Morgunblaðið - 10.08.1988, Page 44
44
MORGUNBLAÐH) IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988
KNATTSPYRNA STULKNA / GULL & SILFUR MOTIÐ
LiAln sem ióku tll úrsllta í 3. flokki. Breiðablik, sem sigraði er í fremri röðinni, og KR-stúlkumar em fyrir aftan. Morgunblaðið/Þortell
Tvöfaldur Breiðablikssigur
Um 300 stúlkurtóku þátt í keppninni
Breiðabliksstúlkurnar sigruðu
-^tvöfalt á Gull & Silfur mótinu
sem haldið var á Smára-
hvammsvellinum í Kópavogi
um síðustu helgi, 6. og 7.
ágúst. Keppendur voru yfir 300
stúlkur f rá 16 íþróttafélögum
víðs vegar um landið. Er þetta
fjölmennasta kvennaknatt-
spyrnumót sem haldið hefur
verið hér landi. Þar að auki var
þetta í fyrsta skipti sem keppt
er í 4. flokki kvenna á íslandi.
Keppnin hófst á laugardags-
morguninn og var keppt í fjór-
um riðlum í 3. flokki en einum í
4. flokki. Leikið var á fjórum völlum
samtímis og var þvi
Andrés mikið um vera í
Pétursson Kópavoginum. Þótt
skrifar veðrið hefði ekki
leikið við keppendur
og skipuleggjendur þá lét enginn
það á sig fá. Áhuginn hjá þessum
ungu keppnisstúlkum var ódrepandi
og var gaman að fylgjast með hve
mikill fjöldi foreldra fylgdi liðunum
að þessu sinni.
Blaðamaðurinn hefur haft tæki-
færi að fylgjast með þessu móti í
þau fjögur ár sem það hefur verið
•vhaldið og það er ótrúlegt hve mikl-
um framförum kvennaknattspym-
an hefur tekið á þessum tíma. Sum-
ar stúlknanna eru að taka þátt í
sínu fjórða móti og ekki, er hægt
að líkja saman meðaltalsgetu kepp-
enda nú og svo fyrir fjórum árum
— framfarimar eru ótrúlegar.
Þetta er í fyrsta skipti sem keppt
er í 4. flokki og voru yngstu kepp-
endumir þar einungis sjö ára gaml-
ar. Þótt getan hefði ekki verið mik-
il hjá mörgum keppendum þá voru
^ þama nokkrar stúlkur sem auðveld-
'lega hefðu getað spilað með
3.flokki. Fjögur lið tóku þátt í mót-
mu í 4. flokki og báru tvö lið nokk-
uð af, Breiðablik og Akranes. Hauk-
ar og Grindavík sendu líka lið og
stóðu þær stúlkur sig líka vel en
mættu ofjörlum sínum sem hin
gamalgrónu kvennalið Breiðablik
■vog Akranes vom. En þáttaka þess-
ara nýju liða lofar góðu um ungl-
ingastarf hjá þeim. Leikin var tvö-
föld umferð, allir við alla, og eftir
fyrri keppnisdag voru ÍA og Breiða-
blik efst og jöfn, eftir að hafa gert
jafntefli 2:2. Síðari keppnisdaginn
tókst Breiðablik að sigra 1:0 í jöfn-
um og spennandileik. Þar með stóð
Breiðablik uppi sem sigurvegari í
4. flokki á þessu móti.
Jöfn og spennandi keppni í 3.
fMdd
Keppnin í 3. flokki var jöfn og
spennandi. Fyrirfram vom lið KR,
Breiðabliks, Týs, ÍA, ÍBK og Vals
talin sigurstranglegust. Það reynd-
ist líka raunin og var mikil spenna
í riðlakeppninni. í öðrum riðlinum
börðust Týr, KR og ÍBK um að
komast í úrslitakeppnina en í hinum
leiddu saman hesta sína Valur og
Breiðablik.
Breiðablik sigraði Val 2:1 í jöfn-
um og spennandi leik í undanúrslit-
um og var þar með komið í úrslita-
leikinn. Keppnin var æsispennandi
í hinum riðlinum og að lokum komst
KR í úrslit á betra markahlutfalli
en ÍBK. Þar vom því lið Breiðabliks
og KR sem spiluðu til úrslita á
Gull&Silfur mótinu, en lið Vals og
ÍBK léku og 3. og 4. sætið. Breiða-
blik sigraði síðan KR 1:0 í úrslita-
leiknum og Valur sigraði ÍBK 4:2
í leik um 3. og 4. sætið, en nánar
er fjallað um úrslitaleiki á öðmm
stað á síðunni.
Framkvæmd mótsins var í hönd-
um Breiðabliks og verslunarinnar
Gull&Silfur og var allt skipulag
þeim til mikils sóma. Bæjarstjóm
Kópavogs studdi við bakið á mótinu
með því að leggja til alla aðstöðu
og þar að auki buðu þeir keppendum
upp á kvöldverð á laugardagskveld-
inu. Eftir að mótinu lauk var öllum
keppendum boðið upp á Hi-C og
Tommahamborgara.
Þetta er í Ijórða skiptið sem
Gull&Silfur mótið er haldið og sýn-
ir hinn sívaxandi fjöldi keppenda
ár frá ári hinn aukna áhuga á
kvennaknattspymu. A fyrsta mót-
inu vom keppendur 60 en nú yfir
300 þannig að unnendur og að-
standendur kvennaknattspymu
þurfa engu að kvíða fyrir framtíð-
inni.
Mikil
lyftistöng
fyrir
knatt-
spymu
kvenna
- segirUnnur
María Þorvalds-
dóttir leikmaður
3. flokks
ÞAÐ kom vfst fæstum á óvart
að Unnur María Þorvalds-
dóttir var valinn besti leik-
maður 3. flokks á Gull&Silfur
mótinu annað árið í röð. Valið
fer þannig fram að þjálfarar
allra liða sem þátt taka f
mótinu velja einn leikmann
sem þeir telja að hafi skarað
fram úr. Annað árið í röð varð
Unnur Marfa, varnarmaður-
inn sterkí úr Breiðablik, valin
best.
Unnur hefur nú tekið þátt í
öllum Gull&Silfur mótunum,
fjórum að tölu. Hún var að vonum
ánægt með titilinn, enda hafði lið
hennar sigrað á mótinu í þriðja
skiptið. Unnur sagði það mjög
ánægjulegt að sífellt fjölgaði þeim
liðum sem tæku þátt í þessu móti.
„Mótið er mikil lyftistöng fyrir
kvennaknattspymuna. Stelpumar
í Breiðabliki hlakka til mótsins
allt sumarið og nú er gaman að
þær yngri fá að spreyta sig fyrr
með 4. flokki.“
Hún sagði það erfitt að segja
hvort mótið væri erfiðara nú en
áður. „Hjá Kefivíkingum vantaði
nokkrar stelpur og þær vom því
ekki eins sterkar og í fyrra. Á
Morgunblaðið/Andrés
Unnur Marfa Þorvaldsdóttlr úr Breiðabliki sem var kjörinn besti leik-
maður mótsins 1 3. flokki.
móti kemur að KR liðið er sterk-
ara en í fyrra og Valsmenn komu
á óvart með góðu Iiði,“ sagði
Unnur María.
Spumingunni hvort hún hefði
sett sér markmið með knattspym-
unni svaraði hún þannig að hún
ætlaði að halda áfram að æfa vel
og tryggja sér sæti í meistara-
flokki Breiðabliks á næstu ámm.