Morgunblaðið - 11.08.1988, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 11.08.1988, Blaðsíða 17
Allir ungar á Mývatni drápust nema toppandar LOKIÐ er talningn fugla á Mý- vatni eftir ungadauðann mikla í sumar. Að sögn Árna Einarsson- ar líffræðings hafa einungis toppendur komið ungum á legg, en aðrir ungar finnast ekki á Mývatni. Toppöndin lifir á hornsílum sem hafa fjölgað sér mikið i ár. Að sögn Árna er hugs- anlegt að þær andategundir sem orðið hafa fyrir þyngstum búsifj- um snúi ekki aftur úr vetrardvöl á Bretlandseyjum heldur freisti gæfunnar á öðnun stöðum. í vor voru talin um 8000 pör kafanda á vatninu. Þessir fuglar sækja næringu á botn vatnsins, í smá krabbadýr og mýlirfur. Orsök minni átu er á huldu en hugsanlega kann offjölgun homsíla sem nærast á sömu fæðu að spila inn í. Silungs- veiði I vatninu hefur verið afburða- léleg í sumar. Andastofnamir urðu fyrir viðlfka áfalli árið 1983, þótt ungadauðinn yrði þá ekki jafn mikill. Þá um vorið verptu um 6000 pör skúfandar, en ári síðar skiluðu aðeins 3000 pör sér. Skúföndin hefur staðið í stað sfðan, í sumum andategundum hef- ur fækkað en aðrar vom byijaðar að rétta úr kútnum þegar áfallið dundi yfir í vor. „Það kæmi engum á óvart þótt endumar yrðu umtalsvert færri næsta vor. Fullorðni fuglinn stendur af sér mikinn átuskort og hefur fleiri úrræði en ungamir, sem vesl- ast upp og deyja. Endumar sjá hins- vegar litla ástæðu til að leita aftur þangað sem þeim hefur liðið illa," sagði Ámi. Líffræðingar standa nánast ráð- þrota frammi fyrir slíku tilfelli. Mývatn er eitt þekktasta varpsvæði anda í veröldinni, en undanfama *tvo áratugi hefur andastofninn þrisvar hmnið. Fyrsta áfallið dundi jrfir árið 1974, annað 1983 og hið þriðja í vor. Áð sögn Áma hefur hópurinn sem safnar gögnum um lífríkið í Mývatni að staðaldri ekki bolmagn til að stunda gmndvallar- rannsóknir á orsökum slfks vanda. „Ef þetta ástand varir í nokkur ár er fyrirsjáanleg algjör ördeyða f Mývatni. Það tekur nokkum tíma fyrir stofnana að ná sér aftur og þeir þola ekki átuskort mörg ár í röð,“ sagði Ámi. MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1988 17 Hvergi annars staðar eru greinar eins og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.