Morgunblaðið - 11.08.1988, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 11.08.1988, Blaðsíða 41
88ei T8ÚDÁ .11 flUOAaUTMMn .aiGAJaVíUOHOM Hrefna 50—100% með náminu. Um haustið það sama ár byrjaði hún að starfa sem hjúkrunarfram- kvæmdastjóri á Landspítalanum. Árið 1983 réðst hún sem hjúkrunar- forstjóri að Dvalarheimili aldraðra sjómanna Hrafnistu, Reykjavík. Þar starfaði hún þar til heilsa hennar þvarr. Hjúkrunarstarfíð var sterkur þáttur í lífí hennar og með starfí sínu vann hún stórt átak við upp- byggingu á allri öldrunarþjónustu á dvalarheimilinu Hrafnistu. Þar sem Hrefna var fór væn kona, gædd góðum gáfum, og henn- ar innri maður einkenndist af ein- lægni, hlýju og staðfestu. Fyrir rúmum 10 mánuðum syrti skyndi- lega í álinn þegar alvarlegur sjúk- dómur greindist, og of langt geng- inn, svo ekkert var hægt að gera. En slík er atburðarásin í lífí okkar stundum að furðu sætir. Á fyrsta hollfundi okkar í byijun október á sl. ári vorum við allar mættar kátar og hressar. Þá fyrr um daginn hafði Hrefna fengið þennan hræðilega úrskurð, en tók þá ákvörðun að greina ekki frá svo við mættum enn eiga einn glaðvær- án samverufund. Hún barðist hetjulegri baráttu og sýndi mikið hugrekki í öllum sínum veikindum allt til enda. Við fráfall Hrefnu er stórt skarð höggvið í okkar hóp, því að stærsta tréð í garðinum okkar er fallið. En við eigum mikinn sjóð góðra minn- inga frá glöðum stundum í starfí og leik, — minningu um óvenju heilsteyptan persónuleika sem eng- inn er henni kynntist gleymir. Kæra Kristín, Ambjörg og Jó- hann, ykkar er missirinn sárastur. Ég og fjölskylda mfn vottum ykkur og öðrum aðstandendum okkar dýpstu samúð. Við kveðjum Hrefnu með þökk og virðingu. Blessuð sé minning hennar. Sigríður Jóhannsdóttir MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1988 Hrefna Jóhannsdóttir, hjúkrun- arforstjóri á Hrafnistu í Reykjavík, lést á Landspítalanum þann 3. ágúst 1988. Hrefna var fædd þann 31. október 1932 á Selfossi, var því aðeins 55 ára er hún lést. Hún lauk prófí frá Hjúkrunar- skóla íslands 1954, fékk sérfræð- ingsleyfí sem skurðstofuhjúkrunar- fræðingur 1955 og útskrifaðist sem hjúkrunarkennari frá Kennarahá- skóla íslands 1979. Hrefna starfaði á skurðstofu Landspítalans frá 1957 til 1961, kom síðan aftur til starfa á Land- spítalanum 1971, þá við hjarta- þræðingar. 1980 var hún ráðin hjúkrunarframkvæmdastjóri fyrir skurðstofum og dauðhreinsunar- deild og einnig skipuð í innkaupa- nefnd. Um þetta leyti var dauð- hreinsunardeildin stækkuð til muna og endurskipulögð, stærsti hluti hennar var þá fluttur á Tunguháls, þar sem nú er birgðastöð ríkisspítal- anna, og átti hún nú að þjóna öllum ríkisspítölunum og fleiri stofnunum. Það var mikill fengur fyrir spítalann að fá Hrefnu til að skipuleggja og þróa þessa nýju deild bæði vegna góðrar menntunar hennar og mikill- ar reynslu, sem hún nýtti sér í hvívetna. Öll vinnubrögð hennar voru þannig að hún ávann sér virð- ingu allra samstarfsmanna sinna. Síðla árs 1983 var Hrefna ráðin hjúkrunarforstjóri á Hrafnistu í Reykjavík. Okkur samstarfskonum hennar var mikil eftirsjá í henni, en við vissum líka hvað það var mikið lán fyrir stofnun eins og Hrafnistu að fá slíka manneskju til starfa. Hrefna var einstaklega góður félagi og mjög skemmtileg hvort sem var í námi, leik eða starfí og það var gott að vera í návist henn- ar. Margar góðar minningar geym- um við í hugum okkar og þökkum henni samfylgdina. Stórt skarð er höggvið í hjúkr- unarstéttina og við vinir hennar erum harmi slegnir, en sárastur er harmur elskulegu bamabamanna hennar, Kristínar, Ambjargar og Jóhanns. Megi góður Guð styrkja þau og vemda. Við sendum þeim og öðrum aðstandendum Hrefnu innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Hrefnu Jó- hannsdóttur. Vigdís Magnúsdóttir, Bjamey Tryggvadóttir. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. Barbour Hjá okkur fœrðu hinn þœgilega og smekklega Barbour fatnað sem er eins og sniðinn fyrir íslenska veðráítu. Sendum í póstkröfu. 1940 Hafnarstræti 5, Reykjavík Símar 16760 og 14800 41 HONDA CIVIC SEDAN > eigum ennþá nokkra bíla á þessu frábæra tilboðsverði, kr. 669.500- (hann kostaði áður 748.000-) Samkvæmt gengisskráningu 5. júlí 1988. VIÐ TÖKUM GÓÐA NOTAÐA BÍLA UPP í KAUPVERÐIÐ HONDA Á ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.