Morgunblaðið - 10.08.1988, Síða 45
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR MDÐVKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988
V
45
Breiðabnk lagði
KR í hörkulelk
BREIÐABLIK og KR, tvö bestu
iiðin á þessu Gull&Silfur móti,
mættust í úrslitum að þessu
sinni. Þessi lið hafa oft eldað
grátt silfur saman í stúlkna-
knattspyrnu og á þessu varð
engin undantekning. Breiða-
blik stóð uppi sem sigurvegari
og það var markamaskínan
mikla Hrafnhildur Gunnlaugs-
dóttir sem tryggði liði sínu sig-
ur með góðu marki undir lok
leiksins.
Leikurinn byijaði frekar rólega
og virtust stúlkumar í báðum
liðum vera frekar taugaóstyrkar.
Baráttan um boltann var því mest
á miðju vallarins og þegar upp að
vömunum kom var engin áhætta
tekin. Unnur María í vöminni hjá
Breiðablik var örugg og hleypti
engir í gegn.
Sara Smart, besti leikmaður KR,
gerði þeim þó oft skráveifu í vöm-
inni en inn vildi boltinn ekki. Hinu
megin var Kristín Jónsdóttir mark-
vörður KR öryggið uppmálað og
hirti alla bolta sem að teignum
komu.
Flestir vom nú famir að bíða
eftir framlengingunni þegar sigur-
markið kom. Hár bolti barst inn að
KR vöminni og vamarmennimir
náðu ekki að stýra boltanum til
Kristínar í markinu. Hrafnhildur
Gunnlaugsdóttir kom þá eins og
eimreið og náði að rífa sig í gegnum
vömina með miklu harðfylgi og
skora með föstu skoti í KR markið.
Fögnuður Blikastúlknanna var því
mikill enda vom þær flestar famar
að kvíða framlengingu.
Bæði KR og Breiðablik spila
mjög skemmtilega knattspymu og
em margar mjög góðar knattspym-
ustúlkur þar inn á milli. Ef rétt er
á málum haldið hjá þessum félögum
er líklegt að þessar stúlkur muni
beijast um íslandsmeistaratiltil í
meistaraflokki innan fárra ára.
Bestar hjá KR vom þær Sara
Smart og Kristín í markinu og verð-
ur hún ekki sökuð um markið. Hjá
Breiðablik var Unnur María góð í
vöminni og Hrafnhildur var ógn-
andi í sókninni enda varð hún
markahæsta manneskjan í mótinu.
Þess má geta að faðir hennar er
hinn lipri knattspymumaður Gunn-
laugur Helgason, sem gerði garðinn
frægan hjá Breiðablik um árabil
Morgunblaðið/Andrés
Hart barist f leik ÍA og Hauka á GuII&Silfurmótinu í Kópavogi um síðustu
helgi.
Morgunblaðið/Andreá
Liöln sem léku um þriðja og flórða sætið. Valsstúlkumar, sem sigmðu, em f
fremri röðinni en stúlkumar úr Keflavík em fyrir aftan.
Viðurkenningin
komméráóvart
- segir Katrín Jónsdóttir sem valin
var besti leikmaður 4. flokks
KATRÍN Jónsdóttir var valin
besti leikmaðurinn í 4. flokki
kvenna. Hún varð þar að auki
sú markahæsta og skoraði
hvorki meira né minna en 24
mörk í 6 leikjum, eða 4 mörk
að meðaltaii í leik. Katrín er 11
ára gömul og hefur spilað
knattspyrnu í fjögur ár. Hún
vakti athygli fyrir góða bolta-
tækni og óeigingjarnan leik.
Það kom iðullega fyrir að hún
gaf boltann á samherja í stað
þess að reyna að skora sjálf.
Við ræddum aðeins við þess
snjöllu knattspyrnustúlku.
Eg hef búið síðustu flögur ár í
Noregi með foreldmm mínum
[faðir hennar Jón Óttar Karlsson
er aðstoðarþjálfari meistaraflokks
Breiðabliks. Innskot blm.] Þar bauð
vinkona mín mér að koma á knatt-
spymuæfíngu og þá fékk í fótbolta-
bakteríuna."
„Það kom mér á óvart að vera
valinn besti leikmaðurinn á þessu
móti, en það var ánægjuleg viður-
kenning. Ég stunda ekki neinar
aðrar íþróttir, enda er ágætt að
einbeita sér að einni íþróttagrein. í
Noregi er kvennaknattspyrnan á
mun hærra plani en hér á íslandi.
Hinsvegar er gott starf unnið fyrir
stelpumar hjá Breiðablik og gaman
að vera með besta liðinu í þessum
aldursflokki."
Þar með var Katrín Jónsdóttir
rokin til hinna stúlknanna f liðinu
sem biðu spenntar að skoða marka-
drottningarbikarinn og bikarinn
fyrir að vera valin besti leikmaður
Gull&Silfur mótsins 1988.
Gull & SilfurmótlA
Úrslitalcikir;
I. -2. UBK-KR.......................1:0
3.-4. Valur-ÍBK.....................4:2
5.-6. Aftureld.-Týr.................0:2
7.-8. ÍA-KA.........................2:0
9.-10. Reynir-Tindastóll............0:0
II. -12. Stjaman-Haukar.............2:2
13.-14. Grindavík-FH................3:0
15.-16. Þór-UBKb....................6:0
Lokastaða í 3.flokki:
1. Breiðablik, 2. KR, 3. Valur, 4. ÍBK, 5.
Týr, 6. Afturelding, 7. ÍA, 8. KA, 9.-10.
Reynir og Tindastóll, 11.-12 Stjaman og
Haukar, 13. Grindavfk, 14. FH, 15. Þór,
16. UBKb (kom í stað Fyikis sem mætti
ekki til leiks).
Lokastaða f 4. flokki:
1. Breiðablik, 2. ÍA, 3. Grindavfk, 4. Haukar.
Besti leikmaður:
Unnur María Þorvaldsdóttir UBK 3.fl. og
Hrafnhildur Gunnlaugsdóttir UBK 4. fl.
Markadrottningar:
Katrín Jónsdóttir UBK 4.fl. og Katrín Jóns-
dóttir UBK.
Morgunblaðiö/Andrés
Katrín Jónsdóttlr úr Breiðabliki var valin besti leikmaður í 4. fíokki og sést
hér með viðurkenningu sem hún hlaut af þvf tilefni.
Þrumu-'
mark
Elínar
tryggdi.
Val 3.
sætið
Valursigraði
ÍBK 4:2
ÞAÐ voru liö Vals og ÍBK
sem spiluðu um þriöja og
fjórða sætið. Bæði liðin
höfðu naumlega misst af
úrslitaleiknum, Valur tapaði
2:1 fyrir Breiðablik og ÍBK
missti af úrslitum vegna m'
þess að þær höfðu lakara
markahlutfall en KR. Leikur
ÍBK og Vals var jafn og
spennandi og þurfti að
framlengja hann til að knýja
fram úrslit.
Keflvíkingamir virkuðu
sterkari í byijun og virtust
ætla að vinna öruggan sigur.
Það var besti leikmaður þeirra,
Olga Færseth, sem skoraði
fyrsta markið í leiknum. En
Valsmenn hresstust og þeirra
besti leikmaður Berglind Jóns-
dóttir jafnaði leikinn fyrir leik-
hlé. ^
ÍBK hélt áfram að sækja og
Sunna Sigurðardóttir bætti við
öðru marki. Nú héldu flestir
áhorfendur að bjöminn væri
unninn fyrir Suðumesjastúlk-
umar, en þær rauðklæddu vom
á annari skoðun. Berglind Jóns-
dóttir bætti við öðru marki sínu
og því þurfti að framlengja.
í framlengingunni virtist allur
vindur úr IBK-stúlkunum og
Valsmenn gengu á lagið. Olga
Stefánsdóttir skoraði ágætt
mark í fyrri hluta framlenging-
arinnar, en það var síðan Elín *
Gunnarsdóttir sem skoraði fall-
egasta mark Gull&Silfur móts-
ins 1988. Hún fékk boltann rétt
fyrir innan miðlínu, lék nokkur
skref og lét síðan þrumuskot
ríða af, sem þandi netmöskvana
í vinklinum á Keflavíkurmark-
inu. Þar með höfðu Valsstúlk-
umar tryggt sér þriðja sætið á
mótinu.