Morgunblaðið - 11.08.1988, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.08.1988, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1988 23 Vopnahléð við Persaflóa: 350 friðargæsluher- menn frá 24 löndum New York-borg, Reuter. SAMEINUÐU þjóðirnar hafa greint frá því að 24 lönd muni sjá samtökunum fyrir friðargæsluliðum, sem fylgjast munu með vopna- hléi írana og Iraka. Allsherjarþing SÞ kemur saman í næstu viku til þess að ræða hvemig fjármagna skuli aðgerðina. Vopnahléð, sem tilkynnt var um á mánudag, hefst hinn 20. ágúst og er vonast til þess að þar með sé hinu átta ára langa Persaflóastríði lokið. Hvert landanna 24 mun að líkind- til þess að fylgjast með vopnahlénu um sjá SÞ fyrir 10-15 herforingjum og brottflutningi hermanna írans Gyðingar á Bretlandi: Deilur vegna T.S. Eliots St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins. í næsta mánuði verða 100 ár liðin frá fæðingu T.S. Eliots, eins af stórskáldum aldarinnar, og verður þess minnst með ýmsum hætti. Nokkrir þekktir breskir gyðingar fara fyrir fjársöfnun til bókasafns í London, en Eliot var forseti stjórnar þess lengi. Gyðingar hafa andmælt þessu og segja að gyðingahaturs gæti í elstu verkum Eliots. Reuter Orrastuþotur af gerðinni Tomado í samflugi . Þotur af þessari gerð rákust saman á flugi í fyrrakvöld og biðu áhafnir beggja, fjórT menn, bana. Fjórir herflug- menn týndu líf i Goodman, lávarður og viðskipta- jöfur, og Sir Isaiah Berlin, heim- spekingur, eru í forsvari fjársöfnun- Canaveralhöf ði: Gangsetning hreyfla geim- ferjunnar velheppnuð Canaveralhöfða, Bandarikjunum. Reuter. HREYFLAR geimfeijunnar Dis- covery vom ræstir í gær og tókst tilraunin vel, að sögn talsmanns bandarísku geimferðastofnunar- innar, NASA. Gangsetningin var mikilvægur hlekkur í undirbúningi fyrsta geim- skots geimfeijunnar í hálft þriðja ár. Hreyflamir voru í gangi í 20 sekúndur og þótti það tilkomumikil sjón að sjá eldtungumar standa neðan úr feijunni og reykjarbólstr- ana breiðast út frá skotpallinum. Sjón af þessu tagi hefur ekki sézt á Canaveralhöfða frá því geim- feijunni Challenger var skotið á loft 28. janúar árið 1986, en sem kunn- ugt er lauk þeirri ferð hörmulega; geimfeijan splundraðist röskri mínútu eftir að hún hófst á loft. arinnar. Þeir' hyggjast safna um átta milljónum íslenskra króna til bókasafnis til styrktar námsmönn- um og fræðimönnum til að nýta þá aðstöðu sem þar er. Nú þegar hefur safnast þriðjungur þeirrar upphæð- ar. Það að gyðingar fari fyrir fjár- söfnuninni hefur vakið andúð ann- arra gyðinga. David Nathan, að- stoðarritstjóri Jewish Chronicle, sagði að hann væri undrandi á að gyðingar léðu nöfn sín til þessarar söfnunar. „Ég er ekki að segja að Eliot hafi verið hluti af útrýmingar- búðunum; hann kynti ekki ofnana og hefði hryllt við þeim. En skoðanir hans höfðu engu að síður áhrif á það fólk sem lökaði dyrunum á þá sem hefðu getað flú- ið þótt hann hafi ekki haft áhrif á kyndarana. Ég ber djúpa virðingu fyrir þeim gyðingum sem standa fyrir þessari fjársöfnun. Ég dáist að umburðar- lyndi þeirra þótt ég geti ekki skilið það né deilt því með þeim.“ Michael Hastings, höfundur þekkts leikrits um Eliot og fyrri konu hans finnst það skrýtið að gyðingar skuli fara fyrir þessari fjársöfnun. Gyðingahatur Eliots hafi verið honum inngróið alla tíð. Veijendur Eliots segja að skoðan- ir hans hafí breyst eftir seinni heim- styijöldina. Skoðanir svipaðar hans hafi verið útbreiddar í Evrópu og Bandaríkjunum fyrir stríð. og íraks frá 1.200 km löngum landamærum ríkjanna. Alls er um 350 óvopnaða eftirlitsmenn að ræða. Löndin 24 eru: Argentína, Aust- um'ki, Ástralía, Bangladesh, Dan- mörk, Finnland, Ghana, Indland, Indónesía, írland, ítalfa, Júgóslavía, Kanada, Kenýa, Malasía, Noregur, Nígería, Nýja Sjáland, Pólland, Senegal, Svíþjóð, Tyrkland, Ung- veijaland, og Zambía. Enn hefur ekki verið tilkynnt hver verði yfírmaður þessa flokks eða hvar aðalstöðvar hans verða. Þrátt fyrir að eftirlitsmennimir verði ekki nema 350, verða fleiri menn þeim til halds og trausts; vopnaðir hermenn til öryggisgæslu, fjarskiptasveitir og flugmenn, sem munu sjá um að flytja eftirlitsmenn- ina milli staða. Er áætlað er að þeir verði um 650, svo alls verða um 1.000 manns á vegum SÞ við friðargæslu á landamærum íraks og írans. London. Reuter LÍK þriggja brezkra orrustuflug- manna fundust í gær og hins fjórða er enn saknað eftir árekst- ur tveggja orrustuþota af gerð- inni Tornado i Vatnahéraðinu í Norðvestur-Englandi í fyrra- kvöld. Þotumar voru á æfíngaflugi í lítilli flughæð og sögðust sjónan’ottar hafa séð risastóran eldhnött á himni, sem þykir benda til þes að þær hafi rekist saman á flugi. Einnig fannst brak flugvélanna á sama svæðinu, sem rennir stoðum undir þá kenn- ingu. Tomado-þotumar eru uppistaðan í flugflota Evrópuherja NATO. Bret- ar, Vestur-Þjóðveijar og Italir smíðuðu hana í sameiningu. Hún er hljóðfrá og talin standa flestum þot- um framar í lágflugshemaði. Fyrir skömmu var ákveðið að breyta ljósabúnaði þotunnar þar sem flugmenn kvörtuðu undan því að þeir ættu erfitt með að meta bil milli flugvéía í samflugi. Opnum í dag kl. 9 Opnunartí mi: Mánud. - fimmtud. kl. 9 - 1830 Föstud. kl. 9 - 2000 HAGKAUP Seltj arnarnesi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.