Morgunblaðið - 11.08.1988, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 11.08.1988, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1988 fclk í fréttum ERLENDIR SKIPTINEMAR: * „Islendingar eru vingjarn- legt fólk“ Alþjóðasamtök viðskiptafræði- nema hefur meðal annars það hlutverk að útvega viðskiptafræði- nemum atvinnu í öðrum löndum en heimalandi sínu. Stúdentamir eru mislangt komnir í námi og velja þeir sjálfir hvert og við hvað þeir vilja starfa. Hingað til lands koma árlega 15-20 viðskiptafræðinemar og dvelja þeir hér allt frá tveimur vikum upp í eitt og hálft ár. Algeng- ast er þó að þeir dvelji hér í þijá til ijóra mánuði. Hér á landi dvelur nú hópur er- lendra stúdenta í framhaldsnámi frá ýmsum löndum. Hluti þeirra eru viðskiptafræðinemar, en einnig standa önnur félög að slíkum náms- mannaskiptum, til dæmis alþjóða- samtök læknanema og verkfræði- nema svo eitthvað sé nefnt. „Fólk í fréttum" hafði áhuga á samtökun- um og vildi heyra skoðanir stúdenta á landi og þjóð. Varð nemi frá Sviss fyrir valinu. Hann heitir Kristoff Seeger og kemur frá smábæ nálægt Zúrich. Hér á landi hefur hann dval- ið í sex vikur. Kristoff er 22ja ára gamall, á þriggja ára háskólanám að baki og útskrifast í sínu fagi á næsta ári. Kristoff starfar í Útvegs- banka íslands og líkar það mjög vel. Hann hrósar mjög þeSsum sam- tökum hér fyrir gott skipulag. Hverja helgi er farið í ferðalög og þá stundum allir hópar saman. Far- ið hefur verið meðal annars til Mývatns og Akureyrar, Þórsmerkur og Landmannalauga. Hrifnastur segist hann hafa verið af Þórsmörk og Landmannalaugum, en þá var veðrið bjart og fallegt. Segir hann það hafa skipt miklu máli. „Enginn staður hér líkist þeim myndum sem ég sá áður en ég kom hingað, á þeim er himinninn alltaf heiður.“ „Slík samtök bjóða upp á ótal kosti. Hér kynnist maður mörgum erlendum stúdentum, og getur skipst á upplýsingum. Þetta er kærkomið tækifæri til þess að opna hug sinn fyrir öðru en því sem maður sjálfur fæst við, og vissulega er þetta öðruvísi en að vera venju- legur ferðamaður." segir Kristoff. Álit hans á íslendingum kom ber- lega í Ijós. „íslendingar eru mjög vingjarnlegt fólk, sem er alltaf til- búið að hjálpa, en maður verður að stíga fyrsta skrefið við kynni. ís- lenskan er erfið og íslendingar brosa að manni þegar maður reynir að tjá sig.“ Kristoff fannst íslendingar ekki vera nógu meðvitaðir um umhverf- ismengun. „í Sviss búa miklu fleiri á hvem ferkílómetra og gæta kannski þess vegna betur að um- hverfí sínu.“ Honum fannst veðrið ekki leika við sig, og ekki bílamir heldur. „Ýmis furðuleg tilbrigði í keyrslu hef ég séð og sérstaklega þegar menn em að leggja bflum sínum í stæði. Stundum finna menn stæði og hlaupa út þó bílamir séu ekki hálfir í stæðinu." Verðlagið fínnst honum vera mjög hátt hér, og minnist á verð- bólguna. „Ég hef ferðast um Evr- ópu, en verðbólgu hef ég alltaf tengt við Portúgal til dæmis. Svo kem ég hér og verð mjög undrandi." Kristoff kveðst ákveðinn í að koma aftur. „Landið er fallegt, fólkið er mjög vingjamlegt og vil ég þakka öllum þeim sem ég hef kynnst í gegnum samtök viðskiptafræði- nema svo og öllu samstarfsfólki mínu hér í Útvegsbankanum" voru hans lokaorð. Kristoff Seeger á vinnustað. Morgunbiaðið/KGA Emstaklingsrúm, áðurfrákr. 5.900,- núkr. 5.015,- Tvíbreið rúm áður frá kr. 7.900,- nú kr. 6.715,- Vatnsrúmeinstakl. áðurfrákr. 26.900,- núkr. 22.865,- Vatnsrúm tvíbreið áður frá kr. 29.900,- nú kr. 25.415,- Kojuráðurfrákr. 6.790,- núkr. 5.772,- Handklæði áður frá kr. 148,- nú kr. 125.- Baðmottusettáðurkr. 7?0 ,- núkr. 672,- SKEMMUVEGI4A, KÓPAVOGI Símar 76522 og 76532 Sængur: Andafiðursáðurkr. 4.200 ,-núaðeinskr. 3.570,- Gæsadúnsáðurkr. 4.600 ,-núaðeinskr. 3.910,- Termoáðurkr. 3.190, -núaðeinskr. 2.711,- Springdýnuráðurkr. 6.300,- núaðeinskr. 5.355,- Sængurverasett áður kr. 790,- nú aðeins kr. (,71,- STORLÆKKAÐ VERÐ Síáumst á SKEMMUVEGI4A, KÓPAVOGI.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.