Morgunblaðið - 11.08.1988, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.08.1988, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1988 - Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ: Skoða þarf fyrirkomulag samninga við f lugmenn Atriði í samkomulagi f lugmanna og Flugleiða kann að vera á svig við bráðabirgðalögin Morgunblaðið/Júlíus Frá slysstað. Eins og sést á myndinni er framrúða Fiatsins brotin eftir að höfuð ökumannsins, sem notaði ekki öryggisbelti, skall á henni. Tveir menn slösuð- ust í umferðarslysi „Þau tvö atriði sem talsmaður fjármálaráðuneytisins telur að stangist á við bráðabirgðalögin snúa annars vegar að 25 þúsund króna eingreiðslu, sem er endurgjald fyrir breytingu á kjarasamn- ingi sem lengir heimilaða fjarvist flugmanna um helming. Þessi breyting hefur feiknalega þýðingu fyrir möguleika félagsins að taka að sér leiguflugsverkefni erlendis og það var mat félagsins að þarna væri um slétt skipti að ræða. Það sparar sér verulega fjármuni i flutningi flugáhafna og því sé um einföld kaup á réttindum að tefla. Við teljum að bráðabirgðalögin standi ekki í vegi fyrir þvi að slík hagræðing eigi sér stað, en hvort það hentar i rekstri Landhelgis- gæslu get ég ekki sagt um,“ sagði Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri Vinnuveitendasambands íslands um þá fullyrðingu að samkomulag Flugleiða við Félag íslenskra' atvinnuflugmanna stang- ist á við bráðabirgðalögin. TVEIR slösuðust í umferðarslysi á mótum Sætúns og Kringlumýr- arbrautar um klnkkan 18 í gær. Volkswagen Golf-bifreið var ekið norður Kringlumýrarbraut og beygt í veg fyrir Fiat-bifreið, sem ekið VEÐUR var austur Sætún. Ökumenn beggja bflanna voru fluttir á slysadeild. Ökumaður Fiatsins hafði öryggis- belti ekki spennt. Við áreksturinn skall höfuð hans í framrúðuna, braut hana og fékk maðurinn af talsverða áverka í andliti. „Hitt atriðið snýr að álagi á laun sem flugmenn hafa nokkur síðustu ár haft vegna handbókanotkunar og handbókaumsjár. Þetta gjald hefur verið hundraðshluti af laun- um. Það breyttist núna í fasta krónutölu, þó þannig að það hækk- aði ekki gagnvart launum þeirra sem hæstir voru. Yngri flugmenn njóta þvf góðs af. Ég get út af fyr- ir sig verið sammála því að þetta kunni að vera á svig við bráða- birgðalögin, en stórt frávik getur það ekki talist. Það kann hins veg- ar vel að vera að aldursdreifing flugmanna Landhelgisgæslunnar sé með einhverjum öðrum hætti en- aldursdreifíng flugmanna Flug- leiða, þannig að svona breyting hafí önnur kostnaðaráhrif í för með sér hjá Landhelgisgæslunni gagn- vart þessum níu starfsmönnum hverra kjaramál hafa nú tröliriðið þjóðinni undanfama daga, heldur en gildir hjá Flugleiðum,“ sagði Þórarinn. „Ég hygg að mörg lög í landinu hafí verið brotin í meira mæli á þessu sumri en bráðabirgðalögin hvað þessi atriði varðar. Þetta sýn- ir hins vegar í hnotskum að bein- tenging launa flugmanna Land- helgisgæslunnar og fleiri félaga við laun samkvæmt kjarasamningum Flugleiða og stéttarfélags flug- manna er afar óhentugt fyrirkomu- lag. Þessi reynsla og stöðugt endur- teknu kjaradeilur flugmanna Land- helgisgæslunnar, sem em félagai í FÍA, hljóta að kalla á endurskoðun og endurmat á fyrirkomulagi kjara- samninga við þessa starfsstétt og við fyrir okkar parta emm tilbúnir til samstarfs við ríkisvaldið um að gera samning við alla atvinnuflug- menn í einu lagi. Ég hygg að það væri farsælasta lausnin til frambúð- ar,“ sagði Þórarinn ennfremur. Morgunblaðið/Sverrir Jón Sigurðsson dómsmálaráðherra og Björn Friðfinnson stjórnar- formaður Bifreiðaskoðunar íslands hf. skrifa undir samning um yfirtöku félagsins á skoðun og skráningu ökutækja. Bifreiðaskoðun íslands hf. IDAGk/. 12.00: ' r r r ' ' . Heimild: Veðurstofa islands ' (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær) VEÐURHORFUR í DAG, 11.ÁGÚST1988 YFIRLIT I GÆR: Norðaustan af Jan Mayen er 1.022 mb haað en hægfara 955 mb lægð á sunnanverðu Grænlandshafi og önnur álfka djúp um 400 km suður af Hornafirði hreyfist vestnorðvestur. Hiti breytist lítið. SPÁ: Austan og norðaustan-átt, sums staöar stinningskaldi við suður-ströndina, annars gola eða kaldi. Rigning eða súld við aust- ur- og suður-ströndina og sums staðar síödegisskúrir inn til lands- ins á Suðvesturlandi. Bjart og víða þurrt á Norður- og Vestur- landi. Hiti ó bilinu 10 til 18 stig. VEBURHORFUR NÆSTU DAGA WORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Fremur hæg austlæg átt um land allt. Lítilsháttar súld við norður- og austurströndina, en síðdegisskúrir sunnanlands. Sennilega þurrt og bjart á Vestur- og Norðvesturlandi. Híti verður á bilinu 9 til 16. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Q* Hálfskýjað A__ Skýjað Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / ■» / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma ■j 0 H'rtastig: 10 gráður á Celsius Skúrir « * V El = Þoka = Þokumóða » , » Súld OO Mistur —[- Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavík htti 18 14 veður léttskýjaö skúr Bergen 16 alskýjað Helsinki 17 rigning Kaupmannah. 23 léttskýjað Narssarssuaq 8 rigning Nuuk 7 hálfskýjað Ösló 22 skýjað Stokkhólmur 19 skýjað Þórshöfn 10 þoka Algarve 27 heiðskirt Amsterdam 23 mistur Barcelona 28 lóttskýjað Chicago 24 þokumóða Feneyjar 29 hsiðskfrt Frankfurt 28 hálfskýjað Glasgow 16 rigning Hamborg 19 þokumóða Las Palmas 26 léttskýjað London 20 alskýjað Los Angeles 17 alskýjað Lúxemborg 25 skýjað Madríd 32 lóttskýjað Malaga 30 heiðsklrt Maltorca 31 léttskýjað Montreal 26 mlstur New Vork 27 mistur Paris 27 skýjað Róm 28 heiðskírt San DJego 19 alskýjað Winnlpeg 18 lóttskýjað Samið um skoð- un og skráningu JÓN Sigurðsson dómsmálaráð- Félagi bifvélavirkja og Félags herra undirritaði i gær samning við Bifreiðaskoðun íslands hf. um skoðun og skráningu öku- tækja. Bifreiðaskoðun íslands hf, tók til starfa fyrir skömmu en tekur að fullu til starfa þegar skoðunarstöð í Reykjavík er til- búin. Skipuð hefur verið stjóm hlutafé- lagagsins. Formaður er Björn Frið- fínnsson aðstoðarmaður dómsmála- ráðherra, en aðrir stjómarmenn eru Haukur Ingibergsson, Guðmundur Hilmarsson, Stefán Oddur Magnús- son, Bjöm Ómar Jónsson, Einar Sveinsson og Ingi R. Magnússon. Björn Friðfínnsson sagði við Morgunblaðið að reiknað væri með að skoðunarstöðin yrði tilbúin á fyrri helmingi næsta árs. Enn ætti eftir að taka mikilvægar ákvarðan- ir um hvemig staðið yrði að skoðun á bifreiðum utan höfuðborgarsvæð- isins. Gert er ráð fyrir að félagið taki að sér sölu á nýjum númera- plötum bifreiða. Hlutafé fyrirtækisins er 80 millj- ónir og á ríkissjðður helming hlut- a§ár, tryggingafélögin eiga fjórð- ung og Bflgreinasambandið ásamt íslenskra bifreiðaeigenda eiga fjórð- ung. _____ t _____ Evrópumót yngri spilara í brids: Islending- umg’engur ekki vel ÍSLENSKA liðið á Evrópumóti yngri spilara í brids tapaði leikjum sinum f 11. og 12. umferð og var þá með 152 stig. Svíar og Norð- menn virðast ætla að berjast um sigurinn. ísland tapaði fyrir Norðmönnum, 11-19, í 11. umferð og stðan tapaði liðið fyrir Spánveijum, 8-22. Þau úrslit ollu talsverðum vonbrigðum því Spánverjar eru langneðstir á mótinu þrátt fyrir þennan sigur. í gærkvöldi spilaði íslenska liðið við Tyrki. Eftir 11 umferðir voru Svíar efstir með 217 stig og Norðmenn höfðu 214 stig. ítalir voru með 201 stig, Grikkir 199 og Frakkar 198.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.