Morgunblaðið - 11.08.1988, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 11.08.1988, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐEÐ IÞROTTIR FLMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1988 Þátttökugjald er kr. 3.500.- en veittur er afsláttur fyrir systkini. Hér er um einstakt tækifæri að ræda til að læra handknattleik undir handleiðslu góðra þjálfara. Handknattleiksfélag Kópavogs Handboltaskóli H.K. og Tommahamborgara TOMMA Yfirumsjón með skólanum hefur EinarÞorvarðarson, landsliðsmarkvörður. —+ BÁÐIR leikirnir í undanúrslitum Mjólkurbikarkeppninnar í knattspyrnu fara fram í kvöld kl. 19:00. Valur og Víkingur mætast á Víkingsvellinum við Stjörnugróf og Leiftur og ÍBK eigast við á Ólafsfirði. Alltaf má búast við sérstakri stemningu á bikarleikjum og reynslan sýnir, að ekkert lið getur bókað sigur í slíkum leikjum. Valsmenn hafa leikið vel að und- anfðmu og eru sigurstranglegri gegn Víkingum en Víkingar hafa náð upp betri baráttu í bikarleikjum en í deildarleikjum og verða auk þess á heimavelli, þannig að allt getur gerzt. Bæði liðin ættu að geta stillt upp sínu sterkasta liði. Víkingar eru staðráðnir í að gera betur en í undanförnum deildar- leikjum: „Pressan verður á þeim en við höfum allt að vinna. Okkur hef- ur gengið ágætlega í bikarleikjun- um að undanfömu og ég á von á opnum baráttuleik í kvöld“, sagði Guðmundur Hreiðarsson, mark- vörður Víkinga í samtali við Morg- unblaðið. En Valsmenn eru líka staðráðnir í að slaka ekki á klónni. „Það er mikill hugur í okkur fyrir þennan leik. Við vitum að í bikarleikjum má ekkert út af bregða. Sá aðilinn, sem skorar fyrsta markið, nær oft góðum tökum á leiknum eftir það, þannig að allt getur gerzt“, sagði Siguijón Kristjánsson, leikmaður Vals í samtali við Morgunblaðið. Lerftursmenn f æfingabúöum ð Grenivík Búast má við hörkuleik á Ólafs- firði. Leiftursmenn em erfiðir heim að sækja. Þeir eygja nú þann ein- stæða möguleika að komast í bikar- úrslit en Keflvíkingar eru einnig ákveðnir í að fara alla leið í bikam- Á mánudaginn kemur, þann 15.08, hefst í íþróttahúsinu á Digranesi í Kópa- vogi handboltaskóli H.K. 7-8-9 ára krakkar verða frá kl. 9.30 til kl. 12 og 10-11-12-13 ára krakkar verða frá kl. 13.30 til kl. 16 alla virka daga meðan skólinn stendur yfir. Skólinn stendur yfir í þrjár vikur og lýkur föstudaginn 02.09. Skráning fer fram í félagsherbergi H.K. í íþróttahúsinu á Digranesi fimmtudag 11.08, föstudag 12.08, laugardag 13.08 og sunnudag 14.08 frá kl. 13 til kl. 16. Síminn þar er 46032. um eftir slakt gengi hingað til í 1. deildinni. Það er því afar erfitt að spá fyrir um úrslit. Leiftursmenn fóru til Grenivíkur á þriðjudag til að æfa saman og einbeita sér að leiknum í dag í góðu tómi. Þeir em væntanlegir aftur til Ólafsflarðar síðdegis í dag. Að sögn Rúnars Guðlaugssonar, stjómar- manns í knattspymudeild Leifturs, er mikill hugur í leikmönnum Keflavíkingar verða án Ingvars Guðmundssonar, sem sennilega leikur ekki meira með í sumar vegna meiðsla. Þeir em staðráðnir í að halda áfram sigurgöngu sinni „Auðvitað verður þetta erfitt fyrir norðan og örugglega mikil barátta en við emm staðráðnir í að komast í úrslitaleikinn eftir slakari frammi- stöðu í deildinni en við væntum", sagði Ragnar Margeirsson, ÍBK, í samtali við Morgunblaðið. Islenskir dómarar á tveimur leikjum í Evr- ópukeppni meistaraliða Kennd verða undirstöðuatriði í handknattleik: Farið verður í leikl, horft á myndbönd og þekktir handknatt- leiksmenn koma í heimsókn. Daglega verður boðið upp á ávexti frá Bönunum hf. og Svala frá Sól hf. Þá verð- ur uppskeruveisla í lokin í boðl Tommahamborgara. Sævar Jónsson Valsmaöur, sem hér er ! baráttu við Framarann Ormarr Örlygsson, mætir Vfkingum í kvöld í Stjömugrófinni í undanúrslitum bikar- keppninnar. Óli P. Ólsen á írlandi og Eysteinn Guðmundsson í Luxemborg ÍSLENSKUM dómurum hefur veriö raðað á tvo leiki í Evrópu- keppni meistaraliða í knatt- spyrnu í haust auk þess sem íslendingar starfa einnig viö tvo landsleiki erlendis á vegum Evrópusambandsins á næst- unni. Oli P. Olsen dæmir leik norður- írska félagsins Belfast og Spartak Moskvu í keppni meistara- liða í Belfast 5. október nk. Línu- verðir hans verða þá Friðgeir Hallgrímsson og Eyjólfur Ólafsson. Sama dag leika Jeunesse D’Esch og pólska liðið Gomik Zabrze í Lúxemborg í keppni meistaraliða og dæmir Eysteinn Guðmundsson þann leik. Línuverðir verða þeir bræður Sveinn og Ólafur Sveins- syni. íslendingar áttu að fá einn leik til viðbótar — Guðmundur Haralds- son átti að dæma viðureign Avenir Beggen og Mechelen, en leikdegi hefur verið breytt þannig að ekki er mögulegt að Guðmundur dæmi leikinn og verður dómaratríóið franskt í staðinn. íslenskum dómur- um verður því úthlutað einum auka- leik næst vegna þessa. Guðmundur verður þó ekki aðgerðarlaus í haust. Ákveðið hefur verið að hann verði aðstoðarmaður dómara, svokallaður Qórði maður, á landsleik íslands og Sovetríkjanna, á Laugardalsvelli 31. þessa mánaðar, en dómaratríóið verður frá Norður írlandi. Þá skip- aði UEFA Guðmund Haraldsson beint til starfa sem dómari á leik U-21 árs landsliða Noregs og Skot- lands 13. september. Sveinn Sveinsson dæmir leik Danmerkur og Noregs í Evrópu- keppni kvenna 4. september en línu- verðir verða danskir. Það var knatt- spyrnusamband Evrópu sem skipaði Svein beint í þetta starf. Fyrst farið er að tala um dómara má geta þess að Skotinn William Crombie dæmir vináttuleik íslands og Svíþjóðar 18. þessa mánaðar. Línuverðir verða Sveinn Sveinsson og Magnús Jónatansson. Aðstoð- arlínuvörður verður Haukur Torfa- son. Eysteinn Guðmundsson dæmir leik íslands og Færeyja 24. þessa mánaðar og línuverðir verða Þór- oddur Hjaltalín og Sæmundur Víglundsson. Aðstoðarmaður verð- ur Guðmundur Stefán Maríasson. Þá má geta þess að Sveinn Sveinsson og Friðgeir Hallgrímsson sækja 9. dómaranámskeið UEFA fyrir milliríkjadómara á Ítalíu um næstu mánaðarmót. AGOÐU Allar RING bílaperur bera merkið (f) sem þýðir að þær uppfylla ýtrustu gæðakröfur E.B.E. RING bílaperurnar fást á bensínstöðvum Skeljungs KNATTSPYRNA / UNDANURSLIT BIKARKEPPNINNAR KNATTSPYRNA / DOMARAR Undanúr- slrt í kvöld

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.