Morgunblaðið - 10.08.1988, Side 34

Morgunblaðið - 10.08.1988, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988 eftir Stefán Sæmundsson Hörmuleg flugslys Fyrir nokkrum dögum varð hörmulegt banaslys við flugvöllinn í Reykjavík, hið sjöunda síðan ís- lendingar tóku við flugvellinum af Bretum 1945. Margt er rætt og riíjað upp þeg- ar slíkir atburðir gerast, sem ekki er óeðlilegt. Oft er þó æsifréttum slegið upp í hita atburðarins, sem vekja ótta alls almennings á flugi og j)ví óþekkta við slysin. Ástæða er að reýa ögn stað- reyndir og líkindaspár sem snerta flug og flugslys svo hægt sé að leggja sem hlutlausast mat á hætt- ur og aðgerðir sem til vamar mega verða. Fjöldi flugslysa Á undanförnum árum hefur flug- slysum fjölgað á íslandi. Af því til- efni gerði öryggisnefnd Flugmála- félags íslands könnun á eðli og —-«rsökum slysa síðustu 15 árin. í ljós kom að slysum hafði ekki fjölgað miðað við aukningu flugs og fjölda flugvéla. Við stöndum okkur reyndar mjög vel miðað við nágrannaþjóðimar hvað slysatíðni snertir. Orsakir þriggja af sex áður- nefndum slysum á Reykjavíkurflug- velli, vom þær að gengið var í skrúfu flugvéla sem voru á ferð eða stóðu kyrrar á jörðu niðri, þannig að spurning er hvort telja eigi slíkt flugslys. Á þessum 43 árum urðu því þijú flugslys, eða u.þ.b. eitt u.þ.b. á fímmtán ára fresti. Orsakir flugslysa hafa annars breyst nokkuð. Áður fyrr voru bil- anir og óviðráðanlegar aðstæður algengari, en á síðari ámm hefur borið meira á mistökum flugmanna. Þetta bendir til þess að tækninni fleygi fram, en mannlegi þátturinn dragist aftur úr. Tilfinningamál og fjölmiðlar Flughræðsla er mjög algeng meðal farþega, enda er flugið okkur vængjalausum framandi fyrirbæri. Allt óþekkt veldur okkur meiri kvíða tpKlD var á tvo o- V í"du0 konu „/^andi iðbanaíbíl- lysi á Hrúta- ‘jarðarhálsi DW kona lést í bifreiðaralysi Hrútafiarðarhálsi laust eftir ..kkanlS í gær. Tveir voru nuttiráBjúkrahásiðáHvar^s- itanga en eru að sbgn \bgreg u Lkki taldir alvarlega stasaoir. en hitt sem við könnumst við, jafn- vel þótt hinu síðamefnda fylgi meiri áhætta. Heilsíða nægir vart undir fyrirsagnir blaða af flugslysum, en Sérblöð Á LAUGARDÖGUM Auglýsingar íLesbók með ferðablaði þurfa aðhafa borist auglýsingadeild fyrir kl. 16.00 á föstudögum, viku fyrir birtingu og ímenningarblaðið fyrir kl. 16.00 á miðvikudögum. '< fHmgniiMiifrtfr Y - bl^é allra landsmanna á sama tíma birtast stuttar, oft eins- dálka fréttir um sambærileg eða jafnvel enn hörmulegri bifreiðaslys. Enda þótt slíkt fréttamat sé skilj- anlegt frá sjónarhóli fjölmiðla þá verðum við að meta staðreyndir og gera okkur grein fyrir þeim hættum sem fylgja öllum okkar samgöngu- tækjum, og þá um leið hvaða áhætt- ur við sættum okkur við. Hættur I Reykjavík Margoft er rætt um það hverjar séu augljósustu hættur í umhverfí Reykjavíkur. Almannavamir hafa gert ítalegar áætlanir um viðbrögð við meiri hátt- ar náttúruhamförum, svo sem eld- gosum og jarðskjálftum. Þetta eru sem betur fer fremur sjaldgæf fyrir- brigði, og virðast ekki valda al- menningi vemlegum ótta. Oft er minnst á olíu- og gas- geymana sem em í Örfirisey og við Skeijafjörð. Nú nýlega hefur Áburðarverksmiðjuna í Gufunesi borið á góma vegna sprengihættu. Sú umræða virðist þó ekki rista mjög djúpt, því stöðugt er bætt við olíugeymum og ýmsum iðnaði með eldfím efni. Undanfarið hafa nokkuð opnast augu manna fyrir þeirri hættu sem hvað mannskæðust er, sem sé bfla- umferðinni á götum borgarinnar. En óttumst vð flugslys enn meir? Meginmáli skiptir því hvemig við metum áhættuna sem við tökum annars vegar sem farþegar í flug- vél og hins vegar sem vegfarendur á jörðu niðri. Flugvá Ef þú, lesandi góður, ætlar að ferðast milli tveggja staða á örugg- asta og fljótlegasta máta segja töl- umar okkur ótvírætt að flugið sé góður kostur, betri en bifreiðin. Skip og jámbrautalestir eru nokkru öruggari á vissum stöðum í heimin- um og fargjöldin eru þar að vísu ódýrari. En nú, þegar tíminn er sífellt talinn verðmætari, breytist einnig mat okkar á því hvað sé ódýrasta leiðin. Ef við erum fótgangandi eða akandi við flugvelli, kemur okkur varla til hugar að hræðast umferð- ina á jörðu niðri, sem þó er tiltölu- lega margfalt hættulegri en flugið og flugvélamar. Fyrir hveija þúsund farþega sem slasast í flugslysum eru líkur til að einn maður slasist á jörðu niðri af völdum flugs. Ennfremur að fyrir hveija 100.000 flugstundir eru líkur á að 30 farþegar slasist og 3 farist. Þetta þýðir, að fljúgum við einu sinni á ári til útlanda og mánaðar- lega innanlands, getum við átt von á því að deyja í flugslysi á tæplega 2000 ára fresti. í áætlunarflugi innanlands ferð- ast nú rúmlega 275.000 farþegar árlega í tæplega 9000 flugferðum. 30 manns eiga því á hættu að slas- ast á tíu ára fresti. Með sama líkindareikningi kom- umst við að því að ef innnanlands- flugið yrði flutt frá Reykjavíkur- flugvelli, gæti hugsast að takast mætti að bjarga einu mannslífí á jörðu niðri á 300 ára fresti. Ef takast ætti að bjarga þessu mannslífi á 300 ára fresti, yrði að vera vissa fyrir því að enginn slíkur maður yrði staddur á slysstað við þann flugvöll sem innanlandsflugið yrði flutt til. Hvað innanlandsflugið snertir, megum við ekki ætla andstæðing- um Reykjavíkurflugvallar það, að telja líf Reyknesinga ódýrari en Reykvíkinga í þessu tilliti. Að auki yrði svo að banna alla flugumferð yfír Reykjavík og ná- grenni allt árið um kring, til að vemda okkur fyrir flugvá, þótt áfram yrðum við að sætta okkur við sjóskaða og umferðarslys. Flugslys í miðborginni... Ef líkindahjólið snerist nú þann- Stefán Sæmundsson „Ef við erum fótgang- andi eða akandi við flugvelli, kemur okkur varla til hugar að hræð- ast umferðina á jörðu niðri, sem þó er tiltölu- lega margfalt hættu- legri en flugið og flug- vélarnar.“ ig, að flugslys yrði í miðri Reylq'avík, hversu alvarlegt er líklegt að það gæti orðið? Flestar flugvélar sem fara hér um eru frekar litlar. Gerum samt ráð fyrir því að meðalstór flugvél eins og sú sem fórst hér á dögun- um, lenti á húsi í miðbænum. Að öllum líkindum myndu þá 1—2 á jörðu niðri slasast eða jafti- vel farast, án tillits til þess hver afdrif farþega yrðu. Viðgerð á mannvirkjum gæti kostað tugi milljóna, sem þó skiptir minna máli en líf og heilsa. Byggingar á íslandi eru fastar fyrir, þannig að ekki er líklegt að skemmdir yrðu verulegar nema af bruna. Það sama gildir um slys á fólki, þar er eldurinn líka hættuleg- astur. Við gætum líka valið versta dæmið og bent á Menntaskólann eða Miðbæjarskólann í þessu sam- bandi, en það væri jafn langsótt og hitt að banna allt flug yfir Reykjavík 17. júní vegna slysa- hættu. Nýlega varð slys í Bandaríkjun- um, þegar orrustuþota flaug beint inn í anddyri hótels og sprakk. Flugmaðurinn lét lífið svo og tveir aðrir, dyravörðurinn og einn gestur. Skemmdir urðu all miklar, vegna þess að þotan lenti á við- kvæmum stað hússins. Ekkert í þessu lífí er algerlega fyrirsjáanlegt af líkum einu saman. Sumt er þó svo ólíklegt, eins og það að slys verði á versta stað og tíma, að við leyfum okkur að sleppa hér umræðu um slíka atburði. Flugvöllinn burt? Þegar við metum það öryggi sem við teljum okkur tryggja með því að leggja Reykjavíkurflugvöll niður, má ekki hjá líða að minnast á það öryggisleysi sem það myndi skapa. Reykjavík ætti þá engan sjúkra- völl lengur, og sjúkrahús borgarinn- ar mundu því nýtast landsmönnum illa í neyðartilvikum. í náttúruhamförum gætu íbúar höfuðborgarsvæðisins ekki treyst á flugið, því allur okkar flugfloti væri þá §arri. Ekki væri heldur hjálpar að vænta flugleiðina. Margt fleira mætti telja upp sem við yrðum að sætta okkur við, á móti því að auka lífslíkur eins Reyk- víkings á 300 ára fresti. Öryggið í fyrirrúmi Sé Reykjanesbraut látin bera

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.