Morgunblaðið - 11.08.1988, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 11.08.1988, Blaðsíða 26
Opinber heimsókn Þorsteins Pálssonar forsætisráðherra til Bandaríkjanna: MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1988 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1988 Ávarp Ronalds Reag- ans Bandaríkjaforseta HÉR fer á eftir ávarp Ronalds Reagans Bandaríkjaforseta sem hann flutti í Austurherbergi Hvita hússins að loknum viðræð- um hans og Þorsteins Pálssonar, forsætisráðherra. ÞAÐ hefur verið mér sérstök ánægja að taka á móti Þorsteini Pálssyni, forsætisráðherra, í Hvíta húsinu því hann er fyrstur íslenskra forsætisráðherra til að koma í opin- bera heimsókn til Bandaríkjanna. Fundur okkar í morgun var vinsam- legur og mjög ánægjulegur og við héldum áfram að ræða saman yfir hádegisverði. Herra forsætisráðherra. Eins og yður er fullkunnugt hafa Banda- ríkin og ísland átt mikil og vinsam- leg samskipti um langan aldur. Raunar má rekja þau aftur til árs- ins 1000 er Leifur Eiríksson, sonur Islands, kom hingað upp að strönd- , Morgunblaðið/Ragnar Axelsson Á fundi þeirra Þorsteins Pálssonar og Ronalds Reagan í gær í fundarherbergi Bandaríkjastjórnar gerði forsetinn meðal annars grein fyrir afvopnunarviðræðum risaveldanna og einnig var rætt um menning- ar- og viðskiptatengsl íslands og Bandaríkjanna. Lengst til vinstri er Nicholas Ruwe, sendiherra Banda- ríkjanna á íslandi, en myndin var tekin í þá mund er> forsætisráðherra þakkaði sendiherranum fyrir hlutdeild hans í að koma þessari heimsókn f kring. Reagan forseti sést brosa tíl Ruwe en til vinstri við forsetann má sjá Frank Carlucci varnarmálaráðherra. Gegnt þeim við borðið sitja íslensku fulltrú- amir. Frá vinstri eru: Hörður H. Bjarnason sendiráðsritari, Þorsteinn Ingólfsson, skrifstofustjóri Varn- armálaskrifstofu, Geir H. Haarde alþingismaður, Jónína Michaelsdóttir aðstoðarmaður forsætisráð- herra, Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra, Ingvi S. Ingvarsson sendiherra íslands í Washington, Guð- mundur Benediktsson ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu og Helgi Ágústsson skrifstofustjóri í ut- anríkisráðuneytinu. Samskipti íslands og Bandaríkjanna: Viðskiptaviðræður lík- legar eftir heimsóknina Waahington. Frá Óla Bimi Kárasyni, fréttaritara Morgunblaðsins. RONALD Reagan, Bandarílga- viðræðum sem hafa farið fram forseti, greindi Þorsteini Páls- milli Bandaríkjanna og Sov- syni forsætisráðherra, frá þeim étríkjanna í afvopnunarmálum, á Morgunblaðið/Ragnar Axelsson Ronald Reagan Bandaríkjaforseti býður Þorsteini Pálssyni að ganga til borðs i Hvíta húsinu, en þar snæddu þeir hádegisverð. Til hægri er Helgi Ágússton, skrifstofustjóri alþjóðadeildar utanríkisráðuneytis- ms. Hádegisverður í Hvíta húsinu: Köld spínatsúpa með krabbakjöti í forrétt KÖLD spínatsúpa með krabba- Ig'öti og lambakótilettur með grænmeti, sérstaklega matreidd- ar með blómkálshaus voru f aðal- rétt, í hádegisverði sem Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti hélt fyrir Þorstein Pálsson, forsætis- ráðherra, og fylgdarlið. í eftirrétt var rauðvínsfskrap með perum. Að sögn viðstaddra var andrúms- loftið afslappað og skemmtilegt yfir borðhaldinu. Frank Carlucci, vamarmálaráð- herra var í matarboði forsetans, ásamt nokkrum öðrum starfsmönn- um ríkisstjómarinnar, Colin Powell, þjóðaröryggisráðgjafi forsetans, Kenneth Duberstein, yfirmaður starfsliðs Hvíta hússins, Marlin Fitz- water, talsmaður Hvíta hússins, Roz- anne Ridgway, aðstoðar utanríkis- ráðherra og yfirmaður Evrópudeildar utanríkisráðuneytisins, og Nicholas Ruwe, sendiherra Bandaríkjanna á íslandi. Þeir íslendingar sem þágu hádegisverð voru: Ingvi Ingvarsson, sendiherra íslands í Bandaríkjunum, Guðmundur Benediktsson, ráðuneyt- isstjóri forsætisráðuneytisins, Jónína Mikaelsdóttir, aðstoðarmaður for- sætisráðherra, Geir H. Haarde, al- þingismaður, Helgi Ágústsson, skrif- stofustjóri alþjóðadeildar utanríkis- ráðuneytisins, Þorsteinn Ingólfsson, skrifstofustjóri vamarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins og Hörður Bjamason, sendiráðunautur. íslenski fáninn blakti við hún, ásamt þeim bandaríska og fána Washington, við götur í kringum Hvíta húsið. fundi sem þeir áttu í Hvfta hús- inu f gær. Forsætisráðherra sagði f viðtali við Morgunblaðið að hann hefði lýst yfir ánægju mfeð vamarsamstarf ríkjanna, hvernig það hefði gengið fyrir sig og mikilvægi þess fyrir ör- yggi Islands. Þá voru viðskipti landanna einnig rædd og Banda- ríkjamenn hafa lýst yfir vilja fyrir ítarlegum viðræðum um viðskipti landanna, eftir heim- sókn forsætisráðherra. „Ég hef trú á því að stórveldin séu í alvöru að leita lausnar á þess- um málum," sagði Þorsteinn um afvopnunarmálin og að fróðlegt hefði verið að hlusta á forsetann gera grein fyrir þeim. „Hann er raunsær," svaraði Þorsteinn þegar hann var spurður að því hvort Reag- an væri bjartsýnn á að stórveldin næðu frekari samningum um fækk- un kjamorkuvopna. Reagan gerði grein fyrir þeim umræðum sem hafa farið fram í Bandaríkjunum um að Evrópuríki taki meiri þátt í kostnaði vegna hervama álfimnar. „Það fer ekkert á milli mála, eftir þessar viðræður, að Bandarflqamenn hafa ekkert annað í huga en að standa við sínar skuldbindingar gagnvart Evrópu og leggja mikla áherslu á mikilvægi samstarfsins innan Atlantshafs- bandalagsins," sagði Þorsteinn Pálsson. Hann sagði að engin ástæða væri að ætla að- böndin milli Evrópu og Bandaríkjanna séu að slitna. Á fundinum með forsetanum lagði Þorsteinn Pálsson áherslu á að hægt væri að auka samskipti landanna í menningar- og við- skiptamálum. Rætt var um að at- huga nánar einstök atriði er varða viðskipti landanna, meðal annars tolla á ullarvömr og hagsmuni ís- lendinga í framtíðinni vegna fríverslunarsamnings Banda- ríkjanna og Kanada, sem er til umfjöllunar í Bandaríkjaþingi. Að- spurður sagði Þorsteinn að í fram- haldi af þessari heimsókn væri hægt að skoða einstaka þætti við- skipta landanna, en ekki væri verið að ræða um fríverslunarsamning af því tagi sem Kanadamenn hafa gert. Rozanne Ridgway, aðstoðar ut- anríkisráðherra og yfírmaður Evr- ópuskrifstofu utanríkisráðuneytis- ins, sagði á fundi með blaðamönn- um eftir samræður Reagans og Þorsteins Pálssonar, að það væri vilji Bandaríkjastjómar að fram fæm viðræður um viðskipti land- anna, í kjölfar heimsóknar Þor- steins. Rozanne sagði að ekki hefði komið til tals að breyta neinu í sam- skiptum Bandaríkjanna og íslands í vamarmálum og benti Banda- rískum blaðamönnum sem um það spurðu á að ísland væri án hers. „Framlag íslands er sérstaklega mikið," sagði Ridgway um vamar- samstarf Atlantshafsbandalagsríkj- anna og þátttöku íslands í því. um þessa lands. Ég minnist stytt- unnar af Leifi heppna fyrir framan stærstu kirkju íslands í Reykjavík. Hún var gjöf frá bandarísku þjóð- inni til íslendinga árið 1930 er þess var minnst að 1.000 ár vom liðin frá stofnun þings á íslandi. Þing ykkar, Alþingi, er hið elsta í heimi og það var sett á stofn löngu áður en þingræðisskipulag varð að vem- leika. Styttan er minnisvarði um samvinnu og samskipti þessara tveggja lýðræðjsríkja. Hún minnir okkur einnig á hversu mikil gæfa það er að íslendingar vom og em hugrakkir sæfarar. Þar sem forsætisráðherra íslands heimsótti Hvíta húsið í dag langar mig að nota tækifærið til að færa bæði íslensku þjóðinni og ríkisstjóm íslands persónulegar þakkir mínar og bandarísku þjóðarinnar fyrir þá miklu vinsemd og gestrisni sem íslendingar sýndu í októbermánuði árið 1986 er ég átti fund með Gorb- atsjov, aðalritara sovéska komm- únistaflokksins. Herra forsætisráðherra, ég dáist að dugnaði þjóðarinnar og þeim hraða sem einkenndi allan undir- búning fundarins. Þetta var krefj- andi verkefni sem leysa þurfti með stuttum fyrirvara. Á meðan ég dvaldist á íslandi var mér sagt að íslendingar væm vanir að bregðast við af krafti. þegar jarðskjálftar urðu yfír eða eldgos hæfust. Ég er þess hins vegar fullviss að þeir höfðu aldrei áður kynnst öðm eins umróti og fylgdi fundi leiðtoga Bandaríkjanna og Sovétríkjanna og þeim rúmlega 3.000 blaðamönnum sem komu til landsins. En þér og landar yðar leystuð verkefnið auð- veldlega af hendi og við fómm af landi brott með ógleymanlegar minningar um hlýju, gestrisni og veglyndi þjóðarinnar. Nú þegar nokkuð er um liðið frá leiðtogafundinum í Moskvu vil ég leggja áherslu á að viðræður mínar við aðalritara sovéska kommúnista- flokksins í Höfða vom mikilvægur áfangi í yfírstandandi viðræðum okkar við fiilltrúa Sovétstjómarinn- ar. Staðfesta og samstaða aðild- arríkja Atlantshafsbandalagsins, sem þjóð yðar hefur tilheyrt allt frá upphafi, hefur gert þessar viðræður mögulegar. Morgunblaðið/Ragnar Axelsson Reagan Bandarikjaforseti flytur kveðjuávarp í Austurherbergi Hvíta hússins.„Við fórum af landi brott með ógleymanlegar minningar um hlýju, gestrisni og veglyndi þjóðarinnar,“ sagði for- setinn er hann vék að leiðtoga- fundinum í Reykjavík árið ft86. Atlantshafsbandalagið hefur gert meira en að standast tímans tönn og íslendingar hafa tekið þátt í samstarfinu allan þann tíma. Atl- antshafsbandalagið er bandalag sjálfstæðra jafningja og aðildarríki þess hafa samþykkt að deila með sér bæði þeim ávinningi og þeirri ábyrgð sem því fylgir. En tvíhliða samskipti ríkjanna taka ekki ein- vörðungu til öryggismála, þau hvíla á sameiginlegu lýðræðislegu gildis- mati, sögu og viðskiptum. Þessari hefð hafíð þér haldið við, herra for- sætisráðherra. Ég er hreykinn af að geta staðfest þetta langa og góða samband ríkjanna hér í dag. Ég býð yður og hina heillandi eiginkonu yðar aftur velkomin. Við óskum þess að dvöl yðar hér í Washington verði ánægjuleg og óskum yður alls hins besta í fram- tíðinni. Þakka yður fyrir og Guð blessi yður. Boðin velkomin Morgunblaðið/Ragnar Axelsson Marshall B. Coyne, eigandi Madison-hótelsins í Washington býður Þorstein Pálsson og eiginkonu hans Ingibjörgu Rafnar, velkomin í íbúð forsætis- ráðherraþjónanna. Coyne, sem er við hlið Þor- steins, er mikill íslandsvinur og mun hafa stundað laxveiðar hér á landi. Morgunblaðið/Ragnar Axelsson Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Þorsteinn Pálsson forsætisráð- herra ræðast við í Forsetaskrifstofunni í Hvíta húsinu. Forsetinn gefur Geir H. Haarde sjálfsævisögu sína herra forseti," sagði Geir við Reag- an. fyrirtækisins og ef ekki finnst leið til þess að endurgreiða þær með jákvæðri afkomu fyrirtæk- isins verður ríkissjóður að greiða þær.“ Það bendir því margt til þess að skattgreiðend- ur þurfi að axla skuldir Skipaút- gerðar ríkisins. Ljóst er að eitfchvað verður að gera til þess að koma rekstri Skipaútgerðar ríkisins í skikk- anlegt horf. Samgönguráðherra hefur tilkynnt að hann hyggist láta ráðgjafarfyrirtæki kanna núverandi rekstrarfyrirkomu- lag fyrirtækisins, og hvernig draga megi úr kostnaði en halda uppi óbreyttri þjónustu. Einnig á ráðgjafarfyrirtækið að kanna aðra kosti, s.s. að um- fang ríkisrekinna strandsigl- inga verði minnkað en veittur stuðningur til þess að einkaaðil- ar geti haldið uppi flutningum til afskekktra staða. Samgönguráðuneytið óskaði fyrr á þessu ári eftir skýrslu frá Byggðastofnun um ýmis atriði varðandi samgöngur til að „geta lagt raunhæft mat á framtíð þeirra strandflutninga sem styrktir eru af ríkinu og hvort unnt sé að sinna þeim með ódýrari hætti en verið hef- ur og draga þar með úr fram- lögum úr ríkissjóði", eins og segir í bréfí samgönguráðu- neytisins til Byggðastofnunar. Byggðastofnun skilaði nýlega frá sér bráðabirgðaskýrslu en endanlegrar niðurstöðu er að vænta í næsta mánuði. Flug- og landsamgöngum hefur fleygt fram á síðustu árum og minnkað þörfína fyrir strandsiglingar. Engu að síður eru enn byggðir, aðallega á Vestfjörðum, Austfjörðum og Norðurlandi, sem eru mjög háð- ar sjóflutningum, sér í lagi að vetri til. Hér er oft um það smáa byggðakjama að ræða að hætta er á að þeim verði ekki sinnt á tilskilinn hátt án stuðnings ríkisins. Þó að nauð- syn sé á að taka rekstur Skip- aútgerðar ríkisins til alvarlegr- ar endurskoðunar verður að gæta þess að hagsmunir þess- ara byggðarlaga verði ekki fyr- ir borð bomir. í ljósi skýrslna ráðgjafarfyr- irtækisins og Byggðastofnunar verður að rneta framtíðarrekst- ur Skipaútgerðar ríkisins með. hagsmuni viðkomandi byggðar- laga og skattgreiðenda jafnt í huga. RONALD Reagan, Bandaríkja- forseti, færði Geir H. Haarde, alþingismanni og fylgdarmanni forsætisráðherra, sjálfsævisögu sína að gjöf í Hvíta húsinu í gær. Ævisagan kom fyrst út árið 1965, en eintakið sem Geir fékk að gjöf er prentun frá 1981. Inn- an á kápu er bókin merkt Ron- ald Reagan en bókin heitir „Hvar er hinn helmingurinn af mér“. Geir H. Haarde sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði verið að spjalla við Bandaríkjafor- seta og Þorstein Pálsson, áður en hádegisverðurinn hófst og hefði þá sjálfsævisaga forsetans borist í tal. „Ég hef verið að reyna að fá forsæt- isráðherra til að lesa bókina yðar, Forsetinn sagði þá frá því á hvem hátt heiti bókarinnar er til komið. Heiti ævisögunnar er úr gamalli kvikmynd sem forsetinn lék í og er af mörgum talin hans besta, „Kings Row“. í kvikmyndinni er Reagan á skurðborðinu og vaknar eftir að búið er að taka af honum báða fætur. Þá sagði hann: „Hvar er hinn helmingurinn af mér“ („Where is the rest of me?“). Eftir að hafa sagt þessa sögu spurði Reagan Geir hvort hann hefði lesið ævisöguna, sem Geir neitaði. Eftir að matnum lauk kom þjónn inn í herbergið með bók og færði forsetanum. Hann gaf Geir síðan bókina að gjöf. Morgunblaðið/Ragnar Axelsson Geir H. Haarde á tali við Ronald Reagan Bandarikjaforseta, en eft- ir viðræður þeirra færði Reagan honum ævisögu sína að gjöf. Aðhald í opinberum rekstri Fundur Þorsteins Pálssonar og Ronalds Reagans: Ekki rætt um friðar- stofnun í Reykjavík RONALD Reagan, Bandaríkja- forseti, virðist ekki vera kunnug- ur hugmyndum um sérstaka frið- arstofnun í Reykjavík, þegar sú hugmynd barst í tal í Hvita hús- inu i gær. Áður en fundur þeirra Reagans og Þorsteins hófst var Reagan spurður um hvað honum fyndist um þá hugmynd Steingríms Hermanns- sonar utanríkisráðherra, að komið yrði á fót sérstakri friðarstofnun í Reykjavík, Reykjavíkurstofnunin. Forsetinn gat engu um það svarað og var greinilega ekki kunnugur málinu. Rozanne Ridgway, aðstoðar ut- anríkisráðherra og yfirmaður Evr- ópuskrifstofunnar, sagði á blaða- mannafundi að Reykjavíkurstofn- unin hefði ekki verið rædd á fundi forsetans og Þorsteins Pálssonar. Uttekfcir Ríkisendurskoðun- ar á rekstri ýmissa fyrir- tækja og stofnana á vegum ríkisins undanfama mánuði hafa vakið mikla athygli. Ný lög tóku gildi um Ríkis- endurskoðun 1, janúar 1987. Stofnunin er nú undir stjóm Alþingis í stað framkvæmda- valdsins áður. Með nýju lögun- um var verksvið Ríkisendur- skoðunar einnig fært út og hún gerð sjálfstæðari og óháðari. Síðan þetta gerðist hefur átt sér stað jákvæð og nauðsynleg þróun í þá átt að veita opin- bemm aðilum aukið aðhald í fésýslu. Skattgreiðendur eiga kröfu á því að þeim fjármunum sem þeir inna af hendi sé varið á sem hagkvæmastan og skyn- samlegastan hátt. Rekstur á vegum ríkisins býr ekki við sama aðhald markaðarins og rekstur einkaaðila en þarf ekki síður á því að halda. Það er því nauðsynlegt að náið sé fylgst með opinberum rekstri og leitað leiða til að tryggja nauðsynlegt aðhald. Ef Ríkisendurskoðun er beitt á réttan hátt getur hún verið tæki til að tryggja betri nýtingu almanna fjármuna. Nýjasta dæmið um nauðsyn slíks aðhalds er úttekt Ríkis- endurskoðunar á rekstri Skipa- útgerðar ríkisins. I skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að hún telur vonlaust fyr- ir fyrírtækið að standa undir skuldum sínum með eigin rekstri. Skuldir fyrirtækisins eru alls 630 milljónir króna, þar af 404 milljóna króna skuld við ríkisábyrgðasjóð og 74 milljóna króna skuld við ríkissjóð. Eign- ir fyrirtækisins eru hins vegar ekki nema 517 milljónir króna. Heildartap Ríkisskipa á ár- unum 1981-1987 var 259 millj- ónir en fjárlög gerðu ráð fyrir 120 milljón króna hagnaði og áætlanir fyrirtækisins 110 milljón króna hagnaði. Það er niðurstaða Ríkisend- urskoðunar að ríkið verði að taka að sér greiðslur langtíma- lána og skammtímaskulda við ríkissjóð. Einnig komi til álita að rflcissjóður yfírtaki skuldir fyrirtækisins við ríkisábyrgða- sjóð og felli niður skuldir þess við sjálfan sig. I fréttasamtali við Morgun- blaðið segir Matthias Á. Math- iesen, samgönguráðherra: „Ríkið er ábyrgt fyrir skuldum Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ÁgústlngiJónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. (lausasölu 70 kr. eintakið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.