðferð hér á landi sem það hefur fengið í nágranna- löndunum. Hví skyldum við annars þurfa að vera nátttröll til frambúð- ar? Höfundur er forstöðumaður Fé- lagsvísindastofnunar Hóskóla ís lands. Flugslysið við Reykjavíkurflugvöll: Hreyflarnir rann- sakaðir í Kanada HREYFLAR kanadísku CASA 212 flugvélarinnar sem fórst við Reykjavíkurflugvöll 2. ágúst síðastliðinn hafa verið sendir til Ottawa í Kanada til rannsóknar. Vett- vangsrannsókn vegna slyssins lauk um helgina. Ekki er búist við endanlegum niðurstöðum um orsakir slyss- ins fjnrr en að nokkrum vikum liðnum. Hreyflar flugvélarinnar, loft- skrúfur og ýmsir aðrir smærri hlutir voru sendir til rannsóknar í rannsóknarstofnun Flugslysa- nefndar Kanada, Canadian Aviation Safety Board. Vett- vangsrannsókn hér á landi er þar með lokið. Auk flugslysanefndar og loftferðaeftirlits Flugmála- stjómar unnu við rannsóknina og komu hingað til lands alls 13 erlendir sérfræðingar. Fimm þeirra voru frá Flugslysanefnd Kanada, fiórir frá framleiðanda flugvélarinnar, CASA, tveir frá framleiðanda hreyflanna, Garr- et, yfirflugvirki eiganda flugvél- arinnar og einn fulltrúi Flug- málastjómar Spánar, en flugvél- in var framleidd á Spáni. Þessir menn luku störfum og fóm utan á laugardag. Ekki er búist við niðurstöðum af ofangreindum rannsóknum né lokaniðurstöðum um orsakir flugslyssins fyrr en að nokkrum vikum liðnum samkvæmt upplýs- ingum frá Flugmálastjóm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.