Morgunblaðið - 11.08.1988, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 11.08.1988, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1988 HÁR- VÖRURNAR HAFA SÉRSTÖÐU Próteinbætti Manex hárvökvin'n samanstendur af 22 amínósýrum sem inni- halda nægilega lítil mólikúl til að komast inn í hárslíðrið og næra hárrótina með hreint undraverðum árangri. Virkni próteinbætta hárvökvans er ótvíræð: / / / / Hárvökvinn stöðvar hárlos í allt að 100% tilvika. Flasa hverfurí 100% tilvika. I 73% tilvika hefur Manex hárvökvinn endurheimt hár í hársverði þar sem lífsmark er enn með hárrótinni. Með því að bæta hár- vökvanum í permanentfesti, næst langvarandi ending permanents í þunnu hári. / / Próteinbætti Manex hár- vökvinn dregur úr exemi í hársverði. Hárvökvinn lífgar og styrkir hár sem er þurrt og slitið eftir efnameðferð. Manex hárlxkninga- vörumar samanstanda af sjampó, hárnxringu, vítamín- töflum og próteinhættum hárvökva og fást á flestum rakara- og hársnyrtistofum um land allt. Innflutningur og dreifing á góðum matvörum salatið, grænmetið, forréttinn eða til að steikja úr. Góður matur þarfnast góðrar ólífuolíu, sem heitir Bertolli. Bertolli er 100% hrein ólífuolía og án kólestols. BertoIIi ólífuolían er ein mest selda ólífuolía í heimi og gerir nú víð- reist í íslenskum sælkeramat. Þú velur vel með Bertolli ólífuolíu. © VORUMfÐSTÖÐ HEILDSÖLUBIRGÐIR UMBOÐS- 0G HEILDVERSLUN SlMI 680630 XJöföar til X JLfólks í öllum starfsgreinum! A Lista- safni Islands Myndlist Bragi Ásgeirsson Rétt þykir mér að minna á að nú eru síðustu forvöð að skoða sýn- ingu verka Marc Chagalls í Lista- safni íslands. Það verður bið á því að slík sýn- ing rekist hingað á verkum þessa listamanns, sem eru öll í eigu dótt- ur hans, Idu, því að stöðugt eykst eftirspumin eftir því sem söfnum og listamiðstöðvum fjölgar í heimin- um. Það er og ekki víða, sem mögu- legt er að sjá jafn mörg Chagalls á einum stað en verk hans eru dreifð um allan heim. Hér er því um einstakt tækifæri að ræða til að kynnast frumverkum þessa ástsæla listamanns og góður forsmekkur að því að skoða einstök höfuðverk hans á hinum stóru lista- söfnum ytra. Þess má og geta hér að víða í útlandinu leggja menn á sig langar ferðir til að berja slíkar sýningar augum og yfirleitt er múgur og margmenni á þeim alla daga. Eru það eiginlega sérstök forrétt- indi, að geta skoðað slíka sýningu í ró og næði og hvað þá aleinn eins og gerist suma -virka daga þótt aðsókn sé góð um helgar. A þessu sviði hefur þróunin ekki orðið söm hér og í útlandinu þar sem menn þurfa sumstaðar að kaupa að- göngumiða með nokkurra daga fyr- irvara og er hleypt inn í smá hópum. Og ekki skyldu menn láta það aftra sér þótt það kosti nokkur hundruð krónur inn á sýninguna því að vilji menn sjá frumverk þessa Elías B. Halldórs- son sýnir í Bókasafni Kópavogs SYNING stendur nú yfir i lista- stofu Bókasafns Kópavogs á 11 olíumálverkum eftir Elías B. Halldórsson. Elías er listunnendum að góðu kunnur. Hann er fæddur í Borgar- fírði eystra 2.12. 1930, stundaði nám í Myndlista- og handíðaskóla íslands 1955 til 1958, síðan fram- haldsnám við listaakademíuna í Stuttgart í Þýskalandi og við Kon- un'glegu listaakademíuna í Kaup- mannahöfn. Hann hélt sína fyrstu sýningu í Bogasal þjóðminjasafnsins 1961. Síðan heftir hann haldið margar einkasýningar og tekið þátt í sam- sýningum hér heima og erlendis. Er skemmst að minnast stórrar sýningar sem hann héit á Kjarvals- stöðum 1985 og einkasýningar í Gallerí Borg í aprfl síðastliðnum. Elías hefur lengst af búið á Sauð- árkróki, en býr nú í Kópavogi. Sýningin er opin á sama tíma og bókasafnið, mánudaga til föstu- daga kl. 9—21, og stendur hún út ágúst. Bókasafnið er til húsa í Fannborg 3—5, aðgangur er ókeypis og öllum heimill. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.