Morgunblaðið - 10.08.1988, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 10.08.1988, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988 Kveðjuorð: 00 Steingrímur Orn Steingrímsson Fallegi, ljóshærði og bjarteygi drengurinn minn er dáinn, hér sit ég lömuð eftir þessa hörmulegu frétt. Ég og móðir hans erum búnar að vera góðar vinkonur til margra ára og höfum deilt saman bæði sorg og gleði. Hún hefur ekki farið varhluta af sorginni, misst bæði föður sinn sem var á besta aldri þegar hann dó og unnusta sem drukknaði fáum mánuðum eftir að þau höfðu opin- berað og núna sinn yngri son. Ég minnist Steina eins og hann var kallaður þegar hann flytur að Hellu á Rangárvöllum með móður sinni, þá 7—8 ára gamall. Settist hann á skólabekk í Helluskóla, en ekki gekk námið sem skyldi enda um margt annað að hugsa þegar maður er á þessum aldri. Þá sett- umst við niður vinimir við borð- stofuborðið heima hjá mér, en þar dvöldu þau mæðgin í skamman tíma og við tókum til við heimanámið. Kvöld eftir kvöld sátum við og lærð- um og lærðum þar til að árangur náðist og við unnum í sameiningu upp tapaðan tíma og námið fór að ganga betur. Á þessum stundum okkar vann hann hjarta mitt, hann var svo einlægur og fullur áhuga á öllu þessu flókna námsefni, hann þurfti sérstaka alúð, ást og um- hyggju enda uppskárum við erfiðið. Síðan þetta átti sér stað hef ég alltaf litið á hann sem einn af mínum sonum. Því miður skildu leiðir, ég var t Minningarathöfn um fósturmóöur okkar, INGIBJÖRGU HELGU GUÐMUNDSDÓTTUR fv. IjósmóAur, verður haldin í Litlu kapellunni í Fossvogi, föstudaginn 12. ágúst kl. 15.00. Jarösett veröur frá Kollafjaröarneskirkju laugardaginn 13. ágúst kl. 14.00. Fyrir hönd tengdadætra, barnabarna og systkina hinnar látnu, Ingi B. Jónasson, Kristján Jónasson. t Innilegar þakkir fyrir samúö og vinarhug viö andlát og jarðarför eiginkonu minnar, móöur, tengdamóöur og ömmu, GUÐLAUGAR SIGURJÓNSDÓTTUR. Ólafur Galti Kristjánsson, Ágústa Jónsdóttir, Guðmundur Reynisson, Kristján Ólafsson, Björg Árnadóttir Erla Olafsdóttir, Þorstelnn Daníelsson, Ólafur öm Ólafsson, Áslaug Alfreösdóttir og barnabörn. t Móöir okkar, HREFNA JÓHANNSDÓTTIR hjúkrunarforstjóri, Hrafnistu, Reykjavfk, veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 11. ágúst kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Krabbameins- félagið eöa Hrafnistu, Reykjavík. Kristfn Sverrisdóttir, Ambjörg Sverrisdóttir, Jóhann Sverrisson. t Þökkum af alhug auðsýnda samúö viö andlát og útför JÓNS BJÖRNSSONAR fyrrverandl innkaupastjóra, Hringbraut 87. Andviröi þakkarkorta hefur runnið í minningarsjóð Félags nýmasjúkra. Lára Guömundsdóttir, Ólafur Rafn Jónsson, Danlelle Somers, Gytfi Jónsson, Guörún Bergsveinsdóttir og barnabörn. t Þökkum innilega samúö og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, fööur, tengdaföður, afa og bróöur, MAGNÚSAR SIGURGEIRS ÞORGEIRSSONAR, Hafnagötu 12, Höfnum. Sigrföur Guömannsdóttir, Sigurrós Magnúsdóttir, Ólafur Sigurjónsson, Bára Magnúsdóttir, Eirfkur Skúlason, Þorgeröur Magnúsdóttir, Anna Magnúsdóttir, barnabörn, systklni og fjölskyldur. áfram á Suðurlandi en hann á Aust- urlandi og þar af leiðandi voru sam- skiptin ekki sem skyldi, en ég og móðir hans höfðum alltaf símasam- band, að vísu alltof sjaldan en eftir þeim fréttum sem ég hafði af hon- um virtist honum famast vel, en þá skeður þessi hörmulegi atburð- ur, kannski vegna þess að þeir deyja ungir sem guðimir elska, hver veit? Ég vona að það hafí verið tekið vel á móti honum hinumegin og honum megi Iíða vel með Hauki afa sínum og fleiri ástvinum sem gengnir em. Elsku Esther mín, þú hefur misst mikið og ég bið algóðan Guð að blessa þig og styrkja í sorg þinni og megi minningin um góðan son verða þér til halds og trausts. Ég vil einnig senda föður hans, systur, bróður svo og öðmm ástvinum mínar innilegustu samúðarkveðj ur. Megi vinurinn minn hvfla í friði. Láms, Egill, Hössi og Svansi biðja fyrir hinstu kveðju. Raggey Guðjóna Páls- dóttir-Minning Síminn hringdi! Hún Guðjóna er dáin! Friður sé með henni. Hun var búin að vera lengi veik og var orð- in þreytt. Gauja var fædd 28. júlí 1932 og var því rétt 56 ára, sem manni fínnst nú ekki mikill aldur. Hún var dóttir hjónanna Mar- grétar Jónsdóttur, sem lést 1. des- ember 1983, og Páls Gíslasonar fyrrum vömbifreiðastjóra á Þrótti og lifir hann dóttur sína, nýlega áttatíu og fímm ára gamall. Gauja var næst elst bama þeirra, sem vom fímm að tölu. Én þau em Sigríður, Guðjóna, Kári, Stefán og Páll. Hún giftist Þóri E. Magnússyni flugumferðarstjóra 11. október 1958 og áttu þau tvær dætur, Margréti, fædda 20. mars 1959, gift Jóhanni Sigurdórssyni, og Sól- veigu fædda 28. september 1960, unnusti hennar er Sigurður Á. Kristinsson. Fyrir átti Guðjóna son, Jón Sævar Gunnarsson, fæddan 12. aprfl 1953, en hann lést af slys- fömm ásamt unnustu sinni þann 17. júní 1977 og var það ijölskyld- unni mikið áfall. Þórir og Gauja skildu fyrir nokkr- um ámm og fluttist hún þá að Selj- alandi 7 þar sem heimili hennar stóð siðan. Bamabömin tvö vom yndi hennar og ánægja enda stutt að fara þar sem Margrét dóttir hennar bjó' í sama húsi ásamt fjöl- skyldu sinni. Gauja systir átti lengi við van- heilsu að stríða og í desember sl. fór hún í stóra aðgerð, en það dugði ekki til. Þessi skelfílegi sjúkdómur ' / leiddi hana til dauða röskum sjö mánuðum síðar. Hún sagði við mig eitt sinn er ég heimsótti hana á spítalann: „Ég svaf ekki mikið í nótt, en ég bað til Guðs. Ef ég á að deyja vona ég að hann taki mig fljótt." Gauja systir var mjög trúuð kona og leitaði mikið til Guðs og fann styrk í bæn til hans sem öllu ræður. Nú er lífsstríði hennar lokið og var hún lögð til hinstu hvflu við hlið sonar síns í Fossvogskirkju- garði þann 5. ágúst sl. Hvfli hún í Guðs friði. Sigga systir Kveðjuorð: Oskar Olafsson frá Söðulsholti Fæddur 7. aprfl 1907 Dáinn 7. júlí 1988 Andlát þessa vinar míns kom mér ekki á óvart, aðdragandinn var slíkur. Eftir mikið og farsælt æfístarf kom hvíldin og hver er ekki henni feginn. Óskar var mað- ur alls þess sem hefír kosti í lífinu, hjálparhönd hans og hlýja brást aldrei og það fékk ég og ljölskylda mín að reyna. Það var undarlegt hversu óskar gat afrekað miklu og gert allt vel og það oft ekki heill heilsu. Samviskusemin jók honum kraft og kjörorð hans að bregðast ekki var honum sá afl- gjafí að hann entist alla æfí og litríka. Það er víst að hafí nokkur skarað fram úr þjónustu í þessum fallvalta heimi, þá er Óskar ekki langt þar frá. Honum kynntist ég snemma á mínum starfsferli á Snæfellsnesi og þegar ég stóð í byggingarframkvæmdum í upp- Blóma-og 9 skreyíingaþjónusta C/ ™ hvertsem tiléfniðer. GLÆSIBLÓMIÐ GLÆSIBÆ, ^ Álfhcimum 74. sími 84200 hafí búskapar lagði hann þar að sína tryggu og öryggu hjálpar- hönd. Við vorum báðir ánægðir að verki loknu og alla samleið okkar fannst mér ég vera í svo mikilli skuld við Óskar og ijöl- skyldu hans að sú skuld yrði aldr- ei greidd. Óskar var ekki hávaðamaður í lífínu. En þeim mun meiri alvöru- maður og þjóðvísari mann gat ekki. Sveitin hans, uppvaxtar- og þroskastaður hans var honum kær og átthagaböndin alltaf ofarlega. Oskar var listamaður að eðli. Á seinni árum sá ég hann mála myndir sem hefðu vakið athygli á hvaða málverkasýningu sem var. Ég heyrði hann leika á orgel og þótt hendur hans hafí meira hald- ið á hamri og sög gátu þær gefíð þá tóna úr hljóðfærinu sem veittu sérstaka endumæringu og því var oft flúið í orgelið að loknu verki. Þar var hin sanna hvfld hugans. óskar var framúrskarandi hús- bóndahollur og vann allt af alúð. Þannig var saga þeirra sem hans minntust í daglegri önn og þess nutu margir. Óskar var hamingju- samur maður. Hann eignaðist sterkan og góðan lífsförunaut, Kristínu Þórðardóttur frá Mið- hrauni, sem alla tíð studdi hann með ráðum og dáð. Heimili þeirra og hinn fagri garður í Hveragerði verður okkur minnisstæður og hinn andlegi gróðurreitur lífs þeirra var ennþá fegurri og til eftirbreytni. Og hvemig hún Kristín reyndist honum til seinustu stundar verður ekki rifjað upp hér, en það var athyglisvert. Þau eignuðust myndarleg og dugleg böm og niðjareitur þeirra er mik- ill, bæði að stærð og verðmætum. Óskar átti oft við vanheilsu að stríða. Hann varð eins og aðrir fyrir stómm áföllum og jafnvel þegar hann og þau á hörmulegan hátt misstu elstu dóttur sína á sviplegan hátt, sást vel hvert þau sóttu styrk. Það var eftirtektar- vert. Við stöndum í mikilli þakkar- skuld við Óskar og hans fólk og það vil ég af heilum hug þakka. Og eitt er víst að hann fer aldrei úr mínum huga og þeir gleðigeisl- ar sem þau hjónin veittu mínu lífi. Að koma til þeirra var eins og að koma úr regni í sól. Vissulega sakna ég hans þótt ég hafí unnað honum hvíldar og nýrra verkefna á landi lifenda þar sem ég bið honum blessunar guðs, en myndir og minningar fylla hug- ann um þjóðvísan þegn sem vann landi og þjóð meðan kraftar ent- ust, já og oft varð að taka á meira en góðu hófí gegndi. Slíkra er gott að minnast. Og um leið og þakkir em endur- teknar bið ég ástvinum hans allrar blessunar og sendi þeim samúðar- kveðjur. Guð blessi minningu hans. Ámi Helgason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.