Morgunblaðið - 10.08.1988, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞROTTIR
MIÐVIKUDAGUR 10. AGUST 1988
I
(„»
Þessl boltl ætti að sjást á grænu
grasinu.
Hvaða
bolti er
bestur?
Það er kunnara en frá þurfí
að segja að leikmenn taka
oft miklu ástfóstri við ákveðnar
boltategundir. í dag eru til
margir góðir boltar, en að sjálf-
sögðu misgóðir, enda kemur
fyrir að leikmenn eru ekki án-
ægðir með þá sem notaðir eru
hveiju sinni. í flestum tilfellum
getur dómarinn lítið gert þar
sem hann hefur aðeins um eina
tegund að velja. Það er dómar-
inn einn sem úrskurðar um það,
hvort boltinn sem iagður er til
leiks, sé í samræmi við lög. Þeg-
ar leikið er á grasi er alltaf not-
aður hvítur bolti, en við aðrar
aðstæður, til dæmis þegar snjór
er yfír leikvanginum, er notast
við dökkan bolta þannig að
knötturinn sé alltaf áberandi. -
Það gerðist fyrir nokkrum
árum í einu Afríkulandi, þar sem
fara átti fram landsleikur, að
sendiboði forseta landsins, kom
til dómarans rétt fyrir leikinn
og afhenti honum fallegan bolta
sem hann sagði að væri frá sjálf-
um forsetanum, og hann óskaði
eftir því að leikið væri með þess-
um bolta. En það var einn galli
við þessa góðu gjöf frá forsetan-
um — boltinn var fagurgrænn!
Dómarinn tjáði sendiboðanum
að því miður væri ekki hægt að
nota knöttinn þar sem hann
væri samlitur vellinum. Sendi-
boðinn neitaði að hlusta á þessa
athugasemd dómarans, það yrði
að leika með þessum bolta, ann-
að væri móðgun við forsetann.
Þá datt dómaranum snjallræði
í hug. Hann fór með boltann til
búningsherbergja liðanna og
bað leikmennina að rita nöfn sín
á hann. Síðan lét hann kalla á
forsetann sem var mættur á
völlinn og sagði honum að þar
sem boltinn væri svo fallegur
vildu leikmennimir árita hann
með sérstakri kveðju til forset-
ans. Forsetinn var mjög ánægð-
ur með þetta. Fór síðan leikurinn
fram, og var leikið með hvítum
bolta. Já, þau eru mörg vanda-
málin sem dómarar standa
frammi fyrir.
Með dómarakveðju,
Guðmundur Haraldsson.
HANDKNATTLEIKUR / C ÞJALFARANAMSKEIÐ
Góður efniviður
í þjálfara hér
- segir Jóhann Ingi Gunnarsson
FYRSTA c-stigs þjálfaranám-
skeið í handknattleik hér á
landi verður haldið nœstu
daga. Námskeiðið hefst á
föstudag og stendur yfir þar
til um aðra helgi.
eð þessu er verið að fram:
fylgja stefnumörkun HSÍ
um að þjálfarar verði að hafa
ákveðna menntun til að fá að
þjálfa lið í efstu deildum. Það er
stefnt að því að þannig verði
ástandið fljótlega," sagði Jóhann
Ingi Gunnarsson í samtali við
Morgunblaðið en hann leiðbeinir
á námskeiðinu ásamt Vestur Þjóð-
verjanum Dietrich Spáte. Fyrst í
röð slíkra þjálfaranámskeiða eru
A-námskeið. Hér á landi hafa
verið haldin tvö B-námskeið, nú
C, og eftir það eru menn komnir
langt í pýramídanum, en D-stig
er það hæsta sem til er.
Námskeiðið
Kennslan á námskeiðinu verður
byggð á mikilli „handboltamöppu“
sem Jóhann og Spáte hafa unnið
fyrir HSÍ. Stærsti þáttur nám-
skeiðsins verður verklegur, að
sögn Jóhanns Inga, fylgst verður
með þjálfun B-landsliðsins fyrir
Flugleiðamótið og síðan verður
síðasti hlutinn einmitt leikgrein-
ing á leik B-liðsins gegn Tékkum
á mótinu. Framhald verður síðan
á námskeiðinu síðar og lýkur því
þá með prófí, verklegu, munnlegu
og skriflegu.
í fyrmefndri „handbolta-
rnöppu" koma höfundar fram með
„þær hugmyndir í þjálfun sem eru
ofan á í dag,“ eins og Jóhann
orðaði það — „og ætlum við að
reyna að fá menn til að hugsa
málin vel og mynda eigin stíl út
frá því sem þeir kynnast. Efnivið-
ur í þjálfara hér á landi er góður.
Það er mikið um að fyrrverandi
leikmenn fari að þjálfa og auðvit-
að er gott að nota allt það góða
sem þeir lærðu hjá eigin þjálfurum
í gegnum tíðina en mér finnst
menn samt vanta kjark til að
byggja upp eigin stíl,“ sagði Jó-
hann.
KNATTSPYRNA / NOREGUR
Teitur fast-
uri
ÞRÁTT fyrir sífelldar ófarir
Brann liðsins í norsku fyrstu
deildinni, virðist þjálfarinn
Teitur Þórðarson sitja nokkuð
fastur í sessi. Það er bæði á
leikmönnum og aðstandendum
liðsins að heyra að ekki sé við
þjálfarann að sakast heldur sé
áhuga- og einbeitingarleysi
einstakra leikmanna nærtæk-
ari orsök.
Það er engin uppgjöf í okkur,
heldur fínnum við nú smátt og
smátt árangur æfínga sumarsins
koma í ljós. Við erum í átta liða
ÍHénrn
FOLK
■ FYRIRLIÐI knattspymufé-
lagsins fræga Barcelona frá Spáni,
Jose Ramon Alexanco Ventosa
lenti heldur betur í klónum á réttví-
sinni fyrir helgi er hann var sakað-
ur um að hafa nauðgað 18 ára
gamalli þjónustustúlku á hóteli í
Hollandi meðan liðið var þar statt
á æfíngaferðalagi. Ventosa bar
hins vegar allar sakir af sér fyrir
rétti í fyrradag, en hann á yfir
höfði sér 12 ára fangelsisdóm ef
hann reynist sekur. Rannsókn máls-
ins er ekki lokið og er Ventosa nú
í 6 daga gæsluvarðhaldi.
■ OPNA hjóna- og parakeppnin
verður haldin hjá Golfklúbbi Vest-
mannaeyja á laugardaginn, 13.
ágúst og hefst kl. 13.00. Keppnis-
fyrirkomulag verður þannig að
anna hvort pútti aðeins annar aðil-
inn eða þá að slegið sé til skiptis.
Þátttakendur mega aðeins hjón eða
par í sambúð. Skráning stendur til
kl. 21 á fóstudaginn í golfskálanum.
Frá Sigurjóni
Einarssyni
í Noregi
úrslitum bikarsins
og eram ekki enn
fallnir í 2. deild, og
þangað ætlum við
1 okkur ekki“, sagði
einn lykilmanna Brann.
Eitt er víst að Teitur Þórðarson
lofaði Brann stjóminni engum titl-
um þegar hann hóf starf sitt. Teit-
ur og aðstandendur liðsins vita
einnig að viss óstjóm hjá Brann lið-
inu undanfarin ár er að hluta til
orsök þess hvemig komið er nú.
Betran og lagfæringar taka sinn
tíma og kosta vinnu og að því er
stefnt í Bergen um þessar mundir.
Töp hjá Is-
lendingunum
ílMoregi
Islendingaliðin Moss og Brann
töpuðu bæði leikjum sínum í
14. umferð norsku fyrstu deild-
arinnar. Moss tapaði 1:2 gegn
Tromsö heima í Moss og Brann
tapaði gegn Molde á útivelli,
2:0. Brann er þar með enn í
bullandi fallbaráttu og Moss
virðist vera að gefa eftir í topp-
slagnum.
Onnur úrslit í 14. umferðinni
urðu sem hér segir:
Sogndal-Bryne.........3:2
Strömmen-Djerv 1919...5:0
Kongsvonger-Lilleström.0:0
V alerengen-Rosenborg..0:0
Jóhann Ingi Gunnarsson.
Dietrlch Spate
Þjóðveijinn sem kennir með Jó-
hanni Inga er „annálaður fyrir að
hafa fylgst með alþjóðahandbolta
í langan tíma og á öllum stórmót-
um undanfarin ár hefur hann
„kortlagt" allar þær nýjungar sem
komið hafa fram í íþróttinni
hveiju sinni og skrifað mikið um
þær. Hann vinnur mikið fyrir IHF
og verður einmitt á þess vegum
á Ólympíuleikunum," sagði Jó-
hann Ingi. Þess má geta að Spáte
er aðalritstjóri hjá fyrirtæki sem
gefur út allt helsta þjálfaraefni í
Vestur-Þýskalandi, í öllum
íþróttagreinum.
^0
Morgunblaðiö/Skapti
Teítur Þórðarson.
íHémR
FOLK
■ ANDREAS Thom var valinn
knattspymumaður ársins í A-
ÞýzkaJandi af þekktu knattspyrn-
utímariti þar austur frá. Thom
varð markahæstur leikmanna í
austur-þýzku 1. deildinni síðasta
keppnistímabil. Hann leikur með
liðinu Dynamo Berlín, sem varð
austur-þýzkur meistari í vor. Nýtt
keppnistímabil hefst í landinu á
laugardag.
H DON Peters, yfirþjálfari banda-
risku keppendanna í fímleikum á
ÓL, hefur sagt af sér til þess að
Bela Karolyi geti tekið við stöðu
hans. Bela Karolyi, sem er rúm-
enskur flóttamaður, þjálfaði á
sínum tíma Nadiu Comaneci og
einnig Mary Lou Ritton. Honum
var ekki ætlað að þjálfa á ÓL í
Seoul en eftir að glæsilegan árang-
ur nemenda hans um síðustu helgi
þótti ekki stætt á öðra.
H BREZKA fijálsíþróttasam-
bandið hefur hefur ítrekað, að Se-
bastian Coe hafi ekki verið valinn
í ólympiulið Breta vegna þess að
hann hafí einfaldlega ekki staðið
sig nógu vel á hlaupabrautinni á
brezka úrtökumótinu um helgina.
Sambandið harðneitaði ásökunum
föður Coes þess efnis, að Coe hefði
ekki verið valinn af „pólitískum
ástæðum".
H HAFÞÓR Kolbeinsson, KS,
sem fékk umdeilt rautt spjald í leik
gegn FH í síðustu viku, hefur verið
dæmdur í eins leiks bann. Hann
verður því ekki með liði KS gegn
IR á laugardag.
H HIÐ árlega opna ESSO-
VOLVO golfmót fer fram á Hlíða-
rendavelli við Sauðárkrók dagana
13. og 14. ágúst. Leiknar verða 36
holur í flokkum karla, kvenna og
unglinga með og án forgjafar.
Glæsileg verðlaun verða í boði. Tek-
ið er á móti þátttökutilkynningum
í símum 95-5012 og 95-5714.
H OPNA Ólafsvíkurmótið í
golfi verður haldið á Fróðárvelli
laugardaginn 13. ágúst og hefst
kl.l0:00. Leiknar verða 18 holur
með og án forgjafar. Það er Golf-
klúbburinn Jökull, sem heldur
mótið. Skráning fer fram á föstudag
frá kl. 18:00 í síma 93-61106.
H BORGAR YFIR VÖLD í
Tórínó hafa tilkynnt stjómum Ju-
ventus og Tórínó að félögin geti
ekki notað knattspymuvöllinn
Stadio Comunale fyrstu tíu dag-
ana í september. 3. september mun
Jóhannes Páll II páfí heimsækja
borgina og flytja ræðu á knatt-
spymuvellinum, en þann sama dag
var fyrirhugaður leikur Juve og
Veróna í Tórínó. Leikurinn verður
því að fara fram í annarri borg, en
ekki hefur enn verið ákveðið hvar.
31. ágúst átti Tórínó að leika á
heimavelli á móti Cesena, en sá
leikur verður einnig að fara fram
annars staðar. 8. september verða
haldnir tónleikarnir „Human right
now“ þar sem ýmsir frægir lista-
menn koma fram í góðgerðarskyni.
Tónleikamir verða á knattspyrnu-
vellinum og er gert ráð fyrir að
völlurinn þurfí að minnsta kosti tvo
daga til að ,jafna sig eftir tónleik-
anna.“ Þess má geta að hljómsveit-
in Pink Floyd hélt tónleika á knatt-
spymuvellinum í Tórínó fyrr í sum-
ar og var völlurinn afar illa farinn
eftir þá tónleika, þar sem megin-
hluti áhorfenda sat á grasfletinum
klukkutímum saman.
VINATTULANDSLEIKUR
Jafnt hjá Noregi og Búlgaríu
Knattspymulandslið Búlgara
kom við í Osló í gærkvöldi á
heimleið sinni frá Reykjavík og
mætti Norðmönnum í vináttulands-
leik. Leiknum lyktaði með jafntefli,
1:1.
Göran Sorlot frá Rosenborg skor-
aði fyrir Norðmenn þegar á 2.
mínútu. Heimamenn, sem stilltu
átta atvinnumönnum upp í liði sínu,
léku mjög vel í fyrri hálfleik, en
Búlgarir virkuðu hins vegar þreytt-
ir. En dæmið snérist heldur betur
við í síðari hálfleik er Búlgarir réðu
lögum og lofum og það var Hristov
Stoychkov sem jafnaði á 57. mín.